Morgunblaðið - 09.09.1993, Blaðsíða 52
m
HEWLETT
PACKARD
HPÁ ÍSLANDI HF
Höfdabakka 9, Reykjavík, sími (91) 671000
Frá möguleika til veruleika
MORGUNBLADID. KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK
SÍMI 091100, SÍMBRÉF 091181. PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1993
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
Leiguskip
til veiða 1
Smugunm?
SKAGSTRENDINGUR hf. hefur
selt norskum banka á eftirmark-
aði skuldabréf frá norska fjár-
málaráðuneytinu, vegna 135 millj-
óna króna niðurgreiðslna norska
ríkisins af nýsmíði nýjasta skips
Skagstrendings, Arnars HU. Sam-
kvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins hafði Búnaðarbanki Is-
lands milligöngu um sölu þessa.
Sveinn S. Ingólfsson, fram-
kvæmdastjóri Skagstrendings, segir
að strangt til tekið sé útgerðin laus
allra mála, þótt Norðmenn meti það
svo að Arnar HU hefði gerst brotleg-
ur við ákvæði sem takmarka veiði-
slóðir skipanna sem njóta vaxtanið-
„^urgreiðslu norska ríkisins.
„Málið er þó alls ekki þannig vax-
ið, þegar grannt er skoðað," sagði
Sveinn í samtali við Morgunblaðið,
„því ef niðurstaða norskra stjórn-
valda yrði sú að veiðar skipsins túlk-
uðust sem brot á ákvæðum samn-
ingsins, væri komin upp sú staða að
við gengjum á bak orða okkar og
iétum aðra blæða fyrir okkur. “
Sveinn benti á að í þeim ákvæðum
sem vitnað væri til, væri einungis
talað um veiðar, en ekki vinnstu.
„Við getum því keypt fisk af öðru
skipi. Við höfum verið að velta fyrir
okkur þeim möguleika undarifarið
að leigja fiskiskip sem veiddi fyrir
okkur, hvort sem er á miðunum hér
eða þar,“ sagði Sveinn.
Morgunblaöiö/Sverrir
Sigri gegn Lúxemborg fagnað
ISLENDINGAR unnu Lúxemborgara 1:0 í undankeppni Heimsmeist-
aramótsins í knattspyrnu á Laugardalsvelli í gærkvöldi. ísland náði
þar með 50% árangri í riðlakeppninni og þriðja sæti, sem er besti
árangur í HM til þessa. Haraldur Ingólfsson gerði eina mark leiksins
og hér þakkar hann áhorfendum stuðninginn. Nánar bls. 50.
Tekjur af ferða-
möniium minnka
ÞRÁTT fyrir að erlendum ferðamönnum hingað til lands hafi fjölg-
að undanfarin ár, ef árið 1992 er undanskilið, hafa hlutfallslegar
tekjur af þessari atvinnugrein minnkað-verulega, og íslendingar
dregist aftur úr öðrum OECD-löndum hvað það varðar, að sögn
Þórhalls Jósepssonar, deildarstjóra í samgönguráðimeytinu.
Þórhallur segir að frá 1989 hafi
tekjumar hækkað í krónum talið.
Sé miðað við fast verðlag er hækkun-
in eitthvað minnif en í samanburði
við önnur OECD-lönd komi í ljós að
tekjurnar jukust minna hér en ann-
ars staðar.
Rauntekjur OECD-landanna af
erlendum ferðamönnum eru 30%
hærri en 1987, en á íslandi eru raun-
tekjur árið 1992 lægri en árið 1987.
Hann segir að fram til ársins 1989
hefðu tekjurnar aukist meira hér á
landi en annars staðar innan OECD,
en á síðustu árum værum við í neðsta
sæti hvað varðar tekjuaukningu.
