Morgunblaðið - 09.09.1993, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1993
39
Minning
Leifur Þorbergsson
skipstjon,
Fæddur 21. desember 1915
Dáinn 2. september 1993
Aldrei skaltu að leiðum lesti
leita í fari annars manns,
aðeins grafa enn þá dýpra
eftir bestu kostum hans.
Geymdu ekki gjafir þínar
góðum vini í dánarkrans.
Þessi vísa kom mér í hug er ég
heyrði lát Leifs Þorbergssonar skip-
stjóra á Þingeyri. Eftir að hafa
dvalið sex vikur í Dýrafirði í sumar
rankaði ég við mér — ég hafði ekki
heimsótt hann og kastað á hann
kveðju. Það er ekki orðum aukið —
að fresta heimsókn til gamalla vina,
ætla að gera það á morgun sem
átti að gerast í gær — og hafa svo
ekki tækifæri til þess — en fylgja
þeim svo síðasta spölinn — að gröf-
inni. Það eru ekki ný sannindi og
hendir mann of oft.
Mikill samgangur var alltaf milli
foreldra minna og hans og Hrafn-
hildur systir hans var æskuvinkona
mín og Hörður bróðir þeirra skóla-
bróðir minn í Verslunarskólanum.
Allur er hann nú horfinn af sjónar-
sviðinu þessi stóri systkinahópur er
ég þekkti svo vel og umgekkst dag-
lega ung.
Já, en eftir lifa góðar og glaðar
minningar um gengin spor, heima,
um heimili þar sem ég var eins og
heimilisköttur og við Hrafnhildur
sváfum saman ýmist í Þorbergs-
eða Sigmundarhúsinu. Leifur var
lengi herbergisfélagi bróður míns
Þórðar. Þá var oft glatt á hjalla á
neðri kvistinum í Sigmundarhúsinu
og reyndar á báðum heimilum, eft-
ir því hvar foreldrarnir spiluðu vist-
ina. Mýsnar léku sér þegar köttur-
inn var af bæ.
Ungur að árum fór Leifur að
stunda sjóinn og var mjög vel látinn
sem stjórnandi og fengsæll. Þar
átti hann því láni að fagna að bjarga
tveim heimamönnum, báðum
ósyndum, af kili trillu þeirra úti á
hafi, en trillunni hvolfdi. Stundum
er eins og hulin hönd stjórni gerðum
manna. Bátar voru á sjó og alger
ördeyða þar sem þeir héldu sig og
„kipptu" allir og héldu suður á bóg-
inn, í Víkurál. Leifur einnig, en allt
í einu snýr hann skipinu og stefnir
Þmgeyri
nú einskipa í norðurátt. Undirmenn
skildu ekki hvað komið hefði yfir
„kallinn“, en fengu fá svör.
„Stuttu" síðar blasir við þeim bátur
á hvolfi og báðir skipverjar á kili.
Var þeim bjargað hið snarasta og
„stírnað" til lands. Já, Leifur var
gæfumaður og aldrei flutti hann
dýrmætari farm til Þingeyrar en
úr þessum róðri, voru hans eigin
orð.
Leifur var fæddur 21. desember
1915 á Þingeyri, sonur Jónínu Benj-
amínsdóttur og Þorbergs Steinsson-
ar skipstjóra, útgerðarmanns og
hreppstjóra með meiru. Hann
kvæntist eftirlifandi eiginkonu
sinni, Áslaugu Árnadóttur frá
Brekku í Þingeyrarhreppi, árið
1947 og eignaðist með henni tvö
börn, Ásrúnu og Þorberg, sem bú-
sett eru í Reykjavík og gift vel.
Nú eru barnabörnin orðin mörg og
hafa oft dvalist sumarlangt hjá
ömmu og afa. Þau hafa fengið vinnu
í frystihúsinu strax og þau höfðu
aldur til.
Leifur var stríðinn stundum og
hafði lúmskt gaman af skemmtileg-
um sögum um menn og málefni og
hló dátt, jafnt þótt skopið beindist
að honum sjálfum.
