Morgunblaðið - 28.05.1993, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 1993
ft-
Aðstaða aldiaðia fyrr og nú
Hugleiðingar 1 sambandi við ár aldraðra 1993
eftír Filippíu
Kristjánsdóttur,
Hugrúnu
Ungbarnið er óskrifað blað, en
tíminn teygir lopann sinn og ævi-
skeið mannanna fylgir eftir, stutt
eða langt, eftir ráðstöfun skapar-
ans. Ég minnist þess frá bernskuár-
unum, hve margir voru orðnir gaml-
ir í útliti löngu fyrir tímann, á svip-
uðu aldursskeiði og fjöldinn allur
er unglegur nú á tímum. Það dylst
engum sem eitthvað hugsar hvað
því veldur. Framfarirnar á vegum
tækninnar sem hefur skapast vegna
hámenningar vísindanna. Öll aðbúð
hefur gjörbreyst. Það er ekki hægt
að ætlast til þess að æskufólkið,
ungviðið sem nú er að vaxa úr grasi,
geti skilið, hvað forfeður og -mæður
urðu að ganga í gegnum á lífsleið-
inni, þótt reynt væri að segja þeim
bara hálfan sannleikann. Svo langt
er bilið frá örbirgðinni til alsnægt-
anna. Margt af þessu fólki var hetj-
ur, það var svo vel lesandi á bók
lífsins, trú, hagsýni, nýtni, nægju-
semi og fyrirhyggju. Það er vandr-
atað á meðalhófið þegar tækifærið
er til staðar og menn geta valið og
hafnað. Það grípur mig stundum
ótti að nú sé æskulýðurinn ofalinn,
en ég gleðst yfir velgengni hans.
Hann þarf að fá tækifæri til þess
að búa sig undir baráttu lífsins, líf
án baráttu er ekki til. Á bernskuár-
unum var ellin mér óviðkomandi,
mér fannst hún svo langt í burtu
persónulega. Bara einhvers staðar
lengst úti í fjarlægðinni. Ég bar
virðingu fyrir öldungunum, mér
fannst viskan búa í þeim og með
þeim. Ævintýrin, sögumar, vísurn-
ar og þulumar, sem við fengum að
heyra, voru dýrgripir. Húslestramir
og bænaversin urðu okkur andlegt
brauð, sem maður býr að alla sína
ævi. Þetta er mín reynsla, sem mér
finnst svo nauðsynlegt að fá að
deila með öðrum, segja öðrum frá.
Ég hef oft hugsað um það hvernig
fólkið hafi getað komist af læknis-
laust eða í svo mikilli ijarlægð að
langan tíma tók að ná tij þeirra.
Ljósmæður og læknar urðu oft að
leggja mikið á sig til þess að ná til
þeirra sem í nauðum voru staddir
og biðu eftir hjálpinni. Þá var held-
ur ekki sími tiltækur. Nú er hægt
að afgreiða svo margt síðan þetta
ómissandi töfratæki gerði allt svo
auðvelt. Skáldið og glæsimennið
Hannes Hafstein varð fyrstur til
þess að hefja máls á því að þjóð-
inni væri nauðsynlegt að fá símann.
Af því tilefni ferðaðist hann um
landið að tala um fyrir mönnum og
fá þá til liðs við sig. Mér dettur
þetta í hug, þegar ég lít á hjólastóla-
fólk sem hefur öðlast svo mikið
öryggi, að geta nú haft símatækið
á borðinu sem sett er í samband
við stólinn. Fyrst í stað var þetta
uppátæki Hannesar talið óðs manns
æði, en nú geta víst fá heimilin og
fyrirtækin verið án símans.
MiklirTirðu oft erfiðleikarnir þeg-
ar gamia fólkið gat ekki unnið leng-
ur á heimilinu vegna hrumleika eða
veikinda. Þá var ekki um annað að
gera en leggjast í kör hver í sínu
horni. Það var mikið álag fyrir
heimilin en allir reyndu að gera sitt
besta með kærleikann í fyrirrúmi.
