Morgunblaðið - 09.09.1993, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1993
KVENNALEIKFIMI!
Innritun næstu daga kl. 10-18 í síma 657399.
Kennsla hefst 13. september. Hittumst hressar.
Hanna Ó. Forrest íþrk. Sigríður Skúlad. íþrk.,
Kvennagalleríinu, Smiðsbúð 9, Garðabæ.
Bókhaldsnám
Markmiðið er að þú verðir fær um
að starfa sjálfstætt við bókhald
og annast það allt árið.
Byrjendum og óvönum bókhaldi gefst
kostur á grunnnámskeiði.
Námið felur m.a í sér:
• Dagbókarfærslur og uppgjör í mánaðarlok.
• Launabókhald, gerð launaseðla og þeir bæði
hand- og tölvuunnir. Gengið er frá skilagrein-
um m.a. um staðgreiðslu og tryggingagjald.
• Útreikning skuldabréfa og tilheyrandi færslur.
• Lög og reglur um bókhald og virðisauka, gerð
virðisaukaskýrslna.
• Afstemmingar.
• Merking fylgiskjala, gerð bókunarbeiðna.
• Fjárhags- og viðskiptamannabókhald í tölvu.
Námið er 72 klst. og er hluti af skrifstofu-
tækninámi skólans. Innifalin er 15.000 kr.
ávísun til kaupa á bókhaldshugbúnaði.
Innritun er hafin.
Auglýst eftir framboúm
til kiörnefnúar Fulltrúaráús
sjálfstæúisfélaganna
í Reykiaiík
Samkvæmt ákvörðun stjórnar Fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, er hér með
auglýst eftir framboðum til kjörnefndar Full-
trúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík.
Framboðsfrestur rennur út mánu-
daginn 20. september kl. 17.00
Samkvæmt 11. gr. reglugerðar fyrir Fulltrúa-
ráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík eiga 15
manns sæti í kjörnefnd og skulu 8 kjörnefnd-
armenn kosnir skriflegri kosningu af fulltrúa-
ráðinu: Samkvæmt 5. málsgr. 11. gr. reglu-
gerðarinnar, telst framboð gilt, ef það berst
kosningastjórn fyrir lok framboðsfrests, enda
sé gerð um það skrifleg tillaga af 5 fulltrúum
hið fæsta og ekki fleiri en 10 fulltrúum. Fram-
bjóðandi hafi skriflega gefið kost á sér til starf-
ans. Tilkynning um framboð berist stjórn
Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík,
Valhöll við Háaleitisbraut.
Sljorn Fulltmaús
sjálfstæúisfélagaima í Reykiavík.
—m^—mmm^^^—mmmm*
Spennandi undanúrslit á heimsmeistaramótinu í brids
Urslitasætin réðust
í síðustu spilunum
Komnir í úrslitaleikinn
HOLLENDINGAR eru komnir í úrslitaleik heimsmeistaramótsins
í brids gegn Norðmönnum. Fjórir úr liðinu spiluðu hér á landi á
Bridshátíð í vetur og þá var þessi mynd tekin. Frá vinstri eru
Berri Westra, Bauke Muller, Eenri Leufkens og Wubbo deBoer.
_________Brids_____________
Guðm. Sv. Hermannsson
NORÐMENN og Hollendingar
eru nú að spila úrslitaleikinn í
opna flokknum á heimsmeist-
aramótinu í brids í Chile og
Bandaríkjamenn og Þjóðverjar
í kvennafiokki. Undanúrsiita-
leikirnir í opna flokknum voru
æsispennandi og úrslitin í þeim
báðum réðust ekki fyrr en í
síðasta spili.
Þegar 16 spil voru eftir í undan-
úrslitaleik Noregs og Brasilíu var
staðan jöfn. Brasilíumenn höfðu
svo náð 9 stiga forustu þegar tvö
spil voru eftir en í næst síðasta
spili enduðu þeir í röngu geimi
sem hefði átt að tapast. Norsku
vamarspilurunum varð á í mess-
unni svo spilið féll og Brasilíu-
menn áttu því enn 9 stig þegar
síðasta spilið kom á borðið.
V/AV
Norður
♦ DG42
¥7
♦ ÁG763
+ 643
Austur
+ 976
¥ D862
♦ K10952
♦ K
Suður
♦ Á3
¥ G109
♦ 8
♦ D1097652
Við bæði borð fórnuðu NS í 5
lauf yfir 4 hjörtum AV, sem vinn-
ast auðveldlega. Við annað borðið
misstigu Norðmennirnir sig að-
eins í vörninni og tóku 5 lauf
aðeins einn niður þannig að Bras-
ilíumennirnir virtust ætla að
græða á spilinu.
