Morgunblaðið - 23.09.1993, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 23.09.1993, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1993 Kauptilboð Hagkaups í iambakjöt Leitað stuðnings samstarfshóps BEIÐNI Hagkaups um að fá að kaupa 200 tonn af lambakjöti af Kjötumboðinu, kjötafurðasölu sláturleyfishafa, hefur verið hafnað á þeirri forsendu að það sé ekki hægt nema til komi stuðn- ingur samstarfshóps um sölu á dilkakjöti. „Við óskuðum eftir að fá að samstarfshóps um sölu á dilkakjöti. kaupa 200 tonn af lambakjöti í Við höfum sent hópnum bréf þar gegnum Kjötumboðið og staðgreiða sem við óskum eftir að hann stuðli það á 210 krónur kílóið. Við vitum að því að hægt verði að selja okkur að þeir hafa verið að reyna að losa sig við kjöt erlendis á 150 krónur kílóið og töldum að svona fengi framleiðandinn meira fyrir þetta,“ sagði Þorsteinn Pálsson, fram- kvæmdastjóri Hagkaups. „I byrjun þessarar viku fengum við svar þess efnis að Kjötumboðið teldi sig ekki geta selt kjötið á þessu verði nema til kæmi stuðningur Rottuskipið landaði í Bolungavík RUSSNESKA skipið Nikolay Kononov kom í höfn í Bolunga-. vík um miðjan dag í gær og var löndun hafin úr skipinu. Skip- inu var vísað úr höfninni i Bol- ungavík á föstudag þar sem vart varð við rottugang um borð. Hollustuvernd ríkisins hyggst herða reglur um landan- ir skipa þar sem rottugangur hefur verið um borð. kjötið á 210 krónur og vonumst eftir jákvæðu svari fyrir vikulok. Við höfðum hugsað okkur að selja þetta kjöt á 199 krónur kílóið eins og við gerðum í ágúst en þá seldum við 100 tonn á örfáum dög- um. Við viljum gjarnan kaupa meira af þessu kjöti og selja það á þessu verði,“ sagði Þorsteinn. Haukur Halldórsson, í samstarfs- hópi um sölu á dilkakjöti, sagðist ekki geta mælt með að Hagkaup fengi kjötið. „Ég get ekki mælt með að Hagkaup fái einhveija sér- staka afslætti umfram aðra vegna þess að okkar reynsla er sú að þeir skili þeim ver en aðrir til neyt- anda,“ sagði hann og minntist á að markaður fyrir ódýrt lambakjöt væri að mettast. Þar að auki tók hann fram að aðeins væri um ær- kjöt og gamalt kjöt að ræða. Handboltamenn byrjaðir HANDKNATTLEIKSMENN hófu keppni í 1. deild karla í gærkvöldi er FH sigraði Selfyssinga 27:25. Vetraríþróttirnar eru því hafnar af fullum krafti en knattspymuleiktíðinni er ekki enn lokið því síðasta umferðin í 1. deild karla fer fram á laugardaginn. Skákþing íslands Úrslitráð- ast í dag TÍUNDA og næstsíðasta umferð á Skákþingi íslands var tefld í gær. Þröstur Þórhallsson er efst- ur, með 7'A vinning, en hann gerði jafntefli við Helga Áss Grétarsson. Helgi Ólafsson er með 7 vinninga en skák hans og Sævars Bjarnasonar var ólokið seint í gærkvöld. Helgi hafði ör- lítið betra, en líklegt þótti að hann þyrfti að sætta sig við jafn- tefli. Önnur úrslit urðu þau að Björg- vin Jónsson vann Andra Áss Grét- arsson, Haukur Angantýsson vann Guðmund Gíslason og skák Hann- esar Hlífars Stefánssonar og Jóns Garðars Viðarssonar fór í bið. Hannes Hlífar þykir eiga betra tafl í skákinni. Ellefta og síðasta um- ferð verður tefld i dag og hefst kl. 17 í Faxafeni. Þingflokkur Alþýðuflokksins samþykkir viðræður Breytinga óskað á sam- Karpov vann Timman Karpov vann Timman í Hollandi í gær, en.frá einvígi Kasparovs og Shorts bárust þær fréttir að Short hefði orðið