Morgunblaðið - 18.07.1993, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JULI 1998
5
Málefni homma og lesbía í Bandaríkjaher
Clinton slak-
ar ábanninu
Reuter
Biðröð við böðin
VEGNA flóðanna í miðvesturríkjum Bandaríkjanna hafa vatnsveitur
víða lokast. Hefur víða verið sett upp hreinlætisaðstaða til bráðabirgða
„á þurru“ og var myndin tekin í Des Moines þar sem fólk af flóðasvæð-
um stóð í biðröð eftir að komast í sturtu. Flóðin í Mississippi og Misso-
uri voru síst í rénum í gær.
Washington. Reuter.
BILL Clinton, Bandaríkjaforseti, tók í gær undir tilmæli frá varn-
armálaráðuneytinu sem slakar á, en afléttir þó ekki, banni við því
að samkynhneigðir gangi í herinn. Með því þykir forsetinn hafa
gefið bæði fylgismönnum sem og andstæðingum bannsins nokkurt
svigrúm til þess að halda umræðum áfram.
Búist var við því að forsetinn
tilkynnti ákvörðun sína í þessu
viðkvæma deilumáli formlega í
fyrradag, en hann hefur frestað
því til morguns. Að sögn embætt-
ismanna í Hvíta húsinu er Clinton
að flestu leyti sammála tilmælum
Les Aspins um að reynt verði að
miðla málum milli fijálslyndra
og íhaldsmanna í þessum efnum.
í áætlun varnarmálaráðu-
neytisins mun vera gert ráð fyrir
„einkalífssvæði" homma og lesb-
ía, sem myndi gera þeim kleift
að sinna herþjónustu að því til-
skildu að kynhneigð væri haldið
leyndri. Leyfílegt væri að fara á
öldurhús homma og lesbía og
taka þátt í réttindabaráttu
þeirra, en ekki væri ásættanlegt
ef sæist til hermanna leiða eða
kyssa einhvern af sama kyni.
Embættismenn hafa gengist
við því að þessi stefna sé ekki
alsendis í samræmi við það kosn-
ingaloforð Clintons um að af-
nema bannið algerlega. Þeir
segja hins vegar að af pólitískum
ástæðum sé ekki unnt að afnema
bannið eins og sakir standa.
♦ ♦ ♦----
Afhenda
Víetnöm-
um herskjöl
Hanoi. Rcutcr.
BANDARÍSKIR embættismenn
afhentu á föstudag víetnömskum
starfsbræðrum sínum fyrstu skjöl-
in af mörgum sem bandariski her-
inn tók í sína vörslu meðan á Víet-
namstríðinu stóð.
Alls eru skjölin um þtjár milljónir
blaðsíðna, þar á meðal eru dagbækur
hermanna, sendibréf, hernaðaráætl-
anir o.fl. Gera Víetnamar sér vonir
um að þau kunni að leysa ráðgátuna
um örlög þeirra 300.000 landsmanna
sem ekki er vitað hvað varð um á
dögum stríðsins.
Fækkun þjóðarmn-
ar skelfir harðlínu-
menn 1 Rússlandi
Moskvu. Daily Telegraph.
RÚSSNESKIR harðlínumenn hafa tekið upp nýtt baráttumál, að
bjarga þjóð sinni frá því að deyja út. Hafa þeir hafið skipulega
áróðursherferð í fjölmiðlum til þess að vekja athygli á því að
rússnesku þjóðinni fækkar og er hnignunin sögð vera bein afleið-
ing af þeirr stefnu stjórnvalda að taka upp markaðsbúskap.
í áróðursgreinum, sem einkum
hafa birst í blaðinu Rossiskaja
Gazeta sem þótt hefur fjandsam-
legt Borís Jeltsín forseta, hafa
verið dregnar fram í dagsljósir
nýjustu upplýsingar um mann-
fjöldaþróun í Rússlandi í seinni
tíð. Þar kemur fram að í fyrra
hafi Rússum fækkað um 200.000
í fyrra þar sem andlát séu fleiri
en nýfæðingar. Tíðni fæðinga
hafi lækkað jafnt og þétt á undan-
förnum árum en þjóðinni hafí í
fyrsta sinn fækkað 1992. Sérstak-
lega stingi þróunin í Moskvu og
Pétursborg í stúf því þar deyji
tvöfalt fleiri en fæðist.
Sömuleiðis kemur fram í opin-
berum skýrslum að andvana
fæddum börnum hafi fjölgað. Þá
gangist fimmta hver kona á
barnsburðaraldri undir fóstureyð-
ingu á ári hveiju. Sömuleiðis fjölgi
en um 40% hjónabanda enda með
skilnaði. Loks hafi sjálfsvígum
flölgað um 15% árið 1992 miðað
við árið á undan.
Draugaþorp
í greinum harðlínumanna kem-
ur fram að á síðustu 10 árum
hafi fólksflótti átt sér stað úr
sveitum til borga. Afleiðing sé sú
að 51.000 þorp standi auð og yfir-
gefin og í mörgum öðrum séu ein-
ungis eftir ellilifeyrisþegar.
Loi verður áfram í Sómalíu
Róm. Reuter.
BRUNO Loi hershöfðingi, yfir-
maður ítölsku hermannanna í
Sómalíu, verður áfram í land-
inu þótt embættismenn Sam-
einuðu þjóðanna hefðu sagt að
hann yrði sendur heim, að sögn
Bruno Buscemi, varaforseta
ítalska herráðsins.
Buscemi var í Mogadishu á
föstudag til að freista þess að leysa
deilu ítala og embættismanna
Sameinuðu þjóðanna um hemað-
araðgerðir samtakanna í borginni.
„Þeir vildu að Loi yrði fórnað í
hita leiksins. í okkar augum kem-
ur ekki til greina að hann fari frá
Sómalíu," sagði Buscemi. Að-
spurður sagði hann engan „áþreif-
anlegan möguleika“ á því að ít-
ölsku hermennirnir yrðu fluttir á
brott frá Sómalíu.
Talsmaður Helmuts Kohls,
kanslara Þýskalands, sagði að'
þýska stjórnin myndi senda 1.700
hermenn til Sómalíu þrátt fyrir
árásir Sómala að undanförnu á
þýska hermenn sem hafa undir-
búið komu þeirra í Mogadishu.
s\\egur
Sameinaöu í eitt
bestu kosti sólar-
stranda viö Miöjarð-
arhafið og alls þess
sem gerir Bandarík-
in svona stórkost-
leg - og þú færó Fort
Lauderdale. Allt
sem þig dreymir
um og óendanlega
margt annaö í
göngufjarlægð frá
glæsi'egum gisti-
stööunum.
Er hægt aö hugsa
sér það betra undir
sólinni?
Glæsihótel á
ströndinni.
Verslanamið-
stöðin Galleria í
göngufjarlægð.
Tvær vikur á
aðeins 39.780 kr.
á mann með
öllum gjöldum
m.v. 4 í herbergi,
2 fullorðna og
2 böm 2ja-11 ára.
Aðeins 60.680 kr.
m.v. 2 fullorðna.
Hafðu samband við söluskrif-
stofur okkar, umboðsmenn um
allt land, ferðaskrifstofurnar
eða í síma 690300 (svarað alla
7 daga vikunnar frá
kl. 8-18).
FLUGLEIDIR
CD SVSSðgZ.
Beint fluí’ alla föstudaga frá 10. septernkr. ‘slenskurferðafélagi