Morgunblaðið - 05.09.1993, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1993
B 19^
Ferleg faðmlög
ÞESSI forsögulega frumhyrningseðla steingerðist eftir að hafa bar-
ist til dauða við skelfilegasta rándýrið á tímum risaeðlanna, snareðl-
una.
er því ekki nema von að vísindamönn-
um hafi fundist furðulegt að slík dýr
hefðu drottnað ájörðinni í 165 millj-
ónir ára. Eðlurnar lifðu af þrjú skeið
í sögu jarðar: Trías-, Júra- og Krítar-
tímabilin. Það verður ekki sagt að
þessi tímabil hafi einkennst af stöð-
ugleika. Loftslag, lönd og láð tóku
sífelldum breytingum. Hvernig gat
þetta staðist? Undir lok sjöunda ára-
tugarins setti ungur og róttækur
steingervingafræðingur, Robert
Bakker, fram byltingarkenndar hug-
myndir. Hann sá fyrir sér risaeðlur
sem sprettu úr spori og risu upp á
afturfæturna til þess að borða nýja-
brumið af tijánum. Slík hegðun,
sagði hann, krefst afkastamikilla
efnaskipta í heitu blóði. Dýr með
heitt blóð, eins og maðurinn, fá orku
sína alfarið úr fæðunni sem þau
neyta með svokölluðum efnaskiptum.
Slíkt fyrirkomulag gerir þeim kleift
að vera virk þegar þess þarf. í fyrstu
var Bakker talinn klikkaður. En
kenning hans gaf starfsbræðrum
hans nýja hugmynd. Gat verið að
blóð risaeðlanna hafi verið
bland beggja, þ.e. hvorki
fullkomlega heitt né kalt?
Nýlegar rannsóknir á bein-
um risaeðla benda til að
svo sé. Dýrin hafa að öllum líkindum
þróað með sér mismunandi aðferðir
til þess að stjórna hitastiginu. Stór
dýr, sem hafa líkama sem geymir
varma mjög vel, gætu hafa hallast
meira að köldu blóði á meðan minni
og virkari rándýr hefðu hallast meira
að heitu blóði.
Steinarnir tala
Risi á meðal risa
ÆRSTA risaeðla sem nokkurn tíma hef-
verið höfð til sýnis er finngálknið í safni
mboldt-háskólans í Berlín. Áætlað er að
■ið hafi í lifanda lífi vegið um 80 tonn.
Þegar Júratímabilið var að líða
undir lok hófu risaeðlurnar tilraunir
með vængi. Árið 1861 fannst ein-
kennilegur steingervingur af dýri
sem hvorki var fugl né eðla: heldur
hvort tveggja. Eðlufuglinn Archae-
opteryx, eða Öglir eins og við íslend-
Mörgum kann að
þykja það enn furðu-
legra að þessi ferlíki
fortíðar eru ennþá á
meðal okkar. Á nýl-
iðnum áratug hafa
flestir sérfræðingar
orðið sammála um
að með tilliti til lík-
amsbyggingar til-
heyri fuglar ættar-
tréi risaeðla.
ingar skírðum steingervinginn, er nú
talinn týndi hlekkurinn milli risaeðla
og fugla. Dýrið hefur fallið í fúlnað
lón á venjulegum Júradegi og stein-
gerst í setlögum, á þann hátt að enn
í dag sést móta fyrir fjöðrum í berg-
inu. Rétt eins og þeir kjúklingar sem
landsmenn leggja sér til munns hafði
Öglir óskabein. En Öglir var að
mestu leyti eðla. Hann hafði vel
tenntan munn í stað goggs og lang-
an beinóttan hala. Tilvist hans renn-
ir hins vegar stoðum undir þá kenn-
ingu að sumar eðlurnar hafi lært að
fljúg-a og síðar orðið að fuglum.