Hann græddi margt sárið.og þerr-
aði margt tárið. Og allt bjargaðist
þetta einhvern veginn. Nú er ég
ekki að tala um sveitarómagana,
ég var svo lánsöm að kynnast ekki
þeirra málum nema af afspurn. Nú
er sú hörmungin gengin yfir. Kona
sagði mér eitt sinn frá því að þegar
hún var barn hafði verið komið á
heimili foreldra hennar með einn
af þessum krossberum. Þau hjón
höfðu lofað að annast hana (það
var kona) einhvern tíma. Þau sem
komu með hana spurðu: „Á hvaða
bás í ijósinu á hún að fara?“ „Hún
á ekki að fara á neinn bás,“ sagði
móðirin. Síðan tók hún konuna,
þvoði hana alla, kembdi og gaf
henni besta matinn sem hún átti í
búrinu. Rumið beið hennar hreint
og hlýtt. í þessari paradís bjó hún
langan tíma. Þarna var kærleikur-
inn að verki. Enda segir í Heilagri
ritningu að hann sé æðstur náðar-
gjafanna.
Þegar elli- og hjúkrunarheimilið
Grund tók til starfa, fannst víst
sumum þetta bruðl og algjör óþarfi.
En aðrir munu hafa séð að þetta
var mikið þarfa fyrirtæki og svo
mun hafa verið. Þökk sé þeim er
ruddu brautina. Nú rísa heimilin
hvert eftir annað og fyllast jafnóð-
um af þurfandi, öldruðu fólki, og
færri komast að en vilja, því biðlist-
ar munu vera æði langir. Þegar ég
missti manninn minn fór ég strax
að hugsa fyrir væntanlegum elliár-
um. Eg vildi vera viss um að ég
þyrfti ekki að íþyngja börnunum
mínum, hver veit fyrirfram hvað
fylgir þessu æviskeiði? Ég gat orðið
eins og óþekkur krakki eða vilja
taka ráðin af húsbændunum. Flest-
i_r vilja halda reisn sinni sem lengst.
Ég sótti því um hjá Félagsmála-
stofnun, og beið svo róleg og árin
liðu. Dag einn frétti ég að borgin
væri að byggja stórhýsi fyrir þá
öldruðu. Þá vaknaði hjá mér von.
Ég átti góða að og heilsan að minna
mig á aldurinn. Þegar hér var kom-
ið hafði ég fengið mér nýjan mann,
„það lifir lengi í gömlum glæðum".
Dag einn barst mér bréf þess efnis,
að okkur væri ætluð tveggja her-
bergja íbúð með öllum þægindum
Filippía Kristjánsdóttir, Hugrún.
og þjónustu í nýja húsinu, „Selja-
hlíð“ í Breiðholti. Ég var himinsæl,
en annað var að segja um mann-
inn, hann ætlaði svo sannarlega
ekki á ellihimili, hafði bara ekkert
þangað að gera. Hann er á aldur
við mig en heilsan betri svo hann
var alls ekki undir það búinn að
ganga í félag með gamla fólkinu.
Þetta var bara regin hneyksli.
Smátt og smátt fór hann að róast
þegar ég tilkynnti honum,_ að ég
færi hvað sem hann gerði. Ég held
að hann hafi ekki iðrast þess einn
einasta dag, þessi sex og hálft ár
sem við höfum dvalist í Seljahlíð.
Aðkoman var mjög hlýleg og allt í
besta lagi. Það mun ekki vera heigl-
um hent að stjórna svona mann-
mörgu heimili með íbúa frá ýmsum
stöðum og stéttum. Það nálgast
kraftaverk að sameina svo ólíka
hjörð og vinna þannig að því að
allir geti fundið sig heima. Mér
finnst það hafa tekist mjög vel í
Seljahlíð.
