Morgunblaðið - 09.09.1993, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SBPTEMBER 1993
Lionessur
selja poka
LIONESSUKLÚBBURINN Ösp
á Akureyri er nú að hefja sitt
áttunda starfsár, en eins og
undanfarin ár hefst það með
sölu á plastpokum sem gott er
að eiga í komandi sláturtíð eða
undir nesti skólabarna.
Allur ágóði af sölunni rennur
að þessu sinni til Endurhæfingar-
deildarinnar í Kristnesi í Eyja-
fjarðarsveit, en klúbburinn hefur
á undanförnum árum styrkt hinar
ýmsu deildir FSA, þó aðallega
fæðinga- og kvensjúkdómadeildir.
Á síðasta ári rann þó ágóðinn upp
í kaup á ristilspeglunartæki.
Bæjarbúar hafa alla tíð tekið
Lionessum mjög vel og vonast er
til að svo verði einnig nú, því nauð-
synlegt er að Endurhæfingardeild-
in verði eins vel tækjum búin og
kostur er, svo hún skili sem best-
um árangri. Gengið í hús á Akur-
eyri með pokana til 15. september.
(Fréttatilkynning.)
-----»-♦-<-----
Vantar myndir
í bók Steindórs
Á NÆSTUNNI kemur út rit-
verkið Akureyri - höfuðstaður
Norðurlands eftir Steindór
Steindórsson fyrrverandi skóla-
meistara á vegum Bókaútgáf-
unnar Arnar og Örlygs hf.
Þar er lýst þróun byggðar, at-
vinnuhátta og litskrúðugs mann-
lífs frá upphafi og fram á okkar
daga á svipaðan hátt og í bóka-
flokknum Reykjavík - sögustaður
við Sund, eftir Pál Líndal og Einar
Amalds.
Bókin um Akureyri verður ríku-
lega skreytt ljósmyndum, gömlum
og nýjum, málverkum, teikning-
um, kortum og uppdráttum. Af
því tilefni leitar bókaútgáfan nú
til fólks sem kynni að eiga í fórum
sínum gamlar ljósmyndir, teikn-
ingar eða annað myndefni sem
tengist Akureyri og umhverfi bæj-
arins og fá slíkt efni léð til birting-
ar í verkinu. Þeir sem eiga slíkt
efni eru beðnir um að hafa sam-
band við ívar Gissurarson hjá Erni
og Örlygi.
(Úr fréttatilkynningu)
Slitlagá ibrúna
Verið er að leggja slitlag á gólf brúarinnar yfir Leirurnar og voru verkamenn við undirbúning þess í gær.
Eining viU selja hluta-
bréf sín í Islandsbanka
STJÓRN Verkalýðsfélagsins Einingar ætlar að selja hlutabréf sín í
íslandsbanka um leið og færi gefst. Hlutafé félagsins í bankanum
er tæpar 8 milljónir króna.
Björn Snæbjörnsson formaður
Verkalýðsfélagsins Einingar segir
það ekki þjóna hagsmunum verka-
lýðshreyfingarinnar að eiga hlut í
banka og allra síst í þeim banka
sem gengið hefur á undan og er
með hæstu útlánsvextina. „Það er
lítið varið í það fyrir verkalýðshreyf-
inguna sem er að berjast fýrir því
að ná vöxtunum niður, að eiga hlut
í banka sem er með hæstu vext-
ina,“ sagði Björn. „Við höfum hald-
ið að okkur höndum á meðan verð
hlutabréfa er lágt, en það er stefna
stjórnarinnar að þegar ástandið lag-
ast og færi gefst munum við selja
þau.“
Björn sagði að öðru máli hefði
gegnt á meðan Alþýðubankinn var
og hét, en þá hefði verkalýðshreyf-
ingin ætlað sér að reka hann með
öðru sniði en aðrir bankar voru
reknir, m.a. á þann hátt að meira
tillit væri tekið til launafólks og
margt hefði áunnist.
„Þegar þetta er komið í þessa
samsteypu eins og núna, tel ég það
ekki þjóna hagsmunum launafólks
að eiga hlut í þessum banka,“ sagði
Björn.
Fimmtugir 1
haldasam- )
an upp á i
afmælið
FÓLK sem fætt er árið 1943
og er þegar orðið eða verður
fimmtugt síðar á árinu ætlar
að gera sér glaðan dag og
halda upp á hálfrar aldar af-
mælið sameiginlega á Akureyri
næstkomandi laugardag.
Hinir fimmtugu ætla að hittast
á veitingahúsinu Við Pollinn kl.
14 á laugardag, en um kvöldið I
verður vegleg veisla í íþróttahöll-
inni og hefst hún kl. 19.
Þrír koma gagngert frá L
útlöndum
Á milli 150 og 170 manns hafa /
skráð þátttöku sína í veisluhöldun- |
um á laugardaginn, þar af eru 3
sem koma gagngert frá útlöndum
þar sem þeir eru búsettir til að
samgleðjast með félögum sínum
sem eiga það sameiginlegt að
verða fimmtugir á árinu.
Finnur Marinósson einn hinna
fimmtugu sagði að margir úr þess-
um árgangi væru búsettir á Ákur-
eyri og hefðu haldið hópinn frá
því í gagnfræðaskóla og þeir sem
urðu gagnfræðingar árið 1960
hefðu hist reglulega á fimm ára
fresti síðan.
