Morgunblaðið - 28.05.1993, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 1993
Kíiiverjar njóta áfram
bestu viðskiptakjara
Washington. Reuter.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti
ákvað í gær að Kínveijar myndu
áfram njóta bestu kjara í við-
skiptum við Bandaríkin út
næsta ár. Sagðist hann með
þeim hætti vilja stuðla að fram-
förum og umbótum í Kína.
Clinton sagði að það þjónaði
bæði hagsmunum Bandaríkja-
manna og Kínveija að þeir síðar-
nefndu nytu áfram bestu viðskip-
takjara. Hann sagðist þó vilja
koma því skýrt á framfæri við
Kínveija að þeir yrðu að taka sig
á í mannréttindamálum, auka lýð-
réttindi og leggja þrælkunarbúðir
af.
í bestu viðskiptakjörum felst að
kínveskar útflutningsvörur lenda
í lægstu tollflokkum í Banda-
ríkjunum. Kínveijum er hins vegar
ekki að skapi að þessi kjör verði
skilyrt. Létu þeir andófsmanninn
Flórens. Reuter.
MEIRA en milljón manns heim-
sótti í fyrra Uffizi-Iistasafnið í
Flórens en safnið varð fyrir mikl-
um skemmdum í sprengingunni
sem varð sex manns að bana í
gær. Málverkasafnið er hið
stærsta á Italíu og talið meðal
þeirra bestu í heimi. Geysilegt
Ijón varð á húsakynnum, gler-
brot sniðu útlimi af höggmynd-
um og nokkur málverk gereyði-
lögðust.
ens og Toskana en allmörg eru einn-
ig eftir meistara af svonefndum
Feneyja-, Úmbríu- og Emilíuskóla.
Nokkur verk eru eftir franska,
flæmska og þýska og fleiri þjóða
listamenn. Frægust þeirra eru
Gamall rabbí eftir Rembrandt, einn-
ig eru þar andlitsmyndir eftir Goya
og Holbein.
Lokað næstu mánuði
Ljóst er að margir mánuðir munu
líða þar til hægt verður að opna
safnið á ný. Safnhúsið er frá síðari
hluta sextándu aldar og var upphaf-
lega ætlað að hýsa stjórnarskrif-
stofur, það var byggt handa Cosimo
I, stórhertoga af Toskana. Medici-
ættin lét síðar koma fyrir högg-
myndum frá Róm og málverkum
eftir Rafael, Tizian og Piero della
Francesca í höllinni og síðasta af-
sprengi ættarinnar arfleiddi Flórens
að safninu. Salir og herbergi eru
alls 45.
Framhlið hallarinnar var að
Xu Wenli lausan í vikunni eftir
12 ára tugthúsvist. Stjórnarerin-
drekar og stjómmálaskýrendur
segja að það hafi verið vegna
þrýstings Bandaríkjamanna og
gagnrýni á ástand mannréttinda-
mála sem Kínveijar létu Xu
lausan. Bandaríkjamenn segjast
munu beita þá þrýstingi til að láta
fleiri pólitíska fanga lausa.
I skjól
SAFNVERÐIR í Uffizi-safninu í Flórens flytja á brott málverk úr vesturhluta hallarinnar. Ottast var
að rigning gæti aukið enn á tjónið á efstu hæðinni en þakgluggar splundruðust við sprenginguna.
Geysilegt tjón í sprengjutilræði ítölsku mafíunnar í Flórens
Uffizi-safnið geymir dýr-
gripi heimsmenningariimar
miklu leyti úr gleri sem allt sundr-
aðist. Sumum sölunum hefur verið
breytt í „bráðamóttöku" þar sem
safnverðir hafa komið fyrir í bili
þeim listaverkum sem urðu fyrir
mestu tjóni. Áður en tekin verður
ákvörðun um það hvenær safnið
verði opnað á ný verða sérfræðing-
ar að kanna hvort sjálf byggingin
hafi orðið fyrir svo miklum skaða
að hætta sé á hruni. í vesturhluta
hennar urðu skemmdir í öllum söl-
unum.
Dönum á op-
inberu fram-
færi fjölgar
UM það bil 250 þúsund Dana
á aldrinum 25 til 59 ára eru
nú á framfæri hins opinbera
eða tvöfalt fleiri en árið 1981.
