Morgunblaðið - 09.09.1993, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1993
DISKÓDANSAR - BUMP ■ JÓN STEINAR, SIMBI OG KOLLA, MARGFALDIR ÍSLANDSMEISTARAR KENNA
Helmingur leiðtoga Dog Faced Hermans, Marion og Wilf.
Morgunblaðið/Þorkell
Djarfur grasrótarspuni
Hljómsveitin Dog Faced Hermans stödd hér á landi
ERLENDAR hljómsveitir koma hingað til lands á ólíkum forsend-
um; flestar til að aðstandendur geti safnað auði, en alltaf nokkrar
sem koma tónlistarinnar vegna, þá iðulega sveitir sem ekki hafa
áhuga á verðmætum sem mölur og ryð fá grandað. Því sérkenni-
lega nafni Dog Faced Hermans heitir hljómsveit sem stödd er hér
á landi og heldur sína fyrstu tónleika hér í Tveimur vinum í kvöld.
Dog Faced Hermans er skosk viti í Skotlandi.
að uppruna, þó hún hafi dvalið í
Hollandi síðustu ár og gert út það-
an. Hljómsveitin er fjögurra manna
og hefur vakið athygli fyrir djarft
og persónulegt tónmál, en Dog
Faced Hermans hefur ferðast víða
til tónleikahalds; leikið víða í Evr-
ópu og fór um Bandaríkin á síð-
asta ári.
Dog Faced Hermans er skipuð
ij'órum, Marion, sem syngur og
blæs í lúður, Andy, sem leikur á
gítar og lágfiðlu, Colin sem leikur
á bassa, og Wilf, sem leikur á slag-
verk, en fímmta hjól undir vagnin-
um er Gert Jan, sem sér um hljóð.
Marion og Wilf urðu fyrir svörum
um hljómsveitina og aðspurð um
hví skosk hljómsveit geri út frá
Hollandi segja þau að fyrir ýmsar
sakir hafi hljómsveitin tekið sér árs
leyfi, á meðan limir hennar vildu
sinna öðrum hugðarefnum og list-
greinum. Þau fóru því hvert í sína
áttina, Marion meðal annars til
Póllands. Þegar svo fólk var búið
að gera það sem það vildi vaknaði
aftur löngunin til að fást við tón-
list og þá var ekkert eðlilegra en
halda áfram þar sem frá var horf-
ið. „Okkur fannst við eiga margt
eftir ógert sem hljómsveit," segir
Marion, og bætir við að það hafí
verið eðlileg ráðstöfun að setjast
að í Hollandi, enda sé andrúmsloft
þar allt annað og betra fyrir hljóm-
sveit eins og þeirra og ógjörningur
að halda úti hljómsveit af einhvetju
Eins og áður segir hafa liðsmenn
Dog Faced Hermans fengist við
ýmsar aðrar listgreinar, en helst
tónlist undanfarin ár. Þau Marion
og Wilf segjast ekki vilja gera upp
á milli listgreina, og Wilf bætir við
að í raun sé að líkja saman tónlist
og myndlist eins og að bera saman
krít og sultu. Eftir nokkrar vanga-
veltur eru þau helst á því að það
sé sameiginleg sköpun sem heilh
mest við tónlistina; hvemig þau öll
leggja sitt af mörkum til að skapa
eitthvað nýtt. Reyndar segja þau
að. hljómsveitin, sem eins hefur
verið skipuð frá upphafi, sé saman-
safn fjögurra leiðtoga, „sem er
ýmist styrkur okkar eða veikleiki“,
segir Marion, það sé enginn einn
sem skipi fyrir eða ráði ferðinni.
„Ég sem orðin og syng þau, vegna
þess að ég gæti ekki sungið orð
annarra," segir Marion, „en tónlist-
in verður til fyrir atbeina allra og
það er ekki hægt að benda á eitt-
hvað og segja þetta er eftir þennan
eða hinn.“ „Tónlistin byggist á
spuna,“ bætir Wilf við, „og auðvit-
að erum við mis upplögð til að
skapa eitthvað, en við hvetjum
hvort annað áfram og á endanum
verður eitthvað sérstakt til.“
Eins og áður segir hefur Dog
Faced Hermans verið á ferð og
flugi undanfarin misseri og þau
segja að það sé einmitt stundin á
sviðinu þegar þau ná til áheyrenda
sem gefi öllu streðinu tilgang. „Það
er einstök tilfinning þegar þér tekst
að ná til áheyrenda," segir Wilf,
„þegar eitthvað gerist óáþreifan-
legt og skyndilega höfum við náð
þeim á okkar band.“ „Það augna-
blik er frábært,“ segir Marion, „þú
fyllist gleði og krafti sem aftur
skilar sér til áheyrenda."
