Morgunblaðið - 09.09.1993, Blaðsíða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1993
IÞROTTIR UNGLINGA / GOLF
■ JÓN SNORRI Halldórsson,
tryggði A-sveit GR sæti í úrsjitun-
um með því að sigra Jón S. Árna-
son úr GA á 5. holu í umspili.
Báðir klúbbarnir höfðu hlotið tvo
vinninga í viðureign sinni í undanúr-
slitunum og því ljóst að leikur þeirra
réði úrslitum. Jón Snorri náði að
halda jöfnu á fjórðu holu með því
að hola löngu pútti og honum tókst
síðan að tryggja sér sigurinn á
fimmtu holunni í umspili.
■ FRIÐBJÖRN Oddsson fimmt-
án ára piltur úr A-sveit Keilis lét
mikið að sér kveða á mótinu. Á
laugardeginum fór hann holu í
höggi á 8. braut sem er 137 metr-
ar. Friðbjörn notaði 6-járn og bolt-
inn skoppaði einu sinni fyrir utan
flötina og rann síðan ofan í. Hann
fagnaði högginu með siguröskri
miklu og fór síðan í kollhnís.
■ FRIÐBJÖRN tryggði Keili 7.
sætið í keppninni með því að sigra
Bertel Arnfinnsson úr Nesklúbbn-
um með miklum tilþrifum. Útlitið
var þó ekki bjart fyrir Friðbjörn sem
sem var Ijórum holum undir eftir
tólf holna leik. Friðbjörn sigraði á
13., 15., 16., 17. og átjándu holu
þar sem hann tryggði Keili vinning
og þar með 3:2 sigur.
■ FYRSTA keppnisdaginn var
leikinn höggleikur og árangur sveit-
anna úr því réði niðurröðuninni í
holukeppnina. Nýkrýndur ungl-
ingameistari, Tryggvi Pétursson
lék þar best' allra á 136 höggum
eftir holur. Tryggvi lék fyrri átján
holumar á 66 höggum sem er
tveimur höggum undir pari vallar-
ins.
■ BIRGIR Leifur Hafþórsson
úr Leyni er með lægstu forgjöfina.
í unglingaflokki. Reiknuð forgjöf
hans er 0.5 og hann leikur því með
einn í forgjöf eins og tveir'aðrir
keppendur á mótinu. Birgir er sautj-
án ára en aðeins fjórir kylfingar í
karlaflokki eru með lægri forgjöf.
Það eru þeir Úlfar Jónsson [+2.9],
Sigurjón Arnarsson [+1.5], Þor-
steinn Hallgrímsson [+0.2] og
Björgvin Sigurbergsson [0.0].
Tölurnar miðast við reiknaða forg-
jöf.
■ TRYGGVI Pétursson, úr GR
er með 0.8 í reiknaðri forgjöf og
Sigurpáll Sveinsson úr GA með
1.3 og þeir eru því með einn í leik-
inni forgjöf.
Morgunblaðið/Frosti
Sigursveit GS í flokki 15 - 18 ára. Talið frá vinstri: Örn Ævar Hjartarson, Helgi Þórisson,
Elías Kristjánsson liðsstjóri, Rúnar Hallgrímsson og Davíð Jónsson. Á minni myndinni má sjá
Helga og Davíð fagna sigrinum.
Helgi tryggði GS sigur
á fyrstu holu í umspili
Sveit GS sterkust í eldri flokki og GR í yngri flokki
í sveitakeppni GSÍ
HELGI Þórisson, kylfingur úr Golfklúbbi Suðurnesja tryggði sveit sinni sigur
í sveitakeppninni í flokki 15-18 ára með því að sigra Þorkel Snorra Sigurðs-
son GR í síðasta leiknum þar sem þeir skiptust á forystunni. Spennan var
gífurleg í toppbaráttunni í þessum flokki og fjórar efstu sveitirnar mjög jafnar
eins og sjá má á úrslitunum en báðum leikjum undanúrslitanna svo og leikjun-
um um fyrsta og þriðja sætið lauk með minnsta mögulega mun.
Eg var búinn að tapa einum ein-
staklingsleik og tveimur í tví-
menningi og hugsaði mest um það á
síðasta hringnum að ég vildi ekki fá
enn eitt núllið á töfluna. Erfiðast var
að halda einbeitningunni allan hring-
inn en það tókst,“ sagði Helgi þegar
sigur Suðurnesjasveitarinnar var í
höfn.
Viðureign GS og GR um sigurinn
ÚRSLIT
Úrslit í sveitakeppni 15 - 18 ára sem hald-
in var á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði dagana
2. - 5. september.
Undanúrslit:
GR-A - GA.......................3:2
GS-A-GL.........................3:2
Leikur um 1-2 sæti:
GS-A-GR-A.......................3:2
Jón Snorri Halldórsson/Haraldur Þórðarson
GR sigruðu Helga Þórisson/Rúnar Hall-
grímsson l/o.
