Morgunblaðið - 18.07.1993, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ 1993
Kreppan í Finnlandi
Útflutningsfyrirtækin þrífast
og* framfærslukostnaður, lækkar
EFNAHAGSKREPPAN í Finnlandi hefur leitt af sér ýmsa hluti
sem Finnum voru áður ókunnir. Félagsfræðingar nefna þá helst
vaxandi gjá milli ríkra og fátækra. Atvinnuleysið hefur aldrei
verið meira í sögu landsins enda þurfa Finnar nú samkvæmt
nýjustu spám að búa sig undir stöðugt atvinnuleysi um hálfrar
miiljónar manna (20% vinnufærra manna). Samt sýna spár einnig
að atvinnulífið sé að ná sér aftur nema hvað varðar byggingarfyr-
irtæki.
Finnskur útflutningsiðnaður hefur ekki orðið svo mjög fyrir barð-
inu á kreppunni.
Atvinnuleysið er talið helsta
vandamálið í finnsku kreppunni.
Að vissu leyti er það afleiðing
kreppunnar en að öðru leyti ýtir
atvinnuleysið undir kreppuna.
Nýjustu tölur sýna að 474.000
Finnar eru án atvinnu. Því fleiri
sem atvinnuleysingjarnir eru þeim
mun dýrara
verður fyrir
ríkið að
greiða þeim
bætur. Þegar
skattar og
álögur hækka til að mæta þessu
versna starfsskilyrði fyrirtækja
og enn fleiri verða atvinnulausir.
Þar sem kostnaður vegna at-
vinnuleysis er hár verður að skera
niður í annarri opinberri þjónustu.
Þannig versna kjör þeirra þjóðfé-
lagshópa sem minna mega sín um
leið og atvinnuhorfur þeirra
versna. Einkum þykir það hættu-
legt að æ fleiri fara rakleiðis á
atvinnuleysisskrá að loknu námi.
Þeir sem hafa ennþá fasta
vinnu (rúmar 2 milljónir manna)
geta ■ notið þess að framfærslu-
kostnaður hefur lækkað verulega
miðað við önnur Norðurlönd. Mat-
ur og annað þess háttar kostar
nú Finna jafn mikið og Þjóðverja.
Það er um það bil meðalverð fram-
færslukostnaðar innan Evrópu-
bandalagsins. Hins vegar hefur
kaupmáttur launa dregist nokkuð
saman undanfarið.
Horfur þeirra sem vel mega
sín, þ.e. þeirra sem hafa fasta,
örugga vinnu, eru samt ekki
slæmar; til dæmis hefur verðbólg-
an undanfama sex mánuði lækk-
að úr 2,9% á árs-
grundvelli í
2,1%. Meðal ann-
ars vegna lækk-
unar grunnvaxta
er því þar að auki
spáð að verðbólgan fari enn lækk-
andi.
Nú er til dæmis jnjög hagstætt
að kaupa íbúðir því íbúðarverð
hefur fallið um helming frá metár-
unum í byijun áratugarins. Bank-
alán eru auðfáanleg og tiltölulega
ódýr miðað við síðasta ár.
Gengispólitíkin
Einn helsti þátturinn í finnsku
kreppunni er með öllu ólíkur því
sem gerist á íslandi; finnski út-
flutningsiðnaðurinn þrífst. Stafar
þetta aðallega af gengispólitík
Finna undanfarin tvö ár. Á þeim
tíma hefur finnska markið lækkað
um þriðjung miðað við Banda-
ríkjadollar. Þetta hefur gerst án
verðbólgu innanlands og hefur
framleiðslukostnaður í Finnlandi
þannig lækkað allverulega miðað
við önnur OECD-ríki.
Nýlegur samanburður OECD-
ríkja sýnir að Finnar eru 13. í röð
dýrra iðnaðarríkja. Dýrastur er
vinnutíminn í iðnfyrírtækjum
vesturhluta Þýskalands. Einnig
eru Danmörk, Svíþjóð, Noregur,
austurhluti Þýskalands og Frakk-
land óhagstæðari iðnaðarsvæði
hvað varðar launakostnað.
Finnskur iðnverkamaður er nú
aðeins óverulega dýrari starfs-
bróður sínum á Ítalíu.
Meirihluti finnskra launþega
vinnur hins vegar í heimamark-
aðsiðnaðinum eða í þjónustu sem
hefur gengið erfiðlega í krepp-
unni. Eftirspum hefur dregist
verulega saman innanlands og
dregið úr ijárfestingum fyrir-
tækja.
