Morgunblaðið - 10.06.1993, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 1993
33
Sergei er ánægður með að hafa
flutt til Bandaríkjanna.
UMSKIPTI
Sonur
Khrústsjovs
flytur til
Bandaríkjanna
Aárinu 1950 þegar Nikita
Khrústsjov þáverandi leiðtogi
Sovétríkjanna sagði stoltur við Ric-
hard Nixon varaforsta Bandaríkj-
anna, að barnabörn hans myndu búa
í kommúnistaveldinu Bandaríkjun-
um reyndist hann ekki sannspár
varðandi kommúnismann. Svo kald-
hæðnislega vill til, að sonur Nikita,
Sergei Khrústsjov, hefur nú tekið
anti-kommúnistaríkið Bandaríkin
fram yfír Rússland. %
Fyrir tveimur árum fiutti hann
og kona hans, Valentina, til Banda-
ríkjanna og urðu síðastliðið vor
bandarískir ríkisborgarar. Meðal
meðmælenda þeirra voru menn á
borð við George Bush og Richard
Nixon.
Vinnur við utanríkismál
Sergei, sem er 57 ára, starfaði sem
tölvusérfræðingur í Rússlandi, en nú
Feðgarnir Nikita og Sergei
Khrústsjov.
vinnur hann við rannsóknir á utanrík-
ismálum við Brown-háskólann í
Providence. Hann staðhæfir að auð-
veldara sé að starfa í Bandaríkjunum
en í Rússlandi og bætir við, að sér
hafi komið mest á óvart hversu hjálp-
legir Bandaríkjamenn eru.
Þegar þau hjónin fluttu höfðu þau
aðeins með sér tvær ferðatöskur en
hafa nú komið sér vel fyrir og lifa
rólegheitalífi í útjarðri Cranston í
Rhode Island. Frítíma sinn notar
Sergei til að skrifa greinar um hrun
kommúnistaveldis Sovétríkjanna, en
eiginkona hans notar tímann og
Iærir ensku með því að horfa á
bandarískar kvikmyndir eins og Síð-
asta keisarann.
Synir Sergei frá fyrra hjóna-
bandi, Nikita 34 ára, Ilia 23 ára og
tvítugur stjúpsonur, Sergei, kusu að
verða eftir í Rússlandi þegar Valent-
ina og Sergei fluttu til Bandaríkj-
anna.
Frábært
sumartilboö
25% af öllum vörum
aðeins í dag, morgun
og laugardag
KÍAÍknw
M LAUGAVEGI67
EIÐISTORGI
KRINGLUNNI