Morgunblaðið

Date
  • previous monthMay 1993next month
    MoTuWeThFrSaSu
    262728293012
    3456789
    10111213141516
    17181920212223
    24252627282930
    31123456

Morgunblaðið - 26.05.1993, Page 40

Morgunblaðið - 26.05.1993, Page 40
40 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1993 Af hverju kemurðu heim svona snemma? Þú ert von- andi ekki orðinn veikur? HÖGNI HREKKVÍSI /, ÉG Ze/ZÐ AÐ L£G<S7A 4 NÓNA - HÖGNt ZtLL rA /MATINN S/NN!" BRÉF TÍL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329 01 er böl Frá Árna Helgasyni: TORFI í Ólafsdal, sá merki maður sagði: 'í hreinni skyrtu og með góðri samvisku getur maður ferðast um allan heim. Það er mikið til í þessu. Og hann á einnig að hafa sagt: Brennivínið gerir memm kærulausa og undir áhrifum þess gera menn flesta skyssur. Og hvað hefir áfeng- ið í mannfelli og líkamlegu og and- legu böli kostað íslensku þjóðina og hvað mætti gera fyrir þau auðæfi sem þar hafa farið til að kynda jafn- veUundir sóum og auðnuleysi? Ég var fyrir skömmu að lesa grein eftir bandarískan skurðlækni og pró- fessor við háskóla í Virginíu í Amer- íku, þar sem hann talar um blóði- drifnar þjóðbrautir. Hann segir um- búðalaust. Ég er læknir. Gæti ég fundið ráð til þess að lækka um helming dánartölu þeirra sem Iöm- unarveikin leggur árlega í gröfína hér í fylkinu, og á þann hátt bjargað 750 mannslífum á ári, mundi ég fá Nóbelsverðlaun. En strax á þessu augnabliki get ég og hver einn ann- ar, sem nægilega þekkir til, bent á ráð til þess að fækka mjög dauða- slysum á þjóðbrautum. Með því að útiloka gersamlega frá akstri þá menn, sem áfengis neyta, mætti spara árlega hér í Virginíu um 20 þúsund mannslíf, án alls annars. En þótt menn bendi á þessa staðreynd gefur enginn því gaum, jafnvel ekki þeir sem stjórna fylkinu. Manndráp- in halda áfram. Og hvað gætum við sagt hér á okkar góða landi? Hvað skyldu þeir margir sem um árin hafa látið lífið eða limlest af völdum þeirra sem undir áfengisáhrifum aka? Er þetta ekki afsakað og jafnvel af þeim sem eiga að gæta laga og réttar og sýn- ir þetta ekki eina tegund af hugsun- arhætti þar sem mannlífið er ekki mikils metið? Og enn er löggjafinn og þeir sem dómsmálum stjórna að efla drykkjuskap og óreglu hér í landinu með því nú seinast að lengja þann tíma sem veita má áfengi í vínveitingahúsum og er þetta undar- leg hjálp þjóðinni sem í raun og veru ofbýður þetta ef í tal berst. Hinn mæti og góði drengur, Torfi Jónsson, sem starfaði um 25 ár sem einn af aðalmönnum lögreglunnar í Reykjavík, hefir látið þau orð falla í mín eyru að 90% af öllu sem lög- reglan sé að eltast við í dag stafi af völdum vímunnar. Og jafnvel hefi ég hitt kunnuga menn sem vilja bæta 1-2% við. Sjá menn ekki hve skelfilegt þetta er. Hvað skyldi þjóð- in geta grætt á því að stöðva svona óheillaþróun, sem virðist alls staðar vera í heiðri höfð og þykir jafnvel sjálfsagt að efla til að „halda hótel- um“ á lofti eins og kallað er, þótt að kosti fjölda heimila og mannslífa. Og værum við í vanda að byggja upp stórkostlegan atvinnurekstur ef við hefðum þá fjármuni í uppbygg- ingu, sem nú fara í niðurrif hverrar mannssálarinnar af annarri. Kirkjan mín hefir verið hljóð um þessi efni, þetta skiptir hana svo litlu máli. Þegar hvítasunnumenn boða orð drottins hreint og ómengað, gef- ur hún frá sér hljóð, en síðan ekki söguna meir. Það má ekki segja fólki til syndanna. Kirkjan mín fullvissar bara okkur um það að Guð láti eng- an mann glatast, svo mörg eru þau orð og við það situr. Doðinn í þjóðfélaginu er stað- reynd, doðinn fyrir öllu sem til heilla horfir, er það ekki því miður? Og er ekki kominn tími til að öll góð öfl snúist til sóknar móti ógæfu landsins og til eflingar góðs mann- lífs, geri þjóðfélagið