Áhrif launþegasamtaka
dvína
Kreppan hefur einnig valdið
breytingum á því valdatafli sem
ávallt fer fram í þjóðfélaginu.
Einkum hafa áhrif launþegasam-
takanna farið minnkandi. Yinnu-
veitendur vilja nú koma því í gegn
að ekki verði samið um kaup og
kjör milli stéttarsambanda og
sambands atvinnurekenda. Nú
hyggjast vinnuveitendur semja í
hverju fyrirtæki fyrir sig.
Telja vinnuveitendur að að-
stæður fyrirtæka séu svo misjafn-
ar að ekki sé unnt að semja um
kjör allra við sama borð. Er þá
meðal annars minnst á misræmi
milli útflutningsfyrirtækja og fyr-
irtækja sem þjóna heimamarkaði.
Launþegasamtökin sporna af
eðlilegum aðstæðum gegn þeirri
þróun að völd þeirra til semja
fyrir hönd allra aðildarfélaga verði
skert. Á tímum metatvinnuleysis
þurfa vinnuveitendur þó vart að
óttast meiriháttar verkföll.
Alþýðusambandið (SAK) hótaði
allsheijarverkfalli í vor en hætti
við áður en fresturinn var útrunn-
inn. Þá var deilt um kröfur ríkis-
stjórnarinnar um að breyta kjara-
samningum til þess að gera fyrir-
tækjum kleift að ráða ungt fólk
á lakari kjörum en gert var ráð
fyrir í samningum. Átti þetta að
auðvelda vinnuleit ungs fólks sem
aldrei áður hefði fengið vinnu.
Atvinnuleysi meðal ungs fólks
undir 24 ára aldri veldur miklum
áhyggjum en ríkisstjórnina og
launþegaleiðtoga greinir á um
hvernig eigi að höggva á hnútinn.
Samdrátturinn og atvinnuleys-
ið veldur minnkandi skattatekjum
hjá ríki og sveitarfélögum. Ríkið
hefur einnig dregið verulega úr
framlögum til sveitarfélaga en á
sama tíma verða sveitarfélögin
að mæta vaxandi atvinnuleysi íbú-
anna. Vegna atvinnuleysis-
bóta og stuðnings til bankanna
verður ekki hægt að minnka er-
lenda skuldasöfnun finnska ríkis-
ins á næstunni. Fjárlagahalli
finnska ríkisins stefnir í 70 millj-
arða finnskra marka á næsta ári
en það samsvarar rúmlega 60%
af þjóðarframleiðslu Finna.
Sérfræðingar í þjóðfélagsmál-
um vara nú við þeim afleiðingum
sem minnkandi félagsleg þjónusta
gæti haft. Þeir nefna til dæmis
versnandi heilsufar, lakari mennt-
un og fleira. Hvemig leysa eigi
vandamálin virðist hins vegar öll-
um óljóst.
BAKSVID
eftir Lars Lundsten, Helsinki
Reiðskolinn Hrauni,
Grímsnesi
Krakkar 10-15 ára!
Erum að bóka í 9 daga
síðsumarsnámskeiðin.
Upplýsingar í
síma 98-64444.
Reiðskólinn Hrauni
par sem hestamennskan hefst
STEINAR WMGE
SKÓVERSLUN
mccE
sandalar
Verð kr.
1.995
Stærðir: 36-41
iLitur: Svartur
Ath.: Mikið úrval af Tracce sandölum.
1 PÓSTSENDUM SAMDÆGURS ■ 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR 1
Domus Medica, Kringlunni, Toppskórinn,
Egilsgötu 3, Kringlunni 8-12, Veltusundi,
sími 18519 sími 689212 sími 21212.
UTSALA
Ein sú magnaðasta!
• Jakkafót frá kr.12.900 • Frakkarfrákr..7.900
• Stakir jakkar frá kr.7.900 • Blússurfrákr.3.900
• Stakar buxur frá kr..3.900 • Rúskinnsjakkar frákr. .5.900
• Kakibuxur frá kr..2.900
• Gallabuxur frá kr.2.900
• Skyrtur frá kr....1.500
• Sokkar(3pör)frákr.990
• Peysurfrákr.......2.900
Ath.: 15% staðgreiðsluafsláttur
af öðrum vörum.
Laugavegi 47