Morgunblaðið - 18.07.1993, Page 1
72 SIÐUR B
160. tbl. 81. árg.
SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ 1993 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Svarthols-
diskur næst
á Ijósmynd
STJÖRNUFRÆÐINGAR hafa tekið mynd-
ir af svokölluðum kjarnasamrunadiski og
það er talið renna stoðum undir kenningar
um svartholið svokallaða, samkvæmt grein
sem birt var í tímaritinu Nature. Tilvist
svartholsins hefur aldrei verið sönnuð, en
talið er að það sé risastjarna sem hafi ver-
ið svo þung að hún hafi hrunið saman.
Þyngdarsvið þess er talið svo sterkt að allt
sem kemur nálægt því, til að mynda ljós,
sogast inni í miðju þess ðg sleppur ekki
út. Stjörnufræðingar hafa gengið út frá
því að efni hringsnúist um svarholið meðan
það sogast inn. Þannig myndist samruna-
diskur, flatur sporbaugur sem líkist snúði.
í greininni í Nature segjast hollenskir og
bandarískir visindamenn hafa náð myndum
af stóru disklaga fyrirbæri úr köldu
géimryki og gasi í Meyjunni, í um 40 millj-
ónum ljósára fjarlægð frá jörðu. „Á miðju
myndarinnar má greinilega sjá samruna-
disk sem stöðvar ljósið frá stjörnunum á
bak við. Á miðju disksins er bjartur punkt-
laga kjarni,“ sagði Walter Jaffe, einn af
höfundum greinarinnar.
Freeh til FBI
í stað Sessions?
BILL Clinton Bandaríkjaforseti mun skipa
nýjan yfirmann bandarísku alríkislögregl-
unnar FBI í stað Williams Sessions eftir
helgi að sögn háttsettra embættismanna í
Washington. Clinton stefndi Louis Freeh,
43 ára alríkisdómara, til fundar við sig í
Hvíta húsinu á föstudagskvöld en hann
þykir líklegur eftirmaður Sessions. Blaðið
New York Times sagði í gær að Sessions
hefði mjög snögglega aflýst að koma fram
opinberlega í Chicago á föstudag og hraðað
sér aftur til höfuðborgarinnar. Sagði blaðið
ýmislegt benda til þess að Clinton væri
þess reiðubúinn að setja hann af og spáði
blaðið í gær að það gæti jafnvel gerst sam-
dægurs. Háttsettir embættismenn sögðu
hins vegar við /ieuíere-fréttastofuna í gær
að ákvörðun um nýjan yfirmann hjá FBI
yrði tekin eftir helgi. Sessions hefur verið
sakaður um bruði og að misnota aðstöðu
sína í einkaþágu. Helstu samverkamenn
Clintons, þar á meðal Thomas McLarty
skrifstofustjóri í Hvíta húsinu, hafa hins
vegar ekki farið dult með að forsetinn
væri að leita að manni til að taka við af
Sessions. Hann hefur neitað að víkja sjálf-
viljugur úr starfi og sagðist opinberlega í
síðustu viku ætla að sitja út starfstíma sinn.
Ronald Reagan forseti skipaði hann yfir-
mann FBI fyrir hálfu sjötta ári.
SKÚRR
í SðCU SÓLAR
/ Smjörlíki hf.
lUá timamótum
Morgunblaðið/Golli
Nestisdagur í reiðskólanum
ÞEIR voru á síðasta degi á tveggja vikna reiðnámskeiði, krakkarnir á Akureyri, og tóku með sér nesti, sem þeir neyttu á áningar-
stað skammt norðan við Kjarnaskóg.
Tvísýnustu þingkosningar í áratugi fara fram í Japan í dag
Ostöðugleiki framundan
í stjómmálum landsins
Tókýó. Reuter.
KOSNINGAR fara fram í Japan í dag. Þær verða að öllum líkindum
þær tvísýnustu í landinu síðan á sjötta áratugnum. Stjórnmálaskýrendur
segja að það eina sem verði með nokkurri vissu sagt um útkomuna sé
að framundan sé tímabil óstöðugleika í japönskum stjórnmálum. Búast
megi við minnihlutastjórn; alltént mjög veikri stjórn. Þrátt fyrir að nú
séu þrír nýir flokkar í framboði og rætt sé um vatnaskil í japönskum
stjórnmálum, er búist við að kosningaþátttaka verði lítil. Auk hefðbund-
ins áhugaleysis kjósenda er nú spáð miklum rigningum á kjördag.
Fijálslyndi lýðræðisflokkurinn (LDP)
hefur setið að völdum í Japan tæp 38 ár,
en ekki einu sinni formaður hans býst við
að ná meirihluta í neðri deild þingsins.
Samkvæmt skoðanakönnun á föstudaginn
fær flokkurinn um 220 sæti, en þarf 256
til þess að ná meirihluta. Stjórnmálaskýr-
endur eru flestir þeirrar skoðunar að flokk-
urinn muni mynda minnihlutastjórn eftir
kosningarnar. Útlitið er enn dekkra fyrir
helsta stjórnarandstöðuflokkinn, Sós-
íalistaflokkinn, sem þykir úreltur vegna
vinstri kreddufestu. Flokkurinn fær að lík-
indum minnsta fylgi í sögu sinni, en sam-
kvæmt verstu spám fær hann einungis 54
sæti, en hafa haft 134.
Nýjum flokkum spáð góðu gengi
Nýir flokkar fá að líkindum talsvert
fylgi. Þannig er Endurreisnarflokknum,
sem var stofnaður í síðasta mánuði af
upphlaupsmönnum innan LDP, spáð allt
að 60 sætum. Hann tekur því ef til vill
við af sósíalistum sem stærsti stjórnarand-
stöðuflokkurinn.
Alls eru 95 milljónir Japana á kjörskrá
í 129 kjördæmum. Búast má við fyrstu
tölum strax og kjörstöðum hefur verið lok-
að, sem er klukkan 18 síðdegis, eða klukk-
an 9 árdegis að íslenskum tíma. Lokatölur
eru síðan væntanlegar um klukkan 16 síð-
degis í dag að íslenskum tíma.
GÖNGULEIDIR
UM HENGILINN
AÐ
,STÆKKA
ISLAND
Haraldur i.
Hamar
í viðtali
, B
HER
EIGUM
VIÐ * * -r
HEIMA 9