Morgunblaðið - 09.09.1993, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1993
Koddaveros
1.490 V
Venö á McDonald's
í nokkpumborgum
Hambopgari
BigMac
192 197
Franskar
minnsti skammtur
* 8 S
1
Mjólkurhristingur
minnsti skammtur 150
JCPenney opnar
póstverslun á morgun
Allur matur á staðnum og jafn-
framt aðferðir við matreiðslu er
staðlaður á öllum McDonald’s stöð-
um. Að sögn Péturs er lögð megin-
áhersla á stuttan afgreiðslutíma og
er staðlaður afgreiðslutími „beint í
bílinnn" til dæmis 90 sekúndur.
Hann sagði fyrirtækið ekki reiðu-
búið að lofa svo hraðri afgreiðslu frá
fyrsta degi, en vitaskuld yrði þjón-
usta staðarins í samræmi við það
sem gengur og gerist á öðrum
McDonald’s stöðum innan tíðar.
Matseðillinn hér verður ekki jafn
stór og víða erlendis. „Við verðum
Morgunblaðið/RAX
Pétur Þórir Pétursson ásamt styttu af Ronald McDonald í barnahorni
með 5 tegundir af borgurum, en t.d.
ekki litla kjúklingabita og kjúklinga-
samlokur, alla vega ekki til að byrja
með. Hins vegar verða kjúklinga-
hlutar í boði. Við kjósum að fara
hægt af stað og bæta smám saman
við okkur,“ segir Pétur.
Til að byija með verður McDon-
ald’s opinn frá kl. 10-23.30 en Pétur
telur líklegt að fljótlega verði einnig
opið að næturlagi. Vínveitingar eru
ekki á staðnum og ekki verður ætl-
ast til að gestir flokki sorp sem fylg-
ir neyslu þeirra, eins og gert er sums
staðar í Bandaríkjunum. „Það var
reynt í Bretlandi og gafst ekki vel
og við teljum að ekki sé ennþá
grundvöllur til slíks hér á landi.“ ■
BT
Morgunblaðið/Rax
Hilmar Eiríksson og Hólmgeir Baldiirsson með vörulistann á milli sín
Á morgun opnar í Faxafeni 10 póstverslunin JCPenney, nánar tiltek-
ið í húsi framtíðarinnar. Bandaríska fyrirtækið JCPenney sem er
liðlega 90 ára gamalt er með útibú í öllum fylkjum Bandaríkjanna,
bæði stór vöruhús og póstverslanir og í fyrra voru starfsmenn fyrir-
tækisins um 192.000.
Skeifunni 13 Auðbrekku3 Norðurtanga3
Reykjavík Kópavogi Akureyri
(91)68 74 99 (91)4 04 60 (96)2 66 62
Útibúið í Faxafeni, sem verður
póstverslun að minnsta kosti til að
byrja með, er fyrsta útibú fyrirtæk-
isins í Evrópu. Fyrirtækið Atlantis
hf. er samstarfsaðili JCPenney hér
á landi og að sögn forsvarsmanna
þess, Hólmgeirs Baldurssonar og
Hilmars Eiríkssonar, geta við-
skiptavinir reiknað dollarann á 117
krónur af litlum hlutum í listanum
en 130 krónur af húsgögnum og
öðrum umfangsmiklum hlutum. Er
þá allur kostnaður innifalinn í þessu
verði.
Á opnunardaginn milli kl. 16 og
18 verða ýmsar uppákomur hjá
JCPenney og smáfólkið verður glatt
sérstaklega. ■
KARAMELLPOJKARNA
xtraStarka
Beiskur brjóstsykur - einnig án sykurs
McDonald’s
opnar í fyrramálið
MCDONALD’S veitingastaðurinn verður opnaður kl. 10 í fyrramálið
og gera má ráð fyrir að íslenskir aðdáendur staðarins bíði óþreyjufull-
ir eftir að sjá hina íslensku útgáfu staðarins og bragða á veitingum
hans sem að mestu leyti eru úr íslensku hráefni. AIls eru nú um 13.500
McDonald’s veitingastaðir í 66 iöndum.
Verði á veitingum hefur verið
haldið leyndu og verður líklega ekki
kunngert fyrr en í fyrramálið. Marg-
ir hafa velt fynr sér verðlagningunni
og er Daglegt líf engin undantekn-
ing. Tímaritið The Economist hefur
frá árinu 1986 birt greinar og lista
yfir verð á stórum McDonald’s ham-
borgara sem gengur undir heitinu
Big Mac, í ýmsum löndum. Er þar
gengið út frá þeim hagfræðihug-
myndum að gengi gjaldmiðla muni
með tíð og tíma breytast þar til
hægt verði að fá sömu vöru fyrir
sama verð hvarvetna í heiminum.
Hvort sem þessar hugmyndir um
grengisbreytingar eru réttar eða
ekki, gefur verð á Big Mac ákveðnar
hugmyndir um kaupmátt í hverju
landi. Því hafði Daglegt líf samband
við McDonald’s staði í nokkrum
Evrópuborgum og kannaði verð á
Big Mac, litlum skammti af frönsk-
um kartöflum og mjólkurhristingi.
Talsmenn McDonald’s á íslandi hafa
sagt að verð þeirra verði „samkeppn-
ishæft" við aðra hamborgarastaði.
Miðað við forsendur tímaritsins og
verð í þéssum borgum má gera ráð
fyrir að Big Mac.kosti ekki undir
400 krónum hér.
Beint í bíllnn
Daglegt líf skoðaði húsakynnin
fyrir skömmu og fylgdist með tilvon-
andi starfsmönnum sem þar voru í
þjálfun, en þess má geta að yfir 20
starfsmenn á McDonald’s stöðum
erlendis komu hingað sérstaklega til
að þjálfa upp hina íslensku starfs-
krafta. Þá komu einnig til landsins
fulltrúar frá fyrirtækjum sem selja
tækjakost sem notaður er á staðnum
og kenndu þeir starfsfólki á tækin.
Að sögn Péturs Þóris Péturssonar
hjá Lyst hf. leyfishafa McDonald’s
á íslandi er algengt að um 50% af
sölu veitingastaðarins fari í gegnum
bílalúgur, en slík sala verður kölluð
„beint í bílinn" hér á landi. Sagðist
hann gera ráð fýrir að ekki liði á
löngu þar til hlutfall af slíkri sölu
yrði svipað hér og annars staðar.
Sölu-og þjónustukerfí vegna þeirrar
sölu virðist afar fullkomið og þess
má geta að verð er hið sama hvort
sem keypt er „beint í bílinn" eða
maturinn snæddur innan dyra.
Fara hægt af stað
Alls eru sæti fýrir 119 manns og
eru þá meðtalin sæti í afar skraut-
legu barnahorni, þar sem börn geta
dundað sér fyrir eða eftir mat við
leik eða horft á myndband. Víða
erlendis er algengt að afmælisveislur
séu haldnar á McDonald’s stöðum
og kemur Ronald McDonald þá yfir-
leitt sjálfur í heimsókn og skemmtir
bömum með leik og töfrabrögðum.
„Við munum ekki bjóða slíkt til að
byrja með en eigum í viðræðum við
íslenskan aðila sem mun taka að sér
hlutverk Ronalds sem er fastmótuð
persóna hvar sem er í heiminum,"
segir Pétur.