Morgunblaðið - 09.09.1993, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1993
Vilja stöðva
veiði með
herskipum
HAFT var eftir sjávarútvegs-
ráðherra Færeyja, í fréttum
Ríkisútvarps í gær, að Rússar
hyggist senda herskip inn í
Smuguna í Barentshafi til að
stöðva veiðar íslenskra og
færeyskra togara. Þar eru nú
nokkur íslensk skip að veiðum.
Tummas Arabo sjávarútvegs-
ráðherra er nýkominn úr heimsókn
til Rússlands. í frétt útvarpsins
var vitnað í viðtal við hann í fær-
eysku blaði í gær þar sem hann
segir, að Rússar séu æfareiðir yfir
veiðum óviðkomandi ríkja í Smug-
unni og hyggist stöðva þær.
----------» ♦ ♦----
Tilnefndir
til verðlauna
ÞORSTEINN Hauksson og Páll
P. Pálsson hafa verið tilnefndir
til tónlistarverðlauna Norður-
landaráðs.
Þorsteinn er tilnefndur fyrir
verkið CHO, fyrir fiautu og tölvu-
hljóð og Páll fyrir tónverkið Ljáðu
mér vængi, fyrir mezzosópran og
hljómsveit.
Atta önnur norræn tónskáld, tvö
frá hveiju Norðurlandanna, hafa
verið tilnefnd. Tilkynnt verður um
niðurstöðu dómnefndar á fundi
Norræna tónlistarráðsins í Ósló 17.
nóvember næstkomandi.
-----»-♦ ♦----
Veikur sjó-
maður sóttur
fsafirði.
BJÖRGUNARBÁTURINN Daníel
Sigmundsson fór frá ísafirði í
gærkvöldi til móts við finnska
hafrannsóknaskipið Aranda tii að
sækja sjúkan mann.
Að sögn skipstjórans á Daníel Sig-
mundssyni var skipveijinn ekki talinn
alvarlega veikur, en skipstjórinn vildi
ekki hafa hann um borð þar sem
skipið er að störfum langt undan
landi. _ úlfar.
Spariskírteini
Avöxtunar-
krafahækkar
í ÚTBOÐI spariskírteina ríkis-
sjóðs sem opnuð voru í gær
hækkaði meðalávöxtun bréfa til
5 ára úr 7,17% í 7,24% frá síð-
asta útboði sem fram fór 30.
ágúst sl. Meðalávöxtun spari-
skírteina til 10 ára hækkaði
einnig, úr 7,16% i 7,25%. Pétur
Kristinsson framkvæmdastjóri
Þjónustumiðstöðvar ríkisverð-
bréfa segir að hækkunin sé
óveruleg með tilliti til þess
magns spariskirteina sem ríkis-
sjóður er búinn að selja á undan-
förnum 10 dögum. A þeim tíma
hafa verið seld spariskírteini
fyrir rúma 1,5 milljarða.
Alls bárust 55 gild tilboð í spari-
skírteinin að fjárhæð 1.244
milljónir króna. Tilboðum átta að-
ilá var tekið og nemur upphæð
þeirra 669 milljónum króna.
Ávöxtunarkrafa spariskírtein-
anna hefur farið lækkandi frá því
í júní, þar til nú að hún hækkaði.
„Við sjáum enga ástæðu af hveiju
þetta hefur verið að hækka,“ seg-
ir Pétur Kristinsson. „Þetta er góð
útkoma og bendir til þess að menn
trúi ekki að vaxtahækkunin vari.“
Morgunblaðið/Julius
Nýgönguleið við suðuiijörnina
FRAMKVÆMDIR standa nú yfir við gerð göngustigs með bakka syðri hluta Tjarnarinnar í Reykjavík,
milli Skothúsvegar og Hljómskálagarðs. Bekkir verða meðfram stígnum, og mun gestum og gangandi verða
þannig betur kleift að komast í samband við vatnið og fuglalífið, að sögn Jóhanns Pálssonar, garðyrkju-
stjóra Reykjavíkurborgar.
Svöruðu ekki Gæslunni
FOKKER-vél Landhelgisgæslunnar kom að tveimur færeyskum togur-
um að veiðum fyrir innan miðlínuna milli íslands og Færeyja á þriðju-
dagskvöld. Það hefur oft komið fyrir áður að færeyskir togarar hafi
verið að veiðum á þessum slóðum og þeir hafa ætíð fært sig út fyrir
miðlínuna að beiðni Landhelgisgæslunnar. Nú hinsvegar svaraði hvor-
ugur togarinn kalli frá Fokker-vélinni. Slíkt hefur komið fyrir áður
en er samkvæmt upplýsingum frá Gæslunni afar sjaldgæft.
Áhöfn Fokker-vélarinnar kom
auga á þijá togara á þessu svæði.
Tveir þeirra, ísfísktogararnir Brestir
og Steintor, voru með trollið úti tvær
og þijár mílur fyrir innan miðlínuna
en þriðji togarinn, Fönix, mældist
vera á miðlínunni.
Hafsteinn Hafsteinsson forstjóri
Landhelgisgæslunnar segir þetta við-
kvæmt mál og það sé í athugun hjá
embættinu. Að öðru leyti vildi hann
ekki tjá sig um það að svo stöddu.
Eins og fram hefur komið í Morg-
unblaðinu telja Færeyingar sig í full-
um rétti að veiða innan miðlínunnar
þar sem þeir viðurkenna ekki Hval-
bak sem viðmiðunarpunkt í efna-
hagslögsögu íslands. Svæðið sem
deilt er um er u.þ.b. 9.000 ferkíló-
metrar að stærð, en færeysku togar-
amir hafa veitt á mjög litlum hluta
þess að 5 mílum frá miðlínunni. Á
undanförnum árum hafa Færeyingar
veitt þarna bæði karfa og rækju.
