Morgunblaðið - 09.09.1993, Síða 22
J?o
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF
JTMMH. QIGAJaVlUOHOM
FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1993
Löggiltum rafverktökum er
einum heimilt að taka að sér verk
ÞEGAR fagmaður er fenginn til
að sjá um viðhald á rafmagni eða
leggja í nýbyggingar er nauðsyn-
legt að löggiltur rafverktaki taki
að sér verkið. Enginn annar,
iivort sem hann er rafvirki eða
rafvirkjameistari að mennt, má
taka að sér slík verk nema hafa
löggildingu.
Síðastliðinn fimmtudag þegar
greint var frá verði á útseldum tíma
rafvirkja láðist að greina lesendum
frá þessum staðreyndum. Þó skal
bent á að allir sem haft var sam-
band við þegar verð á þjónustu var
athugað voru löggiltir rafverktakar.
Varasöm viðskipti á svörtu
Töluvert hefur borið á að iðnað-
armenn vinni „svart“ eins og það
er kallað. En forráðamenn landsam-
bands íslenskra rafverktaka eru síð-
ur en svo hrifnir af því og hafa
lýst yfir vilja til samstarfs við skatt-
rannsóknarstjóra til að vinna bug
á og uppræta þennan vinnumáta.
Oftar en ekki eru þeir sem bjóða
nótulaus viðskipti að undirbjóða lág-
markstaxta og algengt að nemar
eða jafnvel þeir sem hafa hætt námi
afli sér tekna á þennan hátt. Þess
eru einnig dæmi að menn sem hafa
ekki lært fagið bjóði þjónustu við
viðhald á rafmagni. Skýringin á lág-
um taxta þeirra er m.a. sú að þeir
reka ekki fyrirtæki með öllum þeim
skyldum sem því fylgir. Formaður
Landssambands íslenskra rafverk-
taka, Ingólfur Ámason, telur óeðli-
legt að selja útseldan vinnutíma á
þúsund krónur eða eins og hann
orðar það: „Það þarf að reka fyrir-
tæki, borga launatengd gjöld og eiga
dýr tæki. Það er ekki mögulegt ef
útseld vinna er þúsund krónur á tím-
ann.
Nótulaus viðskipti eru varasöm
fyrir þá sem láta vinna fyrir sig
verk. Þegar upp er staðið ber sá
sem vinnur nótulaust enga ábyrgð
á verkinu. íbúðareigandinn situr
eftir með ábyrgðina ef eitthvað
kemur uppá.“
VSK endurgreiddur
Virðisaukaskattinn sem margir
eru að mikla fyrir sér, 24,5%, fá
eigendur íbúða endurgreiddan af
vinnu sem unnin er á staðnum, svo
framarlega sem ekki er um véla-
vinnu eða vinnu sérfræðinga að
ræða. Að sögn Hauks Jónssonar
rannsóknarfulltrúa á Skattstofu
Reykjavíkur á endurgreiðsla ekki
við um efni né akstur og reikning-
amir þurfa að vera sundurliðaðir.
Þeir sem ekki hafa nýtt sér þennan
möguleika geta fengið reikninga
greidda aftur í tímann frá 1. janúar
1990. Það borgar sig því ekki að
láta vinna fyrir sig á svörtu til að
sleppa við að borga virðisaukaskatt
af vinnu iðnaðarmanns, heldur
semja við hann um lægri taxta ef
mögulegt er.
Þurfa að tllkynna verk sín
Löggiltum ' rafverktaka ber
skylda til að tilkynna vinnu sína.
Þetta á við um allar lagnir í nýbygg-
ingar svo og meiriháttar viðhalds-
vinnu á gömlu húsnæði. Engir aðr-
ir en löggiltir rafverktakar' geta til-
kynnt vinnu til rafmagnseftirlits.
