Morgunblaðið - 09.09.1993, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1993
33
íslandsmótið í torfæruakstri
Björgvin sigraði óvænt
Akstursíþróttir
Gunnlaugur Rögnvaldsson
Benedikt Eiríksson stóð uppi
sem sigurvegari í sérútbúna
flokknum í Bláa Lóns torfærunni
í Grindavík um síðustu helgi. Hann
lagði m.a. fjóra ökumenn sem áttu
góða möguleika á íslandsmeistar-
atitlinum, en lokakeppnin í Is-
landsmótinu verður næstu helgi.
Þorsteinn Einarsson vann Ragnar
Skúlason í flokki götujeppa, en
þeir hafa verið í hörkubaráttu um
meistaratitilinn. Hafa þeir skipst
á því að sigra í mótum ársins, en
með því að ná fyrsta sæti um
helgina.hefur Þorsteinn tryggt sér
meistaratitilinn. Þó Ragnar vinni
síðasta mótið og verði jafn Þor-
steini að stigum nægir það ekki,
því samkvæmt reglum verður sá
meistari sem fyrst vinnur keppni,
vinni tveir keppendur jafn mörg
mót.
Stigagjöf kærð
Keppnin í Grindavík fór vel af
stað, en þrautirnar í sérútbúna
flokknum þóttu í grófara lagi og
margir keppendur hlífðu jeppum
sínum. Oft voru þrautirnar ófærar
og ókleifar, sem sést best á því
hve fá stig sigurvegari flokksins
fékk í lokaúrslitum, 1263 stig af
1800 mögulegum í þrautunum
sex. Virðist skipuleggjendum
móta ársins erfitt að finna hinn
gullna meðalveg í þrautalagningu,
ýmist eru þær of léttar eða of
þungfærar. Væri ekki fjarri lagi
að mótshaldarar tækju sig saman
og réðu bæði brautarstjóra og
keppnisstjóra fyrir heilt keppnis-
tímabil, þannig að samræmi væri
í mótum keppnistímabilsins hveq'u
sinni.
Reyndar er margt sem þarf að
skoða varðandi torfæruna fyrir
næsta ár, reglur eru ekki á hreinu
og úr því varð kærumál um helg-
ina. Ekki sú fyrsta í aksturs-
íþróttamótum ársins. Kærð var
stigagjöf í annarri þraut sérút-
búna fiokksins, þar sem sumir
keppendur hengdu aðeins annað
afturdekkið inn í dekkjahlíð, þó
reglur segi að bæði afturhjól eigi
að fara í gegnum hlið.
Þeir sem taldir voru sigur-
stranglegastir í sérútbúna flokk-
um voru heillum horfnir í Grinda-
vík. Baráttan um meistaratitilinn
hefði átt að vera í algleymingi,
en taugatitringur og bilanir setti
strik í reikninginn hjá þeim
fremstu. Þetta gaf öðrum tæki-
færi á að spjara sig. Forystumað-
urinn í íslandsmótinu, Gísli G.
Jónsson á Kókómjólkinni, varð að
hætta keppni þegar sérsmíðuð
keppnisvél hans hrundi um miðbik
keppninnar, en þá var hann fram-
forskot hans fyrir síðustu keppni
ársins. Þórir Schiöth náði að
krafsa í bakkann á lokasprettinum
eftir slæma bytjun á Jaxlinum.
Hann endaði í þriðja sæti, en hefði
þurft sigur til að standa sterkari
til meistaratitils. Eins og dæmið
lítur út fyrir lokakeppnina, þá
standa Gísli og Einar best að vígi.
Fjögur mót af sex gilda til loka-
stiga. Mega keppendur fella niður
stig á þeim tveimur mótum sem
gáfu þeim fæst stig. Fyrir sigur
fást 20 stig, annað sæti 15, þriðja
12, íjórða 10 og fimmta átta og
næstu sæti færri stig.
Gísli hefur nú 62 stig og getur
mest fengið 70 stig ef hann vinn-
ur. Einar er með 46, en getur náð
65 stigum með sigri, verði Gísli
annar fær hann samtals 65, en
Einar vinnur á reglunni um að sá
vinni titilinn, sem hefur fleiri
sigra. Gangi hvorugum vel og
Þórir vinnur nær hann 62 stigum
og sama getur Sigþór gert. Báðir
geta því orðið jafnir Gísla að stig-
um. Það nægir hins vegar aðeins
Þóri til titils ef Gísli lendir neðar
en í öðru sæti á lokamótinu. Bene-
dikt Eiríksson hafði ekki miklar
áhyggjur af þessu stigabrölti og
hélt sínu striki í keppninni í
Grindavík. Tókst Benedikt á við
þrautirnar af festu á keppnistæki
sem hafði fengið talsverða yfir-
arlega. Þessi bilun þýðir að hann
verður annað hvort að raða nýrri
vél saman, eða að fá öfluga vél
lánaða í sókn sinni að meistara-
titli. Það var lán í óláni fyrir hann
hve helstu keppinautum hans
gekk illa. Sigþór Halldórsson velti
eina ferðina enn, þegar hann
reyndi að komast aðra þraut með
látum. Reyndi hann við illfært
barð, þar sem aðrir keppendur
kræktu fyrir dekk, á máta sem
síðar varð að kærumáli. Dómur
féll í kærumálinu, en dómnum
hefur verið áfrýjað. Sigþór komst
ekki í næstu þraut á eftir og tap-
aði því talsverðum stigum. En
árangur hans eftir veltuna nægði
hins vegar til að fleyta honum í
annað sætið, enda gekk öðrum
toppmönnum lítt betur.
