Morgunblaðið - 28.05.1993, Side 11
Austræn sveifla
________Jass______________
Guðjón Guðmundsson
Áfram heldur Rúrek ’93 og
sl. miðyikudagskvöld lék tríó á
Sóloni íslandusi skipað Japönun-
um Hiroshi Minami píanóleik-
ara, Masa Kamaguchi kontra-
bassaleikara og íslendingnum
Matthíasi Hemstock trommu-
leikara. Matthías var samtíða
þeim í Berklee tónlistarskólan-
um í Boston og fékk hann þá
til landsins með tilstyrk Rúrek.
Minami er fullmótaður og afar
tæknilegur píanisti. Ásláttur
hans er kraftmikill og hann leik-
ur sér að allrahanda trillum og
útflúri. Túlkun tríósins á Foggy
Day eftir Gershwin var óhefð-
bundin og á köflum allt út í
fijálsan jass, en í upphafs- og
lokakaflanum svíngaði allt ræki-
lega. Þá léku þeir lag úr kvik-
myndinni Merry Christmas Mr.
Lawrence eftir japanska tón-
skáldið Sakamoto. Stefin eru
afar austræn en flutningurinn í
heild snerist um frekari úr-
vinnslu á þeim og var ekki látið
staðar numið fyrr en tónlistin
var komin út úr formi og takti.
Verkið eða flutningur þess var
fulllangt og tilraunakennt til að
hreyfa við undirrituðum, en tríó-
ið bætti það upp í næsta númeri
sem var blús eftir Minami.
Brennuvargarnir voru í Djúp-
inu sama kvöld, en sveitina skipa
Sigurður Flosason altsaxófónn,
Edvald Lárusson gítar, Arnold
Ludvig kontrabassi og Einar
Valur Scheving trommur. Gaml-
ir jassslagarar voru teknir til
skoðunar og margt var vel gert.
Edvald er áhugaverður gítar-
leikari með sánd sem erfitt er
að henda reiður á, nema það sé
hans eigin afurð. Þáttur Færey-
inga í Rúrek er töluverður, því
auk Arnolds, sem hljómaði vel í
Djúpinu en virkaði nokkuð
ófijáls vegna nótnalesturs, hafa
landar hans Magnus Johansen
og James Olsen komið fram á
hátíðinni.
Annar hápunktur Rúrek verð-
ur í kvöld í Súlnasal þegar kvart-
ett Sven Asmussen kemur fram.
Þá gefst á ný kærkomið tæki-
færi til að hlýða_ á Jesper
Lundgaard, sem bjargaði tón-
leikum Freddie Hubbards fyrir
horn sl. þriðjudag, auk meistara-
fiðlarans danska, gítaristans
Jacobs Fishers og trommarans
Aage Tangaard.
Morgunblaðið/Sverrir
Kjarvalsstaðir
Sumarsýning á
verkum Kjarvals
SÝNING á verkum eftir Jóhannes S. Kjarval sem eru í eigu Lista-
safns Reykjavíkur var opnuð síðastliðinn laugardag, 22. maí. Að
þessu sinni er megináhersla lögð á að sýna teikningar Kjarvals
og „manneskjuna“ í list hans. A sýningunni eru margir „hausar“
eins og þeir hafa verið kallaðir og málverk og teikningar af fólki,
bæði raunverulegu sem óraunverulegu.
Einnig eru fyrirferðarmiklar á
sýningunni skissur Kjarvals og
verk þar sem hann blandaði saman
texta og myndum, en Kjarval skrif-
aði gjarnan niður hugleiðingar sín-
ar um lífið og tilveruna og mynd-
skreytti þær. Að auki eru sýndar
bækur þær sem hann skrifaði,
dúkskurðarmyndir, handrit og
uppköst að ljóðum sem .hann orti.
Þannig að segja má að verið sé
að sýna „skáldið“ Jóhannes S.
Kjarval í eilítið nýju ljósi.
Kjai-val er óumdeilanlega einn
helsti meistari íslendinga á sviði
myndlistar og skipa verk eftir hann
stóran sess í huga þjóðarinnar.
Hann fæddist á Efriey í Meðal-
landi árið 1885 og lést í Reykjavík
1972 og skildi eftir sig lífsstarf sem
verður að teljast einn af mikilvæg-
ari hlutum í menningararfi þjóðar-
innar. Kjai'valsstaðir eiga mikið
safn verka eftir hann og er stofn
þess gjöf listamannsins til Reykja-
víkurborgar 1968 en síðan þá hafa
Grieg-hópurinn sem býður upp á ýmis tilbrigði við flutning á tónlist Griegs á tónleikum sínum.
