Morgunblaðið - 05.09.1993, Side 35
MOROUNBIAÐU) SAIVISAFNIÐsUNNUÐAGÖRk SEPTEMBER 1993
B 35
Willy Brandt og eiginkonahans Rut Brandt stíga út úr
Gullfaxa, þotu Flugfélags Islands.
68-kynslóðin lét ekki sitt eftir liggja meðan á NATO-fund-
inum stóð. Hér sést hún boða frið og mótmæla veru okkar
í NATO.
Willy Brandt, þáverandi utanríkisráðherra
V-Þýskalands, ávarpar ráðherrafundinn.
Við hlið hans situr Bjarni Benediktsson for-
sætisráðherra.
SÍMTALID . . .
ER VIÐ BJÖRN FRIÐFINNSSON RÁÐ UNE YTISSTJÓRA
VINUR Á FÖRUM
609070
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyt-
in.
- Góðan dag, þetta er á Morg-
unblaðinu, gæti ég fengið að tala
við Björn Friðfinnsson ráðu-
neytisstjóra?
Augnablik, ég skal athuga það.
Halló.
- Komdu sæll Björn. Nú munt
þú vera á förurn til Brussel að
vinna fyrir EFTA.
Eftirlitsstofnun EFTA.
- Einmitt já, hvernig er það,
læturðu þá líka af formennsku
flóttamannaráðs?
Já, það verður einhver að vera
í því á meðan.
- Hversu lengi hefurðu verið
formaður?
Síðan ’79.
- Ég frétti að þér hefði verið
haldið kveðjuhóf af Víetnömum
núna um daginn?
Það var nú haldið af Rauða
krossinum, en þeir mættu þarna
margir frá Víetnam og reyndar
flóttamenn frá öðrum löndum.
- Nú verður þú ekki ytra til
eilífðar, aðeins tvö ár, þeim hlýtur
að þykja vænt um þig úr því að
þeir koma til að kveðja þig?
Jájú.
- Áttu marga vini frá Víet-
nam?
Meðal flótta-
manna á ég
marga vini, ekki
aðeins frá Víet-
nam. Maður
kynnist þeim per-
sónulega og
þetta er margt
ágætis fólk.
- Mér skilst
að þú hafir oft
haldið þeim jóla-
boð og leikið þér
við börnin?
Já, já, en þetta
er nú mest snún-
ingar við að hjálpa rfiönnum í
sambandi við skattamál, hús-
næðismál og vinnu.
- Var það ekki erilsamt að
vera formaður flóttamannaráðs
jafnhliða öðrum störfum?
Við höfum nú reynt að reka
þetta á hagkvæman hátt með
sjálfboðnu liði. Starfsmenn Rauða
krossins eru einnig sjálfboðaliðar
og vinna langt út fyrir allt sem
þeir fá kaup fyrir. Mæta á kvöld-
in og um helgar þegar á þarf að.
halda. Jú, jú við höfum öll gert
heilmikið og teljum það ekkert
eftir okkur. Til þess eru menn í
Rauða krossinum að gefa eitt-
hvað af sér í sjálfboðnu starfi.
- En í hverju verða nú störf
þín fólgin í Brussel?
Ég á að fylgjast með fram-
kvæmd EES samningsins, að
EFTA þjóðirnar fullnægi sínum
samningsgildum. Auk þess eigum
við að fjalla um samkeppnismál
og ríkisstyrki. Síðast þegar ég
vissi var búið að ráða 97 manns
frá öllum EFTA löndum og við
verðum með skrifstofu á tveimur
stöðum í borginni. Mitt hlutverk
verður að fjalla um banka, vá-
tryggingafélög og aðrar fjár-
málastofnanir, flutningaþjónustu
og fjarskiptamál.
- Og hvernig leggst það nú í
þig að búa í
Brussel?
Bara vel, ég
hef aldrei búið í
útlöndum áður.
Kosturinn við að
búa í Brussel er
eins og eitt sinn
var sagt um
Breiðdalsvík, það
er svo stutt í allar
áttir.
- Já það má
segja það, en ég
óska þér góðrar
ferðar.
Björn Friðfinnsson
MEISTARAKOKKARNIR
ERU ÓSKAR FINNSSON OGINGVAR SIGURÐSSON
Villisveppasalaí
og bláberjaís
I morgunþættinum „Aftur og
aftur“ á Rás 2 síðastliðinn
fimmtudag gáfu matreiðslu-
meistararnir Óskar Finnsson
og Ingvar Sigurðsson hlustend-
um uppskriftir að villisveppa-
salati fyrir fjóra og heimalög-
uðum bláberjaís. Uppskriftirn-
ar fara hér á eftir.
