Morgunblaðið - 18.07.1993, Side 15

Morgunblaðið - 18.07.1993, Side 15
svæðinu, skátar eru með starfsemi undir Skarðsmýrarfjalli og með útilífsmiðstöð á Úlfljótsvatni, skíða- svæði eru í Hveradölum og í landi Kolviðarhóls í Ölfushreppi, Reykja- víkurborg hefur áhuga á að nýta sitt land til útivistar og Alviðra er með sína náttúruvemdar- og um- hverfisfræðslustarfsemi ekki langt undan. En brýnt var orðið að móta sem fýrst framtíðarstefnumörkun um notkun svæðisins og umgengn- isreglur. Hengilssvæðið á sér ákveðna sögu sem alfaraleið. Um aldir lágu þar um þekktar leiðir ferðamanna á leið til sjóróðra á Suðurnes eða í kaupstaðaferð. í skipulaginu hefur verið leitast við að nota þessar þekktu gönguleiðir. Má þar nefna vörðuðu leiðina um Hellisheiði, veg- inn milli hrauns og hlíða niður í Grafning hjá Króki, Klóarveg um Grensdal upp af Reykjakoti, og Dyravegsleið um Dyrfjöll og Mos- fellsheiði. Þá leiðina nálguðumst við svæðið í fylgd þeirra Gísla og Egg- erts og þá akandi eftir nýja Nesja- vallaveginum, þar sem vegagerðar- menn voru í vikunni að undirbúa bundið slitlag, sem sett verður á í haust. Við staðnæmdumst einmitt í Dyradalnum, þar sem hitaveitupíp- an hefur af náttúruverndarástæðum verið grafin niður. Þarna var hópur unglinga úr Vinnuskóla Reykjavík- ur og frá Hitaveitunni að gróður- setja og hreinsa og klippa niður og fjarlægja gamla girðingu, en á þess- um fallega stað er búið að merkja og leggja stuttan malarstíg, svo allir geti staðnæmst og auðveldlega gengið upp í Dyrnar. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ 1993 T Hæðir / Merkt aðalgönguleíð Ómerkt aðalgönguleið Vörðuðleið f / Merkt tengileið ij^° Brött tengReið ■' // j Ómerktartengileiðir Lambhagi Nesjahraun Botnadalur Ölfusvatnsvík Hagavíkurhraun Ölfus- vatn .♦ Dy radálur * *" * Lómatjörn j \ Ölfusvat heiði Mosfells Króks^ mýrw' eiði Þjófahlaup yáknapölh Hrómundaf'/ ' Á típtiSxÍf'' f//j0r /T\ l//r7) (. (Tíýílisfelí é/' Álftatjörn Ölkeldi hnúkur Eymundar- hryggur Klóarljall fSkarðsmvrar- ■ fjall Fremsti- dalur Stóra- / ReykjafeJI Hveradaiir Orustu/;" r S rp ? y* SLí \ ( \ / \v~ö / / ' [ / /l \ ■ Jqyz ■ Stækkað svaaði j \/ ' N gjná i\ ____________________________15 margar leiðir. Verður það vséntan- lega sett upp næsta sumar. í sambandi við merktar leiðir eru uppi hugmyndir um stuttar fræðslu- leiðir, þ.e. að merktar verði gamlar menningarminjar og einnig náttúru- minjar inn á kort. Og til undirbún- ings þess er búið að safna heilmikl- um upplýsingum um þetta svæði. Þarna eru víða gömul sel, gamlar bæjartóftir, réttir, áveitur o.s.frv. Einnig gígaraðir, hverasvæði og aðrar áhugaverðar náttúruminjar. Er hugmyndin að gefa út göngu- kort og setja upp skrifiegan texta með tilvísun til kortsins við göngu- leiðirnar. Þúsund ungmenni græða landið Á útsýnispallinum á brún Kýr- dals ofan við Nesjavallavirkjun er gott og mikið útsýni þegar komið er eftir Nesjavallaveginum og sjálf- sagt að síaldra þar við. Jörðin Nesjavellir var mjög illa farin og 1989 var hafist þar handa við