Morgunblaðið - 09.09.1993, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1993
Sigurður Hernmnn
Hannesson - Minning
Fæddur 14. júlí 1910
Dáinn 22. ágúst 1993
Þegar mér barst frétt um andlát
frænda míns að kvöldi 22. ágúst
sl. þar sem ég var staddur úti á
landi kom það mér vissulega á
óvart. Þrátt fyrir háan aldur hafði
hann verið eldhress og gæddur
ótrúlegum lífsþrótti nokkru áður
þegar við hittumst meðal ættingja
og vina. En enn á ný sannast hið
fomkveðna að „enginn veit sína
.ævi fyrr en öll er“.
Sigurður fæddist á ísafirði 14.
júlí 1910, sonur hjónanna Jakobínu
R. Guðmundsdóttur verkakonu og
Hannesar Helgasonar sjómanns.
Hálfsystkini Sigurðar voru Emil
Sigurður, f. 1903, d. 1911, Salóme
Margrét, f. 1904, d. 1920.
Albræður átti hann tvo, Helga
kennara, forseta ASÍ, f. 1907, Ólaf-
Siguijón símritara, f. 1917, d. 1971.
Helgi er því einn eftir af systkina-
hópnum.
Óhætt er að fullyrða að fjölskyld-
an bjó við afar kröpp kjör. Um hríð
vom þau á 'Snæfjallaströnd og í
Jökulfjörðum, en þaðan var Hannes
faðir Sigurðar. Síðan fluttust þau
í Hnífsdal. Á þeim tíma var verka-
lýðshreyfíngin að komast á legg.
Jakobína móðir Sigurðar var mikil
baráttukona fyrir öllu því er hún
taldi réttlæti og tók strax mikinn
þátt í baráttu verkafólks fyrir
mannréttindum og bættum kjörum.
í hörku leiksins var fjölskyldan svipt
allri vinnu og varð að flytjast til
Isafjarðar. Þar vann Sigurður alla
almenna verkamannavinnu sem
gafst fyrstu árin. Jafnframt lauk
hann vélstjóraprófí. Á þessum tíma
var bíllinn að ryðja sér til rúms og
að afloknu bifreiðastjóraprófí var
starfsferill Sigurðar markaður. í
fímm áratugi var hann ýmist vöru-
bílstjóri eða ók leigubílum.
Árið 1937 gekk hann að eiga
Guðmundínu Jóhönnu Helgadóttur,
mikla ágætis konu. Hún lést árið
1963, langt um aldur fram. Þau
hjón voru afar samrýnd og samhent
í öllu. Böm þeirra eru: Eiríkur Hans,
f. 4. maí 1942, útibússtjóri íslands-
banka í Mosfellssveit, kvæntur Sig-
rúnu Árnadóttur; Hafsteinn, f. 24.
febrúar 1945, starfsmaður Lands-
bankans á ísafírði, kvæntur Krist-
ínu Önnu Bjarkadóttur; Anna Mál-
fríður, f. 17. nóvember 1948, tón-
listarmaður, búsett í Reykjavík.
Sem bam kom ég oft á heimili
Sigga frænda. Fyrstu minningarnar
em tengdar ýmsum sérkennilegum
hljóðfæmm, sem þar var að fínna.
Fékk ég gjaman að heyra tóninn í
+
Ástkær eiginkona mín,
RÓSAMUNDA HERMANNSDÓTTIR,
Rauðalæk 39,
Reykjavík,
lést á heimili sínu að kvöldi 7. september.
Sigurgeir Jónsson.
t
Hjartkær bróðir okkar,
JÓN GUÐJÓNSSON
frá Skúmsstöðum,
Eyrarbakka,
Grænumörk 1,
Selfossi,
verður jarðsunginn frá Eyrarbakkakirkju, laugardaginn 11. septem-
ber kl. 14.00.
Systur hins látna.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
LÁRA KRISTJÁNSDÓTTIR,
Hólabraut 25,
Skagaströnd,
andaðist í Héraðssjúkrahúsinu á
Blönduósi síðastliðinn mánudag.
Hún verður jarðsungin frá Hólaneskirkju
á Skagaströnd, laugardaginn 11. sept-
ember nk. kl. 17.00.
Ingibjörg Lárusdóttir,
Sigurbjörg Lárusdóttir,
Soffía Lárusdóttir,
Guðmundur Lárusson
og fjölskyldur.