Davíð Jónsson/Örn Ævar Hjartarson GS
sigruðu Tryggva Pétursson/Þorkel Snorra
Sigurðsson GR á 2. holu í umspili.
Trj’ggvi GR sigraði Davíð GS 4/3.
Örn Ævar GS sigraði Harald GR 3/2.
Helgi GS sigraði Þorkel Snorra GR á 1.
holu í umspili.
Leikur um 3. sætið:
GA-GL...............................3:2
Birgir Leifur Hafþórsson/Helgi Dan Steins-
son GL sigruðu Þórleif Karlsson/Jón S.
Árnason GA 2/1.
Sigurpáll Sveinsson/Birgir Haraldsson GA
sigruðu Gunnar Örvar Helgason/Halldór
Magnússon GL 7/6.
Þórleifur GA sigraði Gunnar Örvar GL 1/0.
Birgir Leifur GL sigraði Jón S. GA 3/2.
Sigurpáll GA sigraði Helga Dan G1 3/1.
5.-6. GR-B -GSS.....................4:1
7.-8.GK-A-NK........................3:2
9.-10. GV-GS-B......................3:2
11.-12. GKJ-GKB.................. 3:2.
13. GG.
14 ára og yngri:
1.-2. GR-A - GSS...............3,5 - 1,5
Fannar/Guðlaugur GSS sigruðu Arnór/S-
vanþór GR 1/0.
Guðjón Rúnar/Pétur Már GR sigruðu Örv-
ar/Guðmund GSS3/2.
Pétur Már GR sigraði Örvar 5/4.
Guðjón R. sigraði Gunnlaug 5/4.
Guðmundur og Arnór sömdu um jafntefli.
í höggleik á fimmtudeginum lék A-sveit
GR á 476 höggum, A-sveit Leynis á 503
höggum, sveit GSS á 504 höggum og A-
sveit GA á 505 höggum.
á sunnudaginn var allan tímann
æsispennandi. Sveitirnar skiptu með
sér vinningum úr íjórmenningi um
morguninn og Tryggvi Pétursson
innbyrti annann vinning GR með
sigri á Davíð Jónssyni. Örn Ævar
Hjartarson jafnaði fyrir GS með sigri
á Haraldi Þórðarsyni og eftir það
beindust augu fjölmargra áhorfenda
að viðureign Helga og Þorkels. Helgi
jafnaði leikinn á 15. holu þegar stutt
pútt Þorkels snerist á holubarminum
en Þorkell náði aftur forystunni á
16. holu. GR dugði jafntefli á átjándu
holunni en Helgi náði að setja niður
pútt fyrir „fugli“ eftir glæsilegt inná-
högg og tryggja umspil. Úrslitin réð-
ust strax á fyrstu holunni, Þorkell
lenti með sinn bolta í flatarglompu
eftir annað högg og náði ekki að
bjarga parinu. Það gerði Helgi hins
vegar og sigur GS var í höfn en
Reykvíkingar þurftu að sætta sig við
annað sætið í þessum flokki þriðja
árið í röð en Leynir hefur sigrað í
þessum flokki tvö síðustu ár.
Sveit GR best í Borgarnesi
Sveit GR vann auðveldan sigur á
sveit Sauðkrækinga í úrslitum yngri
-rmglingaflokks í Borgarnesi. A-sveit
GR með þremur og hálfum vinningi
gegn einum og hálfum. Sauðkræk-
ingar héldu jöfnu í fjórmenningi 1:1
en eftir að bæði Pétur Már Sigurðs-
son og Guðjón Rúnar Emilsson sigr-
uðu í leikjum sínum einstaklings-
keppninni var sigur GR í höfn en
klúbburinn hefur einokað sveita-
keppni í yngri flokki síðustu ár.
A-sveit GR lagði A-sveit GA í
undanúrslitunum og GSS lagði Leyni
í hinni viðureign undanúrslitanna.
Leynismenn gerðu mistök í leik við
GSS í fjórmenningi sem urðu þeim
dýrkeypt. Kylfingur frá Leyni sló
boltann út fyrir braut á 4. holu og
félagi hans tók vítishögg frá teignum
eins og ber að gera samkvæmt regl-
um. Hins vegar sló sami kylfingur
teighögg á 4. og 5. braut og ruglað-
ist því röðin á þeim teigum sem
drengjunum bar að leika á. GSS
kærði síðan eftir að inn var komið
eftir átján holur og voru Leynismönn-
um dæmdar allar holur tapaðar frá
þeirrj fimmtu er mistökin áttu sér stað.
A-sveit GR sem varð meistari í flokki fjórtán ára og yngri. Frá vinstri: Siguijón Arnarsson liðsstjóri, Svanþór Lax-
dal Arnar Þórisson, Guðjón Rúnar Emilsson og Pétur Már Sigurðsson.