Villisveppasalat fyrir fjóra
1 meðalstórt höfuð jöklasalat
10 stk. vllltir íslenskir sveppir
1 lítið blómkálshöfuð
1 rauð paprika
graslaukur
Allt skolað. Salatið er rifið nið-
ur í skál, sveppirnir saxaðir, blóm-
kálið rifið niður og paprikan skor-
in í strimla. Öllu blandað saman
og graslaukurinn klipptur yfir.
Salatsósa
Meistarakokkarnir Óskar
Finnsson og Ingvar Sigurðsson.
ir eru: Kóngssveppur, furusvepp-
ur, lerkisveppur.
Heimalagaður bláberfaís
5 eggjarauður
100 g sykur
1 bolli blóber
I rjómi
1 -2 msk. sítrónusafi
1 lítið box sýrður rjómi
1 tsk. dijon sinnep_______
_________1 tsk. sykur_________
ögn af karrý, salti og pipar til
bragðbætis
* íslenskir sveppir sem æskileg-
Eggjarauður eru látnar ná
stofuhita. Rauður og sykur þeytt
saman uns ljóst og létt. Rjóminn
er þeyttur og bætt í með sleif.
Berin eru marin og sigtuð og
bætt í ísblönduna. Bragðbætt með
sítrónusafanum. Sett í form og
fryst.
HVAR
ERU ÞAU
NÚ?
RAGNHILDUR
HELGADÓTTIR
ALÞINGISMAÐUR OG
RÁÐHERRA
Hdmaf
Alþingi
Á Alþingi. Ragnhildur burðast
með nokkur kíló af þingskjöl-
um.
RAGNHILDUR Helgadóttir byrjaði snemma í pólitík. Aðeins tutt-
ugu og sex ára gömul var hún kosin á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn
í Reykjavík. Það var árið 1956. Sjö árum síðar hætti hún á þingi
til þess að sinna heimili og börnum. Hún segir að þá hafi hún
ekki hugsað sér þann tíma sem hlé á þingstörfum en það varð
hann því Ragnhildur fór aftur á þing. Árið 1983 var hún svo skipuð
í embætti menntamálaráðherra. Því embætti gegndi hún í tvö ár
en þá tók hún við ráðherrastólnum í heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytinu. Þar starfaði hún einnig í tvö ár. Hvar er hún nú?
að má eiginlega segja að ég
sinni venjulegum húsmóður-
störfum," sagði Ragnhildur en eig-
inmaður hennar er Þór Vilhjálms-
son hæstaréttardómari og saman
eiga þau fjögur böm.
Eftir að Ragnhildur lét af ráð-
herraembætti starfaði hún áfram á
Alþingi í fjögur ár ásamt því að
sitja þing Evrópuráðsins. En hvað
hefur drifið á daga hennar síðan?
„Eftir að ég hætti á Alþingi árið
1991 hætti ég einnig öllu stjóm-
málastarfi. Stjómmálin eru orðin
svo ríkur þáttur í lífi manns eftir
svona langa þingsetu að ég geri
mér grein fyrir því að ég hefði allt-
af verið með hugann við þetta og
reynt að hafa nefið ofaní öllu ef
ég hefði haldið áfram starfínu.
Þess vegna taldi ég heppilegra að
klippa á alla þræðina. Engu að síð-
ur fylgist ég ennþá mjög grannt
með því sem gerist í stjómmálum
og velti því fyrir mér hvort rétt sé
hveiju sinni, það sem flokkssystkin
mín eru að gera. En ég stilli mig
um að reyna grípa þar inní.“
Ný verkefni
En hvernig fínnst stjómmála-
Morgunblaðið/Þorkell
Ragnhildur Helgadóttir segist
nú sinna venjulegum húsmóð-
urstörfum.
manninum að hætta eftir öll þessi
ár? „Bara aldeilis ágætt,“ svarar
Ragnhildur. „Ég var búin að
ákveða það fyrir löngu að verða
ekki ellidauð á þingi. Ég hafði
hugsað mér að hætta nógu snemma
til þess að ég teldi mig hafa kraft
og heilsu til að takast á við önnur
verkefni. Fram til þessa hefur það
nú fyrst og fremst verið umönnun
heimilisins og ég hef notið þess
vel.“
Þegar Ragnhildur er spurð hvort
heimilisstörfín felist að einhveijum
hluta í pössun bamabarna þá getur
hún ekki neitað því. „Ég kann vel
við mig í ömmuhlutverkinu og mér
þykir mjög skemmtilegt að passa
börnin. Ég hef kannski ekki verið
neitt óskaplega virk á því sviði en
ég tel mér trú um að það sé a.m.k.
nokkurt gagn í því fyrir böm mín
sem ég hef kannski verið nokkuð
mikið í burtu frá á stundum.“