Morgunblaðið - 09.09.1993, Page 4
Seei H5I8M3TC38 .6 HÍJDAaJTMMI'i aiöAJHMUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ KIMMTUDAGUR 9. SEFI'EMBER 1993
Ný aðferð þróuð við flutning á ferskum fiski
Eykur geymsluþol
físks um fjóra daga
TILRAUNIR sem Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins hefur fram-
kvæmt að tilstuðlan fyrirtækjanna Plastos og ísaga hafa leitt í ljós
að hægt er að auka geymsluþol á ferskum fiski i gámum sem send-
ir eru til Bandaríkjanna eða Evrópu um 4 daga. Um er að ræða
pökkun á ferskum flökum í kolsýrupakkningar eða gaspakkningar
þar sem fisknum er pakkað í loftskiptar umbúðir. Arni Þorsteinsson
sölumaður í sjávarútvegsdeild Plastos segir að kostnaðurinn við
þetta fyrirkomulag sé svipaður og við hefðbundnar pakkningar en
hinsvegar geri aukið geymsluþol það að verkum að svigrúm framleið-
enda aukist hvort sem um er að ræða vinnslu eða flutning á vörunni.
Eitt fyrirtæki, Haffang í Sand-
gerði, hefur flutt físk til Bandaríkj-
anna með þessu fyrirkomulagi, alls
um 10 tonn, og líkað vel, að sögn
Á'rna. Hann segir að hugmyndin
að því að þróa þetta hafi komið í
kjölfar ráðstefnu sem Isaga hélt um
gaspökkun fyrr í sumar. í fram-
haldi af því hafi Plastos og ísaga
leitað til Rannsóknastofnunar físk-
iðnaðarins sem gert hafí tilraunir á
geymsluþoli físks með þessari að-
ferð og helstu niðurstöður hafí ver-
ið að við bestu aðstæður geymist
fiskurinn í gámum í um 16-20 daga
með þessari aðferð.
Iðnaðartílraun
Ámi segir að þegar þessar fyrstu
niðurstöður lágu fyrir hafí verið
ákveðið að gera iðnaðartilraun þar
sem líkt var eftir ferli flutnings á
ferskum fiski, annarsvegar með
flugi til Bandaríkjanna og hinsveg-
ar með skipi til Evrópu. Annars
vegar var fískinum pakkað í gas-
pakkningar og hinsvegar var hefð-
bundin pökkun í frauðkassa. í ferl-
ið voru settir tveir hitatoppar, þ.e.
pakkningar látnar standa í stofu-
hita í sex tíma í senn, en að öðru
leyti voru þær í kæligámum.
Sýnin voru síðan könnuð eftir 4
daga, 7 daga, 11 daga og 14 daga.
í ljós kom að eftir 4 og 7 daga
voru öll sýnin í lagi en eftir 11
daga vora bæði gaspakkningarsýn-
in í lagi en viðmiðunarsýnin ónýt.
Eftir 14 daga voru síðan gas-
pakkningarsýnin orðin óhæf til
neyslu.
VEÐUR
/ DAG kl. 12.00
Heimild: Veðuretofa (slands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 9. SEPTEMBER
YFIRLIT: Á Grænlandshafi er nærri kyrrstæð 997 mb lægð. Lægðardrag
frá þessari lægð nálgast vesturströnd landsins úr vestri og verður yfir
miðju landinu á morgun. Miili Isiands og Noregs er dálítill hæðarhryggur.
SPA: Fremur hæg suðaustlæg átt. Súld eða rigning með köflum sunnan-
lands og vestan-, en skúrir um landið norðaustanvert. Fremur milt verður
í veðri miðað við árstíma.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Austan- og suðaustanátt. Súld eða rigntng
með suðaustur- og austurströndinni, en skúrir I öðrum landshlutum. Hiti
9 til 15 stig.
HORFUR A LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Búast má við austan- og
síðan norðaustanstrekkingi með rigningu um austanvert landið, en lengst
af þurru veðri um landið vestanvert. Hiti á bilinu 6 til 14 stig.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22.30. Svareími Veðurstofu Islands - Veðurfregnir: 990600.
o
Heiðskírt Léttskýjað
r r r * r *
r r * r
r r r r * r
Rigning Slydda
Alskýjað
Skúrir Slydduél
V
Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
ogfjaðrimarvindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.(
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
itig-.
FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 ígær)
Þjóðvegir landsins eru flestir í góðu ásigkomulagi og. greíðfærir. Víða
er þó unnið að vegagerð og þurfa vegfarendur að haga akstri sam-
kvæmt merkingum þar. Hálendisvegir eru færir fjallabílum, Gæsavatna-
leið fær til austurs frá Sprengisandi.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
ágrænnilínu, 99-6315. Vegagerðln.
VEÐUR lflÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að fsl. tíma
hitl veður
Akureyri 13 skýjað
12 skýjað
léttskýjaö
skýjað
skýjað
skýjað
hálfskýfað
léttskýjað
léttskýjað
akýjað
14
Helsinkl 12
Kaupmannahðfn 16
Narssarssuaq 5
Nuuk 6
Ósló 14
Stokkhólmur 16
Pórshöfn 8
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Berlin
Chicago
Feneyjar
Frankfurt
Glasgow
Hamborg
London
LosAngeles
Lúxemborg
Madríd
Mallorca
Montreal
NewYork
Orlando
París
Madeíra
Róm
Vín
Washington
Winnipeg
24
18
27
18
13
21
21
12
17
1B
17
19
20
29
27
13
19
23
21
23
27
22
23
13
léttskýjað
þokumóða
hálfskýjað
rigning
akýjað
þokumóða
skýjað
alskýjað
skúrir
þoka
skýjað
skýjað
háHskýjað
hálfskýjað
skýjað
alskýjað
hálfskýjað
skýjað
súld
þokumóða
skýjað
þokumóða
úrkoma
Morgunblaðið/Jón Ármann Héðinsson.
