Morgunblaðið - 10.06.1993, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 1993
fc>lk f
fréttum
VEITINGAHÚS
Islenskur veitingslj óri
á Cap Hom
Ljósm./Francis Joseph Dean
Kolbrún Hrund Víðisdóttir veitingastjóri á Cap Horn í Nýhöfn-
inni ásamt Rúnari Marvinssyni eldameistara, sem var gestur á
íslenskri viku veitingahússins.
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðs-
dóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
A
Abesta stað í bænum, nánar
tiltekið í Nýhöfninni í hjarta
Kaupmannahafnar er veitinga-
staður, sem sker sig að mörgu leyti
úr öðrhm dönskum veitingastöð-
um. Cap Hom heitir hann og er
eini staðurinn sem býður upp á
mat úr vistvænum afurðum. Þó
maturinn sé erkidanskur þá heitir
veitingastjórinn Kolbrún Hrund
Víðisdóttir.
í vor var efnt til íslandsviku á
Cap Hom, þar sem Rúnar Marvins-
son tilreiddi matinn af sinni al-
kunnu snilld, haldinn var umræðu-
fundur um Island og EB, Bjartmar
Guðlaugsson trúbadúr skemmti og
einnig komu fram María Ámadótt-
ir leikkona og Jóhannes Hilmisson.
Eins og nærri má geta var íslenska
vikan vel sótt af Hafnar-islending-
um, en einnig af innfæddum. Kol-
brúnu fannst tilvalið að halda ís-
landsviku, þegar önnur veitinga-
hús róa öll á suðlægar slóðir í
svipuðum uppákomum.
Aðeins sumarvinna í fyrstu
En hvemig stendur þá á íslenska
veitingastjóranum? Kolbrún segist
hafa búið í Danmörku sem bam,
meðan foreldrar hennar voru þar
í námi og síðan haft annan fótinn
þar. Starfið á Cap Hom byijaði
sem sumarvinna, en síðustu þijú
árin hefur hún verið fastráðin. Nú
stendur til að opna fleiri staði á
vegum sömu eigenda og Kolbrún
hefur verið með í þeim undirbún-
ingi. Fyrirhugað nám í verslunar-
háskólanum verður því að bíða um
sinn.
Kolbrún segir að staðurinn sé í
eigu fjölskyldu með mörg áhuga-
mál. „Mamman, Lise Plum, byijaði
með staði^n, en nú er dóttirin
Camilla tekin við. Staðurinn hefur
verið fundarstaður Júníhreyfing-
arinnar, sem berst á móti Maastric-
ht-samkomulaginu, auk þess sem
Camilla hefur mikinn áhuga á
umhverfísmálum og óspilltum
náttúruafurðum. Fyrir allt þetta
er staðurinn þekktur og er mikið
sóttur af stjómmálamönnum, rit-
höfundum og listamönnum.
íslendingar mæta vel
Á sumrin hverfa fastagestimir
og ferðamennimir koma í staðinn.
Þá stækkar staðurinn líka um
helming með borðunum fyrir utan.
íslendingar em líka farnir að sækja
Nýhöfnina meir. Áður rötuðu þeir
varla út af Strikinu, sem er ekki
endilega skemmtilegasti hluti
borgarinnar. Maturinn er ósvikinn
danskur matur eins og steikt svína-
flesk með steinseljusósu, kjötbollur
og annað í þeim dúr. Það er skipt
út á matseðlinum daglega til að
alltaf sé hægt að bjóða upp á mat
úr besta fáanlega hráefninu. Vínin
em líka hrein vara, en þó við selj-
um þýskan bjór í þessum stíl, þá
vilja Danir nú helst sinn eigin
bjór.“
Kolbrún segist aldrei hafa
ímyndað sér að hún ætti eftir að
vera í þessum bransa. „Ég vann
hér bara í sumarvinnu, en gat
ekki látið vera að skipta mér af
Dönunum. Þeir em svolítið gefnir
fyrir að slappa af og hafa það
notalegt. Camilla fékk mig svo til
að vera hér, um tíma var ég með
annarri, en sé núna ein um rekst-
urinn og finnst vinnan skemmtileg,
líka tölumar og spamaðarvanga-
veltumar. Helsti gallinn er að vinn-
an er alveg að gleypa mig, lítið
um frí, en ég slappa af með því
að skreppa í stutt frí heim til Is-
lands. En reksturinn er ekki bara
tölur, því gott andrúmsloft kemur
ekki af sjálfum sér.“
SUMARTILBOÐ
GERÐ FE5 4 - S TAÐGRF ITT K R .