Nú væri hugmyndin af fá fleiri
í hópinn „og þetta verður örugg- .
lega mjög gaman, fólk er þarna I
að hittast sem ekki hefur sést í
mörg ár,“ sagði Finnur, sem jafn- .
framt gefur nánari upplýsingar I
um afmælishófið og skráir þátt-
töku. k
Vinnueftb*litið krefst lagfæringa við stólalyftuna í Hlíðarfjalli
Undirstöður mikið skemmd-
ar og burðarvírinn slitinn
íþróttahús á Grenivík gjörbreytir íþróttaaðstöðu íbúanna til hins betra
Húsið tilbúið að ári
BYGGING íþróttahúss á Grenivík gjörbreytir allri aðstöðu íbú-
anna hvað íþróttaiðkun varðar, en fram til þessa hefur ekki ver-
ið íþróttahús á staðnum og ieikfimikennsla við skólann farið fram
í sal í kjallara hans. Margir Grenvíkingar bíða því spenntir eftir
að húsið verði tekið í notkun, en það verður næsta haust.
Guðný Sverrisdóttir sveitar-
stjóri í Grýtubakkahreppi sagði
að bygging íþróttahússins gengi
vel og samkvæmt áætlun. Það
voru starfsmenn frá Vélsmiðjunni
Vík sem reistu stálgrindina, en
SJS-verktakar vinna að byggingu
hússins, sem á að vera fullfrá-
gengið að utan í lok október. í
vetur verður unnið inni í húsinu
og öllum framkvæmdum á að
vera lokið að ári, en stefnt er að
því að taka húsið í notkun að ári
Iiðnu.
Húsið er tæpir 550 fermetrar
að stærð auk tengibyggingar milli
þess og skólahússins, en til að
byija með verður búningsaðstaða
sem þar er einnig notuð fyrir
íþróttahúsið sem og sundlaugina.
Guðný sagði að í framtíðinni væri
þó ætlunin að byggja sérstaka
búningsaðstöðu sem verður nýtt
sameiginlega fyrir íþróttahúsið og
sundlaugina.
Halda um heftið
„Þetta er stærsta framkvæmd-
in hér í hreppnum í ár, en við
áætlun að húsið kosti rúmar 40
milljónir króna en þá er búnings-
aðstaðan ekki talin með. Þetta er
vissulega mikil upphæð fyrir ekki
stærra sveitarfélag, það verður
að halda ansi vel um heftið til að
hlutirnir gagni upp, en það bíða
margir spenntir eftir að húsið
verði tilbúið. Það verður algjör
bylting þegar húsið verður til, það
bætir íþróttaaðstöðuna í hreppn-
um geysilega mikið,“ sagði
Guðný.
Morgunblaðið/Golli
Grenvíkingar
eignast íþróttahús
ÍÞRÓTTAHÚSIÐ sem verið er
að byggja á Grenivík mun gjör-
breyta allri aðstöðu íbúanna til
hins betra, en starfsmenn SJS-
verktaka vinna hörðum hönd-
um því húsið á að vera fullfrá-
gengið að utan í októberlok.
VINNUEFTIRLIT ríkisins hefur gert kröfu um að athugun og
viðgerð fari fram á undirstöðum stólalyftunnar í Hlíðarfjalli, en
ekkert hefur verið gert. Þá er burðarvírinn í lyftunni 26 ára gam-
all. Bendir Vinnueftirlitið á að alvarlegt slys geti hlotist af bili
búnaðurinn í rekstri. Þetta mál var til umræðu á bæjarstjórnar-
fundi í vikunni.
í bréfi frá Vinnueftirlitinu kem-
ur fram að gerð hafi verið krafa
um athugun og viðgerð á undir-
stöðum síðustu tvö ár, án þess að
nokkuð hafi verið gert. Þá segir
að verulegar skemmdir séu í undir-
stöðum sem möstrin standa á og
víða sjáist í járn út úr steinsteyp-
unni og hún mikið farin að molna.
Krefst Vinnueftirlitið þess að feng-
inn verði óháður aðili til að skoða,
meta og gera tillögur um viðgerð
á undirstöðunum, auk þess sem
bent er á að burðarvír lyftunnar
sé 26 ára gamall og ekki verjandi
lengur annað en endurnýja hann,
að mati eftirlitsins.
Lyftan lokuð í vetur?
Tekið er fram í bréfi til íþrótta-
og tómstundaráðs að ekki sé sjálf-
gefið að veitt verði leyfi fyrir starf-
semi lyftunnar næsta vetur nema
farið verði að vinna í þessum mál-
um og haft verði samstarf við
Vinnueftirlitið um framkvæmdir.
Gísli Bragi Hjartarson (A) sagði
að ekki yrði lengur undan því skor-
ast að taka á málinu, langt væri
síðan mælt hefði verið með end-
urnýjun burðarvírs lyftunnar.
Björn Jósef Arnviðarson (D) sagði
að íþrótta- og tómstundaráð fengi
fé til að úthluta til ýmsissa verk-
efna, en þetta hefði fram til þessa
ekki verið sett í forgang. Nú hróp-
uðu menn að vá væri fyrir dyrum.
Bað Björn menn halda stillingu
sinni og benti á að vír lyftunnar
hefði verið. þúsundum klukku-
stunda skemur í notkun en sam-
svarandi vírar í skíðalyftum Alp-
anna. Kæmi í ljós við skoðun að
vírinn væri ónýtur yrði að skipta
um hann og þá þyrti líka að at-
huga hvaðan ætti að taka það fé
sem til þyrfti.
Þórarinn E. Sveinsson (B) sagði
vírinn einn þann elsta sinnar teg-
undar sem væri í gangi og allir
vissu að hann væri slitinn. Um
tvennt væri að ræða, að loka lyft-
unni í vetur eða gera þær lagfær-
ingar sem krafist væri. Ef taka
ætti peninga úr þeim potti sem
íþrótta- og tómstundaráð hefði til
umráða yrði að draga úr fram-
kvæmdum við sundlaugina.
\
i
i
\
>
i