*
Isboginn í Kverkfjöllum að hverfa
ÍSBOGINN frægi sem er fyrir munna hellisins í Kverkfjöllum í norður-
jaðri Vatnajökuls er að hverfa. Jón Ármann Héðinsson fyrrverandi al-
þingismaður var þar á ferð á höfuðdaginn 29. ágúst sl. og tók þá
meðfylgjandi mynd sem sýnir að ísboginn er nú aðeins innan við metri
að þykkt en þykkt hans var nokkrir metrar fyrir fáeinum árum. Jón
Ármann sagði að mikið hefði hrunið úr íshvelfingunni á undanförnum
mánuðum og gæti hún hrunið saman á hverri stundu. Yrði þá sjónar-
sviptir að og breytt aðkoma að hellinum fyrir ferðamenn.
Nýtt lag Bjarkar í
29. sæti í Bretlandi
ÖNNUR smáskífan af plötu Bjarkar Guðmundsdóttur, Venus
as a Boy, var gefin út ytra í síðustu viku. Að sögn umboðs-
manns Bjarkar hér fór lagið í 29. sæti, en plata hennar, Deb-
ut, hefur nú verið í átta vikur á top tuttugu á breska breið-
skífulistanum. I gærkvöldi kom Björk fram í sjónvarpsþættinu
Top of the Pops, en áður var
Venus as a Boy er gefið út
í ýmsum útgáfum samtímis, og
þar á meðal er sérstök útgáfa
lagsins sem Mick Hucknall,
söngvari bresku hljómsveitar-
innar Simply Red, sá um. Mikið
er lagt í myndband sem gert
var við lagið og stýrði því kona
sem meðal annars hefur unnið
mikið fyrir breska dúettinn Eur-
ythmics. Myndbandið fór í 21.
sæti á lista sem sjónvarpsstöðin
MTV birtir.
Debut hefur nú setið í á
níundu viku á topp tuttugu á
breska breiðskífulistanum, þar
af eina viku á topp tíu, en það
hefur engum íslenskum lista-
manni tekist áður. Að sögn út-
gefanda í Bretlandi selst platan
nú í um 8.000 eintökum á viku
þar í landi og hefur salan auk-
ist undanfarið. í Bandaríkjunum
stígur platan enn uppávið, er
nú 66. sæti með sérstakri sölu-
aukningarmerkingu.
Á Árósahátíð
Björk verður á ferði og flugi
næstu vikur og mánuði til að
kynna Debut og við tónleika-
hald, en meðal annars leikur
hún á Árósahátíðinni í Dan-
mörku í dag og síðan á tvennum
tónleikum í Bretlandi í næstu
viku, öðrum í beinni útsendingu
breska útvarpsins, BBC, og
MTV myndritar. Einnig verður
hún í myndatökum fyrir tímarit
eins og Face, Clothes Show,
hún þar með Sykurmolunum.
Heimshornaflakk
BJÖRK Guðmundsdóttir
stendur í ströngu við að kynna
breiðskífu sína víða um heim.
Looks og Harpers & Queen,
aukinheldur sem hún leikur ór-
afmagnað í MTV 28. september
nk. Tónleikaferð hennar um
Bandaríkin hefst svo 4. október
í Boston og stendur til 1. nóvem-
ber, að Björk tekur sér tveggja
vikna hlé áður en hún heldur í
tónleikaferð um Evrópu sem
lýkur hér á landi um miðjan
desember. í Bandaríkjunum
hefur plata Bjarkar fengið mis-
jafna dóma, en í bandaríska
stórblaðinu New York Times var
íjallað lofsamlega um plötuna
og myndabandið við Human
Behaviour fyrir stuttu. Einnig
er Björk í tískumyndasyrpu í
nýjustu útgáfu Rolling Stone
og á forsíðu tímaritins Wire.
Glaðnar yfir loðnuveiðum
Rúmlega 800 þús. t komin á land
HELDUR glaðnaði yfir loðnu-
veiðunum á þriðjudag en bátarn-
ir öfluðu lítið um og eftir helg-
ina. Rúmlega 300 þúsund tonn
hafa borist á land á loðnuvertið-
inni. Loðnan virðist dreifa sér
jafn óðum og hún gengur suður
og er þá óveiðanleg.
Gígja VE landaði 730 tonnum á
Seyðisfirði í gær. Að sögn Snorra
Gestssonar skipstjóra gengu veið-
amar sæmilega á þriðjudag en lítið
veiddist af loðnu um helgina.
Hólmaborg aflahæst
Hann sagði að bátarnir hefðu
fylgt loðnu sem gekk suður en hún
hefði dreift sér og verið óveiðanleg.
Bátamir héldu þá norður aftur og
fundu þar veiðanlegar torfur.
Aflahæsta skipið á vertíðinni er
Hólmaborg SU með 19.377 tonn.
Þá koma Sigurður VE með 18.124
tonn og Víkingur RE með 17.968
tonn.