RÖNNING
SUNDABORG 15
SÍMl 68 58 68
37900
KR. 39900 - MF,Ð AFBORGliNUM
FAGOR
FAGOR FE54
Magn af þvotti 4,5kg
Þvottakerfi 17
Hitastillir *-90 C
Rúmmál tromlu 42 1
Hraðþvottur •
Áfangaþeytivinda •
Sjálfvirkt vatnsmagn •
Hæg vatnskæling •
Barnavernd •
Sjálfhreinsandi dæla •
Hljóðlát •
VEITINGAHÚS
Italskur
veitinga-
staður
opnaður
Leifur Kolbeinsson og Ólafur
Strange, sem áður ráku veit-
ingahúsið Hallargarðinn, hafa breytt
staðnum í ítalskt veitingahús og ber
hann heitið La Primavera. „Við emm
með þessu að mæta harðnandi sam-
keppni auk þess sem við emm að sinna
áhugamálum okkar um ítalska matar-
gerð,“ sagði Leifur í samtali við Morg-
unblaðið. „Við eldum sjálfir og stönd-
um allar vaktir. Þess vegna höfum
við ákveðið að hafa lokað í hádeginu
á laugardögum, alla sunnudaga og
mánudaga. Hins vegar verður opið
virka daga kl. 12-14.30 og 18-22 og
á föstudögum og laugardögum verður
opið frá 18-23.30.“
Verður lögð áhersla á pasta- og
kálfarétti ásarnt ítölskum fískiréttum,
en pizzur verða ekki á boðstólum.
Nokkrar breytingar hafa verið gerðar
á veitingastaðnum, aðallega þó í borð-
skreytingum og myndverkum.
STJÖRNUR
Kona full
af mótsögnum
Leikkonan nær óþekkjanleg með
breytta hárgreiðslu.
hjónaband þeirra Bruce Willis og
Demi Moore gangi brösuglega, en
aðrir segja að það sé vitleysa. í
viðtali við tímaritið US í vor bar
Demi þessar sögusagnir til baka
og vildi kenna pressunni um að
hún yrði að skrifa um eitthvað og
hefði yndi af því að segja frá mis-
Demi Moore, hér seiðandi feg-
urðargyðja.
klíð milli þeirra hjóna og
drykkjuskap Bruce. „Og hann
sem drekkur ekki einu sinni,“
sagði Demi. Hún viðurkennir þó
að þau hafi leitað til hjónabands-
ráðgjafa, en það séu 3-4 ár síðan.
Bruce segist hafa orðið ástfang-
inn af þeirri Demi sem fólk sá í
kvikmyndinni „Ghost“. Hann er
ekki einn um að falla fyrir fallegu
brúnu augunum, sem fella tár án
viðvörunar eða konunni sem í heild
er svo dularfull. Sagan segir að
Robert Redford hafí boðið henni
geysiháa upphæð fyrir að sofa hjá
henni eftir að þau höfðu leikið
saman í myndinni „Proposal“. Því-
lík ósvífni ef rétt er.
Hin þrítuga leikkona Demi
Moóre er margir persónuleik-
ar og það fer nánast eftir því hvaða
vikudagur er hvaða persóna er
allsráðandi. Einn daginn getur hún
verið djarfur stelpugopi, annan
daginn rólegur stjómandi eða
uppátektarsamur stríðnispúki.
Mönnum er enn í fersku minni
þegar líkami hennar birtist á fors-
íðu tímaritisins Vanity Fair en þá
var hún háófrísk. Myndin fékk
mikla gagnrýni, en Demi segir að
hún sýni einungis hvemig sér hafí
liðið sem óléttri og hvernig óléttar
konur líti út.
Skilnaður ekki í sigtinu
Sumar sögusagnir segja að
Morgunblaðið/Þorkell
Eigendur La Primavera, f.v. hjónin Leifur Kolbeinsson og Jónína !
Kristjánsdóttir ásamt Ómari Strange.
t Morgunblaflið/Elnar Falur
Við opnun veitingastaðarins söng Bergþór Pálsson af mikilli gleði
fyrir gesti.