A sama tíma og fyrstu eðlurnar
hófu flug sitt, á öndverðu Júraskeið-
inu, komu einnig fram stærstu dýr
sem talið er að hafí lifað hér. Graseðl-
urnar, þessi hálslöngu, höfuðsmáu
og fjórfættu ferlíki, voru að nálgast
hátind ferils síns. Þær urðu gríðar-
lega stórar. Vægast sagt. Kunnast
þeirra er eflaust fmngálknið, Brac-
hiosaurus. Með sinn tólf metra langa
slönguháls og gríðarþunga 50 tonna
líkama er talið að finngálknið hafi
arkað um slétturnar og bókstaflega
skóflað í sig öllum gróðri sem varð
á vegi þess. Já, slíkir risar hafa þurft
að éta við hvert tækifæri. En graseðl-
urnar voru ekki beinlínis á þægilegu
fæði. Grös og blómstrandi piöntur
höfðu enn ekki þróast. í þeirra stað
buðust þeim barrtré, burknar og
köngulpálmar. Ansi tormeltir munn-
bitar, sérstaklega í ljósi þess að eðl-
urnar höfðu ekki fínpússað þá list
að tyggja. En þær dóu ekki ráða-
lausar. Nærri Albuquerque í Banda-
ríkjunum hafa fundist um hundrað
máðir steinar í tveimur hrúgum við
beinleifar af skjálftaeðlunni, Seismo-
saurus. Vísindamenn álíta að fyrir
150 milljónum ára hafi steinarnir
verið gleyptir af þessari lengstu risa-
eðlu sem nú er kunn. Steinarnir
benda til þess að graseðlurnar hafi
haft vöðvaklæddan magasekk til
þess að kremja fæðuna, líkt og fugl-
ar, sem í stað tanna nota fóarn til
þess að mylja tormeltan mat. Margir
fuglar gleypa grófkorna sand til þess
að fylla fóarnið. Risaeðlurnar átu
grjót.
Jörðin nötraði
Skjálftaeðlan hafði 17 metra lang-
an háls og hali hennar hefur verið
um 25 metrar á lengd. Útfrá þessum
upplýsingum hefur þyngd hennar
verið áætluð allt að 90 tonn! Nafn
sitt hlaut hún í ljósi þess að hún hlýt-
ur að hafa valdið jarðskjálftum þegar
hún rölti um á fjórum lítt umhverfis-
vænum fótum. Það er með ólíkindum
að dýr skuli hafa orðið svo stór —
tíu sinnum stærri en fíll. í hvíldar-
stöðu hefur hver mjaðmargróp þurft
að þola þyngd sem jafngildir þremur
fílum. Ef dýrin ferðuðust um í hjörð-
um, eins og steingerð spor graseðla
benda til, þá hljóta þau að hafa skil-
ið eftir sig ógnvænlega eyðileggingu.
Það er reyndar spurning hvort þær
hafi skilið nokkuð eftir sig. Slík hef-
ur matarþörf þeirra verið.
En hvers végna urðu þær svo stór-
ar? Eðlileg viðbrögð við umhverfinu
segja sumir. Nokkrir sérfræðingar
halda því fram að á síðari hluta Júra-
tímabilsins hafi loftslagið orðið þurr-
viðrasamara — jafnvel með langvar-
andi þurrkum. Því hafi graseðlurnar
þurft að borða duglega meðan fæða
var í boði og birgja sig þannig upp.
Langir halar, læri og hálsar eru
kjörnir geymslustaðir fyrir matarf-
orða í formi fitu. Steingervingafræð-
ingurinn Jack Homer telur sig hafa
sýnt fram á með rannsóknum á blóð-
leifum í beinum misaldraðra graseðla
að þær hafi hægt á efnaskiptum sín-
um með aldrinum! í æsku, þegar
vöxtur þeirra var örastur, hafi efna-
skiptin verið hröð en eftir því sem
líkami þeirra stækkaði og geymdi
þar af leiðandi varmaorkuna betur
hafi hægst á efnaskiptunum. Ef svo
er þá gæti graseðla vaxið upp í 100
tonn en aðeins þurft mat á við tvo
sex tonna fíla.
Grimmar kjötætur
í ríki risanna hefur varla ríkt mik-
ill friður. Eins og allir eðluáhuga-
menn vita þurftu skjálftaeðlur,
finngálkn og aðrar grasætur að ótt-
ast fjöldann allan af blóðþyrstum
ráneðlum sem rifu { sig kjöt hvenær
sem færi gafst. Svo virðist reyndar
sem grimmd þeirra hafi verið tak-
markalaus. Til þess að sannfærast
geta lesendur heimsótt lítið safn í
Ghost Ranch í Nýju-Mexíkó. Þar
gefur að líta beinagrind drísileðlunn-
ar, Coelophysis. í maga hennar liggja
smágerð bein úr eðluunga sem hún
hefur hámað í sig þrátt fyrir að ung-
inn hafi tilheyrt hennar eigin tegund:-
En hættulegust ráneðlanna hefur
hingað til verið talið hin hrikalega
grameðla, Tyrannosaurus rex. Ný-
legar uppgötvanir benda til annars.
Ekki alls fyrir löngu grófu menn úr
jörðu beinagrind af skepnunni sem
varðveist hafði í næstum því heilu
lagi. Eftir ítarlegar rannsóknir hafa
Jack Horner og samstarfsmenn hans
komist að þeirri niðurstöðu að þetta j
sjö tonna ferlíki hafi frekar stundað >
hræát en veiðar. Margir sérfræðing- l
ar hafa mótmælt þessari kenningu.
