Morgunblaðið - 18.07.1993, Side 30
JHtergiutiliIft&fö
ATVINNU/RAD-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
ATVINNUAUGÍ YSINGAR
Ræstingarstjóri
Starfið felst í eftirliti með ræstingum, verk-
stjórn og starfsmannastjórnun.
Leitað er að manneskju með reynslu sem
ræstingarstjóri en þó koma allir með umtals-
verða reynslu af ræstingum til greina.
Viðkomandi þarf að sýna framtakssemi, vera
röggsamur, hafa hæfileika til stjórnunar og
vera áhugasamur um ræstingar.
Svar, sem tilgreini m.a. aldur og reynslu,
óskast sent til auglýsingadeildar Mbl. fyrir
24. júlí, merkt: „0-0312“.
PRESSAM
Pressan óskar að ráða blaðamann til starfa.
Um er að ræða lykilstöðu í innlendum fréttum
og fréttaskýringum á vaxandi miðli. Leitað
er að kraftmiklum einstaklingi sem skrifar
skýran og lipran texta.
Einungis fólk með reynslu kemur til greina.
Skriflegar umsóknir sendist ritstjóra, Press-
unni, Nýbýlavegi 14, 200 Kópavogi.
Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál.
RÍKISÚTVARPIÐ
Ríkisútvarpið vill ráða bókmenntafræðing i
starf ritstjóra bókmenntaefnis á Rás 1.
í starfinu felst einnig dagskrárgerð.
Reynsla við fjölmiðla og stjórnun er æskileg.
Nánari upplýsingar gefur dagskrárstjóri Rásar 1.
Umsóknarfrestur er til 1. ágúst og ber að
skila umsóknum til Ríkisútvarpsins, Efsta-
leiti 1, á eyðublöðum sem þar fást.
©
Varnarliðið
- kjötiðnaðarmaður
Varnarliðið óskar að ráða kjötiðnaðarmann
með réttindi til starfa hjá nýlenduvöruverslun
varnarliðsins.
Starfið felur í sér vinnslu og frágang á kjöti
og fiski í neytendaumbúðir ásamt tilheyrandi
þjónustu við viðskiptavini.
Krafist er fagmenntunar ásamt hæfileikum
til að vinna sjálfstætt og eiga samskipti við
aðra. Nokkur enskukunnátta er nauðsynleg.
Um er að ræða fast starf.
Skriflegar umsóknir berist til varnarmála-
skrifstofu, ráðningardeild, Brekkustíg 39,
260 Njarðvík, sími: 92-11973 eigi síðar en
26. júlf 1993.
Umsóknareyðublöð fást á sama stað.
Tónlistarkennarar
Skólastjóra og einn tónlistarkennara vantar
að Tónlistarskóla Raufarhafnar. Þurfa m.a.
að geta kennt á píanó og gítar. Einnig að
annast tónmenntakennslu við Grunnskólann
á Raufarhöfn, svo og starf organista og kór-
stjórn kirkjukórs Raufarhafnarkirkju.
Húsnæði er til reiðu á staðnum.
Frekari upplýsingar veita grunnskólastjóri í
síma 96-51131 og sveitarstjóri í síma
96-51151.
Umsóknir skal senda skrifstofu Raufarhafn-
arhrepps, Aðalbraut 2, Raufarhöfn,
fyrir 31. júlí nk.
LANDSPÍTALINN
Landspítalinn
Reyklaus vinnustaður
HÆFINGAR- OG ENDURHÆFINGAR-
DEILD LANDSPÍTALANS í KÓPAVOGI
Fram undan eru nýjar áherslur í starfsemi
hæfingar- og endurhæfingardeildar Land-
spítalans í Kópavogi, og við leitum að áhuga-
sömum einstaklingum til að taka þátt í því
mikilvæga starfi. Stöður þroskaþjálfa við hin-
ar ýmsu deildir stofnunarinnar eru lausar til
umsóknar.
Deildarþroskaþjálfi: Staða deildarþroska-
þjálfa á sambýliseiningu er laus til umsóknar
frá 1. september eða fyrr eftir samkomu-
lagi. Þar búa 8 fullorðnir einstaklingar.
Nánari upplýsingar veitir Hulda Harðardóttir,
yfirþroskaþjálfi, í síma 602700 frá kl. 8.00
til 16.00 alla virka daga.
Tómstundafulltrúar: Staða tómstundafull-
trúa er laus til umsóknar. Starfið felur í sér
að fylgja íbúum eftir út í daglegt líf og þátt-
töku í frístundastarfsemi af öllu tagi. Um er
að ræða afar fjölbreytt og krefjandi starf.
100% staða - vinnutími er breytilegur.
Hentar vel tveimur samhentum þroskaþjálf-
um í 50% stöðu. Nánari upplýsingar gefa
Gunnhildur Jóhannsdóttir, þroskaþjálfi og.
Hulda Harðardóttir, yfirþroskaþjálfi í síma
602700 frá kl. 8.00 til 16.00 alla virka daga.
Aðstoðarfólk: Óskum að ráða áhugasamt
fólk til starfa á ýmsar deildir stofnunarinnar.
Fólk með reynslu í starfi með fötluðum geng-
ur fyrir að öðru jöfnu. Nánari upplýsingar
veitir Hulda Harðardóttir, yfirþroskaþjálfi, í
síma 602700 frá kl. 8.00 til 16.00 alla virka
daga.
RÍKISSPÍTALAR
Ríkisspítalar eru einn fjölmennasti vinnustaður á íslandi með starfsemi
um land allt. Sem háskólasjúkrahús beitir stofnunin sér fyrir markvissri
meðferð sjúkra, fræðslu heilbrigðisstótta og fjölbreyttri rannsóknastarf-
semi. Okkur er annt um velferð allra þeirra, sem við störfum fyrir og meö,
og leggjum megináherslu á þekkingu og viröingu fyrir einstaklingnum.
Starfsemi Ríkisspítala er helguð þjónustu við almenning og við höfum
ávallt gæði þjónustunnar, gagn hennar og hagkvæmni að leiðarljósi.
Tónlistarskólinn
á Akranesi
Vegna forfalla eru laus störf söngkennara
og píanókennara í eitt ár.
Einnig er laus staða fiðlukennara.
Umsóknarfrestur er til 1. ágúst.
Tónlistarskólinn á Akranesi,
Þjóðbraut 13,
300Akranesi.
Atvinna óskast
29 ára gömul kona óskar eftir atvinnu út ágúst-
mánuð. Vanur ritari, hef góða tungumálakunn-
áttu (franska, enska, þýska). Áhugasamir at-
vinnurekendur leggi nafn og símanúmer inn á
auglýsingadeild Mbl. merkt: „Strax- 13033“.
Framleiðslu-/
framkvæmdastjóri
óskast til starfa við frystihús á sunnanverð-
um Vestfjörðum. Fyrirtækið starfrækir hefð-
bundna fiskvinnslu og skelvinnslu.
Umsækjendur þurfa að hafa víðtæka þekk-
ingu, reynslu og menntun á sviði fiskvinnslu.
Húsnæði í boði. Væntanlegir umsækjendur
skili umsóknum í pósthólf 1309, 121 Reykja-
vík, merkt: „Fiskvinnsla".
Vitt þú auka sölu
á vörum fyrirtækis
þíns?
Nýtt sölu- og dreifingarfyrirtæki í Reykjavík
óskar eftir samstarfsaðilum í matvöru-
og/eða annarri framleiðslu. Séð verður um
að góð vara sjáist í hillum verslana.
Upplýsingar í síma 37955 eftir kl. 19.00.
Álmur hf.
Húsaviðgerðir og
nýsmíði
Alhliða viðhaldsþjónusta - nýsmíði
- sprunguviðgerðir - o.fl.
10 ára traust þjónusta!
Byggingameistarar annast alla vinnu.
Símar 667469, 657247og 985-27941.