Morgunblaðið - 10.06.1993, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 1993
29
Nær 2.000 hlupu
í heilsuhlaupinu
HIÐ ÁRLEGA heilsuhlaup Krabbameinsfélags íslands var haldið í
sjötta sinn síðasta laugardag. Nú í ár hlupu 1700-1800 manns, árið
1988 voru þátttakendur um 300.
Morgunblaðið/Silli
Kristján Ásgeirsson afhendir Sigtryggi Kristjánssyni heiðursmerkið.
Sjómannadagshátíð-
arhöldin á Húsavík
Húsavík.
Sjómannadagshátíðarhöldin á Húsavik fóru fram með hefðbundn-
um hætti með því fráviki að veður er misjafnt og í þetta skipti held-
ur hryssingslegt á laugardag en gott veður á sunnudag.
Síðasta laugardag var haldið í
sjötta sinn hið árlega heilsuhlaup
Krabbameinsfélags íslands. Að
sögn Ólafs Þorsteinssonar fram-
kvæmdastjóra félagsins var hlaupið
á fjórum stöðum á landinu, Reykja-
vík, Höfn í Hornafirði, Egilsstöðum,
og í Grímsey. Ólafur sagði fjölgun
þátttakenda vera merkjanlega. Á
síðasta ár hlupu um 1500 manns í
heilsuhlaupinu á landinu öllu. Nú
hlupu um 1.700-1.800 manns,
a.m.k. 1.500 í Reykjavík, 70 á Eg-
ilsstöðum, um 100 á Höfn í Horna-
firði og 64 af 100 eyjaskeggjum í
Grímsey hlupu. Þátttakendur gátu
Umferðarljósin verða samhæfð
við önnur ljós á Sæbraut. Vinstri-
beygja af Sæbraut inn á Súðarvog
verður umferðarstýrð. Ennfremur
verður umferð af Súðarvogi um-
valið milli þriggja vegalengda, 2
km, 4 km og 10 km. Af þeim 1.500
sem hlupu í Reykjavík völdu 298
10 km en aðrir skiptust jafnt á
styttri vegalengdirnar.
Ólafur sagði þátttökuna í Reykja-
vík vera umtalsverða aukningu frá
síðasta ári, þá hefðu um 900 manns
tekið til fótanna. Hann benti á að
þegar hlaupið var í fyrsta skipti
árið 1988 hefðu þátttákendur verið
300.
Ólafur sagði að hlaupararnir sem
lögðu af stað frá í Laugardalnum
hefðu verið af öllum aldri, oft hefðu
heilu fjölskyldurnar tekið þátt.
ferðarstýrð.
Til að áminna ökumenn um hin
væntanlegu umferðarljós verða þau
látin blikka gulu ljósi í nokkra daga
áður en þau verða tekin í notkun.
Hátíðarhöldin hófust við höfnina
kl. 14.00 á laugardag og var þar
keppt í kappróðri, flotgallasund-
keppni og koddaslag.
Að morgni sunnudags gengu
menn til kirkju kl. 9, og þar sem
séra Bjöm H. Jónsson flutti messu
og að henni lokinni var gengið að
minnisvarða látinna sjómanna og
lagður blómvöndur að stalli hans.
Eftir hádegi söfnuðust menn
saman á íþróttavellinum og fór þar
fram keppni í knattspymu, reip-
togi, naglahlaupi og fleiri leikjum.
I félagsheimilinu fór fram kaffi-
sala á vegum Slysavarnadeildar
kvenna og afhending verðlauna fyr-
ir unnin afrek og aldraður sjómaður
heiðraður.
Var það í þetta skipti Sigtryggur
Kristjánsson, sem nú er um sjö-
tugt, oft kenndur við Naustavík.
Lífsstarf Sigtryggs frá unga aldri
hefur verið bundið sjónum, bæði til
sjós og lands. Hann rak útgerð um
tíma með bræðram sínum og var
3M
Til lækninga
þá landsformaður, enda þekktur
sem ágætur beitingamaður og
stendur enn við beitingabalana.
Um kvöldið var svo fjölmenn árs-
hátíð sjómanna í Hótel Húsavík.
- Fréttaritari.
Greinakurtarar
Fyrirlestur
um áhrif þjálf-
unar á ónæm-
iskerfið
INGIBJÖRG H. Jónsdóttir, líf-
eðlisfræðingur, flytur mánu-
daginn 14. júní fyrirlestur um
áhrif þjálfunar á ónæmiskerfið
með sérstöku tilliti til krabba-
meins.
Ingibjörg mun m.a. segja frá
nýjum niðurstöðum rannsókna
sem hún vinnur að við Lífeðlis-
fræðistofnun Gautaborgarhá-
skóla. Fyrirlesturinn verður í Læk-
nagarði v/Vatnsmýrarveg í
kennslustofu á 3. hæð kl. 15. All-
ir velkomnir.
SJÁLFVIRKI
OFNHITASTILLIRINN
Stöðug þægindi
óhóo veðra-
brigðum.
= HÉÐINN =
VERSLUN
SELJAVEGI 2 SÍMl 91-624260
Morgunblaðið/Einar Faluc
A heilsuhlaupum
Hlaupið um Laugardal í heilsuhlaupi Krabbameinsfélags íslands.
Ný umferðarljós í borginni
KVEIKT verður á nýjum umferðarljósum laugardaginn 12. júní kl.
14 á mótum Sæbrautar og Súðarvogs.
Skyggnilýsingar
Míðillinn Marjory Kite
Fimmtudaginn 10. júni kl. 20.30
í sal Nýaldarsamtakanna,
Laugavegi 66, 3. haeð.
Verð kr. 700.