Vestnorskir dagar í Norræna húsinu
Tónlist og þjóðlegar
hefðir allsráðandi
Svipmynd frá hefðbundnu Voss-brúðkaupi.
í KVÖLD, föstudaginn 28. maí,
verða settir Vestnorskir dagar
í Norræna húsinu í Reykjavík.
Að loknum ræðuhöldum og
veitingu styrks úr Framþróun-
arsjóði norrænnar menningai’,
samfélags- og heilbrigðis fyrir
ungmenni, hefjast tónleikar þar
sem flutt verður tónlist norska
tónskáldsins Edvards Griegs.
Fjölbreytt dagskrá verður allt
til loka Vestnorsku daganna.
Kynnt verður menntun, menn-
ing og hefðir í Vestur-Noregi og
má m.a. nefna að fimm manns frá
heimilisiðnaðarfélaginu í Voss í
Noregi munu sýna ýmis vinnu-
brögð við framleiðslu á norskum
Jóhannes S. Kjarval.
fjölmargir einstaklingar gefið
safninu ómetanleg verk og þannig
stuðlað að með velvilja sínum að
mögulegt sé að halda minningu
listamannsins á lofti á verðugan
hátt.
Sýningar á verkum Kjarvals
hafa verið með reglulegu millibili
allt frá því að Kjarvalsstaðir voru
opnaðir fyrir 25 árum, og stendur
sýningin nú yfir í allt sumar.
heimilisiðnaði í íslenskum heimilis-
iðnaði á morgun, laugardaginn 29.
maí, milli kl. 10 og 14. Einnig mun
hópur frá Voss Spelemannslag
spila og sýna þjóðdansa á Lækjar-
torgi. Kl. 14 mun hópur Vestlend-
inga frá Voss kynna gamla brúð-
kaupshefð og fer hún þannig fram
að brúðhjónin ríða ásamt fríðu
föruneyti um götur bæjarins. Riðið
verður frá Laugardal niður Suður-
landsbraut og Laugaveg yfir
Hlemm og að Lækjartorgi. Þaðan
verður farið eftir Fríkirkjuvegi og
Skothúsvegi að Norræna húsinu
þar sem þjóðdansar og tónlist
verða allsráðandi.
Hvítasunnudagur
Sunnudaginn 30. maí, hvíta-
sunnudag, verður norsk-íslensk
guðsþjónusta í Hallgrímskirkju og
mun Halfdan Tsschudi Bondevik,
dómprófastur í Björgvin, predika
en Sigurður Pálsson þjónar fyrir
altari. Guðsþjónustan fer fram á
norsku en fluttur verður útdráttur
úr predikuninni á íslensku. Sex
hljóðfæraleikarar úr Grieg-hópn-
um leika, en þeir slást svo aftur í
för með félögum sínum síðar um
daginn þegar haldnir verða Grieg-
tónleikar í Norræna húsinu kl. 17.
Norðmenn fagna því um þessar
mundir að 150 ár eru liðin frá
fæðingu hans, en verk hans eru
þekkt um heim allan og almennt
talin til hins besta í norskri tón-
list. Grieg-hópurinn er skipaður
tónlistarmönnum frá Hordlands-
fylki í Vestur-Noregi og hafa þeir
sett saman nýstárlega dagskrá
sem samanstendur m.a. af hefð-
bundnum flutningi á tónlist Gri-
egs, eilítið jazz-kenndum flutningi
og í vísna- og þjóðlagaformi.
Annar í hvítasunnu
Næstkomandi mánudag, annan
í hvítasunnu, flyst dagskrá Vest-
norsku daganna út fyrir borgar-
mörkin og til Reykjaskóla í Hrúta-
firði. Þar verður m.a. endurtekið
Voss-brúðkaup, sýning á þjóðdöns-
um, þjóðlög leikin og kynntur
heimilisiðnaður og hefðir, bæði frá
Voss og Húnavatnssýslu. Hefst sú
dagskrá kl. 14 og stendur til kl. 18.
PUMA-D 27., 28. og 29. mai AGAR
20% afsláttur »hummel^ SPORTBÚÐIN Ármúla 40