Morgunblaðið - 18.07.1993, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ 'SÚNNUDÁGIÍR 18'. JÚLÍ 1993
13
Reykjavíkurvegi 64 - Hafnarfirði - Sími 651147
ÚTSALAN
B YRJAR Á MORGUN
Doktorsvörn við
Háskóla Islands
ÞANN 3. júlí —
Jónsson dokt- ÍlF
sína, Blóð- jtíi ’
skömm á ís-
deild Háskóla
íslands. Dr' M4r Jénsson-
í ritgerðinni, sem Háskólaforlagið
hefur gefið út, er rakin þróun á skil-
greiningu blóðskammar á Vestur-
löndum frá því snemma á miðöldum
til okkar daga. Höfuðáhersla er lögð
á samræði fólks í liðum skyldleika
og mægða sem meinað var að ganga
í eina sæng samkvæmt kristinrétti
Árna Þorlákssonar frá 1275 og
Stóradómi frá 1564. Einnig er rakið
hvernig riútímaleg skilgreining á
blóðskömm, sem aðeins bannar sam-
ræði mæðgina, feðgina og systkina,
varð til undir lok 17. aldar og gerð-
ist allsráðandi á þessari öld.
Lýst er kerfi skrifta og útlegðar
á miðöldum og útskýrt hvernig dauð-
arefsing fyrir blóðskömm var leidd
í Iög í Norður-Evrópu í bytjun 16
aldar, en á Íslandi með Stóradómi.
Dómar um blóðskömm sem þekktir
eru á íslandi, um eitt hundrað tals-
ins, eru gaumgæfðir og mat lagt á
hvað þurfti til svo dauðadómar væru
kveðnir upp og þeim framfylgt. Um
það bil 50 einstaklingar voru teknir
af lífi fyrir blóðskömm á íslandi á
17. og 18. öld, karlar höggnir á
háls, konum drekkt. Snemma á 18.
öld var farið að milda dauðadóma í
ævilanga refsivist og síðar í enn
skemmri tíma, en dauðarefsing var
afnumin með lögum árið 1870.
Loks er gerið tilraun til að meta
blóðskammarmál frá sjónarhóli al-
mennings og jafnvel sakborninga.
Niðurstaða hennar er að í vitund
fólks hafi hugmyndir um bann við
blóðskömm ekki verið jafn víðtækar
og yfirvöld, guðfræðingar og lög-
fræðingar vildu vera láta. Rannsókn-
in byggir á rækilegri könnun á ís-
lenskrum skjölum og prentuðum
heimildum, auk þess sem leitað var
fanga í erlendum skjala- og bóka-
söfnum, einkum í Danmörku og
Þýskalandi, í því skyni að setja þró-
un á Islandi í víðara samhengi.
Már er fæddur í Reykjavík 19.
janúar 1959, sonur Jóns Óskarsson-
ar lögfræðings og Helgu Kress pró-
fessors í almennum bókmenntum við
Háskóla íslands. Hann lauk BA-
prófi í sagnfræði og félagsfræði frá
Háskóla Islands árið 1980 og kandí-
datsprófi í sagnfræði fímm árum
síðar. Hann var einnig við háskóla-
nám í Björgvin í Noregi og París í
Frakklandi. Hann er kvæntur Mar-
gréti Jónsdóttur, sem leggur stund
á doktorsnám í bókmenntum Spánar
og Rómönsku-Ameríku við Pincen-
ton-háskólann í Bandaríkjunum. Þau
eru búsett í Princeton og eiga einn
son, Ara.
KRISTJÁN JÓHANNSSON SYNGUR
Í AIDA i ARENUNNI Í VERONA
RÓMANTÍSK FEGURD GARDAVATNS
OG NORÐUR-ÍTALÍU
26. ágúst til 3. september - 9 dagar
í fer&inni gefst gott tækifæri tii ab sameina margt:
Óperu með heimssöngvaranum okkar, Kristjáni
Jóhannssyni í aðalhlutverki í Aidu,
íburöarmestu óperusýningu allra tíma í Arenunni
frægu í Verona í hópi 30 þúsund áheyrenda.
Síóan tekur vió vikudvöl og skoóunarferóir, fyrst
vió Gardavatn og síðan í Dolomíta ölpunum og
loks Mílanó. Alls staöar er gist á völdum fjögurra
stjörnu hótelum meö bæói MORGUNVERÐI og
KVÖLDVERÐI inniföldum.
Þetta er mjög vibburóarík
ÓSKAFERÐ fyrir lágt verb
*öll gjöld innifalin nema
flugvallarskattur
kr. 84.650*
ararstjón: Ingólfur Gubbrandsson / Pétur Björnsson
Bókanir og nánari upplýsingar hjá:
FERÐASKRIFSTOFAN
PRIMA
HEHVjSKLUBBUR
_______________ INGOLFS
AUSTURSTRÆTI 17, 4. hæð 101 REYKJAVIK
SÍMI 620400» FAX 626564
Upplýsingar:
FARKLÚBBUR VISA
UPPLÝSINGA- OG PJÓNUSTUMIDSTÓD
Höfbabakka 9, 112 Reykjavík
Sími 91-671700, Fax 91-673462
Vðrulirounarverkefni
Rf og ANN Aflanýtingarnefnd
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins (Rf) og Aflanýtingarnefnd sjávarútvegs-
ráðuneytisins (ANN) óska eftir samstarfi við fyrirtæki um þróun nýrra eða
endurbættra matvæla sem eru að uppistöðu til fiskmeti. Gert er ráð fyrir
að afurðirnar henti til útflutnings. Til Vöruþróunarverkefnis Rf og ANN
verða lagðar 8 milljónir króna á þessu ári. Rf og ANN munu greiða allt
að 40% af heildarkostnaði einstakra verkefna, þó að hámarki 2,5 milljónir
króna miðað við eitt ár. Gert er ráð fyrir að verkefnið muni standa í 3 ár.
Þeir aðilar eða fyrirtæki sem áhuga hafa á þátttöku í Vöruþróunarverk-
efni Rf og ANN þurfa að leggja inn umsóknir til Rf fyrir 1. ágúst 1993.
Nánari upplýsingar og eyðublöð fást á Rf, milli kl. 08.00 og 16.00,
Skúlagötu 4 í síma 91-620240.