Stjórn heimilisins vinnur að því,
að allir geti fundið sig heima, en
ekki eins og fuglar í búrum. Þó
verða alltaf einhveijir sem ekki er
hægt að gera til hæfís, það eru sjúk-
lingar sem verða líka að fá sína
sérstöku meðferð. Ég held að það
sé jafnvel vandasamara að vinna á
svona heimilum en á sjúkrahúsum.
Mér finnst Seljahlíð hafi þegar á
allt er litið verið heppið með starfs-
fólk. Alltaf getur eitthvað smávegis
komið upp á, þá kemur vandinn og
skynsemin til að reyna að greiða
úr flækjunni svo allfe gleymist. Öldr-
uð kona sagði mér frá atviki. Henni
fannst sér misboðið af starfsstúlku
sem átti að hlynna að henni. Hún
náði í vin sem hughreysti hana og
sagði honum allt eins og var um
það sem hafði komið fyrir. Hún
sagði að ráð hans hefðu hjálpað sér
og meira að segja læknað sig af
óþarfa viðkvæmni gagnvart sjálfri
sér. Hann sagði: „Það getur eitt-
hvað erfitt hafa legið á hjarta að-
stoðarstúlkunnar, við vitum ekki
hvað í annars barmi býr, hún segir
ekki frá erfiðleikunum, hún verður
að vinna sitt ákveðna starf og láta
sem ekkert sé og fyrir vanlíðan
getur henni hafa orðið á að segja
eða gera þver öfugt við vilja sinn
eða skyldu í aðhlynningarstarfinu.
Þetta skaltu hafa hugfast þegar
eitthvað líkt hendir í annað sinn.
Það var sigur fyrir þig að klaga
ekki stúlkuna." Mér leið strax betur
og hugsaði með mér: „Svo lengi
lærir sá er lifir“.
Mér verður alla tíð minnisstætt
þegar ég sjálf í fyrsta sinn heyrði
að ég var kölluð „gamla konan“.
Ég var stödd á sjúkrahúsi og beið
eftir því að læknir liti á mig eftir
að hafði lent í slysi og brotnað á
þremur stöðum. Það voru margir á
undan mér og biðin mín var orðin
svo löng að ég var bæði þjáð og
óþolinmóð. Ég var orðin ein eftir
með læknunum. Heyri ég þá aðstoð-
arlækninn segja við yfirmann sinn:
„Nú eigurn við að líta á rgömlu
konuna“.“ Ég hrökk í kút. Eg varð
svo reið, mér fannst læknirinn svo
óforskammaður að kalla mig gömlu
konuna! Mig langaði til að velta
'
f
!«
i
Aukið ofbeldi á Islandi:
Goðsögn eða veruleiki?
eftir Helga
Gunnlaugsson
Umræða um ofbeldi hefur verið
áberandi í fjölmiðlum undanfarin
misseri og hefur undirtónninn ein-
kennst af því að ofbeldi fari vaxandi
á Islandi og ýmis teikn dregin fram
því til sannindamerkis. En þó hug-
takið ofbeldi virðist í fljótu bragði
vera einfalt þá á ofbeldið sér fjöl-
margar víddir, sem ekki eru allar
jafn áberandi í opinberri umræðu
um ofbeldi. Heimilisofbeldi er t.d.
nöturleg staðreynd og því hefur ver-
ið haldið fram af mörgum fræði-
mönnum að heimilið sé ofbeldis-
fyllsti vettvangur samfélagsins og
að líkurnar á því að verða fyrir of-
beldi innan veggja heimilisins af
hendi einhvers nákomins séu marg-
falt meiri en að verða fyrir ofbeldi
á götu úti. Önnur form af ofbeldi
og iðulega meir áberandi í fjölmiðl-
um eru kynferðisbrot, manndráp,
rán og svo huglægari afbrigði og
duldari eins og einelti meðal barna
og unglinga.