Hann átti það til á yngri árum
að ganga í svefni, þá sérstaklega
Minning
Frímann Jónsson
Fæddur 14. júlí 1903
Dáinn 2. september 1993
í dag verður til moldar borinn
elskulegur tengdafaðir minn, Frí-
mann Jónsson, áður til heimilis í
Karfavogi 27, sem lést 2. september
sl. Leiðir okkar lágu saman er ég
kynntist eiginmanni mínum fyrir 33
árum, og varð ég þess aðnjótandi
að kynnast sérlega góðum persónu-
leika sem Frímann var. Hann var
hæglátur maður og traustur. Fram-
koma hans einkenndist af mannlegri
reisn og ljúfmennsku. Jákvæð við-
brögð, lífsgleði og glettni voru leið-
arljós sem hann lifði eftir. Þess nutu
allir jafnt ungir sem aldnir samferða-
menn hans á löngu æviskeiði. Ein-
arður og traustur félagshyggjumað-
ur var hann alla ævi, sama á hveiju
gekk.
Frímann fæddist 14. júlí 1903 á
Bakka í Svarfaðardal. Ungur að
árum fluttist hann með foreldrum
og systkinum að Neðra-Ási í Hjalta-
dal, en foreldrar hans festu kaup á
þeirri jörð árið 1906. Hann var
yngstur sinna systkina og hinn síð-
asti þeirra sem kveður þennan heim.
Hann ólst upp í Neðra-Ási, en þegar
hann var kominn talsvert á þrítugs-
aldurinn fór hann suður og vann þar
við ýmis störf í lausamennsku.
Árið 1937 urðu þáttaskil í lífi
hans. Þá kynntist hann eftirlifandi
konu sinni, Guðríði Hreinsdóttur frá
Kvíarholti í Holtum. Þau giftust síð-
an 21. júlí 1940. Frímanni og Guð-
ríði varð tveggja barna auðið, en það
eru synirnir Jón, vélvirki, sem starf-
ar á Keflavíkurflugvelli, og Hreinn,
yfirverkfræðingur hjá Hitaveitu
Reykjavíkur. Barnabörnin eru sex
og barnabarnabörnin eru einnig sex.
Síðustu fjögur árin hafa þau Frí-
mann og Guðríður dvalist á vistheim-
ilinu Seljahlíð. Þar hafa þau notið
hjálpar hinna ágætu starfskrafta,
þökk sé öllu því fólki og vonandi að
Guðríður fái að njóta þess sem
lengst.
Að endingu vil ég votta þér, Guð-
ríður mín, og öðrum ástvinum mína
innilegustu hluttekningu, og þakka
fyrir öll þau ár sem ég og fjölskylda
mín áttum í návist þessa indæla föð-
ur, tengdaföður og afa.
Blessuð sé minning hans.
Aðalheiður Jónsdóttir.
Kveðja frá barnabörnum
Afi okkar kvaddi lífið 2. septem-
ber sl. eftir langan ævidag. Hann
fæddist á Bakka í Svarfaðardal, en
fluttist tveggja ára gamall að Neðra-
Ási í Hjaltadal. Hann var yngstur í
sínum systkinahópi og var síðastur
til að kveðja.
Afí er samofinn æsku okkar. Við
minnumst allra stórhátíða hjá afa
Valgerður Gísla-
dóttir — Minning
Fædd 25. október 1954
Dáin 25. ágúst 1993
þegar hann var þreyttur. Þórður
bróðir hafði gaman af þessum
svefnförum hans, eins og þegar
hann vaknaði við að Leifur var að
rogast með lauflétta smáhluti og
var að flytja þá út í horn í herberg-
inu og stafla þeim þar. Svitinn bog-
aði af honum og hann stundi hátt.
Daginn áður var hann að vinna við
uppskipun á kolum, eftir gamla lag-
inu, pokar bornir á bakinu úr skip-
inu upp á brautarvagnana á bryggj-
unni og aldrei slegið slöku við. Þá
þekktust engar „pásur“ í vinnunni.
Oðru sinni vöknuðu foreldrar hans
við að hann ríghélt sér við rúmgafl
þeirra og æpti í angist: „Haldið í
nautið á meðan ég míg“. Daginn
áður hafði hann þurft að teyma
naut innan af sveit fyrir kú er beidd-
ist. í þriðja sinn vaknaði faðir minn
yið að Leifur hrópaði: „Eldur, eld-
ur“, og faðir minn flaug upp stig-
ann, fáklæddur, eins og eldibrand-
ur, enda ekki glæsilegt ef kviknað
væri í á þriðju hæð hússins og við
fjögur þar uppi á báðum kvisther-
bergjunum í timburhúsi. Leifur upp-
lifði eldinn sem enginn var og var
þó nokkra stund að jafna sig eftir
að hann komst til ráðs og rænu,
og við reyndar líka, því að allir
vöknuðu.
Mál er að linni, en Leifur hefði
brosað, hefði ég rifjað upp þessar
sögur í sumar í hans eyru — en ég
hitti hann ekki.
