Morgunblaðið - 10.06.1993, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 1993
13
inni, krafðist þess hins vegar að
málið kæmi fyrir Alþingi. Þar kom
það í hlut Halldórs Ásgrímssonar,
sem síðar varð sjávarútvegsráð-
herra Framsóknarflokksins, að
mæla fyrir áliti meirihluta utanrík-
ismálanefndar um að hvalveiði-
banninu skyldi ekki mótmælt. Það
var samþykkt með eins atkvæðis
meirihluta í mikilli tímaþröng á
Alþingi. Þjóðréttarlegan vanda okk-
ar varðandi hvalveiðar nú má rekja
til þessa óðagots í ríkisstjóm og á
Alþingi. Nú hefur komið í ljós að
við stæðum miklu betur að vígi ef
hvalveiðibanninu hefði verið mót-
mælt.
Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar
glímir við hvalveiðimálin á þessum
tíu ára gömlu forsendum. Vegna
þeirra skortir okkur þjóðréttarlega
stöðu í málinu. Núverandi ríkis-
stjóm verður ekki sökuð um þessa
grundvallarákvörðun við mótun ís-
lenskrar hvalastefnu. Sé það gert
minnir hún á spumingu konu af
færeyskum ættum sem er búsett
hér. Hún hlustaði á kunningja sína
hallmæla íslenskum ráðherrum og
klykkja út með því að segja, að
þeir væm að fara með ísland sömu
leið og Færeyjar. Ekki réðu þeir
þar? spurði konan.
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Fornleifa-
fræðingar
fá norræna
rannsókn-
arstyrki
NORRÆNA samtarfsnefndin í
mannlegum fræðum, NOS-H,
hefur samþykkt að styrkja tvö
rannsóknarverkefni sem unnin
eru að frumkvæði og undir for-
ystu fomleifafræðinga á Þjóð-
minjasafni íslands, segir í frétt
frá Þjóðmiiýasafni.
Annars vegar er um að ræða
verkefnið Byggð og tímatal íNorð-
ur-Atlantshafi undir stjóm dr.
Margrétar Hermanns-Auðardóttur
sem fær rúmlega 2,2 milljóna
króna styrk. Það er samvinnuverk-
efni fornleifafræðinga og eðlis-
fræðinga er vinna við hefðbundnar
kolefnisaldursgreiningar í Noregi,
Danmörku, Færeyjum og á Is-
landi. Ætlunin er að kanna til hlít-
ar aldur landnáms á íslandi og í
Færeyjum en um það efni hafa
orðið allnokkrar deilur meðal
fræðimanna eftir að dr. Margrét
Hermanns-Auðardóttir birti dokt-
orsritgerð sína um upphaf byggðar
á íslandi.
Hins vegar er um að ræða styrk
að upphæð rúmlega 600 þúsund
ísl. krónur til að undirbúa sam-
vinnuverkefni um Uppruna íslend-
inga með því að kanna mannabein
frá fyrstu byggð á íslandi. Dr.
Vilhjálmur Om Vilhjálmsson
stjórnar verkinu, en það er unnið
í samvinnu við danska og sænska
mannfræðinga.
. (Fréttatilkynnmg)
Með 10. filmu
15x21 eða 13x18
stækkun.
Kodak Express
Höfuðborgarsvæðið
Verslanlr Hans Petersen M.:
Austurveri, Bankastræti,
Glæsibæ, Grafai'vogi,
Hamraborg (Kópavogi),
Hólagarði, Kringlunni,
Laugavegi 178, Lynghálsi
og Skeifunni.
Tokyo: Hlemmi.
Myndhraði: Eiðistorgi.
Myndval: Mjódd.
Hafnarfjörður:
Filmur og Framköllun.
Keflavík: Hljómval.
Akranes: Bókaverslun
Andrésar Níelssonar.
ísafförður: Bókaverslun
Jónasar Tómassonar.
Sauðárkrókur:
•»
Bókaverslun Brynjars.
Akureyri: Pedrómyndir.
Egilsstaðir: Hraðmynd.
Selfoss: Vöruhús KÁ
Með 5. filmu
20x28 stækkun,
G o t t v e r ð • K o d ci k g æ d i • Þ i n n h ci g u r
Þú færð Kodak Express afsláttarkort þegar
þú kemur með filmuna í framköllun hjá Kodak Express.
á 15. og 18. filmu.
G o t t v e r ð • K o d a k g œ c f i • Þ i n n h a g n r
Framhryegjar-
sneiðar meoa.m.k.
15% grillafslætti
í næstu verslun færðu nú lambakjöt á afbragðstilboði, - tilbúið beint á grillið.