Morgunblaðið - 28.05.1993, Qupperneq 54
54
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 1993
// ht/ab nota&ír&u tlu aá na bessý
nýja, Lími <xf -fiingrunum, A. />er ? "
Með
morgnnkaffinu
Þetta er sérstaklega hag-
kvæmur og einfaldur megr-
unarkúr. Þú hefur munninn
einfaldlega lokaðan á
morgnana, í hádeginu og á
kvöldin.
klæðir mig ekki, þú hefur
aldrei séð mig með yfirvara-
skegg.
HÖGNI HREKKVÍSI
BRÉF TIL BLAÐSINS
Kringlah 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329
Lyfjatæknir, hvað er það?
Frá Önnu Sveinsdóttur:
ÞESSA spurningu fáum við lyfja-
tæknar oft og langar mig því til að
gera örstutta grein fyrir námi og
störfum lyfjatækna.
Lyfjatæknir er sérhæfður starfs-
kraftur og er helsti starfsvettvangur
apótek, sjúkrahúsapótek, elli- og
hjúkrunarheimili, lyfjaframleiðslu-
fyrirtæki og lyfjaheildsölur.
Apótek eru aðalstarfsvettvangur
lyfjatækna, þar starfa auk apótekar-
ans lyíjafræðingur, lyfjatæknir, def-
ektrísur og almennt afgreiðslufólk.
Lyfjatæknar starfa í samvinnu við
lyfjafræðinga.
í apótekum
Störf lyfjatækna í apótekum eru
fyrst og fremst fólgin í afgreiðslu
og meðferð lyfseðla, afgreiðslu og
leiðbeiningum um notkun lausasölu-
lyfja og vítamína, afgreiðslu á hjúkr-
unarvörum og vörum til umönnunar
ungbarna, móttaka og frágangur á
lyfjum og vörum frá heildsölum.
Þessi þjónusta öll er mjög sérhæfð
og henni fylgir mikil ábyrgð og er
krafa um faglega þekkingu þeirra
sem hana annast þvi sjálfsögð.
í sjúkrahúsapótekum
Störf lyíjatækna á sjúkrahúsapó-
tekum og hjúkrunarheimilum eru
nokkuð mismunandi eftir stærð
þeirra og starfsemi. Aðallega felast
þau í afgreiðslu Iyfja samkvæmt
beiðnum eða pöntunum frá deildum.
í sumum tilvikum lyfjaskömmtun
fyrir sjúklinga í þar til gerð lyfjabox.
Pantanir á lyfjum til apóteksins
(lyfjabúrsins) frá lyfjaheildsöium,
móttaka þeirra og frágangur. Lylja-
tæknar vinna einnig í samvinnu við
lyíjafræðinga að blöndun næringar-
vökva til gjafar í æð.
í lyfjaheildsölum
Allmargir lyfjatæknar starfa í
lyíjaheildsölum við sölu og kynningu
lyfja og hjúkrunargagna.
í lyfjaframleiðslu
Nokkrir lyfjatæknar starfa að
framleiðslu og pökkun lyfja hjá
framleiðslufyrirtækjum og við gæða-
eftirlit.
Nám lyfjatækna
Lyijatæknanámið hefur nýverið
færst frá heilbrigðisráðuneytinu til
menntamálaráðuneytis og er nú und-
ir yfirstjórn Armúlaskóla. Sam-
kvæmt reglugerð um lyfjatæknanám
er starfandi fagráð við lyíjatækna-
braut þar sem bæði nemar og Lyfja-
tæknafélag íslands eiga fulltrúa.
Nám í Iyfjatækni er sérhæft fram-
haldsskólanám með skilgreindu aðf-
aranámi.
Aðfaranámið er almennt nám sem
hægt er að taka við fiesta íjöl-
brauta- og menntaskóla og telst
vera um 67 einingar eða 4 annir.
Sérnám lyijatækna á lyijatækna-
braut er tveggja ára nám með starfs-
námi í apóteki. Helstu kennslugrein-
ar á lyijatæknibraut eru eftirfar-
andi: Afgreiðslutækni; almenn lyíja-
fræði; eiturefnafræði; félagslyfja-
fræði; hjúkrunarvörur; lyfhrifafræði;
lyijahvarfafræði; lyfjagerð; lyfja-
löggjöf; lyflýsingafræði; næringar-
fræði; sjúkdómafræði; sýklafræði
(örverufræði).
Lyfjatæknar tilheyra þeim stétt-
arfélögum sem vinnustaðir þeirra
falla undir, þ.e. lyijatæknar í apótek-
um og lyijaheildsölum tilheyra versl-
unarmannafélögunum, á sjúkrahús-
um tilheyra þeir BSRB.
Starfsheiti lyfjatækna er lög-
verndað og rétt til að öðlast starfs-
leyfi hefur sá einn sem lokið hefur
prófi sem metið er gilt af heilbrigðis-
yfirvöldum, samkv. 15. gr. laga nr.