Njóta þeir ýmist atvinnuleysis-
bóta, framfærslustyrkja eða
eftirlauna.
Hlaut 342 ára
fangelsisdóm
DAVID Barnard, 52 ára íbúi
borgarinnar Oakland í Kali-
forníu, var í gær dæmdur í
samtals 342 ára fangelsi í gær
fyrir ítrekaða kynferðislega
misnotkun á dóttur sinni. Móð-
ir stúlkunnar, fyrrverandi
skólasálfræðingur í Oakland,
var dæmd í 17 ára fangelsi
fyrir að hylma yfir verknaðinn.
Samið um fjár-
lög Clintons
SAMKOMULAG náðist milli
leiðtoga demókrata og repú-
blikana í fulltrúadeild banda-
ríska þingsins í gær um fjár-
lagaáætlun Bills Clintons for-
seta. Eýkur samkomulagið lík-
ur á því að efnahagstillögur
Clintons forseta komist í gegn-
um þingið.
Þakgluggar splundruðust og
stjórnendur safnsins, sem óttast að
regn geti skaðað verk á efstu hæð-
inni, hugðust síðdegis í gær fjar-
lægja öll verkin sem þar voru
geymd, þar á meðal um 300 mál-
verk. Meðal málverka sem ekki
verður hægt að bjarga er Dauði
Adonis eftir Sebastiano del Piombo,
einn af lærisveinum Michelangelos.
Sum staðar virðast plasthlífar, sem
verðir komu nýlega fyrir til að veija
verk fyrir árásum skemmdarvarga,
hafa bjargað ódauðlegum meistara-
verkum.
Meðal frægra málverka frá End-
urreisnartímanum, sem eru í Uffizi,
eru Fæðing Ven'usar eftir Botticelli
og eina olíumálverkið sem Michel-
angelo lauk við, Hin heilaga fjöl-
skylda. Einnig er þar að finna
hundruð verka eftir Giotto, Uccello,
Mantegna og Filippo Lippi. Flest
eru verkin eftir listamenn frá Flór-
Ráðast gegn
Norðmönnum
London. Reuter.
GREENPEACE, samtök græn-
friðunga, hófu í gær herferð
gegn norskum framleiðsluvörum
vegna hrefnuveiði Norðmanna
og hvöttu neytendur víða um
lönd til þess að sniðganga þær.
í fréttatilkynningu frá Greenpe-
ace segir að samtökin muni í fyrstu
leggja áherslu á að fá enska, þýska
og ítalska neytendur til þess að
sniðganga norskar vörur, einkum
sjávarvörur og mjólkurafurðir.
í Bretlandi verður einkum hvatt
til þess að menn kaupi ekki norska
rækju, ítalir verða beðnir að snið-
ganga norska skreið og í Þýska-
landi verður atlaga gerð gegn
margs konar vörum sem frá Noregi
koma.
Kenneth Clarke tekur við af óvinsælasta fjármálaráðherra aldarinnar
Ekki líklegnr til að breyta
efnahagsstefnumii verulega
Lundúnum. Reuter, The Daily Telegraph.
JOHN Major, forsætisráðherra Bretlands, ákvað í gær að
stokka upp í stjórn íhaldsflokksins og víkja Norman Lamont
úr embætti fjármálaráðherra. Lamont er óvinsælasti fjármála-
ráðherra Bretlands á öldinni og við embættinu tekur Kenneth
Clarke innanríkisráðherra, sem þykir hafa reynst þróttmikill
ráðherra í annars máttlítilli ríkisstjórn. Fréttaskýrendur í
Lundúnum telja að Clarke bæti ímynd sljórnarinnar en efast
þó um að hann geri róttækar breytingar á efnahagsstefnunni.
Stjóm Majors hefur orðið fyrir
hveiju áfallinu á fætur öðru á þeim
13 mánuðum sem liðnir eru frá því
íhaldsflokkurinn vann fjórðu þing-
kosningarnar í röð í apríl í fyrra.
Nokkrir atkvæðamiklir þingmenn
íhaldsflokksins hafa sagt að þótt
íjögur ár séu til næstu þingkosn-
inga kunni Major aðeins að hafa
eitt ár til að ná tökum á stjórn
landsins. Upplausn hefur verið inn-
an íhaldsflokksins að undanfömu,
einkum vegna óeiningar um aukinn
sammna ríkja Evrópubandalagsins.
