Morgunblaðið - 09.09.1993, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1993
51
KNATTSPYRNA / HEIMSMEISTARAKEPPNIN
Feti framar en ádur
Morgunblaðið/Sverrir
Fyrirlidinn í færi
GUÐNI Bergsson, fyrirliði íslands, brá sér nokkrum sinnum í sóknina í gærkvöldi og var nálægt því að skora í tvígang. Hér horfir hann á eftir knettinum á 84.
mín.; eftir langa aukaspyrnu Haraldar Ingólfssonar, skallaði Arnór Guðjohnsen knöttinn út í teig til Guðna sem „lét vaða“ að marki, en Koch í markinu varði mjög vel
í horn, einu sinni sem oftar í leiknum.
Ánægður
- sagði Ásgeir Elíasson, landsliðsþjálfari
LANDSLIÐIÐ undir stjórn Ás-
geirs Elíassonar, náði betri
árangri í undankeppni heims-
meistaramótsins að þessu
sinni en íslenskt landslið hefur
áður náð. Liðið sigraði Lúxem-
borgara 1:0 í Laugardalnum í
gærkvöldi, í síðasta leik sínum
í keppninni, og hlaut þar með
átta stig af 16 mögulegum.
Árangurinn er því50%. ísiend-
ingar stjórnuðu ferðinni allan
tímann f gærkvöldi, leikurinn
var í rólegra lagi fyrir hlé, en
í seinni háifleik náðu íslend-
ingar afbragðs köflum og
hefðu átt að skora meira. Góð-
ur markvörður gestanna
bjargaði þeim en náði ekki að
koma f veg fyrir mark Haraldar
Ingólfssonar úr vftaspyrnu á
55. mfn.
Islendingar réðu ferðinni allan
fyrri hálfleikinn, án þess þó að
skapa teljandi hættu. Strax var
ljóst að hugarfarið var rétt og
sjálfstraustið í lagi
Skapti hjá íslensku strák-
Hallgrímsson unum; baráttan var
skrifar mikil frá byrjun, en
þó vantaði alltaf einhvern herslu-
mun: spilið var oft í góðu lagi úti
á vellinum en sóknirnar strönduðu
oftast á vítateig Lúxemborgar-
manna. Arnór átti að vísu góðan
skalla eftir fyrirgjöf Ólafs Þórðar-
sonar seint í hálfleiknum, en það
var í eina skiptið. Sóknarmenn
gestanna voru ekki til mikils ama,
og aðeins einu seinni þurfti Birkir
að beita sér; varði langskot á 36.
mín. en hættan var engin. Þó svo
fyrri hálfleikurinn hafi e.t.v. ekki
virkað sérlega góður af íslands
hálfu var jákvætt hve leikmenn
voru þolinmóðir, einsog nauðsyn-
legt var í stöðunni, þar sem gest-
irnir héldu sig aftarlega.
Líflegra
Seinni hálfleikurinn var mun líf-
legri: Strax á 3. mín. þrumaði
Arnar Gunnlaugsson naumlega
framhjá úr mjög góðu færi eftir
að varnarmaður sendi óvart á hann
er meiningin var að spyrna fram
völlinn, og skömmu síðar varði
Koch markvörður firnafast skot
Ólafs Þórðarsonar utan af velli í
horn. Það var eins og þarna hefði
Ólafur skotið íslendinga í stuð því
sóknin hélt áfram linnulítið, mun
beittari en fyrir hlé, og oft munaði
mjóu við mark Lúxemborgar. Har-
aldur gerði eina markið eftir tíu
mín. í seinni hálfleik, og var mjög
vel að undirbúningi þess staðið.
íslensku strákarnir fengu svo all
nokkur góð færi það sem eftir var
leiks, en gestirnir ógnuðu aðeins
einu sinni. Birkir varði þá mjög
vel skot úr teignum.
Birkir var góður í markinu í
gærkyöldi og vörnin sterk; lítið
reyndi á hana í sjálfu sér, en þre-
menningarnir voru öruggir og
Hlynur og Guðni sköpuðu oft usla
er þeir fóru fram. Sigurður Jónsson
réði algjörlega ríkjum á miðjunni,
Rúnar náði sér ekki á strik í fyrri
hálfleik en sótti sig mjög eftir hlé,
Haraldur var góður á vinstri
kantinum og skapaði hættu með
sendingum en Ólafur var hins veg-
ar ekki eins og hann á að sér á
hægri vængnum. Gerði að vísu
góða hluti á köflum en virkaði
ekki eins sterkur og oft áður.