76/1982 um lyfjadreifingu og lögum
um starfsheiti og starfsréttindi heil-
brigðisstétta nr. 34/1985.
Lyijatæknar eru heilbrigðisstétt
með faglega þekkingu og eru aðilar
að Samtökum heilbrigðisstétta.
Lyijatæknar hafa með sér félag,
Lyijatæknafélag íslands, sem stofn-
að var 31. janúar 1976 og teljast
félagar nú vera liðlega 220. Félagið
hefur aðsetur á Suðurlandsbraut 6,
2. hæð. Pósthólf 5459, 125 Reykja-
vík. Sími 811360.
ANNA SVEINSDÓTTIR,
formaður Lyfjatæknafélags
íslands.
HEILRÆÐI
Víkveiji skrifar
'réttir Morgunblaðsins - um að
yfirmaður í Búnaðarbanka
hafi hagnast um milljónir króna með
færsium milli gjaldeyrisreikninga
hafa að vonum vakið athygli, sér-
staklega vegna þeirrar skoðunar
sérfróðra manna innan bankans að
þetta afhæfi mannsins hafi verið
löglegt.
Víkveiji hefur rætt þetta við
menn sem hafa góða þekkingu á
bankamálum, og þeir fullyrða að
tíðar og ítrekaðar gjaldeyrismilli-
færslur af þessu tagi hljóti að flokk-
ast undir gjaldeyrisbrask og bijóti
því í bága við lög. Dæmi munu vera
um að fyrirtæki hafi stundað sama
leik og áðurnefndur starfsmaður
Búnaðarbankans og bankar hafi
hætt við þau viðskiptum þegar upp
komst.
Það leiðir síðan hugann að því,
hve furðulegt það er, að reglur um
gengisskráningu skuli iengi hafa
verið með þeim hætti, að þeir sem
hafa aðgang að fréttum af erlendum
gjaldeyrismörkuðum, geti nýtt sér
þær til að hagnast á gjaldeyrismilli-
færslum. Hvað hafa bankakerfið og
stjórnvöld eiginlega verið að hugsa?
Víkveiji er áhugamaður um
knattspyrnu og fyllist ætíð
gleði þegar Islandsmótið í knatt-
spyrnu hefst. Það er sérstök tilfinn-
ing sem fylgir því að fara á fyrsta
leikinn í íslandsmótinu á hverju
vori og sjá knattspyrnukappana
leika listir sínar á grasi. Framundan
er fjögurra mánaða knattspyrnu-
vertíð sem eflaust verður full af
spennandi augnablikum.
Ástæða er til að vekja athygli
fólks á því að knattspyrna er ekki
aðeins leikur hinna fullorðnu. Börn
á öllum aldri leika knattspyrnu sér
til ánægju og góðir leikir í yngri
flokkunum gefa ekkert eftir leikjum
í meistaraflokki þegar spenna og
tilþrif eru annars vegar. Þeir sem
hafa ánægju af íþróttum ættu að
skreppa á leik hjá yngri flokkunum
eitthvert kvöldið og þeir munu sann-
færast.
xxx
Islandsmótið fór vel af stað að
þessu sinni. 1. umferðin bauð
upp á mjög skemmtilega leiki og
mörg mörk. Víkverji fór á leik FH
og Akraness í Hafnarfirði og varð
ekki fyrir vonbrigðum. Islands-
meistarar Skagamanna léku á als
oddi og verða örugglega í toppbar-
áttunni í sumar. Víkveiji spáir því
að Reykjavíkurfélögin KR, Valur og
Fram veiti Skagamönnum harðasta
keppnina að þessu sinni.
KR-ingum var í upphafi mótsins
spáð íslandsmeistaratitlinum. Sag-
an segir að þetta hafi verið saman-
tekin ráð af leikmönnum og þjálfur-
um hinna liðanna til að auka press-
una á KR-inga. En éins og kunnugt
er hefur KR ekki orðið íslandsmeist-
ari síðan 1968 og um langa hríð
hefur hið kunna félag Manchester
Utd. glímt við svipaðan draug. í vor
gerðust þau stórtíðindi að Man-
chester varð Englandsmeistari í
fyrsta skipti síðan 1967 og nú er
öll pressan á Vesturbæjarliðinu!
XXX
Enn einu sinni hefur það gerst
að grasvellirnir á Akranesi
koma bezt undan vetri og þar fór
Meistarakeppni KSÍ fram, enda
engin grasvöllur leikhæfur á höfuð-
borgarsvæðinu. Er þetta umhugs-
unarefni fyrir forráðamenn íþrótta-
félaganna þar. í næstu viku verður
landsleikur við Rússa og verður
spennandi að sjá hvemig þjóðarleik-
vangurinn í Laugardal hefur komið
undan vetri.