Lamont varð íjármálaráðherra í
nóvember 1990 eftir að Major tók
við embætti forsætisráðherra af
Margaret Thatcher. Á þessum
tveimur árum hefur efnahagur
landsins verið í mikilli lægð og
umrót varð á gjaldeyrismörkuðum,
sem varð til þess að stjórnin neydd-
ist til að ganga úr Evrópska gjald-
eyrissamstarfinu (ERM) í septem-
ber, með þeim afleiðingum að gengi
pundsins hmndi.
Eftir að hafa hamrað á því í tvö
ár að ERM væri homsteinninn í
efnahagsstefnu stjórnarinnar kú-
venti Lamont skyndilega og kvaðst
himinlifandi yfir því að geta nú
framfylgt efnahagsstefnu þar sem
hagsmunir Breta einna væru í fyrir-
rúmi. Hann glataði hins vegar
trausti fjármálamarkaðanna og
ljóst var að hann yrði fyrr eða síðar
að víkja. Það var til marks um veika
stöðu hans að á meðal fjármála-
manna var almennt álitið að gengi
pundsins myndi hækka um leið og
staðfest yrði að hann færi frá.
Ekki bætti það stöðu Lamont að
honum virtist einkar lagið að segja
ranga hluti á vitlausum tíma. Hann
spaugaði t.d. eitt sinn með að hann
ætti það til að ruglast á tölum, eink-
um tölunum fimm og þremur, sem
þykir ekki traustvekjandi þegar
fjármálaráðherra er annars vegar.
Lamont verður þó einnig minnst
fyrir ýmsar umbætur og á þeim
tveimur árum sem hann gegndi
embættinu minnkaði verðbólgan úr
11% í 1,3% og vextir lækkuðu úr
15% í 6%. Það verður hins vegar
Kenneth Clarke sem nýtur góðs af
þessum árangri.
Allir fjármálaráðherrar
óvinsælir
Lamont sagði í viðtali, sem birt
var í Guardian í gær, að það væri
hlutskipti fjármálaráðherra að vera
óvinsælir og virðast ,,bera ábyrgð
á Titanic-slysinu". „Eg hitti fjár-
málaráðherra hvaðanæva af og þeir
eru mjög óvinsæiir merin — og
Pierre Beregovoy varð fyrir hræði-
legri vansæmd," bætti hann við og
vísaði til fyrrverandi forsætisráð-
herra og fjármálaráðherra Frakk-
Iands sem framdi sjálfsmorð 1.
maí. Lamont kvaðst sjálfur hafa
orðið „gagnlegur eldingaleiðari"
fyrir óánægju almennings með
stjórn íhaldsflokksins. „Eg verð
stundum sár en það er mannlegt
eðli að halda að til séu auðveld svör
við þessum hlutum, að ég hafi á
einhvem hátt persónulega valdið
efnahagslægðinni sem virðist nú
hrella Evrópu og stóran hluta
heimsins. Ég er viss um að ég virð-
ist bera ábyrgð á Titanic-slysinu."
The Daily Telegraph hafði eftir
vinum Lamonts að hann gæti reynst
hættulegt afl sem óbreyttur þing-
maður og gæti komið Major í alvar-
leg vandræði ef hann ákvæði að
skýra opinberlega frá röngu mati
stjómarinnar á stöðu peningamál-
anna áður en hún neyddist til ganga
úr Evrópska gjaldeyrissamstarfinu.
Margir þingmenn íhaldsflokksins
viðurkenna að það var ekki all-
sendis sanngjamt gagnvart Lamont
að víkja honum frá. Hann gæti virst
blóraböggull. Þeir leggja hins vegar
áherslu á að stjórnmálin snúist ekki
um sanngimi og með því að víkja
nokkrum ráðherrum frá sé Major
að minna ráðherra og þingmenn
íhaldsflokksins á að þeir þurfi að
standa sig betur eigi flokkurinn að
rétta úr kútnum eftir ósigra í sveit-
arstjórnakosningum að undanförnu
og vandræðalegar kúvendingar í
ýmsum veigamiklum málum.
Breskir fjölmiðlar sögðu að Major
hefði viljað takmarkaða uppstokkun
á stjóminni en honum hefði ekki
tekist að fá Lamont til að taka við