Þar sem húsbyggjendum ber skylda
til að láta láta taka vinnuna við
húsið út er nokkuð um að löggiltir
rafverktakar skrifi uppá vinnu ann-
arra sem er alvarlegt mál.
Morgunblaðið/Júlíus
Hvert á að leita?
Ef húsbyggjandi er að leita sér
að rafverktaka eða íbúðareigandi
þarf á þjónustu hans að halda hvert
eiga þeir að leita?
Gísli Þór Gíslason framkvæmda-
stjóri Landssambands íslenskra raf-
verktaka segir að á skrá félagsins
séu á fjórða hundrað meðlimir og
fólk eigi endilega að leita til skrif-
stofunnar til að fá upplýsingar um
hæfa menn. Auk þess er hægt að
láta gera fyrir sig áætlun hjá þeim.
Þá er reiknað út samkvæmt ákvæð-
isvinnugrundvelli rafíðna og raf-
lagnateikninga hvað búast má við
að verkið kosti. Utreikningurinn er
hafður til viðmiðunar þegar tilboða
er leitað og neytendur hvattir til
að leita tilboða þegar þeir standa
fyrir framkvæmdum. „Tilboð eiga
að vera skrifleg og þar á að standa
skýrt og skorinort allt sem er inni-
falið og einnig ef eitthvað er undan-
skilið. Þá fara hlutirnir ekkert á
milli mála. Lendi húsbyggjandi í
útistöðum eða vanti einhveijar upp-
lýsingar þá er starfsfólk á skrif-
stofu LÍR ætíð reiðubúið til að reyna
að leysa úr málum á hlutlausan
hátt.
grg
HELGARTILBOÐIN
Hagkaup
Bolandstekex...............39 kr.
St. Ives shampo og hárnæring
........................ 449 kr.
Grænvínber.............199 kr. kg
íslensktlambhagasalat....59 kr. stk
Emmess Daim ístopppar, 4 stk
..........................269 kr.
Reykt Meistara-medisterpylsa
.......................299 kr. kg
Skóladagar standa nú einnig yfir
í Hagkaupsverslunum. Þá verða
norskir dagar í matvöruverslun Hag-
kaups Kringlunni dagana 9.-18.
september og verða þá kynntar flest-
ar þær matvörur, sem fiuttar eru til
landsins frá Noregi svo sem kex,
hrökkbrauð, sultur, sælgæti, graut-
ar, súpur, sósur, tannsnyrtivörur,
kavíar, frosnar pizzur, íþróttadrykk-
ir. Ýmsar uppákomur verða tengdar
norsku dögunum auk þess sem
norskur kokkur verður í Kringlunni
á fimmtudögum, föstudögum og
laugardögum. Hann kynnir m.a.
söltuð og reykt svið, hráskinku, sölt-
uð og þurrkuð lambalæri, krydduð
kindabjúgu, saltaða nautabringu og
súrkál.
Bónus
Blómkál................47 kr. kg
ítalskarömmupizzur........249 kr.
Svínakótelettur.......929 kr. kg
Frón súkkulaðikex..........69 kr.
Afþurrkunarklútar, 20 stk ....249 kr.
T Micro popp, 3 pokar......85 kr.
Appela epladjús, 1 lítri...69 kr.
Kókómjólk, 18 x 0,25 lítrar.,.599 kr.
Bónus minnir á 10% afslátt af
öllum kjötvörum.
Garðakaup .
Poppmaís, 456 g.......... 56 kr.
Pickwickte................119 kr.
Homeblest kex, 2 pk......198 kr.
Lerum Marmeðlaði, 700 g...138 kr.
íslenskt blómkál.........45 kr. kg
íslenskar gulrætur.......99 kr. kg
Alpen músli, 450 g.........138 kr.
Chip cookery súkkulaðikex..98 kr.