Dvalartími ferðamanna styttist
Þórhallur segir skýringu á þessari
þróun meðal annars vera, að dvalar-
tími ferðamanna hafi styst, meira sé
um styttri ferðir. Einnig komi til
harðari samkeppni erlendis frá, sér-
staklega frá Evrópubandalagslönd-
um, gengisfellingar helstu sam-
keppnislanda, til dæmis í Svíþjóð og
Finnlandi, og svo hafi Austur-Evrópa
opnast fyrir ferðamönnum. Einnig
hefur verið samdráttur í efnahag
heimsins og svo bæri að athuga að
hér væri mjög dýrt að vera, þannig
að fólk eyddi minna.
Á meðan hefðum við staðið í stað
hvað varðar markaðssetningu og
ekki hafi tekist að fá meira fjár-
magni veitt til þessara mála.
„Ráðamenn hafa ekki heldur verið
vakandi," segir Þórhallur. „Ef við
hefðum sinnt þessari atvinnugrein
líkt og stóriðju værum við í öðrum
sporum."
Utanríkisráðherra um forræði landbúnaðarráðuneytis á kjötinnfiutningi
Forsætísráðherra dragi
úrskurð sinn tíl baka
Landbúnaðarráðherra telur innflutning óheimilan séu birgðir nægar
Morgunblaðið/Jón Páll Ásgeirsson
Skipt um dufl
SKIPT hefur verið um ljósdufl
í Faxaflóa norðan við Akurey
við innsiglinguna til Reykja-
víkur. Það voru skipverjar um
borð í varðskipinu Óðni sem
sáu um að fjarlægja gamla
duflið. Það var með gashylkj-
um sem skipta þurfti um á
hveiju ári. Nýja duflið, sem
er hátt og strýtulaga, fær orku
fyrir ljós með sólarspeglum og
radarspegli.
JÓN Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra og starfandi viðskipta-
ráðherra, leggur til að Davíð Oddsson forsætisráðherra dragi til baka
úrskurð sinn um að forræði á innflutningi landbúnaðarvara sé á hendi
landbúnaðarráðuneytisins. Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra, sem
hefur nú forræði á innflutningnum samkvæmt úrskurðinum, segir inn-
flutning svínakjötsins óheimilan, séu nægar birgðir svínakjöts í land-
inu. Að mati Framleiðsluráðs landbúnaðarins eru birgðir nægar og
þess vegna ólíklegt að innflutningurinn verði Ieyfður. Friðrik Sophus-
son fjármálaráðherra segist hafa efasemdir um réttmæti niðurstöðu
forsætisráðherra, en lióst sé að málið fari fyrir dómstóla.
Davíð Oddsson kvað upp úrskurð
sinn í gær, „vegna þess álitaefnis,
hvort landbúnaðarráðherra eða fjár-
-t——málaráðherra beri að fjalla um inn-
flutning á landbúnaðarvörum". Dav-
íð vísaði til yfírlýsingar sinnar, sem
hann gaf við þinglok síðastliðið vor,
um að forræði á innflutningi á búvör-
um yrði áfram hjá landbúnaðarráð-
herra. Þessi yfirlýsing var gefin
vegna deilna um breytingar á bú-
vörulögum, en landbúnaðarráðherra
og meirihluti landbúnaðarnefndar
deildu þá hart við fjármála- og utan-
ríkisráðherra. Davíð segir í úrskurði
sínum að yfirlýsingin hafi verið gefin
í samráði við utanríkis-, fjármála-
og viðskiptaráðherra, og henni hafi
ekki verið mótmælt.
Ekki byggt á lögfræðiáliti
Fyrir liggur álitsgerð ríkislög-
manns um málið, sem send var fjár-
málaráðherra. Morgunblaðinu er
ókunnugt um efni hennar, en úr-
skurður forsætisráðherra er ekki
byggður á henni, að sögn Friðriks
Sophussonar fjármálaráðherra. Rík-
islögmaður hefur áður úrskurðað að
innflutningur ákveðinna landbúnað-
arafurða, þ.m.t. smjörlíkis og ostlík-
is, sé heimill. Utanríkisráðherra mun
íhuga að afla nýs álits • ríkislög-
manns, verði það, sem fyrir liggur,
ekki gert opinbert.