Horner segir að framfætur grameðl-
urnar hafi lítið geta nýst til veiða »•:
því þeir hafi bæði verið litlir og haft
takmarkað hreyfisvið. Hinn sanni
konungur ráneðlanna er nú talinn
vera minni og fimari en grameðlan.
Þetta er snareðlan, Velociraptor.
Eftir að hafa grafið niður í hijós-
truga auðnina í Montana rakst stein-
gervingafræðingurinn John H. Ost-
rom á ákaflega merkilegt grjót. Þeg-
ar hann færði steingervinginn upp á
yfirborðið kom í ljós að hann geymdi
risavaxna grasætu sem var flækt í
steingerðar beinagrindur fjögurra
minni kjötæta. Kjötæturnar sem
Ostrom skírði Klóeðlur, Deinonych-
us, eru nauðalíkar snareðlunum. Þær
voru um fjögurra metra langar og
höfðu langa handleggi með gripklóm..
Athygli manna beindist þó helst að
stórri kló sem skagaði eins og sigð
fram úr fæti eðlunnar. Líkamsbygg-
ing hennar bendir til þess að rándýr-
ið hafi stokkið á fórnarlamb sín,
hangið í hnakka þess með gripklón-
um á meðan fótarklóin var látin
ganga á maga bráðarinnar og rífa
hana á hol. Nokkuð ógeðfelld tilhugs-
un. Það verður að teljast ólíklegt að
ein klóeðla hafi getað sigrast á
plöntuætu af þeirri stærð sem Ost-
rom fann. Þess vegna telur hann að
þessar risaeðlur hafí veitt í hópum
sem þýðir að steingervingafundur
hans sé afrakstur þess að fjórar kló-
eðlur hafi dáið með bráð sinni.
Vitsmunir
Snareðlurnar voru meðal þeirra
risaeðla sem höfðu stærstan heila
miðað við líkamsstærð. En hversu
greindar voru þær? Dale Russel hjá
Kanadíska náttúrugripasafninu hef-
ur lengi velt slíkum spurningum fyr-
ir sér. Niðurstöður hans eru á þá
leið að best gefnu eðlumar hafi haft
svipaða vitsmuni og kjúklingar.
Vafalaust eru því spendýr nútímans
skynsamari en eðlumar voru. Samt
stendur það óhaggað að risaeðlurnar
voru lengi við völd á jörðinni. Á tíma-
bili sem spannaði 165 milljónir ára
stóð engin dýrategund þeim á sporði.
Menn gætu spurt sig hvar hin snjöllu
spendýr hafi haldið sig á meðan. Svo
virðist sem þau hafi stigið fram á
stjónarsviðið um svipað leyti og risa-
eðlurnar. En þau lifðu í skugga eðl-
anna alla tíð. Enginn veit af hveiju.
Það var ekki fyrr en ríki risanna leið
undir lok, fyrir um 65 milljónum
ára, að spendýrin gátu risið úr jarð-
holum sínum, tekið völdin og hafið
þá þróun sem síðar leiddi til manns-
ins.
• KENIUSLUSTAÐIR
• Reykjavík Brautarholt 4, Ársel,
Gerðuberg, Fjörgyn
og Hólmasel.
• Mosfellsbær
• Hafnarfjörður
• Innritun í síma 91-20345 frá
kl. 15 til 22 að Brautarholti 4.
• Suðurnes Keflavík, Sandgerði
Grindavík og Garður.
• Innritun í síma 92-67680 frá
kl. 21.30 til 22.30.
• KENNSLA HEFST ÞRIÐJUDAGINN14. SEPT
Gjaldskrá óbreytt
frá liðnum vetri
Systkinaafsláttur - fyrsta bamfullt gjald,
annað barn hálft gjald, þriðja barn og þar yfir
frítt. Aukaafsláttur efforeldrar eru einnig i
dansnámi.
• Kennum alla dansa
Samkvœmisdansa, gömlu dansana,
rock 'n 'roll, tjútt og nýjustu
freestyle dansana.
• Aukatímar/yrir/id scm vilja taka
þátt í íslandsmeistarakeppni.
• Einkatímar Sértímarfyrir "prívathópa
• Börn 3 - 4 ára
Léttar hreyfingar og leikir
sem örva hreyfiþroska.
• Barnahópar - Unglingar ■ Fullorðnir - Hján - PÖr
F
Þrautþjálfaðir kennarar með mikla reynslu og þekkingu á dansi