Svið....................199 kr. kg
Lifur...................175 kr. kg
Kjöt og fiskur
Kindahakk...............245 kr. kg
Nautafile.............1.190 kr. kg
Svínalærisneiðar........495 kr. kg
Lambalaukbuff...........390 kr. kg
Gróf samsölubrauð........99 kr. stk
Fín og gróf hvítlauksbrauð frá
Myllunni...................149 kr.
F&A
Ma Ling sveppir, 425 g.......68 kr.
Princess tómatar, 400 g....40 kr.
Aroniðurs. kartöflur, 3kg....558 kr.
Herraskyrturl00%bómull...899 kr.
Verslunin minnir einnig á 4% stað-
greiðsluafslátt.
Fjarðarkaup
Kíví....................169 kr. kg
Rauðepli.................89 kr. kg
Vatnsmelónur.............59 kr. kg
Gulepli..................61 kr. kg
Nautalundir...........1.698 kr. kg
Blandað saltkjöt........495 kr. kg
Lambabjúgu..............398 kr. kg
1944 gijónagrautur og blóðmörs-
keppurfráSS....,...........299 kr.
lOkerti...................119 kr.
Kelloggs kornflögur, 750 g...278 kr.
Kelloggs Corn pops.........178 kr.
Nóatún
Dönsk lifrakæfa.........325 kr. kg
Blandaður pottréttur....598 kr. kg
KBBacon.................786 kr. kg
Londonlamb..............799 kr. kg
Saltkjöt, II flokkur....349 kr. kg
Saltaðar lambasíður......199 kr. kg
Bolands Fig Roll, 200 g.....98 kr.
WC pappír, 12 rúllur........239 kr.
Wasataumýkir, 1,5 lítri....119 kr.
Bleiur Scan maxi, 9-18 kg., 22 stk
...........................599 kr.
Fezza uppþvottalögur, 1 lítri...69 kr.
Ryvita hrökkbrauð............79 kr.
Rúsínur, 250 g...............65 kr.
Malingaspas, 430 g...........59 kr.
Fiber Kost múslí, 375 g....185 kr.
Kelloggs kornflögur, 500 g...237 kr.
Vatnsmelónur..............69 kr. kg
Spergilblómkál............99 kr. kg
Kaupfélag ísfirölnga, ísaflröl
KJ fiskbúðingur, 400 g....133 kr. kg
KJ fiskbollur, hálfdós.....103 kr.
KJ gulrætur og grænar baunir,
hálfdós.....................77 kr.
KJ grænar baunir, hálfdós...63 kr.
KJ maískorn, hálfdós.......110 kr.
KJ rauðkál, 1/4 dós..........64 kr.
Kílóið af blómkáli
lækkar allt niður í 47 kr.
ÞESSA dagana er blómkál á
mjög hagstæðu verði og er
verðið á kílóinu frá 47 krón-
um. Að sögn forsvarsmanna
nokkurra verslana sem haft
var samband við á verðið eftir
að lækka ennþá meira næstu
daga. Ástæðan fyrir þessu
verðhruni er gott tíðarfar að
undanförnu, næg væta og blíð-
skaparverður þannig að blóm-
kálið hefur sprottið mjög vel
og framboðið er mikið.
Það má með góðum árangri
frysta blómkál, setja það í súr
með lauk og gulrótum eða búa
til úr því matarmikla rétti, salöt
og súpur.
í bæklingi sem Kvenfélaga-
samband íslands hefur gefið út
og heitir Frysting matvæla segir
að blómkál megi frysta í heilum
hausum eða í smáhríslum. Blóm-
kálið geymist vel þannig ef það
er ekki laust í sér. Þægilegt er
að áætla suðutíma og búa um
það ef það er tekið í sundur en
það vill missoðna ef það er í
heilu lagi. Suðutími fyrir fryst-
ingu er 4-8 mínútur ef um heila
hausa er að ræða en 2-3 mínútur
í smáhríslum og svo soðið í 2-5
mínútur eftir frystingu en 5-10
mínútur ef það er heilt.-Blómkál-
ið á helst ekki að þiðna til fulls
áður en það er soðið. Ef það þiðn-
ar alveg og bíður áður en það
er soðið vill það verða seigt og
vatnskennt. Þá er vert að benda
fólki á að losa um þéttar
plastumbúðir af blómkáli áður
en það er sett í ísskáp til
geymslu.