Almennar frjálsræðisreglur
Jón Baldvin Hannibalsson sendi í
gær frá sér yfirlýsingu, þar sem seg-
ir að landbúnaðarráðherra hafi að-
eins vald til að takmarka innflutning
á ákveðnum búvörum, sem séu til-
greindar í lögum um búfjársjúkdóma
og búvörulögum. Annar innflutning-
ur landbúnaðarvara lúti hins vegar
almennum fijálsræðisreglum, sem
felist í lögum um innflutning, sem
tóku gildi í nóvember síðastliðnum.
Landbúnaðarráðuneytið hafi ekki al-
mennt forræði yfir innflutningi land-
búnaðarvara.
„Það var ekkert tilefni til úrskurð-
ar. Lögin eru skýr og ég legg til að
forsætisráðherrann dragi úrskurðinn
til baka,“ sagði Jón Baldvin Hanni-
balsson í samtali við Morgunblaðið.
Sjá miðopnu: „Forræði
innflutnings...“
Morgunblaðið/Sverrir
Skákþing íslands hafið
KEPPNI í landsliðsflokki á Skákþingi íslands 1993 hófst í gær og
er tefld í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur í Faxafeni 12. Keppend-
ur eru 12 og eru þrír stórmeistarar þar á meðal. í fyrstu umferð
varð einn þeirra, Jóhann Hjartarson, að láta sér nægja jafntefli við
yngsta keppandann, Helga Áss Grétarsson, sem er aðeins 15 ára.
Haukur Angantýsson vann Jón Garðar Viðarsson, jafntefli gerðu
Jóhann Hjartarson og Helgi Áss Grétarsson, Björgvin Jónsson og
Tómas Björnsson. Skák Hannesar Hlífars Stefánssonar og Þrastar
Þórhallssonar var frestað. Skákir Helga Ólafssonar og Guðmundar
Gíslasonar, Andra Áss Grétarssonar og Sævar Bjarnasonar fóru í
bið. Önnur umferð verður tefld í dag og tefla þá meðal annars sam-
an Hannes Hlífar og Sævar, Helgi Áss og Helgi Ólafsson, Jóhann
og Jón Garðar, Þröstur og Haukur, Tómas og Andri Áss og Guðmund-
ur og Björgvin. Umferðin hefst kl. 17.
Bankar um debetkort
Ianda
neytenda
BANKAMENN hafna staðhæfing-
um Kaupmannasamtaka íslands
um að þeir hyggist nota tilkomu
debetkorta til að greiða niður eig-
in fortíðarvanda með álögum á
notendur upp á einn milljarð
króna. Þeir segjast vinna í anda
yfirlýstra sjónarmiða Neytenda-
samtakanna um að verðleggja
eigi þjónustu miðað við tilkostnað
og þeir sem hagnýti sér þjón-
ustuna, kaupmenn jafnt og kort-
liafar, greiði fyrir hana.
Forsvarsmenn banka segja að
hagræði þjónustuaðila felist m.a. í
því að ábyrgð á greiðslum með de-
betkortum, greiðslur séu bókaðar
einum vaxtadegi fyrr inn á reikning
kaupmannsins og afgreiðsla með
debetkorti taki um 50 sekúndum
skemmri tíma en afgreiðsla með
tékka. Sparnaður vegna minnkandi
tékkaviðskipta komi bönkum til góða
en leggist ekki á neinn annan.
í upplýsingum frá Visa-ísland
kemur fram að 119 fyrirtæki með
140 útsölustaði hafi þegar samið við
fyrirtækið um debetkortaþjónustu.
Sjá bls. 27: „Þeir greiði..."