Morgunblaðið - 10.06.1993, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JUNI 1993
19
Skógardagur
í Hafnarfirði
SKÓGARDAGUR Skógrækt-
arfélags Hafnarfjarðar verður
á laugardag 12. júní og hefst
klukkan 9.30 með því að komið
verður saman í Húshöfða, svæði
félagsins við Hvaleyrarvatn.
Skógardagurinn hefur nú verið
haldinn um nokkurra ára skeið og
ávallt verið vel sóttur af félögum
í Skógræktarfélaginu og öðru
áhugafólki um uppgræðslu og
gróðurvernd. Hefur dagskráin ver-
ið með ýmsu móti, meðal annars
kynning á starfsemi félagsins og
á því, sem áunnist hefur við endur-
heimt landsins gæða, en megin-
stefíð þó alltaf verið gróðursetn-
ing. Að þessu sinni verður plantað
út stafafurum í Höfðaskóg og
einnig kennt hvernig stinga skal
niður rofabörð.
Félagar í Skógræktarfélagi
Hafnarfjarðar og allt áhugafólk
er hvatt til að taka þátt í Skógar-
deginum og minnt skal á, að boð-
ið verður upp á hressingu í Höfða.
--------» ♦ «--
Hringur-
innfær
fatagjöf
KVENFÉLAGINU Hringnum
hefur borist að gjöf frá Hjör-
dísi Gissurardóttur fatalager
frá Benetton og skólager frá
Cinderella.
Hringskonur fá aðstöðu í
Kringlunni, 1. hæð, til að selja
þennan fatnað. Salan hófst 9. júní
og stendur í allt að 2 vikur.
Andvirðið rennur óskipt í
Barnaspítalasjóð Hringsins, - og
vona Hringskonur að almenning-
ur, nú sem fyrr, leggi þeim lið og
styrki gott málefni en geri um
leið góð kaup, segir í fréttatilkynn-
ingU;
„Öilum má vera ljós þörfin á
nýjum og fullkomnum barnaspít-
ala á íslandi. í samræmi við nýja
tíma og þarfir er dvalaraðstaða
fyrir aðstandendur veikra barna
talin nauðsynleg. Slíkt er ekki til
staðar í núverandi húsnæði barn-
aspítalans sem er löngu orðið of
lítið, enda aðeins ætlað til bráða-
birgða er það var tekið í notkun
árið 1965. Barnaspítali Hringsins
þjónar öllu landinu," segir enn-
fremur.
SKAMPER
pallbílahús, niðurfellanleg
Svefnpláss f. 4-5, Ijós viður, borð,
bekkir og rúm. Eldavél, stálvaskur,
vatnstankur, ísskápurf. 12 v. og gas.
Hitaofn, stærsta fáanleg gerð.
Afgreiðsla strax og fast verð.
Vönduð og falleg hús ó lágu verði
og góð greiðslukjör.
TÆKJAMIÐLUN ÍSLANDS HF.
Bíldshöfða 8-sími 91-674727.
Leitið ekki langt yfir skammt
er alltaf í leiðinni
Þar fást bæði skógarplöntur í bökkum og
stálpuð tré í kerum og svo allt þar á milli.
Félagsmenn fá 10% afslátt
SKÓGRÆKTARFÉLAG REYKJAVÍKUR
Fossvogsbletti 1, fyrirneðan Borgarspitalann, sími 641770. Beinn sími söludeildar 641777
sKÚS^jIvIkurA0
STOFNAÐ1W8
MARITHE og FRANCOIS
GIRBAUD eru franskir
tískuhönnuðir, þekktir fyrir
að vera frumkvöðlar að
margri tískusveiflunni.
Þau hafa alltaflátið
kröfur nútímans sitja
í fyrirrúmi í hönnun
sinni. Fötin eru bæði mjúk
og sveigjanleg, sem og
skemmtilega frumleg.
Hvort sem þú ert karl eða
kona og langar í sérstakan
og vandaðan fatnað á góðu
verði, þá bjóðum við þig
velkomin(n) í verslun
okkar, Studio MFG, að
II Laugavegi 48. Við bjóðum
éíhgöngu vörurfrá MFG
og við lofum þér því að hjá
okkur færð þú fatnað sem
þú sérð ekhi annan hvern
mann í!
Fatnaður frá MARITHE og
FRANCOIS GIRBAUD er
einfaldlega það rétta fyrir þig.
30% kynningarafsláttur af léttum
sumarfatnaði vikuna 10. - 17.júní.
TISKUSYNING A SOLON ISLANDUS FIMMTUDAGINN 10. JUNI KL. 22
Fljúgandi frumlegur fatnadur.