Morgunblaðið - 28.05.1993, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 28.05.1993, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 1993 86^ IAM HUOAaUTSO^ GIGA^fW^OHOM Hvers vegna ekki slökkvmðsmenn? eftirMagnús Björgvinsson Fyrir nokkrum árum var ég ásamt fleiri fulltrúum frá BSRB í svokallaðri Kjaradeilunefnd. Sú nefnd átti að ákveða hvetjir væru í starfi í verkfalli opinberra starfs- manna. Ekki urðu vinsældir okkar fulltrúa BSRB miklar af þessu starfi, en nóg um það. í nefnd þess- ari voru frá hálfu hæstaréttar, al- þingis og viðsemjenda opinberra starfsmanna hinir færustu lögfræð- ingar, þar á meðal ríkis- og borgar- lögmaður. Við urðum þess varir að í hvert sinn er túlka þurfti laga- greinar að þessir lögfræðingar lásu vandlega athugasemdir sem fylgja venjuléga frumvörpum til laga. Þar segir kannski betur en í frumvörp- unum sjálfum hver var hinn raun- verulegi tilgangur og ætlunarverk flutningsmanns umrædds frum- varps. Það kom reyndar fram eitt sinn í Kjaradeilunefnd er verið var að §alla um túlkun lagagreinar að einn lögfræðinganna komst þannig að orði að „nokkrar gáfur þyrftu menn að hafa til að fikta við lagatúlkan- ir“. Því kom mér þetta í hug að viðsemjendur slökkviliðsmanna höfnuðu samningsrétti okkar og rétti til að stofna fagstéttarfélag. Þegar lögunum um kjarasamninga opinberra starfsmanna var breytt 1986 var Þorsteinn Pálsson fjár- málaráðherra og flutningsmaður þess frumvarps. Þar segir í 3. tl. 5. greinar: „Að félag taki til a.m.k. % hluta þeirra starfsmanna sem undir lögin heyra og eru í starfsstétt með lögformleg starfsréttindi eða uppfylla skilyrði um formlega menntun sem jafna má til slíkra starfsréttinda og að þeir félagsmenn séu 40 eða fleiri." „Hvaða skynsemi er í því að neita slökkviliðs- mönnum um að virða stofnun stéttarfélags þegar fyrir eru stéttar- félög lögreglumanna, tollvarða, hjúkrunar- fræðinga, fóstra, ljós- mæðra og sjúkraliða?“ Öll þessi ákvæði teljum við óhikað að við uppfyllum og tilkynntum því stofnun stétarfélagsins. Höskuldur Einarsson hefur í grein í Morgunblaðinu 30. apr. sl. fjallað vel um lagahliðar þessa máls og álit lögfræðinga. Einnig fer Höskuldur mjög vel ofan í menntun- armál slökkviliðsmanna, svo ég eyði ekki rúmi í þau þau mál hér. Það hljóta að vakna ýmsar spurn- ingar í svona máli eins og hvort slökkviliðsmenn séu ekki starfs- stétt. Forsætisráðherra sagði við okkur í mótmælagöngu okkar 20. apr. sl. að hann bæri mikla virðingu fyrir starfi okkar. Ásetningur að undanskilja slökkviliðsmenn? Slökkviliðsmenn eru ein elsta stétt á landinu enda lög um bruna- mál hátt á annað hundrað ára göm- ul og jafnvel þá sáu ráðamenn nauð- syn þess að hafa gott slökkvilið. Hvaða menntun er nauðsynleg til að stofna stéttarfélag? Er virkilega svo komið að ekki sé hægt að stofna stéttarfélag nema hafa háskóla- próf? Viðurkenndur skóli fyrir slökkvi- liðsmenn er ekki á íslandi nema hjá slökkviliðunum sjálfum og farskóli Brunamálastofnunar ríkisins en margir slökkviliðsmenn hafa sótt slíka skóla erlendis og eru mjög góðir kennarar. Kennsla fer því fram á námskeiðum og í æfíngum í starfinu. Svona kennsla tekur lengri tíma en í skóla en þarf ekki að vera verri. Slökkviliðsmenn hafa í áratugi barist fyrir bættri og fljót- virkari menntun og er slíks skóla vonandi ekki langt að bíða. Það vekur samt undrun okkar slökkviliðsmanna að sveitarstjómir skuli telja menntun í starfí svo ábótavant að ekki sé hægt að segja að um stétt sé að ræða. Því gerðu ráðamenn ekkert í þessu máli fyrr? Þá hlýtur maður einnig að spyrja: Var það einlægur ásetningur Þor- steins Pálssonar þáverandi fjár- málaráðherra að undanskilja slökkviliðsmenn þegar lögin voru samin og þá hvers vegna? I athuga- semdum sem fylgdu lagafrumvarpi þessú segir m.a. „Grein þessi (þ.e. 5. grein) tekur til þeirra starfs- stétta sem hafa starfsréttindi sem bundin em í lögum eða reglugerð- um svo og fagstétta sem þurfa hlið- stæða sérhæfíngu og sérþjálfun til þeirra starfa sem þær annast.