Morgunblaðið - 09.09.1993, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1993
13
Snjallir grimnskólanemendur
eftir Guðrúnu
Þórsdóttur
Viðhorf til barna
í athyglisverðri ritdeilu í vetur
um kenningar Piagets og um ís-
lenska nýskólastefnu hefur vits-
munaþroska og rökhugsun barna
talsvert borið á góma. Ekki ætla
ég mér út á þann deiluvöll. En svo
vill til að Nýsköpunarkeppni
grunnskólanemenda hefur á bæði
einfaldan og ótvíræðan hátt sýnt
fram á rökhugsun og vitsmuna-
þroska grunnskólanemenda. Það
getur hver leikmaður séð og þarf
ekki á útlendum kenningum að
halda til þess. Það er hins vegar
næsta víst að flestir fullorðnir,
jafnt skólamenn sem aðrir, van-
meta yfirleitt hæfileika barna. Þar
er þörf á viðhorfsbreytingu.
25 hugmyndir strax hæfar til
framleiðslu
Af 215 hugmyndum sem bárust
í Nýsköpunarkeppni grunnskóla-
nemenda voru að mati matsnefnd-
ar 25 hugmyndir hæfar til fram-
leiðslu strax, án frekari hönnunar.
Verðlaunanefnd skipuðu frammá-
menn úr íslensku atvinnulífi og
enginn vænir þá um skort á viti
eða rökhugsun. Nefndin valdi átta
ára dreng og 14 ára stúlku í fyrstu
sæti keppninnar. En keppnin
skiptist í nýsköpun 1 (ný uppfinn-
ing) og nýsköpun 2 (endurbætur
á gömlum hlut). Vandi verðlauna-
nefndar var fyrst og síðast að
velja verðlaunahafana. Og nefnd-
armenn voru einróma um að hug-
myndir nemenda væru góðar,
gagnlegar og skemmtilegar.
Nýir sprotar
Grunnskólanemendur eru snjall-
ir að leysa raunveruleg verkefni.
Þeir fá bara alltof sjaldan tæki-
færi til þess. Skólakerfið hefur því
miður ekki náð þar tilætluðum
árangri.
En nú nýverið var Foldaskóli
tilnefndur móðurskóli fyrir ný-
sköpunarnám grunnskólanemenda
í Reykjavík. Þar hafa nú þegar
vaxið vísar að nýsköpunarnámi
sem eiga bara eftir að gildna.
Næsta skólaár verður nemendum
Foldaskóla boðið upp á val í ný-
sköpun og eins verður um skyldu-
nám í nýsköpun að ræða í einum
árgangi. En nýsköpunarnám er
uppgötvunarnám sem örvar inn-
sæi og rökhugsun og stælir viljann
til að bæta umhverfið. Áframhald
verður á námskeiðum íþrótta- og
tómstundaráðs í nýsköpun sem eru
haldin í Foldaskóla fyrir nemendur
í Reykjavík. Síðustu viku júlímán-
aðar var haldinn sumarskóli í Ket-
ilsstaðaskóla í Vík í Mýrdal fyrir
unga hugvitsmenn. En skólastefna
Ketilsstaðaskóla hefur skilað
greinilegum árangri í að styrkja
hugvit og einstaklingsþroska nem-
enda. Undanfarin tvö ár hafa nem-
endur frá þessum merkilega skóla
sópað að sér verðlaunum í Nýsköp-
unarkeppni grunnskólanemenda.
í undirbúningi er stofnunþróun-
ardeildar við Tækniskóla Islands
þar sem aðaláherslan verður lögð
á nýsköpun, frumgerðavinnu og
Kripalujóga
Byrjendanómskeió hefst 14. sept.
Kennt ó þri. og fim. kl. 17.15 -18.45.
ðndunartækni, teygjur og slökun.
Skeifunni 19,2. hæá,s. 679181 (Id. 17-19).