að jafna rofabörð og sá í önnur jarð- vegssár. Nú eftir að friðað hefur verið fyrir beit er einnig hafin stór- felld tijáplöntun á svæðinu svo og við Ölfusvatn, sem er í eigu Hita- veitunnar. Hafa þeir Þórólfur Jóns- son landslagsarkitekt hjá Garð- yrkjustjóra í Reykjavík og Ólafur Sæmundsen hjá Skógrækt Reykja- víkur skipulagt gróðurinn í Ölfus- vatnslandi. Búið er að koma girðing- um um þessar jarðir og má þar sjá mikinn mun á gróðri. A undanförn- um fimm árum hafa unnið þarna þúsund unglingar úr Vinnuskóla Reykjavíkur og í vinnu hjá Hitaveit- # Morgunblaðið/Þorkell Á útsýnispallinum, sem komið hefur verið upp á brún Kýrdals við nýja Nesjavallaveg- inn, en að honum hafa verið lagðir fallegir, auðveldir göngustígar. Útsýni er niður yfir virkjunina og til Þingvallavatns. Gísli Gíslason og Eggert Lárusson við upplýsingakortið er sýnir gönguleiðirnar á Hengilssvæðinu sem komið er fyrir við upphaf leiða á sjö stöðum. Þarna eru þeir við Olfusvatn. * , Morgunblaðið/Þorkell Á þremur stöðum eru lagðir malarbornir göngustígar og vel vandað til svo þeir haggist ekki. Jarðvegurinn fjarlægður, lagður undir jarð- vegsdúkur og misgróf malarlög ofan á. Allt er handunnið af var- færni og alúð. Slíkir manngerðir stígar eru að- eins á þremur stöðum, í Dyradal, niður að Þingvallavatni frá tjald- stæðinu í Ölfusvatnslandi, þar sem tvær brýr hafa verið settar yfír Ölf- usvatnsána, svo og að útsýnispallin- um á brún Kýrdals. Eru þessir stíg- ar gerðir af einstakri alúð, svo að þeir haggist ekki, möl breiðist ekki út og stígar látnir fylgja landslag- inu. Jarðvegur og jurtaleifar er fjar- lægt varfærnislega, jarðvegsdúkur settur á botninn og malarlög yfír í mismunandi kornastærð. Er þetta allt handunnið af unglingum, ekið að í hljólbörum og ekki gengið nema í afmörkuðu stígstæðinu. Leiðamerkingum að mestu lokið í haust Á korti því sem Gísli Gíslason hefur unnið um sumargönguleiðir á Hengilssvæðinu og notað er á upp- lýsingatöflunum við upphaf göngu- leiða, má sjá hvernig leiðir eru lagð- ar og merktar. Á aðkomustöðunum eru útbúin bílastæði með göngu- leiðakortinu, alls á 7 stöðum allt í kring um Hengilinn. En kortinu má auðveldlega skipta út eftir því sem stikaðar leiðir komast í gagnið. Þær skiptast í stórum dráttum í þrenns konar litmerktar leiðir. Meginleið- irnar, sem eru fremur auðveldar flestu fólki, tengjast saman í stórum hring um fjalllendi Hengilsins og að strönd Þingvallavatns í Grafningi í löndum Nesjavalla og Ölfusvatns, en þær eru merktar með tréstikum með bláum toppi og settir eru upp vegprestar við upphaf þeirra og þar sem leiðir mætast. Er unnið að þessu í sumar og haust. Á kortinu er gefin upp vegalengd milli veg- presta. Allt eru þetta tréstikur í jarðarlitum, sem fara vel í landslag- inu, en 20 sm kafli efst með lit til að gefa til kynna hvers konar gönguleið er um að ræða. Tengileið- ir eru merktar með tréstikum með rauðum toppi. Þær eru fremur auð- veldar eins og aðalleiðirnar. Hins vegar eru „brattar leiðir“, tiltölu- lega erfiðar útsýnisleiðir, er