“ Viðurkenningu þarf ekki til Kristján Thorlacius, þáverandi formaður BSRB, segir í 3. tbl. BSRB frétta 1987 undir fyrirsögn- inni „Stóraukið starf BSRB“: „Ný lög um samningsrétt. — I lok ársins 1986 vom sam- þykkt'ný lög um samningsrétt opin- berra starfsmanna. Hvaða breyt- ingar hafa þau haft í för með sér? Þessi nýja heildarlöggjöf um samn- ingsréttinn er byggð á samkomu- lagi um fmmvarp sem samið var af fulltrúum ríkisins, Sambands sveitarfélaga og 3 heildarsamtaka opinberra starfsmanna þar á meðaí fulltrúum BSRB. Helstu breytingar sem hin nýja samningsréttarlöggjöf felur í sér em þessar: Samningsrétturinn er fluttur til einstakra stéttarfélaga. Starfsmannafélög þurfa að upp- fylla tiltekin skilyrði til að fá samn- ingsrétt. Hins vegar er fellt niður ákvæði um, að ríki, sveitarfélag eða aðrir viðsemjendur þurfí að viður- kenna félag til þess að það öðlist samningsrétt. Verkfallsréttur er nú hjá þeim félögum, sem samningsréttinn hafa. Verkfallsrétturinn er í flestum tilfellum rýmkaður mjög. T.d. hafa um % starfsmanna í heilbrigðis- þjónustunni nú verkfallsrétt. Kjaradeilunefnd, sem úrskurðaði áður hveijir máttu fara í verkfall, er lögð niður. Kjaradómur er úr sögunni. Samflot félaga við samningsgerð er heimilt. Nú er verið að koma á kjararann- sóknum samkvæmt ákvæði í samn- ingsréttarlögunum. Þessar kjara- rannsóknir verða framkvæmdar á óhlutlægan hátt af sérstakri stofn- un, sem stjórnað verður af kjara- rannsóknamefnd, sem skipuð hefur verið af samningsaðilum." Eins og kemur fram í þessari frétt áleit Kristján sem aðili að sam- komulagi um lög þessi að ekki þurfí að leita eftir sérstakri viðurkenn- ingu ríkis eða sveitarfélaga til að öðlast samningsrétt. Það er líka m.a. ástæðan fyrir því að við leitum ekki til Félagsdóms til að útkljá þetta mál. Önnur ástæða er rótgróin tor- tryggni í garð dómstóla um kjara- og réttindamál og má þar nefna Kjaradóm og Kjaradeilunefnd en þau voru lögð niður með lögum þessum. Hvaða skynsemi er í því að neita slökkviliðsmönnum um að virða stofnun stéttarfélags þegar fyrir 21 Magnús Björgvinsson eru stéttarfélög lögreglumanna, tollvarða, hjúkrunarfræðinga, fóstra, ljósmæðra og sjúkraliða? Menntunarkröfur þessara stétta er mjög mismunandi og sumar þessara stétta hafa fjölda viðsemjenda. Vera má að einhveijir spekingar geti „fiktað svo við lagatúlkanir" að menntun okkar og þjálfun sem hefur hingað til að mestu farið fram á vinnustað, verði einskis metin, en ef svo fer þarf einfaldlega að breyta lögunum. Við slökkviliðsmenn vinnum þessa deilu. Við tökum okkur þann tíma sem þarf til þess. Meðan deil- an varir þarf engan að undra þó óánægju verði vart á vinnustöðum og er hún reyndar þegar farin að koma í ijós. Slökkviliðsmenn, stöndum saman áfram eins og hingað til. Baráttukveðjur. Höfundur er a ðalvsirðs tjóri í slökkviliði Reykjavikurflugvallur - tryggja betri endingu í ísskápnum MJÓLKURSAMSALAN Nú hafa verið teknar í notkun breyttar umbúðir undir ýmsar gerðir af jógúrti og skyri til mikils hagræðis fyrir neytendur. Dósirnar eru víðari en áður sem gerir þær auðveldari í notkun. Jafnframt eru komin plastlok á stærri dósirnar sem setja má á aftur að máltíð lokinni ef afgangur verður. - Þú getur því verið viss um að jógúrt og skyr endist nú betur í ísskápnum þínum!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.