Ég læt öðrum eftir að tíunda lífs-
hlaup hans sem manns og sjósókn-
ara. Eiginkonu hans og nánustu
ættmönnum sendi ég samúðar-
kveðjur og þakka forsjóninni að
hann þurfti aldrei að flytjast að
heiman, enda ekkert sem hann
langaði til. Þingeyringar fylgja til
grafar manni sem flutti mikla björg
í bú á sjómannstíð sinni í 40 ár.
Heimamenn væru fátækari hefði
hann ekki stundað sjóinn. Það ber
okkur að þakka.
Leifur var líka mikill sjálfstæðis-
maður og tifaði léttfættur, þótt fat-
ast hefði fótur, en undirbúa þurfti
kosningar og smölun á kosninga-
degi. Hann var líka sjálfkjörinn í
fundarsetur og sat daglangt við að
merkja við kjósendur er kusu „rétt“
og vart mátti sjá þreytumerki að
kvöldi. Hann sat um fjölda ára í
hreppsnefnd fyrir flokkinn sinn og
var það sæti vel skipað sagði bóndi
minn, Árni, og voru þó ekki í sama
flokki. Þar átti Sjálfstæðisflokkur-
inn hauk í horni. Guð blessi honum
þennan búferlaflutning. Ástvinum
hans bið ég líka blessunar. Hann
er geymdur en ekki gleymdur þótt
genginn sé.
Ilulda Sigmundsdóttir
frá Þingeyri.
og ömmu í Karfavogi. Laufabrauðs-
baksturinn var á sínum stað og þá
var afl í essinu sínu. Ekki má gleyma
skálinni góðu sem afí sá alltaf um
að væri full. Einnig minnumst við
þeirra ánægjustunda er við sátum
inni í Karfavogi og spiluðum. En
fyrst og fremst minnumst við afa
sem góðs og hlýlegs manns, sem
ekkert aumt mátti sjá. Hann var
aldrei orðmargur, en þó fundum við
mikla hlýju frá honum.
Við kveðjum elsku afa og biðjum
guð að styrkja ömmu.
Hvíl í friði.
Finnur, Frímann, Knútur
og Dagný.
Nú þegar sumarið er á enda og
gróðurinn er að fölna berst mér
frétt. Vala er dáin. Ég frétti af
veikindum hennar skömmu áður en
ég fór til útlanda. Mér kom aldrei
annað til hugar en að hún myndi
hrista þetta af sér og að við systkin-
in myndum hitta hana á ný, hressa
og káta eins og venjulega. Svo varð
þó ekki og hún er farin í betri heim
og mun ekki snúa aftur. Vala var
einstök, hestamennskan var hennar
líf og yndi og fékk hestamannafé-
lagið Fákur að njóta krafta hennar,
því að hún vann mikið og metnaðar-
fullt starf í þágu félagsins.
í vor frétti hún af því að ég hefði
engan hest til þess að keppa á. Kom
hún þá til mín og bauð mér reiðhest-
inn sinn í keppnina. Þetta atvik var
dæmigert fyrir Völu. Hún bar ætíð
hag unglinganna hjá Fáki fyrir
bijósti.
Þótt Vala hafi verið tekin frá
okkur svo snemma mun hennar
lengi verða minnst sem atorkusamr-
ar og góðrar konu sem ávallt var
reiðubúin að leggja sitt af mörkun-
um til þess að auka hróður hesta-
mennskunnar.
Við systkinin vottum Gísla Geir
og Gylfa okkar dýpstu samúð og
biðjum Guð að gefa þeim styrk.
Ásta, Haraldur og Páll Briem.
Miðvikudaginn 25. ágúst fengum
við þau sorglegu tíðindi að Valgerð-
ur okkar væri látin. Þessi kraft-
mikla vinkona á besta aldri. Við
þessi tiðindi reikar hugurinn aftur
á bak og minningarnar um fyrstu
kynnin koma fram ein af annarri.
Vináttan hófst fyrir um það bil 16
árum í D-tröðinni en þar vorum við
báðar fjölskyldurnar með hesta. Við
minnumst stundanna á Framnes-
veginum, Nesinu og eins heima.
Allra ferðalaganna á hestum með
þeim, þar var ævinlega gleðin og
kátínan í fyrirrúmi.
Við Valgerður störfuðum saman
í kvennadeild Fáks í nokkur ár og
var áhugi hennar á málefnum fé-
lagsins ótrúlegur og starfið sem hún
gaf Fáki verður seint fullþakkað.