Framheijarnir léku nokkrum sinn-
um stórskemmtilega saman; þegar
þeir léku hratt á milli sín, Amar,
Arnór og Þórður, tættu þeir vörn
Lúxemborgar í sig. Það er vissu-
lega erfitt að leika gegn liði eins
og því lúxemborgíska, sem leggur
mesta áherslu á varnarleikinn, en
þá er einmitt að beita snöggu,
stuttu spili til að skapa færi. það
kom nokkrum sinnum í ljós hvers
strákarnir eru megnugir þegar
boltinn gekk snöggt manna á milli;
það voru skemmtilegustu augna-
blik leiksins, en þríhyrningsspilið
hefðu að ósekju mátt sjást oftar.
Þolinmæði
Miðað við færin hefði sigurinn átt
að geta orðið mun stærri. Færin
voru góð, já, en bæði var að fall-
byssur Islendinganna voru vanst-
illtar og eins var markvörðurinn í
banastuði og kom í veg fyrir stærri
sigur. Hann varði t.d. vel þrumu-
skot Ólafs Þórðarsonar af 30 m
færi, skot Rúnars frá teig og hjól-
hestaspyrnu Arnórs af stuttu færi
og eins áttu Rúnar, Guðni og Hlyn-
ur allir góð skot naumlega fram-
hjá. En sigur náðist og það var
auðvitað fyrir mestu. Liðið verður
í þriðja sæti riðilsins, gæti því
færst upp um styrkleikaflokk áður
en dregið verður í næstu keppni
og á því von um auðveldari mót-
herja en áður.
Eins og áður segir voru mjög
góðir kaflar í leiknum, en það kom
of oft fyrir að leikmenn vildu halda
knettinum of lengi og drógu þann-
ig úr hraðanum. En jákvætt var
að Islendingar voru þolinmóðir og
stjórnuðu leiknum allan tímann.
Asgeiri Elíasson var að vonum
ánægður með sigurinn.
„Ég er ánægður með leikinn, sem
var mjög vel spilaður af okkar hálfu.
Við gerðum allt nema nýta færin.
Það tók nokkurn tíma að finna út
hvernig best væri að spila, en við
gáfum okkur tíma. Mér heyrist sem
allir séu ekki ánægðir, en þolin-
mæðin er það, sem gildir. Ókkur
tókst að opna vöm mótherjanna,
komumst innfyrir, en ég er fyrst
og fremst ánægður með að okkur
tókst að stjórna leiknum. Við vorum
sterkari allan tímann og sjaldan var
hætta við okkar mark.“
Quðni Bergsson, fyrirliði ís-
lenska landsliðsins, var
ánægður með leikinn eins og aðrir.
„Við náðum að sigra og það var
markmið númer eitt, tvö og þijú.
Ég hefði gjarnan viljað sjá fleiri
mörk og við vorum óheppnir að
bæta ekki við, en úrslitin skipta
öllu. Þeir lágu mjög aftarlega og
því var erfitt að spila í gegn, en
við fundum hvern annan betur í
seinni hálfleik og sköpuðum þá
meiri hættu.“
Guðni var bjartsýnn varðandi
framhaldið. „Við höfum fyrst og
fremst lært á þessari keppni að ís-
lenska landsliðið verður alltaf að
hafa hugarfarið og baráttuna í lagi.
Þetta eru okkar sterkustu vopn og
þegar við beitum þeim rétt náum
við góðum úrslitum. Við áttum slak-
an dag í fyrri leiknum gegn Lúxem-
Hvaða lærdóm má draga af þátt-
tökunni í keppninni að þessu sinni?
„Ég á eftir að skoða það, en við
höfum séð að við getum verið með
ágætt lið, ef menn nenna að leggja
á sig vinnu og baráttu.“
Árangurinn er góður, en eru ein-
hver vonbrigði þegar á heildina ei'
litið?
