Morgunblaðið - 10.06.1993, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 1993
Félag leiðsögnmanna felldi
nýgerða kjarasamninga
FÉLAG leiðsögumanna felldi nýgerða kjarasamninga ASÍ og VSÍ á
fundi stjórnar- og trúnaðarmannaráðs sl. mánudag en félagið á beina
aðild að Alþýðusambandinu. Þórarna Jónasdóttir, formaður félags-
ins, sagði að megin ástæður þess að samningarnir voru felldir væru
þær, að leiðsögumenn treystu sér ekki til að skrifa undir kjarasamn-
inga sem fælu í sér óbreytt laun til þeirra allt fram á sumarið 1995,
auk þess sem leiðsögumenn fengju hvorki orlofsuppbót né desember-
uppbót þar sem þeir störfuðu hjá ýmsum ferðaskrifstofum á sumrin
en þessar eingreiðslur væru miðaðar við að viðkomandi hefði áunn-
ið sér rétt með starfi hjá sama atvinnurekanda.
Þórama sagði að félagið hygði
ekki á neinar sérstakar aðgerðir en
hún kvaðst eiga von á að samninga-
viðræður hæfust innan tíðar.
Ungur maður
undirlyftara
ísafjörður.
NITJAN ára starfsmaður Neta-
gerðar Vestfjarða fótbrotnaði á
báðum fótum þegar hann varð
undir gaffallyftara við fyrirtækið
í gær. Hann var fluttur á Fjórð-
ungssjúkrahúsið á ísafirði og var
líðan hans eftir atvikum góða sam-
kvæmt upplýsingum sjúkrahúss-
ins um kvöldmatarleyti í gær.
Slysið varð með þeim hætti að
maðurinn velti lyftaranum farmlaus-
um í beygju við netaverkstæðið og
festust báðir fætur hans undir örygg-
isgrindinni. Engir sjónarvottar voru
að slysinu en starfsmenn Gúmíbáta-
þjónustunnar, til húsa í sama húsi
og verkstæðið, heyrðu til mannsins.
Starfsmönnum fyrirtækjanna og að-
vífandi mönnum tókst að lyfta lyftar-
anum sem er um íjögur tonn ofan
af manninum og losa hann þannig.
Hann var fluttur á Fjórðungssjúkra-
húsið á ísafírði.
Úlfar.
Óvíst um atvinnuleyfi
Ekki hafa enn verið afgreiddar
umsóknir um atvinnuleyfi til er-
lendra leiðsögumanna fyrir sumarið.
í fyrra bárust um 75 umsóknir og
þá voru veitt 42 atvinnuleyfí, en
reynslan hefur sýnt að fleiri leið-
sögumenn koma með hópa til lands-
ins þó ekki sé vitað hve margir þeir
hafa verið. Samkvæmt upplýsingum
Magnúsar Oddssonar, formanns
nefndar um réttindi leiðsögumanna,
liggja mun færri umsóknir fyrir nú
en í fyrra, en enn hafa engin Ieyfí
verið veitt.
Þórarna sagði að mikið væri vikið
að auknu starfsöryggi í kjarasamn-
ingi ASÍ og VSÍ en hún sagði að
aðalbarátta leiðsögumanna í dag
snérist um að halda í þau störf sem
væru fyrir hendi í landinu við leið-
sögn og að félagsmenn í Félagi leið-
sögumanna sætu að þeim. „Það
kemur ákveðinn fjöldi erlendra
fararstjóra með hópum hingað til
lands sem ganga í okkar störf. Við
sjáum það fyrir okkur að þegar og
ef EES-samningurinng gengur í
gildi verði sú barátta miklu erfíðari
vegna þess að þá verður ekki hægt
að loka fyrir komu erlendra farar-
stjóra hingað í störf ieiðsögu-
manna,“ sagði hún.
Dani fékk
87,4 millj.
DANSKUR lottóspilari var með
sex rétta og hreppti rúmar 87,4
milljónir í Víkingalottóinu í gær.
Bónusvinningur að verðmæti tæp-
ar tvær milljónir gekk ekki út.
Alfreð Þorsteinsson, stjómarfor-
maður íslenskrar getspár, sagði að
það að bónusvinningurinn hefði ekki
gengið út þýddi að hann yrði vegleg-
ur næsta miðvikudag, þ.e. fjórfaldur
og trúlega 2-3 milljónir króna. Hann
minnti sömuleiðis á að þrefaldur
vinningur yrði í laugardagslottóinu.
Verðmæti hans yrði sennilega á bil-
inu 12-14 milljónir.
Vinningstölur
Annað er ekki vitað um vinnings-
hafann nú en að hann keypti lottó-
miða sinn í Danmörku og valdi þær
sex aðaltölur sem dregnar voru út.
Þær voru 30, 35, 38, 18, 29 og 33.
Bónustölumar voru 34, 41 og 40.
Morgunblaðið/Einar Falur
Haninn Hreggviður vekurlukku
HANINN Hreggviður vekur óskipta athygli ungra safngesta í Árbæjarsafni. Að sögn safnvarða hefur
Hreggviður sérstakan áhuga á pönnukökum og vöfflum.
Islensk skip halda
á vænleg- rækjumið
FIMM íslensk skip eru lögð af stað til veiða á rækjumiðum um
260 mílur út af Nýfundnalandi. Þau halda þangað í kjölfar frétta
af góðum aflabrögðum Norðmanna, Færeyinga og Kanadamanna
en þar hafa þeir samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins fengið
mikinn afla stórrar og góðrar rækju. Róbert Guðfinnsson fram-
kvæmdastjóri Þormóðs ramma hf. sem gerir út rækjuskipið Sunnu
SI segir óumflýjanlegt að leita á mið utan íslenskrar landhelgi
og bætir því við að þessi nýfundna rækjuslóð lofi góðu.
