Morgunblaðið - 18.07.1993, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ 1993
17
inn. Úthaldið búið;
of mikið hafi verið
færst í fang og við-
eigandi verkfæri
skorti til starfans.
Malcolm Rifkind,
utanríkisráðherra
Bretlands, sagði í
liðinni viku að þetta
aukna álag á friðar-
sveitir Sameinuðu
þjóðanna hefði leitt
í ljós að „fram-
kvæmdastjórinn og
starfsmenn hans
hafa ekki fengið
nógu góða ráðgjöf
í hernaðarmálum.
Sterk rök hníga að
því að auka þurfi
sérþekkingu í þeim
efnum.“
Erindreki Sam-
einuðu þjóðanna í
málum Sómalíu,
Jonathan Howe, er einnig þeirrar
skoðunar að vandinn sé ekki of
duglegir hermenn. Hann segir að
þrátt fyrir gagnrýni stjómmála-
manna og hjálparstofnana komi
ekki til greina að hætta hernaðarað-
gerðum gegn Aideed stríðsherra.
„Það er fráleitt að vera með undan-
slátt á meðan hryðjuverkastarfsemi
heldur áfram,“ sagði hann. „Við
hljótum að bregðast við hryðjuverk-
um.“
Prófessor Zartmann sagði um
Sómalíuvandann, að nú þyrfti að
taka ákvörðun: Hnitmiðaðar að-
gerðir, eða hverfa á brott og láta
þarlenda finna sínar eigin lausnir.
„En það er hægara sagt en gert
að taka hnitmiðaða ákvörðun,"
bætti hann við.
Skortir mannskap
Reyndar er ekki nóg með að
Sameinuðu þjóðirnar liggi undir
ámæli um hlut-
drægni vegna hem-
aðarbröltsins í Só-
malíu. Árangurs-
lausar tilraunir
vestrænna ríkja til
þess að skakka leik-
inn í lýðveldunum
sem hétu einu sinni
Júgóslavía, virðast
vera á góðri leið
með að spilla orð-
spori annarra stofn-
ana, eins og Atl-
antshafsbandalags-
ins og Evrópu-
bandalagsins, sem
hafa viljað ætla sér
nokkurn hlut í
björgunaraðgerð-
unum.
Boutros-Ghali,
viðurkenndi í viðtali
við JTAT-sjónvarps-
stöðina bresku, að
þjóðir heims stæðu frammi fyrir
„gífurlega erfiðu verkefni", þar sem
væri öll þessi friðargæsla og mann-
úðarstarfsemi sem þætti nauðsyn-
leg á svo mörgum stöðum í heimin-
um. Hann vildi meina að vandi
Sameinuðu þjóðanna væri ekki síst
sá, að aðildarlöndin létu ekki af
hendi það fjármagn sem þau hefðu
lofað, og það yrði sífellt meiri erfið-
leikum bundið að fá mannafla í frið-
argæslusveitimar.
„En ég get fullvissað ykkur um,
að við geram allt sem gera þarf til
þess að halda áfram að gæta frið-
ar,“ sagði Boutros-Ghali. „Við höf-
um náð árangri í Kambódíu og E1
Salvador, þannig að við eigum okk-
ar góðu og slæmu daga. Við hljótum
ætíð að bregðast við með því að
leita sátta.“
á Reuter og The Daily
Telegraph.
Framkvæmda-
stjórinn
Boutros Boutros-Ghali seg-
ir þjóðir heims standa
frammi fyrir gífurlega erf-
iðu verkefni.
UTSALA
-fierra-
GARÐURINN
Kringlunni
*
TOLLALÆ
Mitsubishi L 200 á hagstæðu verði - til afgreiðslu strax!
MITSUBISHI
L 300
FJÖLNOTA
FJÖLSKYLDU-
BÍLLINN!
Mitsubishi L 300 Minibus
er 8 manna fólksbíll,
sniðinn fyrir ferðalög og
frístundir íjölskyldunnar -
mmgóður, þægilegur og
aflmikill.
Hann er gæddur afar
góðum aksturseiginleik-
um og aldrifíð hentar hin-
um íslensku aðstæðum.
Farðu í fríið á Mitsubishi
L 300 Minibus!
MiTSUBISHI
M HEKLA
"SRmÆ Laugavegi170-174*S(mi69 55 00
MITSUBISHI
Fremstur meðal jafningja
HVÍTA HÚSIÐ / SIA