Tónlist Dog Faced Hermans er
nokkuð á skjön við dægurpopp, en
þau neita því harðlega að þau séu
að leika tormelta tónlist. „Tónlistin
er alls ekki tormelt," segir Marion,
„það hefur sannað sig hvað eftir
annað á tónleikum að við getum
náð til fólks hvort sem það er á
tónleikum í Þýskalandi eða í banda-
rískri knattborðsbúllu. Vissulega
getur verið erfitt að fá fólk til að
stoppa og hlusta, en það tengist
ekki tónlistinni."
Þó hljómsveitin hafi leikið víða
og gefið út plötur segjast þau fyrir
alla muni vilja halda öllu innan
skynsamlegra marka. „Okkur
gengur vel, sem sannast kanski á
því að við erum hér á landi,“ segir
Marion og hlær, „en koma okkar
hingað er dæmi um það hvemig
við viljum helst haga málum. Ferð
okkar hingað á uppruna sinn í því
að það skrifaði okkur íslenskur pilt-
ur og óskaði eftir því að fá keyptan
geisladisk. í framhaldi af því spurð-
um við hann hvort ekki væri hægt
að koma á tónleikum hér og það
gekk eftir.“ „Þetta er besta leiðin,“
segir Wilf, „að hafa allt sem næst
grasrótinni, en ekki sem part af
ópersónulegu apparati.“
Dog Faced Hermans leikur í
kvöld á Tveimur vinum með Púff,
Curver, Stilluppsteypu og Kolrössu
krókríðandi.
Viðtal: Árni Matthíasson
Skattamálanefnd
Sjálfstæðisflokksins
Gesturfundarins:
Friðrik Sophusson,
fjármálaráðherra,
ræðir stöðu og horfur í ríkisfjármálum.
____________Brids_________________
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
Bikarkeppni Bridssambands
Islands 1993
Dregið var í fjórðu umferð bikar-
keppni Bridssambands íslands, mánu-
" daginn 6. sept. Eftirfarandi sveitir
| eigast við í 8 liða úrslitum og á sú
sveit heimaleik sem talin er upp á
undan:
1. Sveit Hjólbarðahallarinnar, Rvík
, - Sveit Björns Theódórss., Rvík
2. Sveit Metró, Rvík
- Sveit Samvinnuferða, Rvík
| 3. Sveit V.Í.B. Rvík
- Sveit T.V.B. 16, Rvík
4. Sveit Antons Haraldssonar, Rvík
- Sveit H.P. Kökugerðar, Selfossi
Leikjum í fjórðu umferð á að vera
- lokið í síðasta lagi sunnudaginn 26.
j sept. Undanúrslitin og úrslitin verða
i ■~*spiluð í Sigtúni 9, helgina 2.-3. okt.
i Úrslit úr leikjum þriðju umferðar
sem voru óbirt eru eftirfarandi:
Sveit Hjólbarðahallarinnar, Reykja-
vík spilaði við sveit Arons Þorfinnsson-
ar, Reykjavík og Hjólbarðahöllin vann
þann leik með 73 imp. gegn 51 imp.
Sveit Bjöms Theódórssonar,
Reykjavík spilaði við sveit Sjóvá-
Almennra, Akranesi og sveit Björns
vann með 153 imp. gegn 55 imp.
Sveit V.Í.B., Reykjavík spilaði við
sveit Rúnars Magnússonar, Reykjavík
og V.Í.B. sigraði með 109 imp. gegn
60 imp.
Sveit Tryggingamiðstöðvarinnar,
Reykjavík spilaði við sveit T.V.B. 16,
Reykjavík og T.V.B. 16 sigraði með
102 imp. gegn 88 imp.
