Morgunblaðið - 09.09.1993, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUÐAGUR 9. SEPTEMBER 1993
25
A1 Gore varaforseti leggur til að bandaríska ríkiskerfíð verði tekið í gegn
Stefnt að því að fækka
störfum í ríkiskerfinu
Financial Times.
VERULEGUR niðurskurður og einföldun ríkiskerfisins í Bandaríkj-
unum er lagður til í skýrslu sem AI Gore varaforseti kynnti á þriðju-
dag. Sagði Gore að ef tillögur hans næðu fram að ganga myndi það
þýða 108 milljarða dollara sparnað á fimm ára tímabili en markmið
hans er stjórnsýsla sem „skilar meiri afköstum og kostar minna“.
Því telur hann meðal annars að megi ná með því að einfalda reglur
um ráðningu og innkaup hjá ríkisstofnunum og fækka störfum í
ríkiskerfinu um 225 þúsund.
Varaforsetinn hefur á undan-
fömum vikum verið að undirbúa
hinn pólitíska jarðveg fyrir tillögur
sínar og meðal annars tíundað
ýmsar fáránlegar reglur sem urðu
á vegi hans er stjórnkerfið var kruf-
ið. Besta dæmið er líklega tíu blað-
síðna lýsing á því hvaða eiginleikum
öskubakkar, sem ríkisstofnanir
festa kaup á, verða að vera gædd-
ir. Er þar til dæmis tekið fram að
ef öskubakkinn þrotni megi hann
ekki splundrast í fleiri en 35 gler-
brot.
Gore er ekki sá fyrsti sem leggur
til atlögu við bandaríska ríkiskerfið.
Efasemdamenn í Washington segja
að þó skýrsla Gqre sé ekki síður
unninn og mun betri lesning heldur
en sambærilegar skýrslur, sem
teknar voru saman í forsetatíð
þeirra Richards Nixons og Ronalds
Reagans, séu litlar líkur á að tillög-
ur hans verði að veruleika. Aðrir
telja hins vegar að nú sé einmitt
mun líklegra en áður að hægt sé
að knýja í gegn endurskipulagningu
ríkiskerfisins. Almenningsálitið
krefjist þess að uppstokkun eigi sér
stað, ekki síst eftir kosningabaráttu
Ross Perots á síðasta ári, og því
muni þingið neyðast til að taka til-
lögur Gores til skoðunar.
Störfum fækkað um 12%
Varaforsetinn reynir líka að
koma til móts við þingið með því
að segja að markmiðið sé ekki að
breyta því sem ríkið sé að gera
A1 Gore.
heldur einungis hvernig það sé gert.
Þá segja höfundar skýrslunnar
einnig að hún sé á þann hátt frá-
brugðin fyrri skýrslum, að hún sé
unnin af ríkisstarfsmönnum.
Margar þeirra tillagna, sem er
að finna í skýrslunni, eru þó líkleg-
ar til að valda deilum. Má til að
mynda ganga út frá að stéttarfélög
ríkisstarfsmanna sætti sig ekki
átakalaust við að störfum sé fækk-
að um 12%.
Einnig er lagt til að stofnunum
landbúnaðaráðuneytisins verði
fækkað úr 42 í 30 og að 10% af
hinum 12 þúsund skrifstofum ráðu-
neytisins verði lokað. Lagt er til að
Fíkniefnalögreglan (DEA) verði
sameinuðu Alríkislögreglunni
(FBI). Gore vill að ríkisstofnunum,
þar á meðal skattstofunni, verði
leyft að nota'einkainnheimtufyrir-
tæki og taka á móti greiðslukortum.
Skýrsluhöfundar vilja að starfs-
mannareglur fyrir ríkisstarfsmenn,
sem telja 10 þúsund blaðsíður, verði
felldar úr gildi í september á næsta
ári og að í staðinn verði settar al-
mennar reglur sem leyfi jrfirmönn-
um stofnana að ráða, reka og um-
buna starfsmönnum. Einnig er lagt
til að fjárlög verði til tveggja ára í
stað eins árs nú. Loks má nefna
þá tillögu að hlutfall yfirmanna
verði lækkað í einn yfirmann á
fímmtán starfsmenn í stað einn á
hveija sjö starfsmenn, líkt og raun-
in er í dag.
Styðja rebúblikanar?
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
sagði á blaðamannafundi að hann
myndi gera það sem í hans valdi
stæði til að tillögur þær, sem í
skýrslunni er að finna, nái fram að
ganga. „Á mörgum stöðum stendur
að forsetinn ætti að, forsetinn ætti
að, forsetinn ætti að. Ég hef lesið
skýrsluna og þar sem stendur að
forsetinn eigi að gera eitthvað þá
mun hann einnig gera það,“ sagði
Clinton.
Robert Dole, leiðtogi repúblikana
í öldungadeildinni, sagði að repú-
blikönum hefði ekki verið gefinn
kostur á að skoða skýrsluna gaum-
gæfilega ennþá. Þeir myndu hins
vegar meta hvort raunverulega
væri verið að leggja til breytingar
og að ef svo væri gæti varaforset-
inn treyst á dyggan stuðning Repú-
blikanaflokksins.
TÓNLEIKAR
SELTJARNARNESKIRKJU
föstudaginn 10. september, kl. 20.00.
Hljómsveitarstjórar:
Roland Vamos og BernharÖur Wilkinson.
Á efnisskrá eru verk eftirAron Copland,
Igor Stravinskíj, Anton Dvorák, JosefSuk
ogArnold Schönberg.
Aögöngumiöar eru seldir á skrifstofu hljómsveitarinnar
í Háskólabiói og viö innganginn viö upphaf tónleika.
Athygli skal vakin áþvíað allir áskrifendur hljómsveitarinnar
fá ókeypis aöganggegn framvísun áskriftarskirteina.
SINFÓNÍUHUÓMSVEIT ÍSLANDS,
Háskólabíói v/Hagatorg, sími 622255.
MÁLASKÓLI REYKJAVÍKUR
■bb Tungumálakennsla í sérflokki - fyrir alla
rgn innritun hefst 6. september Sími: 62 88 90,
Verið velkomin! Brautarholti 4,105 Reykj avík
Þýska
Franska
Spænska
Hollenska
Almenn kennsla
Samtalshópar
Einkatímar
Sænska
Danska
Finnska
Rússneska
Einkatímar
Samtalshópar
JACQUI
KOOS
MICHELE
Enska
Fullorðnir:
Almenn enska, bókmenntahópar,
samtalshópar, viðskiptaenska,
einkatímar, sérsniðin kennsla.
Böm og unglingar:
Almenn kennsla
„Native“ námskeið
Einkatímar
Icelandic for Foreigners — Adults’ and children’s courses, phone: 62 88 90.