Almennur félagsfundur um
byggingaframkvæmdir I Hamra-
gili veröur haldinn í skíðaskála
félagsins sunnudaginn 13. júnf
kl. 15.00. Félagar fjölmennið.
Stjórnin.
fbmhjálp
I kvöld kl. 20.30 er almenn sam-
koma í Þríbúðum. Mikill almenn-
ur söngur. Ræðumenn Ragn-
heiður Pálsdóttir og Jón Sævar
Jóhannsson. Kaffi að lokinni
samkomu.
Allir velkomnir. Samhjálp.
SH10 auglýsingar
■ VEGURINN
V Kristið samfélag.
Smiöjuvegi 5, Kópavogi
Lækningasamkoma kl. 20.30 í
kvöld. Kennt verður um guðlega
lækningu og beðið fyrir sjúkum.
Allir velkomnir.
„Náðarár Drottins er í dag“
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 • SÍMI 682533
Laugardag kl. 09: Njáluslóðir.
Verð kr. 2.100,-
Ekið sem leið liggur austur í
Rangárvallasýslu og sögustöð-
um Njálu fylgt um leið og sagan
er rifjuð upp. Ógleymanleg ferð
fyrir fróðleiksfúsa íslendinga.
Fararstjóri: Jón Böðvarsson.
Sunnudagur 13. júní:
Kl. 10.30: Kaldársel - Bollar -
Þrlhnúkar (B-6a).
Kl. 13.00: Kristjánsdalir - Þrí-
hnúkar (B-6b).
Fimmtudag 17. júní kl. 08:
Dagsferð til Þórsmerkur.
Til Þórsmerkur verða ferðir
hvern miðvikudag frá og með
23. júnf og út ágúst.
Ferðafélag íslands.
Orð lífsins,
Grensásvegi 8
Vakningasamkoma í kvöld kl.
20.30. Mikill söngur og beðið
fyrir sjúkum. Allir hjartanlega
velkomnir!
UTIVIST
Hallveigarstig 1 • simi 6 14330
Fimmtud. 10. júní kl. 20.00
Kvöldganga: Lyklafell á Mos-
fellsheiði. Létt og skemmtileg
ganga fyrir alla fjölskylduna.
Verð kr. 700/800. Frítt fyrir börn
15 ára og yngri í fylgd fullorð-
inna. Brottför frá BSI bensin-
sölu.
Helgarferðir 11. -13. júní
Botnsúlur - Þingvellir
Góð æfing fyrir bakpokaferðir
sumarsins. Verð kr. 5000/5500.
Brottför frá BSI kl. 18.30. Farar-
stjóri Óli Þór Hilmarsson.
Básar við Þórsmörk
Skipulagöar gönguferðir með
fararstjóra. Góð gistiaðstaða.
Brottför á hverjum föstudegi kl.
20.00. Upplýsingar og miöasala
á skrifstofu Útivistar.
Útivist.
FERÐAFÉLAG
® ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 SÍMI 682533
Sumarieyfisferðir í júní:
1. 17.-20. júní (4 dagarj:
A. Skaftafell - Öræfajökull.
Gist í tjöldum og húsi.
B. Skaftafell - Öræfajökull.
Gist í tjöldum og húsi.
C. Skaftafellsfjöll.
Göngutjöld.
D. Núpsstaðarskógar.
Gist I tjöldum.
Brottför kl. 09 fimmtudag.
Allar þessar ferðir tengjast efni
Árbókar F.í. 1993.
2. 17.-20. júní (4 dagar):
Breiðafjarðareyjar - Látrabjarg
um sumarsólstöður. Siglt með
Eyjaferðum um Breiðafjörð -
skelfiskveisla. Komið við i Ratey,
siglt þaðan ^ð Brjánslæk.
3) 23.-27. júní (5 dagar): csju-
fjöll. Gengið upp Breiðamerkur-
jökul og gist í skála Jöklarann-
sóknafélagsins í Esjufjöllum.
Fá sæti laus.
4) 27.-29. júní (3 dagar):
Grímsey - Hrísey. Flogið til
Grímseyjar. Siglt til baka með
ferju til Hríseyjar og aftur ferja
til Ársskógsstrandar og rúta til
Akureyrar. Gist i svefnpoka-
plássi.
Ath. breytta dagsetningul
5. 30. júní - 4. júlí (5 dagarj:
Skemmtiferð um Skagafjörð og
Kjöl. Gist f sveitagistlngu á bæn-
um Lónkoti í Sléttuhlíð. Siglt til
Málmeyjar, ekið fyrir Skaga.
Heim um Kjöl.
Ferðafélag íslands.
Hvítasunnukirkjan
Völvufelli
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30. Allir hjartanlega velkomnir.
SHjalpræðis-
herinn
fý Kirk*Ui,r®1'2
Hjálpræðisherinn
í kvöld kl. 20.30: Almenn sam-
koma. Flokksforingjarnir og kap-
teinarnir Elbjörg og Thor Narve
Kvist stjórna og tala. Söngur og
tónlist. Allir velkomnir.
ATVINNA
Fjölskylda, miðsvæðis í
Ósló, leitar að húshjálp
í 1-2 ár. Á heimilinu er 9 ára
drengur og 7 ára tvíburatelpur í
skóla og á skóladagheimili til kl.
16. Eigið herbergi og bað. Laun
3.500 norskar kr. á mán. + fæði
og húsnæði. Frí ferð til Ósló.
Þarf að byrja fyrir 15. ágúst.
Vottorð og meðmæli óskast
með umsókn sem sendist til:
Walborg Sandvik og
Stein Svendsen,
Fredensborgveien 32,
0177 Ósló 1, Noregi.
Sími+47 22 20 86 03.
i