Morgunblaðið - 09.09.1993, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1993
STIÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl) W*
Ástvinir eiga saman góðar
stundir í dag, en eitthvað
óvænt gerist í vinnunni. Þú
ættir að heimsækja gamla
vini í kvöld.
Naut
(20. apríl - 20. maí) trfö
Þér gefast ný tækifæri í
vinnunni í dag. Áætlanir
breytast af óviðráðanlegum
ástæðum. Komdu til móts
við óskir vinar.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)' 4»
Vanhugsuð orð geta sært
tilfinningar vinar. Þú getur
orðið fyrir óvæntum útgjöld-
um, en kvöldið verður
ánægjulegt. -■
Krabbi
(21. júní - 22. júli) HB6
Þú hefst handa við nýtt
verkefni heima í dag sem
lofar góðu. Sumir eru ekki
fyllilega hreinskilnir. Hafðu
stjórn á skapinu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Vinahópurinn stækkar í
dag, en gættu þess að eyða
ekki of miklu í skemmtanir.
Félagar ná góðri samstöðu
í kvöld.
Meyja
(23. ágúst - 22. sentemherl
Eigið frumkvæði leiðir til
bættrar afkomu. Það er ekki
sérlega hagstætt að fjár-
festa í dag. Eitthvað ergir
þig í kvöld.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þig langar að fara eitthvað
eða gera eitthvað sérstakt í
dag. Kannaðu möguleika á
ferðalagi í samráði við ást-
vin.
Sporódreki
(23. okt. — 21. nóvember)
Smávegis ágreiningur getur
komið upp milli vina. Þú
færð góð ráð varðandi íjár-
málin. Farðu varlega í um-
ferðinni.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) m
Félagi veitir þér góðan
stuðning og hvatningu í dag
og þið vinnið að því að
tryggja ykkur betri kjör í
framtíðinni.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar) &
Þótt þróun mála í vinnunni
lofi góðu þarft þú að sýná
samstarfsmönnum nær-
gætni. Þvermóðska getur
aðeins spillt fyrir.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Ferðaáætlun breytist fyrir-
varalaust í dag. Smá ágrein-
ingur kemur upp í vinnunni.
Ástin ræður ríkjum í kvöld.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) -uétaK
Peningar geta valdið ágrein-
ingi milli vina. Þér hentar
betur að halda þig heima í
kvöld og njóta samvista við
fjölskylduna.
Stjörnuspána á að lesa sem
dœgradvól. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staðreynda.
GRETTIR
þAÞ HLVTVeAÐ VEEA
'AN/€GfOL£&TA£> HAFA /Ty^r
^HEITAH 06 MJÖKAH ,S'UJ
(wörr / KiöixouHrf/
LJÓSKA
B& ELSXA Þáé ,
ADSL^Sr/teFS-\
TÓCK/NU SULHAAtea)
8-21
4
FERDINAND
1 + *-0 ( ^ / [niinuia s 012 s —
SMÁFÓLK
Eg hef alltaf furðað mig á því, af
hverju fuglar fljúga í „V“ laga fylk-
ingu...
Sagði mamma þín þér að gera það?
BRIDS
Umsjón Guðm. Páll
Arnarson
Hollensku hjónin Bep Vriend
og Anton Maas fengu slæma
útreið í vörninni gegn 5 tíglum
suðurs. Þetta var í Evrópukeppni
para fyrir tveimur árum:
Austur gefur; allir á hættu.
Norður ♦ G65 ¥Á985 ♦ DG102
Vestur ♦ 96 Austur
♦ K10974 ♦ Á8
V 1072 V KDG643
♦ K4 ♦ 98
+ K42 Suður ♦ D32 V- ♦ Á7653 ♦ ÁD873 ♦ G105
Vestur Noröur Austur Suður
Maas Vriend
1 hjarta 2 tíglar
2 spaðar 3 tiglar 3 hjörtu 5 tíglar
Dobl Allir pass
Útspil: hjartatvistur.
Þratt fyrir hjartaútspilið virð-
ist vörnin eiga a.m.k. 4 slagi:
tvo á spaða, einn á tígulkóng
og einn á laufkóng. En sagnhafi
vann sitt spil eigi að síður!
Hvernig í ósköpunum?
Það gerðist þannig: Fyrsti
slagurinn var tekinn á hjartaás
og spaða hent heima. Þá kom
lauf úr borði og Vriend í austur
lét tíguláttu. Henni hafði ein-
faldlega misheyrst — hélt að
sagnhafi ætlaði að spila trompi.
Keppnisstjóri var kvaddur að
borðinu og hann úrskurðaði að
tíguláttan væri refsispil. Sem
þýðir að austur verður að láta
tíguláttuna út fyrir fyrsta lög-
lega tækifæri og sagnhafi getur
auk þess krafist þess að vestur
spili tígli þegar hann kemst inn.
Sagnhafi svínaði laufdrottningu
og vestur drap á kóng. Og spil-
aði tígli, samkvæmt ósk sagn-
hafa. Þar fór slagurinn á tígul-
kóng. Nú tók sagnhafi laufás
og trompaði lauf. Lagði næst
niður tígulás og henti loks tveim-
ur spöðum niður í frílauf. Gaf
því aðeins einn slag á spaða í
viðbót.
Hollensku hjónin fengu auð-
vitað tært núll fyrir spilið. En
það versta af öllu var að vestur
hafði misst af frábærri vörn.
Hann hefði átt að gefa slaginn
á laufdrottningu! Og fylgja vörn-
inni eftir með því að henda lauf-
kóng undir ásinn (annars gæti
sagnhafi leyft honum að eiga
þriðja laufslaginn). Með þessari
vörn tryggir hann að makker
geti losað sig við refsispilið og
vörnin fær alltaf þrjá slagi.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á opnu móti í Katerini í Grikk-
landi um mánaðamótin kom þessi
staða upp í skák stórmeistarans
Zurabs Sturuas (2.530), sem
hafði hvítt og átti leik, og rúm-
enska alþjóðlega meistarans Mi-
hais Ghindas (2.455). Svartur lék
síðast 28. - Hc8 - c3??
Georgíumaðurinn fann nú mát
í tveimur leikjum: 29. Dg5+ og
svartur gafst upp, því 29. - Bxg5
er auðvitað svarað með 30. Hf8
mát. Þýski stórmeistarinn
Hertneck sigraði örugglega á
mótinu með 8 v. af 9 mögulegum,
vann Sturua í úrslitaskák í síðustu
umferð. íslensku þátttakendurnir
á mótinu voru fremur seinheppn-
ir. Jón L. Árnason, Hannes Hlífar
Stefánsson og undirritaður hlutu
6 Vi v. og Þröstur Þórhallsson
hlaut 6 v.