Morgunblaðið - 10.06.1993, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 1993
17
Starfsmönnum kynntar breytingar
STARFSMENN SVR á fundi þar sem þeim voru kynntar tillögur um breytingar á fyrirtækinu.
Strætisvögnum Reykjavíkur breytt í hlutafélag
Skorið á afskipti sljórn-
málamanna af rekstri
MEKLAR breytingar eru fyrirhugaðar á rekstrarformi Strætisvagna
Reykjavíkur. Meirihluti sjálfstæðismanna í Reykjavík hefur gert tillög-
ur um að breyta SVR í SVR hf. Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar
hefur lýst yfir furðu sinni á að ekkert samráð skyldi hafa verið haft
við það og minnihlutinn í stjórn SVR hefur einnig sent frá sér mót-
mæli. Sveinn Andri Sveinsson, stjórnarformaður SVR, segir að ætlunin
hafi verið að tilkynna starfsmönnum SVR fyrstum breytingarnar og
það hafi tekist.
Breytingarnar felast í raun og
veru í því að SVR í núverandi formi
er skipt upp í tvo hluta. Annars veg-
ar Strætisvagna Reykjavíkur hf. og
hins vegar Stjómamefnd um al-
menningssamgöngur. Hlutverk
stjómamefndarinnar verður að við-
halda og móta almenna stefnu í sam-
göngumálum en hún mun ekki koma
að daglegum rekstri vagnanna.
Sveinn Andri Sveinsson, stjómarfor-
maður SVR, segir að með þessu sé
verið að að skera á miðstýringu
embættismanna og afskipti stjóm-
málamanna af daglegum rekstri.
Fargjöld hækka ekki
Allar ákvarðanir vegna fargjalda,
leiðakerfís og hversu oft hver leið
er farin verður áfram í höndum borg-
aryfírvalda, þ.e. stjórnamefndarinn-
ar, og því á breytingin sjálf ekki að
valda hækkun á fargjöldum eða
minni þjónustu. Sveinn Andri sagði
að Reykjavíkurborg muni halda
áfram að greiða með strætisvagna-
kerfínu eftir breytingamar. SVR hf.
verður því fyrst og fremst verktaki
fyrir Reykjavíkurborg í eigu Reykja-
víkurborgar.
Mótmæla vinnubrögðum
Fulltrúar minnihlutans í stjórn
SVR hafa sent frá sér skrifleg mót-
mæli vegna þess hvernig að kynn-
ingu tillagnanna hefur verið staðið
og að ekki skuli hafa verið rætt um
málið í stjórninni áður en það var
kynnt. Starfsmannafélag Reykjavík-
urborgar hefur einnig lýst yfir furðu
sinni á því að meirihluti sjáifstæðis-
manna skuli tilkynna starfsmönnum
SVR án fyrirvara og samráðs fyrir-
ætlanir um að gera SVR að hlutafé-
lagi.
„Það var af ásettu ráði að við
héldum þessu máli ekki bara fyrir
utan stjórn SVR heldur líka starfs-
mannafélagið vegna þess að það var
okkar ásetningur að við næðum að
tilkynna þetta okkar starfsmönnum
áður en þeir fæm að heyra af þessu
í fjölmiðlum," sagði Sveinn Andri.
Oskar Helgason
á Höfn látinn
Óskar Helgason, fyrrverandi
oddviti og heiðursborgari á Höfn
í Homafirði, lést 2. júni síðastlið-
inn, 75 ára að aldri.
Oskar fæddist 14. september árið
1917 á Háreksstöðum í Norðurár-
dal. Foreldrar hans voru Helgi Þórð-
arson bóndi og smiður þar og Ingi-
björg Skarphéðinsdóttir.
Eftir kennarapróf 1941 kynnti
hann sér síma- og radíótækni hjá
Landsíma íslands og tók hann við
starfi stöðvarstjóra landsímastöðv-
arinnar á Höfn árið 1945. Því starfí
gegndi hann þar til hann lét af
störfum fyrir aldursakir. Jafnframt
stöðvarstjórastarfmu sinnti hann
ýmsum öðrum störfum.