Ef við lítum einungis á tíðni alvar-
legra líkamsmeiðinga á Islandi í ljósi
dóma á undanförnum áratugum þá
hefur umfang þeirra heldur minnkað
í hlutfalli við önnur brot. Svipuð
mynd blasir við okkur ef við lítum
á ástæður fangavistar á síðustu
árum; t.d. voru færri í fangelsi fyrir
líkamsárásir í kjölfar meintrar of-
beldisöldu í miðborg Reykjavíkur
haustið 1989 en var fyrir hana, en
eins og marga rekur eflaust minni
til var mikil fjölmiðlaumljöllun um
ofbeldi á götum Reykjavíkur það
haust. Enn fremur hefur heldur
dregið úr fjölda kæra til Rannsókn-
arlögreglu ríkisins (RLR) fyrir lík-
amsárásir á undanförnum árum,
sérstaklega kærum vegna minni
háttar líkamsmeiðinga..
Hins vegar er formlegur eða op-
inber veruleiki ofbeldismála ekki
endilega sá sami og hinn félagslegi
raunveruleiki; t.d. má vera að opin-
ber meðferð ofbeldismála hafi breysí
í gegnum tíðina eða að færri slík
mál séu kærð til lögreglu en áður -
frekar en að raunverulegt umfang
hafi lítið breyst eða jafnvel minnkað
eins og hinn formlegi veruleiki virð-
ist benda til.
Auk þess hefur eðli ofbeldisverka
kannski breyst. Hér’er ég að velta
upp þeim möguleika að hugsanlega
hafi tilviljunarkenndum ofbeldis-
verkum án sýnilegrar ástæðu milli
ókunnugra fjölgað á undanförnum
árum og þetta skýri a.m.k. að ein-
hveiju leyti aukna umfjöllun fjöl-
miðla um ofbeldi í samfélaginu.
Áður fyrr einkenndist ofbeldi iðulega
meir af persónulegum illdeilum, oft
í ölæði, sem menn reyndu að leysa
með handalögmálum en tilefnislaust
ofbeldi var fátíðara. Ofbeldi án sýni-
legrar ástæðu er hins vegar erfiðara
að skilja og það setur því eðlilega
meiri ugg að okkur ef slíkum verkum
fjölgar í samfélaginu. Þessi hlið of-
beldis hefur ekki verið nægilega
könnuð og þyrfti óhikað að bæta
úr því.
Skýringar á ofbeldisverkum
íslenskt samfélag hefur gerbreyst
á fáum áratugum úr því að vera
dreifbýlt bænda- og fiskimannaþjóð-
félag sem fól í sér náin og persónu-
leg samskipti fólks sem miðuðust
við tiltölulega fámenna hópa, yfir í
það að vera iðnvætt borgarasamfé-
lag þar sem samskipti eru fjölþætt-
ari og yfirborðslegri við fjölmarga
aðila. Þessar þjóðfélagsbreytingar
geta undir vissum kringumstæðum
grafið undan trausti, virðingu og
tillitssemi við náungann sem fá-
mennari og einsleitari samfélög ein-
att skapa og þegar við þetta bætist
rof eða samskiptaleysi á milli fuliorð-
inna og barna í viðbót við versnandi
kjör og aukin ójöfnuð, má fastlega
búast við alvarlegum glæpum eins
og ofbeldisverkum í kjölfarið. Að
sama skapi má líta á aukna vímu-
efnanotkun sem afleiðingu þessara
margháttuðu samfélagsbreytinga og
getur hún því vart talist ein og sér
orsök ofbeldisverka heldur verður
að skoðast í tengslum við breyttar
samfélagsforsendur sem ala af sér
bæði alvarlegri ofbeldisverk og
aukna misnotkun vímuefna. Sama
má segja um áhrif myndbanda á
ofbeldisverk; þau geta varla ein og
sér verið sökudólgur ofbeldisverka
heldur liggja skýringar dýpra í sam-
félagsgerðinni sjálfri. Margir síbro-
taunglingar, m.a. þeir sem beita of-
beldi, koma úr brotnum fjölskyldu-
tengslum þar sem ofbeldi hefur við-
gengist, skólaganga verið í molum
og efnahagsleg kjör verið bág. Mis-
notkun vímuefna verður síðan fylgi-
fiskur þessara ungmenna og ofbeld-
ismyndir virðast geta haft meiri
áhrif á þennan hóp en aðra í samfé-
laginu.
