Morgunblaðið - 09.09.1993, Page 1
72 SIÐURB/C
203. tbl. 81.árg.
FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Samkomulag um aðild blökkumanna að stjórn Suður-Afríku fram að þingkosningum
Segja upplausn
og borgarastyij-
öld yfirvofandi
Jóhannesarborg. Reuter.
LEIÐTOGAR hvítra hægriöfgamanna í Suður-Afríku sögðu í gær
að samkomulag um aðild blökkumanna að stjórn landsins, sem gert
var á þriðjudag, myndi leiða til upplausnar og borgarastyijaldar í
landinu. „Það er brjálæði ef stjórnmálamenn halda að þeir geti tek-
ið ákvarðanir án þess að hafa Búa og Zulumenn með í ráðum,“ sagði
Eugene Terre Blanche, leiðtogi öfgasamtakanna AWB. Samkomulag
hvítra og svartra í samningaviðræðunum um framtíð Suður-Afríku
gengur út á, að sett verði á laggirnar framkvæmdaráð, sem starfa
á samhliða ríkisstjórninni.
Er markmiðið með stofnun ráðs-
ins að veita blökkumönnum tæki-
færi til að taka þátt í landsstjóm-
inni áður en kosið verður til þings
í apríl á næsta ári.
Ríkisstjóm Suður-Afríku sagði
að verulegur árangur hefði náðst
með þessu samkomulagi og Afríska
þjóðarráðið sagði að með stofnun
framkvæmdaráðsins hefði verið
tekið sögulegt skref í þá átt að
afnema aðskilnað kynþátta í Suður-
Afríku.
Stofnun ráðsins var hins vegar
einungis samþykkt af 19 af þeim
23 samtökum sem taka þátt í við-
'ræðunum um framtíð landsins og
meðal þeirra, sem greiddu atkvæði
gegn því, yoru Inkatha-samtök
Zulumanna, íhaldsflokkurinn, sem
vill takmarka áhrif blökkumanna,
og vinstrisinnaðar blökkumanna-
hreyfingar.
Framkvæmdaráðið mun ráða yfir
tíu þúsund manna friðargæslusveit-
um á meðan ríkisstjórn verður
áfram yfir hernum. Þetta fyrir-
komulag hefur verið harðlega gagn-
rýnt af fulltrúum Ihaldsflokksins
og segja þeir að með því að vera
með tvær herstjórnir sé verið að
leggja grunninn að borgarastyijöld.
Pieter Muldér, talsmaður Ihalds-
flokksins, sagði að íhaldsmenn
væru þó reiðubúnir að taka þátt í
viðræðum leiðtoga stærstu stjórn-
málafylkinganna. „Við verðum að
ná leiðtogunum saman. Þeim mönn-
um sem hafa einhvern valdagrund-
völl,“ sagði hann.
Buthelezi, leiðtogi Zulumanna,
mun hitta F.W. de Klerk forseta í
Höfðaborg þann 16. september, og
telja stjórnmálaskýrendur að sá
fundur geti lagt grunninn að leið-
togafundi. Buthelezi hefur marg-
sinnis lýst því yfir að hann telji
hættu á borgarastyijöld ef Afríska
þjóðarráðið og Þjóðarflokkur de
Klerks forseta reyni að samþykkja
framtíð Suður-Afríku upp á eigin
spýtur.
Kosningabarátta hafin
Reuter.
NELSON Mandela, leiðtogi Afríska þjóðarráðsins, og Alan Boesak, formaður ANC á Höfðasvæðinu,
syngja baráttusöng ásamt starfsmönnum fataverksmiðju í Höfðaborg en þar hóf ANC kosningabaráttu
sína í gær.
Framkvæmdastjórn PLO fundar um sjálfstjórnarsamkomulagið
Rabin segir afsögn Der-
is draga úr friðarlíkum
Jerúsalem, Túnis. Reuter.
YITZHAK Rabin, forsætisráðherra Israels, sagði í gær að afsögn
Ayre Deri innanríkisráðherra gæti dregið úr líkunum á að sam-
komulag næðist um frið í Mið-Austurlöndum. Deri baðst lausnar
frá embætti í gær eftir að Hæstiréttur ísraels hafði skipað Rabin
að víkja honum og Rafael Pinhasi, trúarmálaráðherra, úr stjórn-
inni en þeir eru grunaðir um spillingu. Deri og Pinhasi tilheyra
báðir Shas-flokknum, sem er flokkur réttrúaðra gyðinga, og gæti
afsögn Deris orðið til að hinir sex þingmenn flokksins hætti að
styðja stjórnina.