Óskar gegndi fjölmörgum trún-
aðarstörfum á sviði sveitarstjórnar-
mála, í samvinnuhreyfingunni og
víðar. Hann var gæslumaður bama-
stúkunnar Rósinnar til margra ára.
Tók virkan þátt í störfum Ung-
mennafélagsins Sindra, Ung-
mennasambandsins Úlfljóts og
Golfklúbbs Homafjárðar og gegndi
formennsku um tíma í öllum þess-
um félögum. í stjórn Kaupfélags
Austur-Skaftfellinga var hann kjör-
inn 1949 og átti þar sæti um langt
árabil. Fyrst sem varaformaður
stjómar og síðar sem formaður.
Hann var fulltrúi kaupfélagsins í
ýmsum nefndum og fyrirtækjum,
m.a. stjórn SÍS. I hreppsnefnd
Hafnarhrepps er óskar fyrst kosinn
1966 og endurkjörinn þrjú kjör-
tímabil í viðbót. Hann var oddviti í
öll þessi ár eða frá 1966-82. Jafn-
framt setu í hreppsnefndinni sat
Óskar í ýmsum nefndum og ráðum
fyrir sveitarfélagið svo og í stjóm-
um fjölmargra stofnana og fyrir-
Óskar Helgason.
tækja þar á meðal Sambandi sveit-
arfélaga í Austurlandskjördæmi. Á
fyrsta fundi Hafnarsóknar 1953 var
Óskar kjörinn safnaðarfulltrúi og
gegndi því starfí til síðsta dags.
Jafnframt sat hann í sóknamefnd
um tíma og var formaður bygging-
arnefndar Hafnarkirkju, sem vígð
var 1966.
Á sjötugsafmæli Óskars 14. sept-
ember 1987 var hann sæmdur nafn-
bótinni heiðursborgari Hafnar.
Eftirlifandi kona Óskars er Guð-
björg Gísladóttir frá Breiðdalsvík.
Hún er dóttir Ingibjargar Guð-
mundsdóttur og Gísla Guðnasonar
póst- og símstjóra þar. Óskar og
Guðbjörg eignuðust fimm börn og
eru fjögur á lífí.
Útför Óskars fer fram frá Hafn-
arkirkju laugardaginn 12. júní.
i
Vantar ykkur notaðan bíl
á góðu verði fyrir sumarið ?
Þá ættuö þiö aö kíkja til okkar og skoöa úrvalið!
Renault 19 Chamade, BMW316Í Mazda323
sjálfsk., 1992, ek. 26 þús. Kr. 4ra dyra 1990, ek. 40 þús. 1992, ek. 20 þús.
1.100.000. Kr. 1.100.000. Kr. 850.000.
Renault 19 RTi Daihatsu Charade Nissan Pulsar
m/öllu, 1993, ek. 5 þús.
Kr. 1.390.000.
Renault Nevada
4x4,1991. Verð kr. 1.380.000.
Tilboð kr. 990.000.
1990. Verð kr. 490.000.
Tilboð kr. 420.000.
BMW316
1987. Verð kr. 650.000.
Tilboð kr. 590.000.
sjálfsk.,ek. 1989,
ek. 76 þús. Kr. 620.000.
1988, ek. 73 þús. Kr.
620.000,-
Bflaumboðið hf.
Krókhálsi 1 * Reykjavík * Sími 686633
Þessir bílar eru á tilboösveröi!
TILBOÐSLISTI ÁRGERÐ STGR- TILBOÐS-
VERÐ VERÐ
BMW 518 1982 220.000 180.000
MMC Galant 1987 970.000 690.000
Peugout 309 Profil 1989 390.000 330.000
BMW 520ÍA 1987 890.000 650.000
Lancia Y-10 1988 270.000 195.000
Renault 11 1985 280.000 250.000
Opel Kadett 1985 280.000 190.000
VW Polo VSK 1990 480.000 420.000
Chevy Monza sjálfsk. 1987 440.000 290.000
Lada Samara 1988 280.000 220.000
Seat Ibiza 1988 290.000 190.000
Engin útborgun -Visa og Euro raögreiöslur
Skuldabréf til allt aö 36 mánaða
Beinn sími í söludeild notaöra bíla er 676833 Opið: Virka daga kl. 10-18 og laugardaga kl. 13-17