Urræði samfélagsins
En til hvaða aðgerða getur sam-
félagið gripið til að draga úr ofbeld-
isverkum? í ljósi umræðunnar að
Helgi Gunnlaugsson
„Yið verðum, ef við vilj-
um leitast við að upp-
ræta vandann, að taka
á rótum hans sem ligg-
ur í hinu þjóðfélagslega
umhverfi sem við sköp-
um börnunum okkar og
okkur öllum.“
framan um orsakir ofbeldis tel ég
að ekki sé nægilegt að einblína ein-
göngu á réttarfarsleg úrræði s.s.
hertar refsingar. Við verðum, ef við
viljum leitast við að uppræta vand-
apn, að taka á rótum hans sem ligg-
ur í hinu þjóðfélagslega umhverfi
sem við sköpum börnunum okkar
og okkur öllum. Ef skil myndast á
milli kynslóða í formi afskiptaleysis
af málefnum ungmenna eða ef skort-
ur er á markvissu og samfelldu starfi
með for- og grunnskólabörnum,
verðum við jafnframt að gera okkur
grein fyrir að búast má við margvís-
legum vanda í lífi þeirra og enn frek-
ar ef lífskjör fara versnandi og bilið
eykst á milli þjóðfélagshópa. Fjöl-
skyldan, sem áður var svo til eina
kjölfestan í mótun barna, er í dag
vart í stakk búin til að mæta ein
hinum nýja samfélagslega veruleika
og því v^rður að koma til aðgerða
opinberra aðila til samræmingar á
tengslum ijölskyldunnar gagnvart
bæði atvinnulífi og uppeldi ung-
menna. Áhersla á hertar refsingar
mun ein og sér ekki skila viðunandi
árangri, en þó er vissulega hægt að
auka skilvirkni réttarkerfisins með
ýmsum hætti. Það hefur t.d. verið
sýnt fram á að skjót og markviss
viðbrögð löggæsluaðila við afbrotum
í formi m.a. aukinnar löggæslu á
álagstímum eða beitingu sekta eða
annarra viðurlaga strax í kjölfar
brota geta skilað árangri
Niðurlag
í lokin held ég þó að það sé rétt
að benda á, að þrátt fyrir ýmis teikn
um aukin afbrot og jafnvel eðlis-
breytingar á ofbeldi í íslensku sam-
félagi, þá búum við samt sem áður
enn í tiltölulega friðsömu samfélagi,
sem er í samanburði við flest önnur
iðnríki með hlutfallslega lægri tíðni
afbrota af alvarlegra taginu; s.s.
manndráp, rán og meiriháttar lík-
amsmeiðingar. Fámennið hjá okkur
hefur skapað grundvöll fyrir nánari
og heilsteyptari félagstengsl sem
geta skapað meiri virðingu og tillits-
semi í garð náungans en einatt gefst
í fjölmennari og félagslega sundur-
leitari samfélögum.
Á tímum samdráttar og samfé-
lagslegrar svartsýni er hollt að hafa
ofangreind atriði í huga; við búum
að ýmsu leyti í einstöku samfélagi
með ótal kostum sem við ættum að
leitast við að vernda og hlúa að á
sama tíma og við tengjumst æ meir
hinu alþjóðlega samfélagi.
I
i
\i
(
|f
i
i
Höfundur starfar við Háskóla
Islands og Mcnntaskólann í
Rcykjavík.