betra en það var í gær? Komi dyggðunum að; að fara vel með, virða sannleikann og heiðarleikann, í stað þess að með tómlæti og „þetta kemur mér ekki við“ að framlengja víxla ógæfunnar. Það þarf að betra hugsunarháttinn. íslandi allt. Ekkert minna. ÁRNI HELGASON, Stykkishólmi. HEILRÆÐI VARIST AÐ SKILJA STRAUJÁRN EFTIR ÞAR SEM BÖRN GETA NÁÐ TTL ÞEIRRA, JAFNVEL ÞÓ BÚIÐ SÉ AÐ TAKA ÞAU ÚR SAMBANDI. SLYSAVARNAFÉLAG ÍSLANDS RAUÐI KROSS ÍSLANDS Víkverii skrifar að var uppörvandi að horfa á fréttatíma Sjónvarps nú á sunnudagskvöld, þar sem var greint frá sérstöku framtaki kvenna í Borgarnesi, til uppbyggingar at- vinnulífsins. Frá því var greint að konur í Borgarnesi hefðu það sem af er þessu ári stofnað sex atvinnu- fyrirtæki og kenndi þar ýmissa grasa, eins og vélaverkstæðis, blómabúðar, gjafavöruverslunar, hárgreiðslustofu, fjölritunarstofu og nú síðast kaffistofu. Konurnar létu vel af sér í samtölum við frétta- mann og kváðust hóflega bjartsýn- ar á að atvinnurekstur þeirra ætti eftir að ganga vel. Víkverji vonar að þeim og öðrum Borgnesingum verði að þeirri ósk sinni og telur framtak sem þetta vissulega vera jákvætt innlegg inn í atvinnuþrefs- umræðu þessara daga og vikna. xxx Utskot nefnist fréttabréf Út- flutningsráðs, sem kemur að því er Víkverja skilst út svo gott sem mánaðarlega. í maí-tölublaði Útskots er greint frá viðleitni Is- lenskra sjávarafurða hf. til þess að auka verðmæti þess sjávarfangs sem fyrirtækið hefur til ráðstöfun- ar. íslenskar sjávarafurðir fengu útflutningsverðlaun forseta íslands 1993 fyrir árangursríkt starf að útflutningi á íslenskum vörum og þjónustu til annarra landa. íslensk- ar sjávarafurðir hafa stofnað sér- stakt þróunarsetur sem er miðstöð vöruþróunar og rannsókna og hefur starfsemi þess beinst að þróun nýrra afurða. í fréttabréfinu kemur fram að stofnun þróunarseturs á Kirkjusandi í Reykjavík, sem miðar að því að þróa nýjar afurðir fyrir smásölumarkaði í Evrópu, hefur skilað góðum árangri. Greint er frá því að sérvinnsla ýmissa afurða fyrirtækisins hefur aukist hröðum skrefum á undanföfnum árum og að á tímabilinu 1989 til 1991 hafi sérvinnslan að jafnaði þrefaldast á milli ára og árið 1992 hafi hún aukist um 67% frá árinu áður. „Arð- semi sérvinnslunnar á vegum Is- lenskra sjávarafurða er talin vera 27% meiri en hefðbundinnar vinnslu, miðað við sama hráefnis- magn,“ segir orðrétt í Útskoti. xxx egar rannsóknum og vöruþró- un er lokið í þróunarsetrinu og tiltekin vörutegund hefur sannað tilverurétt sinn á mörkuðum, er framleiðslan flutt í eitthvert af frystihúsum fyrirtækisins á lands- byggðinni. Um 32 starfsmenn hafa haft atvinnu af sérvinnslunni með beinum hætti, en einhveijir starfs- menn að auki óbeint, ýmist í fram- leiðslu aðfanga eða við sölu afurð- anna. Nú hafa fjórir framleiðendur á vegum íslenskra sjávarafurða sérhæft sig í framleiðslu í smásölu- pakkningar, en fjöldi framleiðenda á sérvinnslubitum er um 15 talsins. Samkvæmt fréttabréfinu hefur náðst sérstaklega góður árangur í markaðssetningu sérvinnslunnar í Bretlandi og Belgíu. Ljóst má vera af þessu, að þarna getur verið um öflugan vaxtarbrodd að ræða í is- lensku atvinnulífi og jafnframt tekjulind, sem gefur vel af sér. Því má vel gera sér í hugarlund að fisk- framleiðendur um land allt muni í auknum mæli huga að möguleikum á þessu sviði og reyna að hasla sér völl á sviði sérvinnslu, sem gefur meira af sér, en hefðbundnar pakkningar. Ekki hvað síst er lík- legt að þróun í þá veru verði hrað- ari nú, í árferði aflabrests og sam- dráttar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue: 116. tölublað (26.05.1993)
https://timarit.is/issue/125574

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.

116. tölublað (26.05.1993)

Actions: