Morgunblaðið - 05.09.1993, Side 8
MORGÚNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1993
8 B
1241 Ormur Jónsson Svín-
fellingur andast.
1845 Jón Sigurðsson gengur
að eiga Ingibjörgu Einarsdótt-
ur.
1848 Þingvallafundur sam-
þykkir bænaskrá til konungs
um aukið stjórnfrelsi.
1849 Landstíðindi hefja
göngu sína.
1877 Jón Sigurðsson fer frá
íslandi í hinzta sinn.
1896 Nýr landskjálfti á Suð-
urlandsundirlendi. Meira tjón
en í fyrri kippum 26. ágúst.
1904 Fyrsta skipbrots-
mannaskýlið fullgert á Skeið-
arársandi.
1904 Þrettán drukkna í Pat-
reksfjarðarhöfn.
1910 Heilsuhælið á Vífils-
stöðum tekur til starfa.
1942 Þýzk flugvél gerir loft-
árás á Seyðisfjörð.
1968 Togarinn Surprise
strandar á Landeyjasandi.
1972 Klippuaðgerðir ís-
lenzkra varðskipa gegn brezk-
um togurum hefjast.
—/
***************************
1590 Hertoginn af Parma
leysir París úr umsátri Hinriks
IV eftir sókn frá Niðurlöndum.
1698 Nýja brezka Austur-
Indíafélagið stofnað.
1774 Fyrsta meginlandsráð-
stefna nýlendnanna í Norður-
Ameríku hefst í Fíladelfíu.
1800 Franska hernámsliðið á
Möltu gefst upp fyrir Bretum.
1905 Styrjöld Rússa og Jap-
ana lýkur fyrir milligöngu The-
odore Roosevelts Bandaríkja-
forseta með samningnum í
Portsmouth, New Hampshire.
1922 Bandaríski flugliðsfor-
inginn James Doolitle flýgur
þvert yfir Bandaríkin frá Florida
til Kaliforníu.
1939 Bandaríkin lýsa yfir
hlutleysi — Jan Christiaan
Smuts myndar stjórn í Suður-
Afríku.
1950 Minnihlutastjórn Hans
Hedtofts fer frá eftir kosn-
ingaósigur danskra jafnaðar-
manna og Erik Eriksen myndar
stjórn.
1978 Leiðtogafundurinn í
Camp David um deilur Egypta
og ísraela hefst.
AFMÆLISDAGAR
Loðvík XIV 1638. „Sólkon-
ungur" Frakka og einvaldur
þegar vegur franska konung-
dæmisins var mestur.
Anton Diabelli 1781. Aust-
urrískur tónverkaútgefandi.
Gaf út tónlist Beethovens og
Schuberts.
Giacomo Meyerbeer 1791.
Þýzkt tónskáld; kunnastur fyrir
óperuna Les Huguenots.
Jesse James 1874. Banda-
rískur útlagi, sem stóð fyrir
bankaránum um hábjartan dag
ásamt bróður sínum Frank og
glæpaflokki þeirra.
Daryl F. Zanuck 1902.
Bandarískur kvikmyndajöfur.
Arthur Koestler 1905. Ung-
verskur rithöfundur, kunnastur
fyrir Myrkur um miðjan dag.
Bessi Bjarnason 1930. Leik-
ari.
Isrgelsmenn drepnir
á Olymptuleikunum
1972 Ellefu ísraelskir
íþróttamenn létu lífíð í árás pa-
lestínskra hryðjuverkamanna á
Ólympmleikunum í Miinchen í
dag. Átta grímuklæddir liðs-
menn samtakanna Svarti sept-
ember ruddust inn í Ólympíu-
þorpið snemma í morgun og
skutu á ísraelska keppendur
þegar þeir voru í fasta svefni í
svefnskálum sínum. Tveir
íþróttamenn féllu í árásinni, 18
komust undan, en níu voru tekn-
ir í gislingu. Leikamir vom
stöðvaðir og 12.000 lögreglu-
menn umkringdu þorpið.
Hryðjuverkamennimir kröfðust
þess að 200 Palestínumenn yrðu
leystir úr haldi í ísrael og að
sjálfír fengju þeir að fara óhult-
ir frá Þýzkalandi. Þjóðveijar
gengu að þessum kröfum og
hryðjuverkahópnum og gíslun-
um var fylgt út á flugvöll. Vegna
mistaka hófu leyniskyttur lög-
reglunnar skothríð og allir
iþróttamennirnir níu létu lífið í
skotbardaga og auk þeirra fjórir
hryðjuverkamenn og einn lög-
reglumaður. Þrír hermdarverka-
menn voru hahdteknir, en einn
komst undan. Leikunum verður
haldið áfram þrátt fyrir þann
skugga, sem hefur fallið á þá.
Fyrirsát í Kðln
1977 Vestur-þýzka iðnrek-
andanum Hanns-Martin Schley-
er var veitt fyrirsát í Köln í dag
þegar hann og vopnaðir lífverðir
óku í tveimur bifreiðum heim til
hans frá skrifstofu hans í mið-
borginni. Bílstjóri Schleyers
varð að snarhemla til þess að
komast hjá árekstri við gulan
fólksbíl og barnavagn, sem lok-
uðu götunni. Lífverðirnir í hin-
um bílnum sáu að hætta var á
ferðum og ökumaðurinn nam
staðar fyrir aftan bláa Merce-
des-bifreið Schleyers. Þrír líf-
verðir stukku út og þeir og bíl-
stjóri Schleyers urðu fyrir að
minnsta kosti 300 vélbyssukúl-
um frá fimm eða sex hryðju-
verkamönnum, sem umkringdu
bílana. Hryðjuverkamennirnir
drösluðu Schleyer upp í bíl sinn
og hurfu á braut. Síðan í vor
hafa tveir kunnir Vestur-Þjóð-
veijar verið myrtir: Siegfried
Buback ríkissaksóknari í
Karlsruhe og Júrgen Ponto
bankastjóri skammt frá Frank-
furt. Áætlað er að 1200 Vestur-
Þjóðveijar kunni að gerast
hryðjuverkamenn og fá hjálp frá
6.000 stuðningsmönnum.
Bandarískt hafnbann á Tripoli
1804 Bandaríski sjóherinn
hefur sett hafnbann á Tripoli í
Norður-Afríku í stríði sínu við
sjóræningja í Barbaríinu. Her-
skip Edwards Prebles flotafor-
ingja hafa króað sjóræningja-
flota valdhafans Yusuf Kara-
manli inni í Tripolihöfn og' skotið
af fallbyssum á borgarmúrana.
Árásir Bandaríkjamanna náðu
hámarki þegar þeir sendu skip
hlaðið púðri inn í höfnina til
þess að eyða sjóræningjaflotan-
unm, en vopnaðir verðir á múr-
unum urðu varir við eldskipið
og sprengdu það í loft upp.
Ótryggt ástand hefur ríkt á Mið-
jarðarhafí vegna styijaldanna á
meginlandinu í kjölfar frönsku
byltingarinnar og Bandaríkja-
floti hefur reynt að stöðva endur-
teknar árásir sjóræningja á
bandarísk skip. Valdhafinn í Tri-
poli hafði ekki búizt við að Preble
gripi til jafnharkalegra aðgerða.
Meðan þessu fer fram sækja
bandarískir landgönguliðar Will-
iams Eatons ásamt málaliðum
yfir Líbýuauðnina frá Alexandr-
íu til Tripoli.
Sovétrík-
in liðin
undir lok
1991 Sovétríkin eru liðin
undir lok. Framtíð þeirra hafa
verið í óvissu síðan kalda stríð-
inu lauk, lýðræðisstjómir tóku
við völdunum í grannríkjunum
og Þýzkaland sameinaðist.
Undanfarin hálfan mánuð
hafa Borís Jeltsín og stuðn-
ingsmenn hans unnið hvem
sigurinn á fætur öðmm. Bylt-
ingartilraun hefur verið brotin
á bak aftur, kommúnista-
flokkurinn hefur gefíð upp
öndina, Eystrasaltslöndin
hafa fengið sjálfstæði og mið-
stjómarvaldið hefur verið lagt
að velli. í dag neyddist Full-
trúaþing Sovétríkjanna tij að
leggja niður ríkjasambandið
og fá sovétlýðveldunum völdin
í hendur vegna þrýstings frá
Míkhaíl Gorbatsjov sovétfor-
seta. Samkvæmt hinu nýja
fyrirkomulagi verður Gorb-
atsjov valdalaus þjóðhöfðingi.
London brennur
1666 Gífurlegur eldsvoði
hefur geisað í London í nokkra
daga og virðist hafa átt upptök
sín í brauðgerðarhúsi í austur-
borginni. Þaðan barst eldurinn
í tjöruverzlun í næsta húsi,
sem sprakk í loft upp. Andar-
taki síðar stóð allt hverfið í
björtu báli. Borgarstjórinn
taldi enga hættu á ferðum, en
daginn eftir hafði eldurinn
breiðzt út um mestalla borg-
ina. Þúsundir fjölskyldna flúðu
heimili sín og leituðu hælis í
litlum bátum á Thames og á
ökrum fyrir utan borgina. í
dag tókst sjóliðum loksins að
hefta útbreiðslu eldsins með
því að sprengja upp hús á stóru
svæði, sem eldurinn ógnaði.
Rúmlega 13.000 einbýlishús
og 90 kirkjur brunnu til kaldra
kola og 162 hektara svæði
umhverfis Tower-kastala er í
rústum, en aðeins níu manns
fórust. Þegar eldurinn kom
upp voru borgarbúar varla
búnir að ná sér eftir pláguna
miklu í fyrra þegar 75.000
létu lífíð. Faraldurinn var enn
útbreiddur í gömlum timbur-
húsum, sem hafa horfið í elds-
voðanum. Yfirvöld eiga mikið
verk fyrir höndum. Fæða verð-
ur það fólk sem hefur misst
heimili sín og veita því húsa-
skjól. Síðan verður að reisa
nýja borg handa þessu fólki.
ffll
mm mt" n