Þrír eiga möguleika
Einar Gunnlaugsson á Bleika
Pardusnum sem var í öðru sæti í
íslandsmeistarakeppninni átti
ekki góðan dag. Hann barðist
m.a. við bilanir í rafkerfi og blönd-
ung. Byijaði Einar fyrstu þraut
vel og ók þá síðustu, tímaþraut,
hraðast allra, en í hinum fjórum
þrautunum gekk honum illa. Varð
hann svo neðarlega að hann fékk
engin stig til íslandsmeistara, ein-
mitt þegar hann hafði getað nýtt
sér ólán Gísla og saxað á gott
Titill í höfn
GRINDVÍKINGURINN Þorsteinn Einarsson
tryggði sér meistaratitil í flokki götujeppa.
Dýrkeyptur reykur -
ÞESSI reykur kostaði Gísla G. Jónsson talsverð-
ar fjárhæðir, en hann er til merkis um úrbrædda
keppnisvél. Hann hefur forystu til meistara í
sérútbúna flokknum.
háðu harða rimmu um sigurinn.
Ragnar ók djarflega, velti í tví-
gang og atgangur hans í loka-
braut keppninnar kostaði hann
sigurinn í flokki götujeppa. Hann
hafði forystu fyrir þrautina, en
með skakka afturhásingu átti
hann erfitt með að halda jeppan-
um í hliðunum, sem afmörkuðu
tímabrautina.
Ragnar hætti áður en þrautinni
lauk, en þar sem hann sópaði tals-
vert niður af dekkjum, fékk hann
mikla refsingu og glopraði foryst-
unni til Þorsteins, sem þakkaði
pent fyrir sig. Þorsteinn innsiglaði
sigurinn með því að ná besta tíma
í þrautinni, en hann hafði ekið
nokkrar þrautir án olíuþrýstings
í vélarsalnum og var á nálum yfir
því að vélin hryndi.
Lokastaðan í Grindavík
Benedikt Eiríksson 1263
Sigþór Halldórsson 1137
Þórir Schiöth 1080
Haraldur Pétursson 1055
Steinar Hauksson 972
Gunnar Egilsson 890
Götujeppar
Þorsteinn Einarsson 1263
Ragnar Skúlason 929
Guðmundur Sigyaldsson 867
Konráð K. Sigurðsson 769
Sigurður Þ. Jónsson 637
'Staðan í íslandsmótinu
Sérútbúnir
Gísli G. Jónsson 62(62)
Þórir Schiöth 48(42)
Einar Gunnlaugsson 46(46)
Sigþór Halldórsson 42(42)
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Meistaravelta
í TVÍGANG valt meistarajeppi Ragnars Skúlasonar og hann hlaut
tilþrifaverðlaun fyrir akstursmátann í keppninni. Gafst aldrei
upp, sem reyndar kostaði hann sigur í keppninni í lokaþrautinni.
halningu eftir veltu í drulluspyrnu-
keppni nokkru áður. Hann vann
sinn fyrsta sigur í torfærukeppni.
í flokki götujeppa voru það að
venju Ragnar og Þorsteinn sem
■ NÁMSKEIÐ í atvinnu-
sköpun verður haldið í Hug-
landi, Skeifunni 7, 10. sept.
kl. 19. Á námskeiðinu sem
kallast Hugefli verður lögð
áhersla á að virkja hæfileika
þátttakenda til að skapa sér
atvinnu og fjárhagslegt sjálf-
stæði. Námskeiðið byggist á
verklegum æfingum og fyrir-
lestrum og styðst við nýjustu
rannsóknir í dáleiðslu,
djúpslökun, tónlistarlækn-
ingum og beitingu ímyndun-
K^hreyfimynda
slagið
SWEETIE - fane Campion
araflsins. í tengslum við
námskeiðið verða haldnir
stuttir fyrirlestrar með at-
hafnamönnum í íslensku við-
skiptalífi þar sem þeir fjalla
um starfsemi sína og þá sér-
staklega hvernig þeir kortiu
sér áfram í upphafi.
■ MÁLFREYJUDEILD-
IN Þúfan í Reykjavík held-
ur kynningarfund á Hótel
Holti, laugardaginn 11.
september kl. 14. Þar verður
kynnt kerfið málfreyjur á
íslandi sem veitir konum
þjálfun á ýmsum sviðum. Til
dæmis fundarstjórn, verndun
móðurmálsins, ræðuflutn-
ingi, háttvísi og vinsamlegri
leiðsögn við flutning úthlut-
aðra verkefna.
e
Sýningin hlaut einróma lof
gagnrýncnda og .íhorfenda.
Vcgna annarra verkcfna veröa
aðelns örfáar sýmngar.
LEIKHÓPURINN
Vcgna frábærra undirlckta hcfur vcrið
ákveðið að taka upp sýningu á ólíkinda-
gamanlcik Árna Ibsen, scm sýndur var'á
Listahátíð Hafnarfjarðar í surnar. Sýningin
vcrður í íslcnsku Ópcrunni.
Leikstjóri: Andrés Sigurvinsson.
Lclkendur: Guðrún Ásmundsdóttir, Aldís Baldvlns-
dóttir, Ólafur Guömundsson og Ari Matlhíasson.
Sýningar: Fö. 10. scpt. kl. 20:30
Lau. II. scpt. kl. 20:30
Fi. 16. sept. kl. 20:30
Miðasala heíst 6. sept. í íslcnsku
Ópcrunnl og cr opin daglcga frá kl.
17 - 19. og sýningardaga 17 - 20:30.
Mlðapantanir t s: 1 1475 og 650190.