Fulltrúar Frelsissamtaka Palest-
ínu (PLO) og ísraelsstjórnar hittust
a fundi í París í gær ásamt Johan
•Jorgen Holst, utanríkisráðherra
Noregs, til að reyna að ná saman
um orðalag varðandi gagnkvæma
viðurkenningu. „Það hvenær við
undirritum samkomulag um sjálf-
stjórn ræðst af því hvenær við náum
saman um gagnkvæma viðurkenn-
ingu,“ sagði einn fulltrúa PLO og
gaf í skyn að hugsanlega myndi
það tefjast um einhveija daga.
Stefnt hefur verið að því að und-
irrita samkomulagið um sjálfstjórn
Palestínumanna í Washington á
mánudaginn.
Rabin sagði fréttamönnum í gær
að ísraelar væru reiðubúnir að við-
urkenna PLO að ákveðnum skilyrð-
um uppfylltum.
Framkvæmdastjórn PLO fundaði
í gærkvöldi í Túnis þar sem til stóð
að taka ákvörðun um hvort samtök-
in gætu fallist á það samkomulag
um sjálfstjórn á Gaza-svæðinu og
í borginni Jeríkó á Vesturbakkanum
sem liggur fyrir. Þrettán af átján
fulltrúum framkvæmdastjórnarinn-
ar mættu á fundinn og var hann
því ákvörðunarhæfur.
Fundurinn stóð enn seint í gær-
kvöldi og var jafnvel búist við að
honum yrði haldið áfram í dag.
Samkvæmt könnun Reufers-frétta-
stofunnar á viðhorfum þeirra sem
sitja í stjórninni mun Yasser Ara-
fat, leiðtogi PLO, eiga vísan stuðn-
ing öruggs meirihluta fram-
kvæmdastjórnarmanna.
• Reuter
Þriggja manna BMW kynntur
GESTUR á alþjóðlegu bílasýningunni í Frankfurt virðir fyrir sér
nýjasta meðliminn í BMW-ijölskyldunni, hinn smáa en knáa Z 13.
Þessi nýjasti BMW tekur þrjá í sæti, einn fyrir miðju fram í og tvo
aftur í.
Azerar vilia semia
um frið við Armena
Moskvu. Reuter.
HAYDAR Alijev, leiðtogi Azerbajdzhans, kvaðst í gær vera reiðubúinn
til friðarviðræðna við Armena um Nagorno-Karabakh en mikil hætta
þykir á, að verði ekki átökin milli Azera og Armena stöðvuð, geti þau
breiðst út til nágrannaríkjanna. Utanríkisráðherra Tyrklands sagði í
gær, að íranskt herlið væri komið einn eða tvo km inn í Azerbajdz-
han en kvað það ekki áhyggjuefni. Væri það aðeins gert til að koma
í veg fyrir óstöðvandi flóttamannastraum inn í íran.
Alijev sagði í Moskvu, að viðræð-
ur við Armena ættu að vera fyrsta
skrefið í átt til samninga um Nag-
orno-Karabakh en héraðið er byggt
Armenum en tilheyrir Azerbajdzh-
an. íbúar þess krefjast sjálfstæðis
eða sameiningar við Armeníu og
hafa átt í stríði við Azera í fimm
ár. Ráða þeir nú öllu héraðinu og
miklum, nálægum landsvæðum í
Azerbajdzhan að auki. Hefur fram-
sókn þeirra að undanförnu vakið
ótta við, að átökin breiddust út fyr-
ir landamærin en mikill fjöldi Azera
hefur flúið til írans þar sem Azerar
eru einnig fjölmennir.
Talsmaður rússneska utanríkis-
ráðuneytisins sagði í gær, að Rúss-
landsstjórn gæti ekki sætt sig við,
að íranir sendi her inn í Azerbajdzh-
an „hver sem tilgangurinn væri“
og varaði þá við að blanda sér í
átökin. Rússneska fréttastofan Int-
erfax hafði í gær eftir Levon Ter-
Petrosjan, forseta Armeníu, að
hann fagnaði hugsanlegum friðar-
viðræðum við Azera.