liggja um brattar fjallshlíðar og/eða fjalla- toppa merktar með svörtum toppi (gult og svart á kortinu). Á Hellis- heiði eru þekktar varðaðar leiðir, sem koma inn í sem tengileiðir og gæti orðið meira varðað að gömlum hætti síðar meir. Stikurnar sjást vel beggja megin frá, en eftir því sem leiðin markast betur í landslaginu verður stikum fækkað og er þegar byijað á því. Þá eru merktar á kort- unum krossgötur, útsýnisstaðir og fleira. Af helstu leiðum nefndu þeir: 1) Frá Sleggjubeinsdal við Kolvið- arhól um Innstadal og þar annað- hvort að Úlfljótsvatni eða að Ölfus- vatni. Hins vegar um Marardal og austur að Nesjavöllum vestanvert um Hengilssvæðið. 2) Frá Hvera- gerði, af Hoffmannsflöt við Rjúpna- brekkur upp í Reykjadal, sem er tengileið á Úlfljótsvatnsleið. Frá Ölfusvatni liggur leið um Ölkeldu- háls í Hveragerði og hins vegar í Sleggjubeinsdal. í Ölkelduhálsi er gríðarmikið og fagurt jarðhita- svæði. Gísli Gíslason var áður kunnugur þessum gönguleiðum, sem hann vann m.a. að hluta sem lokaverk- efni í landslagsarkitektúr í Noregi og var upphaflega haft samband við hann þangað frá Borgarskipu- lagi Reykjavíkur um að taka að sér þetta verkefni. Við ákvarðanatöku vegna merkinga þessara leiða var haft í huga aðgengi, einfaldleiki, náttúruvernd og öryggi á svæðinu. Tvö sæluhús Þeir Eggert sögðu að ætlunin væri að setja upp tvö sæluhús mið- svæðis á merktu gönguleiðunum, annað í Engidal vestan í Henglinum til að þjóna vestursvæðinu og stefnt að því að setja það upp í sumar, en þarna er skjóllaust ef eitthvað er að veðri. Hitt verður vestan und- ir Dalskarðshnjúk fyrir fólk á ferð á austursvæðinu, en þar um liggja unni. Við komum við hjá nokkrum þessara flokka ungmenna, sem kepptust við að stinga niður börð, sá í, planta og gera stíga af ein- stakri alúð. í Ólfuvatnslandi er ver- ið að byggja upp útvistaraðstöðu, þar sem er tjaldsvæði og snyrtiað- staða niður undir Þingvallavatni, en Eggert segir okkur að hugmyndin sé að færa hana í meira skjól undir hlíðinni. Þarna getur fólk dvalið og á greiða leið að vatninu. Einnig er hægt að gista og fara gönguferðir frá Nesbúð á Nesjavöllum, þar sem er gisting á góðu verði og greiða- sala. Allt er þetta gert af miklum stór- hug og alúð, sem m.a. má marka af því að Hitaveitan og Vinnuskól- inn hlutu ein af fernum verðlaunum Landgræðslunnar, sem veitt voru á þessu ári 15. júní sl. við hátíðlega athöfn í Gunnarsholti. Hengilssvæðið er ein landfræði- leg og náttúrufarsleg heild og ómet- anlegt útivistarsvæði fyrir þéttbýl- isfólk og ferðamenn í framtíðinni. Með vaxandi umferð var nauðsyn- legt að tengja það yfir „landa- merki“. Gönguleiðaskipulagið hefur verið gert í samræmi við drög að svæðaskipulagi í Ölfushreppi og í Grafningi. í drögum að svæðaskipu- lagi þar er gert ráð fyrir að svæðið verði gert að einhvers konar frið- landi, fólkvangi er veitir svigrúm fyrir þá starfsemi sem þar er, og jafnvel hafa verið uppi hugmyndir um þjóðgarð þar í framtíðinni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.