Hjartanlegar þakkir sendum við öllum
sem sýndu okkur samúð og vinarhug
við fráfall eiginkonu, móður, dóttur og
systur,
GUÐRÚNAR BIRNU FINNSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki
Landspítalans á deild 11 -E fyrir frábæra
umönnun.
Grétar Júníus Guðmundsson,
Elvar Finnur Grétarsson, Heiðar Kristján Grétarsson,
Hannar Sindri Grétarsson,
Hanna Ármann, Finnur Björnsson,
Valdis Ella Finnsdóttir.
hveiju hljóðfæri. Áhugi Sigurðar á
tónlist og hljóðfæraleik varði alla
tíð. Má vera að auk upplags þá
hafí faðir Sigurðar, Hannes, haft
þar hvetjandi áhrif því að hann var
góður harmonikkuleikari. Sigurður
var afar barnelskur og hlýr maður
sem ávallt gaf sér tíma til að sinna
af þolinmæði og natni forvitni æsk-
unnar.
Sem unglingur vann ég eitt vor
við að moka snjó af veginum frá
ísafírði til Önundarfjarðar. í
kinninni á Breiðadalsheiði var mok-
að af fjórum stöllum, svo djúp voru
göngin í gegnum skaflinn. Engin
snjómoksturstæki voru þá önnur en
skóflan í hendi verkamannsins. Við
vorum fluttir upp á heiði að morgni
á vörubílspöllum og sóttir á sama
hátt að kveldi. Sigurður ók öðrum
bílnum sem sótti okkur. Ég man
að okkur strákunum fannst Sigurð-
ur aka hægt niður af heiðinni. Hinn
bíllinn var fljótari í bæinn. Engar
öryggisgrindur voru þá hafðar á
bílpöllunum. Við höfðum því á orði
við Sigurð hvort ekki væri hægt
að aka hraðar. Hann svaraði á sinn
hægláta en ákveðna hátt. „Sjáið
strákar mínir, farmur minn er það
dýrmætasta sem foreldrar ykkar
eiga, þessum farmi vil ég umfram
allt koma heilum til skila.“ Við
spurðum ekki aftur.
Trúmennska Sigurðar og það
hversu ábyggilegur hann var færði
honum mörg störf. Um langa hríð
var hann umboðsmaður bifreiðaum-
boða á ísafírði. Var hann heiðraður
á ýmsan hátt af þeim fyrir vel unn-
in störf. M.a. bauð rússneska bíla-
umboðið honum til Rússlands. Var
það hans fyrsta ferð til útlanda.
Ferðaðist hann víða eftir það. Sig-
urður fluttist frá ísafírði til Kópa-
vogs 1984. Frá því að kona hans
lést hélt Sigurður heimili einn.
Heimilishald allt var til fyrirmynd-
ar. Ljóst var að þar hélt mikið
snyrtimenni um taumana, enda léku
öll verk í höndum hans.
Sigurður var mikill unnandi heil-
brigðs lífemis. Kom það fram bæði
í ástundun íþrótta og allri neyslu.
Fyrir nokkrum árum var hann illa
þjáður og átti erfítt um gang. Af
þrautseigju og skapfestu sneri hann
+
Móður- og föðursystir okkar,
SIGRÍÐUR ÁRNADÓTTIR
frá Blöndugerði í Hróarstungu,
N-Múlasýslu,
fyrrverandi forstöðukona elliheimilisins á Akranesi,
andaðist í sjúkrahúsinu á Akranesi 2. september sl.
Hún verður jarðsungin frá Akraneskirkju föstudaginn 10. septem-
ber kl. 11.00 og jarðsett frá Hvalsneskirkjugarði sama dag
kl. 16.00.
Stella Benediktsdóttir,
Svanlaug Jóhannsdóttir,
Sigurbjörn Jóhannsson,
Árni Jóhannsson,
Vilborg Málfríður Jóhannsdóttir
og fjölskyldur.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
PÁLÍNA V. GUNNARSDÓTTIR,
Bústaðavegi 51,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju, föstudaginn 10. september
kl. 15.00.
Þorbergur Kristinsson, Páll Sævar Kristinsson,
Hólmfríður S. Kristinsdóttir, Jón Kristinn Kristinsson,
Einar Valur Kristinsson,
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
+
Faðir okkar og tengdafaðir,
PÁLMI GUÐMUNDSSON,
Kumbaravogl,
(áður Lönguhlið 21),
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 10. september
kl. 15.00.