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásWum Moggans!
að koma hugmyndum nemenda í
framleiðslu. Nú í sumar styrkti
Kassagerð Reykjavíkur útgáfu lít-
illar leiðbeiningabókar fyrir unga
hugvitsmenn, en aðilar atvinnul-
ífsins hafa stutt verulega-við ný-
sköpunarverkefnið. Myndin Hug-
vit og nýsköpun í skólastarfi var
alfarið styrkt af skilningsríkum
aðilum í atvinnulífínu. Frumgerða-
smíð á hugmyndum nemenda er
sömuleiðis eingöngu styrkt af at-
vinnulífinu. En án þessa beina
stuðnings er ljóst að lítið verður
um framleiðslu á söluhæfri vöru.
f framhaldi
Það er óhætt að gera ráð fyrir
framlagi grunnskólanemenda til
„Af 215 hugmyndum
sem bárust í Nýsköpun-
arkeppni grunnskóla-
nemenda voru að mati
matsnefndar 25 hug-
myndir hæfar til fram-
leiðslu strax, án frekari
hönnunar.“
betra þjóðlífs. Þeir eru færir um
það. Skólakerfið, atvinnulífið og
ríkisvaldið þurfa að sameinast í
að gefa þeim svigrúm og tækifæri
til að láta hæfíleikana birtast. Og
í framhaldinu styðja við fram-
leiðsluþáttinn, en framleiðslan á
verðmætum eru veruleiki sem allir
aldurshópar skilja.
Nýsköpunarkeppni grunnskóla-
nemenda hefur sannað gildi sitt
og verður haldin áfram til að veita
hugviti nemenda farveg og örvun.
Og ekki hvað síst til að vekja at-
hygli á þessum ungu alvöru hug-
vitsmönnum.
Allar nánari upplýsingar um
keppnina er hægt að fá hjá undir-
ritaðri eða Paul Jóhannssyni,
deildarstjóra hjá Tækniskóla ís-
lands.
Höfundur er kennslufulltrúi á
Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur.
Guðrún Þórsdóttir
ViD opnum á morgun 10. september M. 10,
fyrsta úflbú JCPenney í Evrópu, í Faxafeni 10,
Reykjavík, í húsi Framtíðar.
138*
SOq Op.,„
h°”en,r,
'JDenaurnlrte9**'r‘>'Zath'hn’ ,ánZ°2u‘
Afsláttur á
haust- og vetrarlistanum.
FV,.to
Donni DOMINO verður á
staðnum milli kl. 4 og 6
og gefur öllum hressum
krökkum blöðrur frá JCPenney
og DOMINO'S PIZZA.
Gjafabréf
1-500
Vinningar í spurningaleik.
1. Bílútvarp.
2.-30. Chicago Bulls
körfuboltar.
31 .-50. Chicago Bulls
æfingatöskur.
Ýmsir fróðleiksmolar:
Árið 1902 stofnaði James Cach Penney sina fyrstu verslun, The Golden Rule i Kemmerer í Bandarikjunum,
sem síðar varð að JCPenney stórveldinu, eins og við þekkjum það í dag.
Árið 1980 var heildarsalan hjá JCPenney komin í 11,4 billjónir bandarikjadala.
Árið 1993 opnar JCPenney sitt fyrsta útibú í Evrópu, og það á (slandi, nánar tiltekið í Faxafeni 10, húsi
Framtíðar. Opnunardagur hefur verið ákveðinn 10. september kl. 10.
JCPenney er eitt þekktasta vörumerki á sviði verslunar í Ameríku. Það eru yfir 2000 verslanir víðsvegar um
Bandaríkin og er fyrirtækið það fimmta stærsta á sviði verslunar þar i landi.
I útibúi JCPenney i Faxafeni 10, verður hægt að leggja inn pantanir á nánast alla vöruflokka, sem tilgreindir eru
á 1387 blaðsíðum i nýja haust- og vetrarlistanum.
Símapantanir eru teknar niður í síma 91-811490 og einnig er hægt að senda á myndsendi i númer 91-811494.
Spurningamar eru þessar:
1. Hvenær var JCPenney stofnað?
2. Hvar opnar JCPenney útibúið
á íslandi?
3. Hvað er símanúmerið hjá JCPenney
á íslandi?
4. Hvaða dag opnar JCPenney
á íslandi?
Við drögum þann 18. september nk.
Verið með í spurningaleiknum!
I Já takk, ég óska eftir nýja haust- og vetrarlistanum í póstkröfu. |
| Verð kr. 500. Burðargjald er kr. 465,-
| Nafn:_____________________
I
| Heimilisfang:_____________________________
I
I Póstnr.:
Skrifið svörin hér:
1.
2.
3.
4.
C
c
V>
l & d
N V >
*• S’® z
r- ±r >>
V) c 'O a>
5 a) £ K
C Q- m CO
0) O -O <m
(O —) Q- r-
CHICAGO
BULLS