Morgunblaðið - 09.09.1993, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1993
17
Frumvarp
um umboðs-
mannbama
í haust
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA mun
leggja fram frumvarp um stofnun
embættis umboðsmanns barna á
Alþingi í haust. Hlutverk hans
verður að fylgjst með að lögum
um málefni barna sé framfylgt
sem og ákvæðum Barnasáttmála
Sameinuðu þjóðanna. Arthur
Morthens formaður BarnaheiIIa
segir að framkvæmd laga um rétt-
indi barna sé hér oft i skötulíki.
I samtali við Morgunblaðið sagði
Arthur að hann teldi mjög brýnt að
embætti umboðsmanns barna yrði
stofnsett. Hann sagði að Islendingar
væru gjarnir á að setja ágæt lög um
málefni barna en oft væri fram-
kvæmdin í skötulíki. Full þörf væri
einnig að fylgjast með því að ákvæð-
um Bamasáttmála Sameinuðu þjóð-
anna væri framfylgt hér á landi.
Fjölþættur málaflokkur
Arthur hefur kynnt sér starfssvið
umboðsmanns bama í Noregi sem
hann segir vera eftirlit með lagasetn-
ingu um málefni barna, eftirlit með
framkvæmd laga og öll mál sem
varða böm í þjóðfélaginu. Umboðs-
maður þar fær inn á borð til sín
skólamál, dagvistarmál, mál sem
hafa misfarist hjá barnavemdar-
nefndum, mál í dómskerfinu og laga-
setningar. Auk þess er umboðsmaður
bama með reglulega sjónvarpstíma
í norska sjónvarpinu þar sem fjallað
er um ákveðin mál hverju sinni til
þess að upplýsa börn um réttarstöðu
þeirra.
-------------
Alþýðubandalagið
Ekki fram-
boð gegii
forustunni
ENGIN mótframboð höfðu borist
vegna allsherjarkjörs formanns
og varaformanns Alþýðubanda-
lagsins er framboðsfrestur rann
út 7. september sl. Yfirkjörsljórn
Alþýðubandalagsins hefur ákveð-
ið að framlengja framboðsfrest-
inn til 21. september í samræmi
við reglur um allsherjarkosningu
en berist engin mótframboð verða
frambjóðendurnir sjálfkjörnir.
Ólafur Ragnar Grímsson alþing-
ismaður býður sig fram til formanns
og Steingrímur J. Sigfússon alþing-
ismaður býður sig fram til varafor-
manns.
Fullnægja skilyrðum
Að sögn Elsu Þorkelsdóttur for-
manns yfírkjörstjórnar hefur verið
úrskurðað að bæði framboðin full-
nægi þeim skilyrðum sem áskilin
voru. Hún sagði að samkvæmt regl-
unum fari kosning ekki fram að
loknum framlengdum framboðs-
fresti ef engin mótframboð berast
og verði þá sjálfkjörið. Komi fram
mótframboð verða kjörseðlar sendir
í pósti til allra félagsmanna Alþýðu-
bandalagsins í síðari hluta nóvem-
bermánaðar og úrslit kynnt á lands-
fundi Alþýðubandalagsins sem hald-
inn verður á Hótel Sögu dagana 25.
til 28. nóvember.
♦ ♦ ♦---
Nýr formaður
þingflokks
Kvennalistans
JÓNA Valgerður Kristjánsdóttir
hefur tckið við formennsku í þing-
flokki Kvennalistans af Kristínu
Ástgeirsdóttur.
Sú venja hefur gilt frá upphafí i
þingflokki Kvennalistans að skipst
er á um formennskuna á árs fresti.
Varaformaður þingflokksins er Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir.
Kasparov vann fyrstu skákina á heimsmeistaraeinvíginu í London
Taugastríð og tímahrak
London. Frá Margeiri Péturssyni
FYRSTA einvígisskák þeirra Gary Kasparovs og Nigels Shorts
á þriðjudag var æsispennandi á lokamínútunum, en gæði tafl-
mennskunnar voru talsvert undir væntingum. Svo virtist sem
báðir væru fremur taugaóstyrkir, sérstaklega Short, sem not-
aði alltof mikinn tíma í frekar einfaldri stöðu og gaf þar með
færi á sér, algerlega að óþörfu. Honum tókst að veijast óvæntri
og skyndilegri sókn Kasparovs á skákborðinu sjálfu, en tíminn
sem fór í að finna vörnina var of mikill og Short féll á tíma
án þess að takast að leika tveimur'síðustu leikjunum fyrir tima-
mörkin. Margir töldu lokastöðuna sigurvænlega fyrir Short, en
á blaðamannafundi eftir skákina sagðist Kásparov geta náð
jafntefli í henni. Að sögn Shorts bauð Kasparov honum jafn-
tefli eftir 38. leik en Short hafnaði því.