Matreiðsiunámskeið í New
York
Jóhanna Bergmann fékk
áhuga á grænmetisfæði fyrir
nokkrum árum þegar hún var
búsett í New York. Hún dreif
sig á námskeið í matreiðslu á
grænmetisréttum og þegar hún
flutti heim bauðst henni vinna á
veitingastaðnum Á næstu grös-
um. Jóhanna gefur hér lesendum
uppskrift af blómkálsbollum og
karrírétti.
grg
Blómkálsbollur
1 blómkálshöfuð
1 /2 dagsgamalt nióurrifið brauó
4 soðnar kartöflur
2-3 egg
salt, pipar og múskat
Kartöflurnar eru soðnar og blómkál-
ið hlutað í greinar og soðið. Kartöfl-
ur skrældar og þær eru síðan ásamt
blómkálinu settar í hrærivél og
maukaðar. Brauði og eggjum bætt
út í og kryddað. Mótið bollur, veltið
upp úr eggi og brauðmylsnu. Steikið
á pönnu í 3-4 mínútur á hvorri hlið.
Berið fram með hrásalati og hrís-
gijónum.
Morgunblaðið/Július
Blómkálskorrí
1/2 bolli kókosmjöl
2 msk. ristuð sesamfræ
2 msk. ristuð suðræn kúmenfræ
1/2 tsk. negull
2 hvítlauksrif
1 1 /2 tsk. rifin engiferrót
2 msk. ristaðar jarðhnetur
1/2 tsk. turmeric
~l/4 Cayenne pipar
1 tsk. salt
Öllu blandað saman í rafmagns-
blandara og vatn sett með til að
hráefnið blandist vel saman.
1 1/2laukur
1 blómkólshöfuð hlutað í greinar
salt
Laukur er saxaður og steiktur í
olíu, blómkálsgreinum bætt á pönn-
una og saltað. Kryddblandan úr raf-
magnsblandaranum sett saman við
á pönnuna, hitinn lækkaður og lok
sett á pönnuna. Látið malla þangað
til blómkálið er orðið mjúkt í um það
bil 5-10 mínútur. Hrærið í og bætið
vatni samanvið ef þarf. í lokin er--
ágætt að kreista sítrónusafa yfír
réttinn. Borið fram með hrísgijón-
um, jógúrtsósu og salati sem í eru
tómatar, agúrkur og paprika. ■
Gullpálmann fékk
Hagkaup í Grafarvogi
UNDANFARNA mánuði hefur verið í gangi nokk-
urskonar samkeppni milli starfsfólks Hagkaups-
búðanna þ.e. um hvaða verslun yrði fyrst til að
hreppa svokallaðan gullpálma. Það var verslunin
í Grafarvogi sem fyrst hlaut pálmann og var hann
afhentur síðastliðinn laugardag í veislu sem haldin
var til heiðurs starfsfólkinu.
Óháð ráðgjafarfyrirtæki úti í bæ hefur séð um að
senda menn í verslanirnar til að gera úttekt á 85 liðum
sem eiga að vera í lagi, atriði sem snúa að hreinlæti,
vöruvali og þjónustu starfsfólksins. Til þess að hljóta
gullpálmann þurftu 95% þessara atriða að vera í lagi
þijá mánuði í röð.
Einar Jón Másson trúnaðarmaður starfsmanna og
Hinrik Hjörleifsson verslunarstjóri taka hér við
viðurkenningu.
Haldið verður áfram að stefna að Gullpálmanum
hjá Hagkaup því ætlunin er að allar verslanirnar nái
þessu markmiði. ■