Guðmundur Pálmason,
Garðar Pálmason, Guðrún Árnadóttir.
+
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda hlýju og vinarhug við andlát og
útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu,
ÞURÍÐAR INDRIÐADÓTTUR
frá Gilá,
Vatnsdal.
Marteinn Ágúst Sigurðsson,
Baldur Fjölnisson,
Páll Marteinsson, Soffía Jóhannesdóttir,
Kristín Indíana Marteinsdóttir, Hannes Sigurgeirsson,
Jakob Daði Marteinsson,
Laufey Marteinsdóttir,
Einar Marteinsson, Hrefna Einarsdóttir,
Þór Marteinsson, Valgerður Laufey Einarsdóttir
og barnabörn.
þessu við og nú síðustu ár gekk
hann marga kílómetra daglega. En
enginn veit hvenær kallið kemur.
Keikur og hress lagði hann af stað
í síðasta hlaupið, en það hlaup leiddi
hann inn á braut eilífðarinnar. Sam-
band Sigurðar og barna hans og
tengdabarna var afar hlýtt, og þeir
bræður Helgi og hann höfðu mjög
náið samband. Þeim og öðrum
vandamönnum Sigurðar vil ég
senda einlægar samúðarkveðjur.
Haukur Helgason.
Föðurbróðir minn, Sigurður
Hannesson, er látinn.
Reykjavíkurmaraþon er hafið á
fögrum sunnudagsmorgni. Sigurð-
ur hóf sitt þriðja og síðasta hlaup,
10 km skyldi það verða nú. Hann
kom aldrei í mark í maraþoninu.
Maðurinn með ljáinn, sem enginn
fær hlaupið frá, fylgdi hlauparanum
eftir og brá sigð sinni.
Trimm og útivist voru aðal-
áhugamál Sigurðar. Hann fór í sund
daglega, hann skokkaði og hjólaði
og fór í góða göngutúra úti í náttúr-
unni. Á hveiju vori fór hann vestur
á . heimaslóðir sínar, ísafjörð, og
stundaði skíði.
Gekk hann þar á hæstu fjöll og
naut þar útsýnisins yfír sína fallegu
heimabyggð og svo var brunað nið-
ur. Á haustin fór hann líka vestur
að tína ber, hann naut útiverunnar.
Þegar ég var ungur strákur bjó
Siggi frændi fyrir vestan. Alltaf var
tilhlökkunin mikil er ég frétti að
von væri á frænda í bæinn. Leigu-
bílstjórinn Siggi átti svo stóra og
fallega bíla, átta gata bíla með
vökvastýri og aflbremsum, bíla með
vængjum á afturbrettum. Er hann
kom í heimsókn til okkar í Stigahlíð-
ina og lagði bílnum fyrir utan, safn-
aðist stór hópur af krökkum úr
hverfinu saman til að skoða og
dást að glæsivagni Sigga. Stóð ég
þar fremstur og lét alla vita og
heyra að frændi minn ætti dross-
íuna. Svo var farið í bíltúr. Alltaf
var Siggi tilbúinn að fara í bíltúr
með mig og fjölskyldu mína og þá
oftar en einu sinni þann tíma er
hann dvaldist hér fyrir sunnan.
Árin liðu og nýir bílar keyptir, ég
fékk bílpróf, áfram var farið í bílt-
úra. Það kom ekki annað til greina
hjá Sigga en að ég tæki í. Mikið
var ég stoltur af þeim heiðri er
hann sýndi mér. Naut ég þar leið-
sagnar öruggs atvinnubílstjóra.
Nokkur síðustu árin dvaldist ég
og fjölskylda mín erlendis. Alltaf
var Sigurður boðinn og búinn að
skutlást með okkur suður á flug-
völl og taka á móti okkur er við
komum heim að vori eða um jól, á
hvaða tíma sólarhrings sem var og
hvernig sem færðin var. Stöndum
við í mikilli þakkarskuld við hann
fyrir.
Börnum hans og tengdafólki
votta ég innilega samúð mína.
Blessuð sé minningin um góða
drenginn og ljúfmennið Sigurð Her-
mann Hannesson.
Helgi Þór Helgason.
ERFIDRYKKJUR
frá kr. 850-
ími 620200
Erfidrykkjnr
Glæsileg kítfli-
hhu1lK)rð liillegir
siilir og injög
góð þjónnstiL
Upplýsingar
í síma 2 23 22
FLUGLEIDIR
HÍT(L LIFTLEIIIl
PERLAN f