Hljóðið í herbúðum Shorts var
gott í gær, þrátt fyrir tapið. Að-
stoðarmenn Shorts töldu hann
hafa komist vel frá skákinni og í
bresku blöðunum í gær var rifjað
upp, að Short hefur byijað illa í
öllum einvígum sínum í þessari
lotu heimsmeistarakeppninnar.
Áttundi leikur Shorts virtist
koma Kasparov töluvert á óvart og
hann notaði mikinn tíma. Englend-
ingurinn virtist fullur sjálfstrausts,
en lék alltof djörfum riddaraleik og
lenti í erfíðri vamarstöðu. Heims-
meistaranum tókst þó ekki að fínna
vænlegt framhald og staðan varð
jafnteflisleg. Hann sagði eftir á að
ef Short hefði ekki farið svo óspar-
lega með tíma sinn hefði hann ver-
ið búinn að þvinga fram jafntefli.
Ringulreið ríkti í skáksalnum
fýrst eftir að skákinni var lokið,
því aðeins tuttugu sekúndum eftir
að Short féll á tíma féll Kasparov
líka. Hundruð áhorfenda í Savoy-
leikhúsinu vissu ekki hvor hefði
unnið fyrr en Júrí Averbakh, rúss-
neski yfírdómarinn, kvað upp úr
um að áskorandinn hefði fallið á
undan.
Það var ritstjóri The Times sem
lék fyrsta leiknum fyrir heims-
meistarann og síðan fór einvígið
af stað. Það fór í taugarnar á
Kasparov að heyra mátti óm af
skákskýringum sem áhorfendur
hlustuðu á í heyrnartólum. Hann
krafðist þess að skýrendurnir
nefndu ekki taflmennina með
nafni, svo Short gæti ekki þegið
af þeim ráð. Þegar sagt var frá
þessu í heyrnartólakerfinu ráku
áhorfendur upp hláturgusur, skák-
meisturunum til auðsjáanlegrar
furðu.
Short var í gráum jakkafötum
og sat í gamaldags brúnum stól,
en Kasparov var hvítklæddur og
sat í nýtískulegum svörtum leður-
stól með stálfótum. Þegar Short
stóð upp á milli leikja dró hann
stólinn eftir gólfínu og olli tölu-
verðum hávaða án þess þó að
Kasparov léti það angra sig.
Veðmangarar í London telja lík-
urnar í einvíginu 9:2 Kasparov í
vil, en af þessari fyrstu skák er
ekki hægt að draga miklar álykt-
anir. Það er ekki hægt að segja
að Short hafi teflt lakar og honum
tókst augljóslega að sniðganga
byijanaundirbúning Kasparovs.
Fyrsta einvígisskákin:
Hvítt: Gary Kasparov
Svart: Nigei Short
Spánski leikurinn
1. e4 - e5, 2. Rf3 - Rc6, 3. Bb5
- a6, 4. Ba4 - Rf6, 5. 0-0 -
Be7, 6. Hel - b5, 7. Bb3 - 0-0,
8. a4!?
Kasparov gretti sig og leit út í
sal áður en hann lék þessum leik,
sem sneiðir hjá Marshall-árásinni,
sem kæmi upp eftir 8. c3 - d5!?
Afbrigði hans er nefnt Anti-Mars-
hall og hefur þótt fremur bitlaust
fram að þessu. Short svarar með
djarfri framrás, algengara og
traustast er nú 8. - Bb7+.
8. - b4!?, 9. d3 - d6, 10. a5!
Þetta virðist öllu sterkara en 10.
h3 sem leikið hefur verið áður.
10. - Be6, 11. Rbd2 - Hb8
í skákinni Speelman-Smyslov,
millisvæðamótinu í Biel í júlí, lék
svartur 11. - Bxb3, 12. Rxb3 -
d5 og náði að jafna taflið.
12. Bc4 - Dc8, 13, Rfl -
He8, 14. Re3 - Rd4?
Hér leggur Short of mikið á
stöðuna. Kasparov nær nú örugg-
um stöðuyfirburðum á fremur ein-
faldan hátt.
15. Rxd4 - exd4, 16. Rd5! -
Rxd5, 17. exd5 - Bd7
Gallinn er sá að 17. - Bg4?
strandar á glæsilegu svarinu 18.