Þar var allt gefið sem til þurfti svo
að Fáki mætti vel farnast. Á
kvennakvöldum Fáks var hún jafn-
an hrókur alls fagnaðar og hlátur-
inn hennar og gleðin hreif mann
með.
Síðustu tvö árin störfuðum við
saman í stjórn Fáks, fyrst sem vara-
menn en síðan í aðalstjórn, þar sem
hún var kosin gjaldkeri. Hún hafði
mikinn áhuga á að koma fjármálum
Fáks í röð og reglu. Að missa þessa
kraftmiklu vinkonu og trúnaðarvin
er óbærileg sorg.
Við Snorri og börnin þökkum
henni samfylgdina og vottum Gylfa
og Gísla Geir okkar dýpstu samúð
og megi guð liðsinna þeim í hví-
vetna við þennan mikla missi. Með
virðingu og þökk.
Jóhanna Arngrímsdóttir.
Hún Vala mín er dáin. Þessi orð
glymja enn í eyrum mér. Hver hefði
getað trúað því að hún Vala mín
færi svona snemma, þessi lífsglaða
og fallega kona. Valgerður eða
Vala eins og hún kaus að kalla sig,
kvaddi eftir stutt veikindi sem
reyndust ólæknandi. Valgerður var
á leið í ferðalag þegar hún veiktist
en enginn hafi gert ráð fyrir að hún
færi í ferð á endastöðina.
Ég og Jói kynntumst Völu og
Gylfa fyrir um 17 árum þegar þau
bjuggu á Fálkagötunni. Við vorum
báðar að byija í hestamennskunni
og hittumst því oft uppi í hesthús-
unum. Eitt sinn fórum við ríðandi
í Þórsmörk. Vala datt af baki í
þeirri ferð og varð smá skelkuð og
ætlaði ekki aftur á hestbak. Eftir
smá fortölur féllst hún á að fara á
Skjóna gamla og síðan hefur hún
varla farið af hestbaki.
Við fórum saman á Vindheima-
melana á Fjórðungsmót og þar lent-
um við í leiðinlegu veðri svo að
ekki var hægt að grilla úti. Við
grilluðum því inni í anddyri tjalds-
ins. Það voru engin vandamál sem
Vala fann ekki lausnir á.
Ég bjó úti í Danmörku í fimm
og hálft ár og hélt ég hefði misst
allt samband við mína vini, en hver
var sú fyrsta til að hafa samband.
Það var hún Valgerður. Hún þreytt-
ist aldrei á því að hrjngja rétt svona
til að heyra hvernig ég hefði það.
Þannig var hún Vala.
Þegar ég kom frá Danmörku
vann ég um tíma í Reiðhöllinni. Þá
var Gylfi framkvæmdastjóri þar.
Þá voru haldnir hestadagar og ég
aðstoðaði Völu við að skreyta Reið-
höllina. Þar var Vala í sínu drauma-
hlutverki. Skreytingar voru hennar
yndi og hún hafði mikla hæfileika
á því sviði. Ekki vantaði hana hug-
myndaflugið, það virtist óþijótandi
og listræn var hún mjög.
Elsku Gylfi og Gísli Geir, ekkert
getur komið í stað Valgerðar og
ég bið Guð um að veita ykkur styrk
til að komast yfir þennan mikla
missi.
Aðstandendum votta ég mína
dýpstu samúð. Vala mín, þakka þér
fyrir allt og hvíldu í friði.
Lilja Eiríksdóttir,
Jóhann Christiansen,
Rólant og Tinna Christiansen.
SÉR PAN TANIR
títW11 tW t'.Ajt+A* *£■ Borgartúni 29 sími 620640
★ HSM
Pappírstætarar og pressur
Ýmsar stæröir og gerðir
► Nýtísku hönnun ► Öryggishlíf
► Litaval ►Þýsk tækni og gæði
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 33 -105 Reykjavík
Símar 624631 / 624699
t
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við
fráfall og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR JÓNSDÓTTUR,
Fagrabæ.
Valgerður Sæmundsdóttir,
Guðmundur Sæmundsson,
Jón Sæmundsson,
Sveinn Sæmundsson,
Tómas Sæmundsson,
Sigrún Sæmundsdóttir,
Baldur Sæmundsson,
Indriði Indriðason,
Elínborg Sveinbjarnardóttir,
Sigríður Hafdís Jóhannsdóttir,
Dagmar Lovfsa Björgvinsdóttir,
Guðgeir Bjarnason,
Ulla Sæmundsson,
Sigtryggur Davíðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.