En við hitt borðið spilaði Brasil-
íumaðurinn Olivera di Barbosa út
hjartaás gegn 5 laufum. Þegar
blindur kom í ljós taldi Barbosa
þörf á því að fækka trompslögum
sóknarinnar svo hann lagði niður
laufaásinn. Þegar kóngurinn kom
undir hjá austri varð aumingja
Barbosa svo mikið um, að hann
spilaði spaða frá kóngnum. Suður
stakk upp drottningu í blindum
og þar með var spilið unnið! 12
stig til Noregs og 3 stiga sigur í
leiknum, 208-205.
Slemmusveiflan dugði ekki
Hollendingar höfðu 17 stiga
forustu á Bandaríkin þegar fjögur
spil voru eftir í hinum undanúr-
slitaleiknum. Þá gáfu Hollending-
arnir slemmu ogtöpuðu 14 stigum
en síðustu spil leiksins voru jöfn,
einnig spilið sem réði úrslitum í
hinum leiknum. Hollendingar
unnu því leikinn, 202 gegn 199.
Úrslitaleikurinn, sem er 160
spil, hófst í gær og lýkur á morg-
un. í norska liðinu spila Teije Aa,
Glen Grötheim, Tor Helness, Geir
Helgemo, Jon Sveindal og Arild
Rasmussen. í hollenska liðinu
spila Bauke Muller, Wubbo deBo-
er, Eenri Leufkens, Berry Westra,
Piet Jansen og Jan Westerhof.
Fjórir fyrstnefndu Hollendingarn-
ir spiluðu á Bridshátíð í vetur.
Hvorki Norðmenn né Hollending-
ar hafa spilað til úrslita í heims-
meistaramóti fyrr.
í kvennaflokki unnu Þjóðveijar
Svía í undanúrslitum með 20 stiga
mun eftir að Svíar höfðu haft
forustu mestallan leikinn. Þá unnu
Bandaríkin Argentínu með yfir-
burðum. Þýska liðið er skipað
Danielu von Armin, Sabinu Zen-
kel, Marianne Mögel, Waltraud
Vogt, Karin Cæsar, og Beate
Nehmert. Bandaríska liðið er skip-
að Kay Schulle, Jill Meyers, Kerri
Sanborn, Karen McCallum, Shar-
on Osberg og Sue Picus. Banda-
rísku konurnar hafa allar unnið
heimsmeistaramót í kvennaflokki
og eru því taldar sigurstranglegri.
Vestur
+ K1085
¥ ÁK543
♦ D4
+ ÁG
Areitni frumsýnd í Regnboganum
REGNBOGINN frumsýnir
bandarísku spennumyndina
Áreitni (The Crush) í dag
fimmtudag
í fréttatilkynningu frá Regnbog-
anum segir: „Myndin ijallar um
Nick Eliot (Cary Elwes) sem held-
ur að hann sé aldeilis búinn að
meika það. Hann fær vinnu hjá
heitu tímariti sem blaðamaður,
byijar á föstu með gullfallegri
konu og til að toppa állt þá finnur
hann frábært húsnæði til að leigja.
Húsráðendurnir eiga 14 ára dótt-
ur, Darian að nafni. Darian er
skemmtileg, stórgreind og bráð-
þroska og brátt verður Nick og
hún (að því er Nick heldur) hinir
bestu mátar. Darian verður aftur
á móti skotin í Nick. Nick tekur
þessu létt enda Darian bara ungl-
ingsstúlka í hans augum. Darian
tekur því mjög illa og einsetur sér
að skemma fyrir Nick í einu og
öllu. Hefnd hennar tekur á sig
verri og verri mynd og að lokum
sækist hún eftir lífi Nicks.
Leikstjóri myndarinnar er Alan
Shapiro og byggir hann myndina
á sönnum atburðum.“
Heyskap lokið í Skaftártungn
Hnausum í Meðallandi.
NÚ UM mánaðamót er slætti yf-
irleitt lokið hér á einhverju
mesta þurrkasumri sem komið
hefur. En sumstaðar er lítið um
hey þar sem sendin tún eru í
Skaftártungu vegna kals. Gami-
ar heyfyrningar munu víða koma
sér vel nú. Dilkar sýnast vænir
og senn líður að fyrstu afréttar-
smölun.
Ef ekkert óvænt gerist má aka
Kúðafljótsbrúna um mánaðamót
okt./nóv. og er vegagerð nú að
mestu lokið vestan við brúna og
framkvæmdir hafnar í hrauninu
austan hennar.
Þeir eru glæsilegir vegirnir sem
nú eru lagðir, þó er þar einn hæng-
ur á; þeir eru víða hættulegir vegna
of brattra kanta. Frá því eftir 1950
og fram yfir 1970 var reynt að
hafa vegina sem hættuminnsta,
kanta aflíðandi og efnið var sótt
langt út og munu margir telja að
ekki hafi orðið náttúruspjöll af.
Sumstaðar verður þó ekki komist
hjá bröttum háum köntun en þar
sem hægt er ætti öryggissjónarmið
að ráða. Og víst er að vegagerðin
hefur bjargað mannslífum í þessu
landi snjóa og hálku.
- Vilhjálmur.