Bxa6! - Bxdl, 19. Bxc8 - Bxc2,
20. Bd7 og hvítur vinnur skipta-
mun. Short sá þetta ekki þegar
hann lék 14. - Rd4? Hann hafði
teflt byijunina hratt, en notaði
mikinn tíma á síðustu tvo leiki og
átti aðeins 35 mínútur eftir fram
að 40. leik, en Kasparov tæpan
klukkutíma.
18. Bd2 - Bf6, 19. Hxe8+ -
Bxe8, 20. De2 - Bb5, 21. Hel -
Bxc4, 22. dxc4 - h6, 23. b3
Hér kom einnig vel til greina
að leika 23. Df3.
23. - c5!, 24. Bf4
Það var samdóma álit flestra
sérfræðinga að eftir þetta ætti
svartur að geta haldið stöðunni
saman án teljandi erfíðleika.
24. - Dd7, 25. h3 - Hd8, 26.
De4 - h5!, 27. He2 - g6, 28.
Df3 - Bg7?!, 29. He4 - Bf8, 30.
De2 - Dc7?!, 31. Bg5 - Hc8, 32.
g4 - hxg4, 33. Bf6!?
Short, sem hefur teflt síðustu leiki
veikt, átti aðeins rúma mínútu eftir
og Kasparov, sem átti tvær mínút-
ur, leggur til atlögu af öllum krafti.
Eftir einfalda svarið 33. hxg4 hefði
hvítur staðið talsvert betur.
33. - gxh3, 34. Dg4 - Ha8,
35. Dxh3 - Bg7, 36. Bxg7?
Kasparov yfirsást 37. - Hg8 í
framhaldinu og hér hefði hann átt
að leika 36. He7! - Dc8 (ekki 36.
- Dxa5?, 37. Hxf7!) 37. Dxc8+ -
Hxc8, 38. Bxg7 - Kxg7, 39. Hd7
sem hann taldi sjálfur að leiddi til
vinnings og hróksendataflið virðist
vissulega vænlegt.
36. - Kxg7, 37. Hh4 - Hg8,
38. Hh7+ - Kf8, 39. Dg4 - Ke8
og um leið og Short lék kóngsleikn-
um fékk hann á tíma. Kasparov
taldi sig geta náð jafntefli með 40.
De6+!
Timman jafnaði í
FIDE-einvíginu
Jan Timman jafnaði metin í
„FIDE-heimsmeistaraeinvíginu“
gegn Anatólí Karpov í Hollandi
þegar hann vann aðra skákina
með svörtu í fyrrakvöld. Timman
tefldi byijunina af mikilli hug-
kvæmni og vann skiptamun. Liðs-
munurinn færði honum svo sigur
í skákinni um síðir.
Hvítt: Anatólí Karpov
Svart: Jan Timman
Drottningarindversk vörn.
1. d4 - Rf6, 2. c4 - e6, 3.
Rf3 - b6, 4. g3 - Ba6, 5. b3 -
Bb4, 6. Bd2 - Be7, 7. Bg2 -
c6, 8. Bc3 - d5, 9. Re5 - Rfd7,
10. Rxd7 - Rxd7, 11. Rd2 -
0-0, 12. 0-0 - Hc8, 13. e4 - b5,
14. Hel - dxe4, 15. c5?!
Karpov hefur áður leikið 15.
Bxe4 í stöðunni, sem er betra.
15. - f5!, 16. f3
* I » < • I g h
16. - b4!, 17. Bxb4 - Re5!,
18. Bc3 - Rd3, 19. fxe4 - Rxel,
20. Dxel - e5, 21. Rf3 - exd4,
22. Bxd4 - fxe4, 23. Dxe4 -
Bf6, 24. Hel - He8, 25. Bxf6 -
Hxe4, 26. Bxd8 - Hxel+, 27.
Rxel - Hxd8, 28. Bxc6 - Hdl,
29. Kf2 - Hd2+, 30. Kf3 -
Hxa2, 31. h4 - Kf8, 32. Kf4 -
Ke7, 33. Rf3 - Hf2, 34. h5 -
Be2, 35. Ke3 - Bxf3, 36. Bxf3
- Hb2, 37. Bd5 - Hc2, 38. Kd4
- Hh2, 39. g4 - Hh3, 40. Ke5
- He3+, 41. Kf4 - Hc3, 42. c6
- Kd6, 43. Bg8 - h6, 44. Kf5 -
Hxc6, 45. Kg6 - Ke5+, 46. Kxg7
- Kf4 og Karpov gafst upp.
Teflt í dag
Teflt verður í báðum einvígjun-
um í dag. Þá hefur Short hvítt
gegn Kasparov og Timman hvítt
gegn Karpov.