„Ég hefði viljað ná lengra I
keppninni, en það eru alltaf þessi
ef, hefði og myndi. Aðalatriðið er
að við bættum tveimur stigum í
safnið og næsta skref hlýtur að
vera að reyna að ná lengra.“
borg, en löguðum, það sem miður
fór og framtíðin er björt.“
Sigur í fyrsta leik
Þórður Guðjónsson lék fyrsta
a-landsleik sinn og komst vel frá
sínu, en Arnar fékk vítaspyrnu eft-
ir sendingu frá fyrrum samheija
sínum á Akranesi.
„Þetta var erfitt en mjög gaman.
Ég var ekkert „stressaður" — frek-
ar var um tilhlökkun að ræða, en
ég var nánast með tvo menn á mér
og fékk ekkert færi. En það er
ánægjulegt að fagna sigri í fyrsta
landsleiknum."
Gaman að koma aftur inn
Sigurður Jónsson lék í fyrsta sinn
með landsliðinu síðan i október 1991
og var sem herforingi á miðjunni,
þrátt fyrir að hafa verið með flensu
ísland - Lúxemborg 1:0
Laugardalsvöllur, undankeppni heimsmeist-
aramótsins í knattspyrnu, miðvikudaginn
8. september 1993.
Aðstæður: Rigningarúði, suð austan and-
vari og völlurinn frekar háll.
Mark íslands: Haraldur Ingólfsson (55.
vítaspyrna)
Gult spjald: Guy Hellers (6.) fyrir að færa
boltann of langt fram í aukaspyrnu, Marc
Birsens (33.) fyrir að stöðva knöttinn með
hendi, Marcel Bossi (54.) fyrir brot, Pierre
Petry (57.) 'fyrir brot, Jeff Saibene (60.)
fyrir brot.
Dómari: Nemus Napoleon Djurhuus frá
Færeyjum.
Línuverðir: Jóhan Carl Dam og Andrias
Poulsen.
Áhorfendur: 3.969.
ísland: Birkir Kristinsson — Hlynur Birgis-
son, Guðni Bergsson, Kristján Jónsson —
Ólafur Þórðarson, Sigurður Jónsson, Rúnar
Kristinsson, Haraldur Ingólfsson — Arnór
Guðjohnsen, Þórður Guðjónsson, Amar
Gunnlaugsson.
Lúxemborg: Paul Koch — Marcel Bossi,
Marc Birsens, Pierre Petry, Thomas Wolff
— Luc Holtz, Jeff Saibene, Guy Hellers,
Joel Groff — Théo Malget (Manuel Cardoni
80.), Roby Langers (Patrick Morocutti 58.).
síðan á laugardag. „Það var gaman
að koma aftur inn og sérstaklega,
þegar fimm Skagamenn voru í lið-
inu, en það er alltaf gaman að spila
landsleik. Það er alltaf erfitt að spila
á móti liði, sem pakkar í vörn og
að vissu leyti var þetta svipað og í
Evrópuleik IA gegn albanska liðinu
í síðustu viku. Fyrri hálfleikur fór í
að fínna hvemig ætti að opna vörn-
ina, en sóknin gekk síðan betur eft-
ir hlé og við vorum óheppnir að
nýta ekki fleiri færi. Eitt núll er sig-
ur og ekkert er yfir því að kvarta,
en hvað miðjuna varðar, þá spilaðist
þetta vel fyrir okkur. Við gerðum
ráð fyrir þremur á móti okkur á
miðjunni, en þeir spiluðu varlega og
við Rúnar áttum ekki í efiðleikum
með sitt hvorn manninn. Við stjórn-
uðum spilinu og þeir komust ekkert
áleiðis.“
1B^\Eftir hornspyrnu Haraldar Ingólfssonar barst knötturinn
■ %#út fyrir teig og Rúnar Kristinsson þrumaði að marki. Koch
varði en hélt ekki knettinum, Þórður Guðjónsson náði honum við endal-
ínu vinstra megin við markið, renndi þegar í stað út á Arnar Gunn-
laugssonar, sem lék á vamarmann en var felldur. Vítaspyrna var rétti-
lega dæmd, og Haraldur Ingólfsson skoraði auðveldlega; Koch mark-
vörður fleygði sér til vinstri en eftir að Haraldur sveiflaði vinstri fætin-
um small knötturinn nánast í marknetinu miðju.
Óheppnir að bæti ekki við
- sagði Guðni Bergsson, lyrirliði, og sagði úrslitin skipta öllu