íslandskynning
Bandarísk þáttaröð um Norðurlöndin
er stórt tækifæri til íslandskynningar
14
Nauðgun________________________
Tuttugu og eins árs gamall breskur
maður hlaut skilorðsbundinn dóm
fyrir að nauðga átta ára gamalli
stúlku 21
Alnæmi_________________________
Helmingur alnæmissmitaðra með
ólæknandi heilasýkingu 22-23
Leiðari
Kosningar í Lettlandi 22
HUrgtmblAdlb
ÆVDmUIÍF
ViÖskipti/A tvinnulíf
► Rekstarbati þjá Goða - Vera
Moda fyrir karlmenn - Tap á kaup-
félögum - Breytingar þjá Fönn -
Eignasala SÍS á lokastigi - Manna-
breytingar hjá fslandsbanka
Dagskrd
► Kvikmyndir vikunnar - Gagn-
semi slúðurs - Kvikmyndafólk í
sjónvarpsþáttagerð - Bíóin í
borginni - Myndbönd - Mick
Wallace, fréttamaður í hálfa öld
Norskt dagblað hefur þegar skýrt
frá góðri veiði norskra, færeyskra
og kanadískra skipa á Flæmska hatt-
inum svokallaða en það er land-
grunnssvæði rétt utan við 200 mílna
landhelgi Kanada en það segir enn-
fremur að mörg fleiri séu á leiðinni.
í frétt blaðsins kemur jafnframt fram
að afli skipa á svæðinu sé um 10-13
tonn á dag.
Sunna fyrst af stað
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hélt Sunna SI fyrst íslenskra
skipa af stað en Jón Finnsson RE,
Pétur Jónsson RE, Hákon ÞH, og
Skutull IS fylgdu strax í kjölfarið.
Miðin sem þau leita á eni gamal-
kunn; fyrir 1960 voru þau íslending-
um gjöful karfamið en hin síðustu
ár hefur þorskur mikið verið veiddur
þar. Nú eru þorskveiðar aftur á
móti bannaðar á þessum slóðum.
Veiðisvæðið er alþjóðlegt og undir
stjóm fískveiðinefndar Norður-Atl-
antshafs, NAFO, en kvótatakmark-
anir eru engar á þessu svæði.
Leitað út fyrir laudhelgina
„Það er nokkuð ljóst,“ sagði Rób-
ert Guðfínnsson útgerðarmaður í
samtali við Morgunblaðið, „að við
verðum að Ieita víðar að verkefnum
fyrir skipin okkar en innan 200 mílna
landhelgi landsins. Við eigum af-
Banaslys
á Þing-
vallavegi
48 ÁRA gamall Þjóðverji lést í
bílslysi á Þingvallarvegi í gær.
Slysið varð rétt sunnan við þjóð-
garðinn og lögreglan á Selfossi fékk
tilkynningu um það kl. 16.40. Bílnum
var ekið í norðurátt að þjóðgarðinum.
Ökumaðurinn missti stjórn á honum
og valt bíllinn líklega fímm veltur á
veginum, sem er malarvegur.
Maðurinn var látinn er að var
komið. Ökumaður og farþegi í aftur-
sæti sluppu með minniháttar meiðsli
og voru flutt á Borgarspítalann.
Ferðalangamir voru allir af þýsku
þjóðemi og voru þeir á bílaleigubíl.
Sölufélag garð-
yrkjumanna
Úr 60 millj-
óna halla í
29,5 millj-
óna hagnað
Selfossi.
AFKOMA Sölufélags garðyrkju-
manna batnaði verulega á síðasta
ári. Hagnaður varð af rekstri árs-
ins i fyrsta sinn í 10 ár, 29,5 milþ'-
ónir en árið áður varð rúmlega
60 milljóna halli á starfseminni.
Hagnaður af reglulegri starfsemi
var tæpar 10 milljónir. Þá hafa
skuldir lækkað um 300 milljónir á
síðustu 18 mánuðum.
Fyrir rúmum tveimur ámm átti
Sölufélagið í vemlegum rekstrar-
vanda. Að sögn Amar Einarssonar
garðyrkjubónda að Silfurtúni á Flúð-
um, formanns stjórnar félagsins, er
helsta ástæðan fyrir þessum um-
skiptum sala eigna og algjör upp-
stokkun í rekstri og mannahaldi,
vörumóttöku, betri vömmeðferð og
góðri frammistöðu Pálma Haralds-
sonar framkvæmdastjóra og starfs-
fólks fyrirtækisins.
Sig. Jóns.
kastamikil skip og þegar fréttist af
þessum veiðum nágranna okkar töld-
um við enga ástæðu til að bíða.“
Aðspurður taldi hann koma til greina
að senda fleiri skip út fyrir landhelg-
ina. „I ljósi kvótasamdráttar hljóta
menn að huga að úthafsveiðum."
Aflinn heim
Að sögn Róberts verður aflanum
að öllum líkindum landað á íslandi
en taldi þó hugsanlegt að skipin los-
uðu afla sinn á Nýfundnalandi eða
þar í kring. „Sá er kosturinn að flytja
rækjuna heim að hráefni er þar með
útvegað fyrir rækjuverksmiðjur okk-
ar hér heima," sagði hann. „Um
50-60% aflans verða fullunnin á
skipinu en afgangurinn, mest lítil
rækja, verður unnin í landi.“ Afla-
verðmæti fer að sögn Róberts allt
eftir stærð og ástandi rækjunnar en
hann vonast til að um 30-40 milljón-
ir króna fáist á mánuði fyrir afla
Sunnu.