Morgunblaðið - 10.06.1993, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 10.06.1993, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 1993 39 VELVAKANDI GÆLUDÝR KVEIKJA Kveikja er týnd KVEIKJA, sem er eins árs gömul svört og hvít læða, hvarf fyrir um viku af heimili sínu í Kópavogi. Hafi einhver séð hana eða fundið vinsamlega hringið í Hauk Grímkelsson í síma 642995. Loppi er týndur KÖTTURINN Loppi er týndur en hann stór, bústinn og svart- ur með hvítar loppur, bringu og trýni. Loppi er með bláa hálsól og týndist 22. maí í Sel- áshverfi og eru Árbæingar sér- staklega beðnir um að hafa augun opin. Finnandi er beðinn um að hringja í Þóru í síma 672937. Þrír kettlingar ÞRÍR sjö vikna kettlingar, tvær læður og einn högni, fást gef- ins. Upplýsingar eru veittar í síma 28747. TAPAÐ/FUNDIÐ Gleraugu töpuðust GYLLT málmspangagleraugu í gráu hulstri töpuðust mánu- daginn 7. júní sl. í grennd við Engjasel eða bensínstöðina við Æsufell. Finnandi vinsamlega hafi samband við Bæring í síma 75863. Fólksbílakerru stolið LÍTILLI fólksbílakerru var stol- ið úr læstu bílaskýli við Engja- sel 1-23 helgina 4.-6. júni sl. Þeir sem kunna að hafa orðið varir við kerruna eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í Reykjavík eða Margréti í síma 74457. Gleraugu töpuðust í Staðarskála GLERAUGU með áföstum sól- gleraugum komust í rangar hendur í Staðarskála laugar- daginn 5. júní. Sá sem gleraug- un hefur fundið er beðinn um að hafa samband við Bjarna í síma 682018. Sly'alataska týndist STÓR vínrauð skjalataska úr leðri týndist í vetur sem leið en í henni var Time Manager skipuleggjari. Finnandi er beð- inn að hringja í Þórhildi í vinnu- síma 697356 eða heima í síma 20375. Gullarmband í óskilum GULLARMBAND tapaðist eft- ir 15. maí, sennilega í Klepps- holti eða í kringum Kringluna. Finnandi vinsamlega hringi í Guðrúnu í síma 813248. Heimsendingar eru plága JÓN Magnússon hringdi í Vel- vakanda og vildi benda á þá plágu sem stöðugar heimsend- ingar auglýsingapósts fyrir- tækja eru. Hann taldi þó alvar- legust þau tilvik þegar bækur, rit eða tímarit, sem viðtakandi hefur aldrei pantað, eru send heim með gíróseðli. Þá sagði hann það aðeins koma fyrir að hringt sé í hann og hann kraf- inn greiðslu vegna vanrækslu á greiðslu gíróseðilsins. Þetta telur Jón ótækt og fullyrðir að í þeim tilvikum þegar ekkert er pantað að þá þurfí ekki að sinna innheimtukröfum. Sam- kvæmt upplýsingum sem Vel- vakandi aflaði sér hjá lögfróð- um manni er viðtakanda réttast í tilvikum sem þessum að skila öllum heimsendum verðmætum sem hann kýs að hafna. Hann á aftur á móti ótvíræðan rétt á greiðslu á útlögðum kostnaði eða svokölluðum ómakslaun- um. Pennavinir Frá Bandaríkjunum skrifar lækn- ir sem getur ekki um aldur en móðir hans er af íslensku bergi brotin. Vill skrifast á við ungar konur: Robert G. Manolakas, 3715 Dauphin Street, Building 2, 7th Floor, Átján ára þýsk stúlka með mik- inn Islandsáhuga, auk þess hefur húne áhuga á dýrum, einkum hest- um og köttum, bókalestrsi og kvik- myndum: Ulrike Stallhofer, Fichtenweg 1, DW-8397 Bad Fussing, Germany. ítalskur karlmaður, 28 ára, með margvísleg áhugamál, vill skrifast á við 22-25 ára stúlkur: Marco Idini, Via Melville 15, 00143 Roma, Italia. LEIÐRÉTTIN G AR Haförn bjarg-aði skipverjum Rangur myndatexti birtist með mynd á blaðsíðu 19 í Morgunblað- inu í gær. Með fréttum um björgun skipveijanna af Torfa ÍS sem fórst undan Malarrifi birtist mynd af Vali á Haferninum sem bjargaði skipveijunum. Hann heldur á ár sem skipbrotsmennirnir notuðu til að ýta gúmbjörgunarbátnum frá brennandi bátsflakinu en þeir gáfu Vali árina til minningar um björg- unina. Ranglega var sagt að mynd- in væri af Guðmundi Jóhannessyni á Mána sem hefði bjargað mönnun- um af Torfa. Hann slökkti hins vegar í trillunni. Beðist er velvirðingar á mistök- unum. Nafn féll niður í minningargrein Hönnu Karenar Kristjánsdóttur um Georg S.S. Jónsson vélstjóra í Morgunblaðinu síðastliðinn föstudag, 4. júní, féll niður í upptalningu á börnum og tengdabörnum Georgs og Ingigerð- ar Hallgrímsdóttur nafn sonar þeirra og tengdadóttur, Hallgríms Georgssonar og Sigurbjargar Mar- teinsdóttur. Hlutaðeigandi eru inni- lega beðnir velvirðingar á þessum mistökum. ZANCASTER Vissirðu að LANCASTER snyrtivörurnar eru á sama verði hér og í Evrópu? ÍSFLEX HF. einkaumboð á íslandi Tölvuskóli Reykiavíhur i ■ Borgartúni 28, sími 91-687590 tOlvuskóli fyrir börn OG UNGUNGA, 10-16 ÁRA í sumar heldur Tölvuskóli Reykjavíkur 24 klst. 2 vikna tölvunámskeið. Námið miðar að því að veita almenna tölvuþekkingu og að koma nemend- um af stað við að nýta tölvuna sér til gagns og gamans. Farið er í eftitalin atriði: - Fingrasetning og vélritunaræfingar - Windows og stýrikerfi tölvunnar - Ritvinnsla - Teikning - Almenn tölvufræði - Töflureiknir - Leikjaforrit Áhersla er lögð á hagnýt verkefni sem nýtast við nám. Hóflegt verð. Innritun í síma 616699. Þegar við segjum að Honda sé óvenju sparneytinn btll, erum við ekki bara að segja að hann sé spar á eldsneyti, heldur einnig á umhverfið. VTEC vélin sem nú prýðir helstu gerðir Honda, er byltingarkennd nýjung sem trýggir hámarksnýtingu á eldsneyti án þess að það komi niður á krafti bílsins. Verndun umhverfisins er ábyrgð allra. Honda er leiðandi í hópi þeirra bílaframleiðenda sem sinna þeirri ábyrgð. [0 VATNAGÖRÐUM - SlMl 689900 ...spameytni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.