Sveit H.P. Kökugerðar, Selfossi
spilaði við sveit Sigfúsar Arnar Árna-
sonar og sveit H.P. Kökugerðar vann
með 81 imp. gegn 63 imp.
Tölvu- og keppnis-
stjóranámskeið hjá B.S.I.
Bridssamband íslands hefur keypt
tölvuútreikningsforrit frá Danmörku
og er verið að leggja síðustu hönd á
þýðingu þess. Þetta forrit verður selt
til félaganna og verðið er 20.000 og
inn í því verði er námskeið sem haldið
^verður í Sigtúni 9, 16. og 17. sept. nk.
í framhaldi af tölvunámskeiðinu er
svo á dagskrá árlegt keppnisstjóra-
námskeið Bridssambandsins. Það
hefst fóstudagskvöldið 17. sept. og
lýkur sunnudaginn 19. sept. Skráning
og nánari upplýsijigar eru á skrifstofu
Bridssambands íslands í síma 91-
619360.
Bridsfélag Hreyfils
Aðalfundur félagsins var haldinn
30. ágúst. í stjórn voru kosnir Birgir
Sigurðsson, formaður, Sigfús Bjarna-
son, gjaldkeri, og Óskar Sigurðsson,
ritari. Byijað verður að spila mánu-
daginn 20. september, á eins kvölds
einmenningi. Keppnisstjóri í vetur
verður Eiríkur Hjaltason. Vonumst til
þess að sjá sem flesta leigubílstjóra í
vetur.
Bridsdeild Félags eldri borgara
í Reykjavík og nágrenni
2. sept. ’93
Þórarinn Ámason — BergurÞorvaldsson 126
Samúel Samúelss. - Guðmundur Samúelss.104
Þorleifur Þórarinsson - Þorsteinn Erlingss. 95
Meðalskor 84 stig.
5. sept. ’93
Bergur Þorvaldsson — Þorleifur Þórarinss. 137
Haukur Helgason - Þórólfur Meivantsson 126
Björg Pétursdóttir — Halla Ólafsdóttir 122
Meðalskor 108 st.
Paraklúbburinn
Vetrarstarf félagsins hefst 14. sept.
nk. með eins kvölds keppni. Spilað
verður vikulega fram að áramótum til
reynslu. 21. sept verður eins kvölds
keppni en 28. septtil 12. október verð-
ur þriggja kvölda tvímenningur.
Sveitakeppni verður spiluð 19. októ-
ber til og með 2. nóvember, 9. nóvem-
ber til 23 nóv. verður Cavendish-tví-
menningur. 30. nóvember og 7. des-
ember verður tveggja kvölda michell
og 14 desember verður jólakvöld.
Paraklúbburinn hyggst styrkja pör
til keppni í Barcelona á Spáni í marz-
lok en klúbburinn verður 20 ára í
haust.
Spilað er í húsi Bridssambandsins
á þriðjudögum kl. 19.30. Nánari upp-
lýsingar veita Erla í síma 642450 eða
Guðný í síma 621599 eða 612112.
heldur almennan opinn
fund íValhöll í dag,
fimmtudaginn
9. september, kl. 17.15.
MA BJOÐA ÞER I DAIIIS?
»KENNSLUSTADIR
► Reykjavík Brautarholt 4, Ársel,
Gerðuberg, Fjörgyn
og Hólmasel.
• Mosfellsbær
• Hafnarfjörður
• Innritun í síma 91-20345 frá
kl. 15 til 22 að Brautarholti 4.
• Suðurnes Keflavík, Sandgeröi
Grindavík og Garður.
• Innritun í síma 92-67680 frá
kl. 21.30 til 22.30.
KENNSLA HEFST ÞRIÐJUDAGINN 14. SEPT.
Gjaldskrá óbreytt
frá liðnum vetri
• Afhending skírteina að
Brautarholti 4, sunnudaginn
12. september, frá kl. 15 - 22
• SÍÐASTI
IHMRITUNARDACUR
FÖSTUDACINN
10. SEPTEMRER
Systkinaafsláttur - fyrsta barn fullt gjald,
annað barn hálft gjald, þriðja barn og þar yfir
frítt. Aukaafsláttur efforeldrar eru einnig í
dansnámi.
DANSSKCLI
STVALDSSONAB