Morgunblaðið/RAX
Tvöfaldur borgari kostar
um 400 krónur
MCDONALD’S veitingastaðurinn í Reykjavík verður opnaður al-
menningi í fyrramálið en í kvöld opnar Davíð Oddsson forsætisráð-
herra staðinn formlega og pantar sér fyrsta íslenska McDonald’s
hamborgarann. Leynd hvílir yfir verði veitinga, en samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins mun tvöfaldur hamborgari, svonefndur
Big Mac, kosta öðru hvoru megin við 400 krónur. Starfsfólk veit-
ingahússins hefur verið í þjálfun hjá erlendum fulltrúum McDon-
alds undanfarinn mánuð, en staðlaðir hættir eru hafðir á veiting-
um, þjónustu og matreiðslu á öllum McDonald’s stöðum. Alls eru
nú um 13.500 McDonald’s staðir í 66 löndum í heiminum. Matseð-
ill íslenska staðarins verður ekki jafn stór og víða erlendis, en í
boði verða t.d 5 tegundir af borgurum og kjúklingabitar svo eitt-
hvað sé nefnt. Á myndinni sést starfsfólk McDonalds veitingastað-
arins fræðast um matargerðina.
Sjá bls 20: „McDonald’s opnaður...“
Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar á Borgarspítalanum
Rannsóknar krafist á
uppsögn deildarstjóra
í dag
Björk i Bretlandi
Nýtt lag í 29. sæti 4
Dómsmálaráðherra
Asakanir tilefnislausar og ósæmi-
legar 16
Hvcrs vcgna þarí iingi fólk
aÖ hug*á un> cfiirbuninr
Lettland
Páfi vill Rússa burt
Leiðari
24
Þjóðverjar hvattir til endurmats
26
► Batnandi horfur á álmörkuð-
um - SVR hf. sparar en veitir
sömu.þjónustu - Vatnið sífellt vin-
sælli drykkur - Birkir Baldvins-
son stór hluthafí í Flugleiðum
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR og sjúkraliðar á tveimur skurðlækn-
ingadeildum Borgarspitalans hafa sent opið bréf til Guðmundar
Árna Stefánssonar heilbrigðisráðherra þar sem krafist er opinberr-
ar rannsóknar á brottvikningu fjögurra deildarstjóra á deildunum.
Jafnframt hafa þeir sent hjúkrunarforstjóra spítalans mótmælabréf
með nær 80 undirskriftum sökum sama máls. Jóhannes Pálmason
framkvæmdastjóri spítalans segir að uppsagnir deildarstjóranna og
ráðning tveggja annarra í staðinn sé liður í skipulagsbreytingum á
spítalanum og að þeim sem sagt var upp standi til boða önnur vinna
á spítalanum.
Bréf það sem hjúkrunarfræðing-
amir og sjúkraliðamir sendu heil-
brigðisráðherra er svohljóðandi:
„Undanfarin 2-3 ár hefur stig-
magnast óánægja með hjúkrunar-
stjórn Borgarspítalans. Vegna und-
angenginna atburða á handlækn-
ingadeildum Bsp. kreíjumst. við þess
að starfsemi hjúkrunarstjórnar sé
könnuð og brottrekstur nokkurra
deildarstjóra með slíkum hætti, sem
raun bar vitni, verði rannsökuð.
Hin almenna óánægja hjúkrunar-
fólks Bsp. undanfarin 2 ár hefur
að mestu byggst á starfsaðferðum
hjúkrunarstjórnar sem hafa vakið
upg spurningar um siðleysi.
Óbæriltfgt er að starfa við þessar
aðstæður. Því væntum við svara
sem fyrst.“
Heyrt af óánægju
Er Morgunblaðið hafði samband
við Jóhannes Pálmason í gærkvöldi
hafði hann séð framangreint bréf
Viðskipti/Atvinnulíf Dagskrá
► Bein útsending frá gcimnum
- Kakkalakkar taka málin í sínar
hendur - MTV í Asíu - Mariel
Hemingway leikur á ný - Lífverð-
ir vinsælir í Holly wood
til heilbrigðisráðherra en hafði
heyrt af óánægju og ókyrrð á skurð-
lækningadeildunum vegna málsins.
Hann segir að með breyttu stjórn-
skipulagi á spítalanum, sem taka á
gildi innan þriggja mánaða, hafí
verið ákveðið að fækka deildarstjór-
um á öllum deildum úr tveimur í
einn og það hafi tekist í sátt og
samlyndi á deildunum fyrir utan
þessar tvær skurðlækningadeildir.
Því hafi verið ákveðið að auglýsa
þær tvær stöður sem þar var um
að ræða og hafi sex sótt um aðra
og fjórir um hina. Meðal umsækj-
enda voru fjórir fyrrum deildarstjór-
ar. Er stjóm spítalans tók afstöðu
til umsókna var enginn af þessum
fjórum ráðinn í þær tvær stöður sem
lausar voru.
„Allir sem sóttu um töldust hæf-
ir til að gegna stöðunum og hvað
varðar deildarstjórana fjóra liggur
ljóst fýrir að spítalinn vill hafa þá
í vinnu áfram og hefur boðið þeim
önnur störf,“ segir Jóhannes. „Ég
kannast ekki við óánægju tvö ár
aftur í tímann en veit að ókyrrð
hefur verið á þessum deildum frá
því á föstudag, er gengið var frá
ráðningu í stöðurnar tvær. Það var
mjög formlega að málinu staðið og
farið eftir settum reglum og ég lýsi
fyllsta trausti á hjúkrunarstjórnina
í þessu máli,“ sagði Jóhannes.
Færeyskir togarar á veiðum iiman miðlínu