fyrir miklu áfalli þegar aðstoðarmaður hans, Lubomir Kavalek, hætti störfum á þriðjudag og sneri heim til Bandaríkjanna. Talsmaður Shorts sagði að Kavalek hefði farið lieim af persór.ulegum ástæðum og hann myndi koma aft- ur en skákfræðingar í London segja að Kavalek hafi hætt vegna deilna sem upp komu í tengslum við ein- vígið. Sjá skákskýringu bls. 27 Skipið hefur haldið sjó á ísafjarð- ardjúpi síðan um helgina og hefur meindýraeyðir eitrað fyrir rottun- um. Að sögn Antons Helgasonar, heilbrigðisfulltrúa í Bolungavík, var skipinu heimilað að leggjast uppað og hefja löndun þegar rottur höfðu ekki komið í eitur í sólarhring. Hann sagði að reglur bönnuðu land- anir úr fiskiskipum þar sem rottu- gangur hefði verið um borð en um flutningaskip giltu ekki jafn skýrar reglur. Aríton sagði að umrætt skip væri vinnsluskip í flutningum og því hefði löndun verið heimiluð eft- ir að sýnt þótti að komist hefði verið fyrir rottuganginn um borð. þykkt um húsaleisrubætur sprenging í ^*7 ° spenmstoð ÞINGFLOKKUR Alþýðuflokksins samþykkti í gærkvöldi að ræða við Sjálfstæðisflokkinn um breytingar á samþykkt ríkissljórnarinnar um húsaleigubætur. Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra segir að þingflokkurinn hafi verið sammála um að ekki sé hægt að sætta sig við að bætumar verði eingöngu fjármagnaðar með skerðingu á félagslega húsnæðiskerfinu. Unnið hafði verið að samkomu- lagi um húsaleigubætumar fyrir þingflokksfund Alþýðufiokksins í gær, bæði innan Álþýðuflokksins og á milli stjómarflokkanna. Jó- han'na Sigurðardóttir átti meðal annars langan fund með Davíð Oddssyni forsætisráðherra um málið síðastliðinn þriðjudag. að fmmvarp um húsaleigubætur komi fram á Alþingi í haust þrátt fyrir að hún hafi fallist á að bætum- ar komi ekki til framkvæmda fyrr en árið 1995. Jóhanna sagði eftir þingflokksfundinn í gærkvöldi, að haustið væri ekki úrslitaatriði heldur væri verið að tala um að frumvarp- ið komi fram á komandi þingi. Að sögn Jóhönnu ræddi þing- flokkurinn ijárlagafrumvarpið og ríkisfjármálin almennt í gærkvöldi. „Fyrirvarar mínir við fjárlagafrum- varpið snúast að mörgu leyti um útfærslur á ýmsum atriðum. Sumir þeirra skýrðust þannig að þeir em út af borðinu. Aðra munum við ræða áfram,“ sagði Jóhanna. TÖLUVERÐUR reykur gaus upp er kefli sprakk í spennistöð Raf- magnsveitunnar við Tryggvagötu 17 síðdegis í gær. Slökkvilið var kallað á vettvang en enginn eldur kom í lq'ölfar sprengingarinnar. Rafmagnslaust varð um tíma í hluta miðbæjarins meðan viðgerð fór fram. Að sögn slökkviliðs varð lítið tjón vegna sprengingarinnar. Framkvæmdanefnd framleiðsluráðs landbúnaðarins Hertar reglur Haustíð ekki úrslitaatriði Anton sagði að Hollustuvemd ríkisins myndi herða reglur vegna rottugangs í skipum vegna þessa atviks, myndu þær reglur væntan- lega eiga við bæði vinnslu- og flutn- ingaskip og taka gildi í vikunni. Við athugun meindýraeyðis komu í ljós veraleg ummerki rottu- gangs í skipinu og 12 rottur fund- ust dauðar eftir að eitrað hafði ver- ið um borð. Ein rotta sást á bryggju- kantinum eftir að skipið lagðist uppað í Bolungavík á föstudag. Sagði Anton að ekki hefði tekist að ná henni og væri ekki vitað hvað af henni hefði orðið. „Mitt mat er að þingflokkurinn geti ekki sætt sig við að fjármögnun húsaleigubótanna komi eingöngu úr félagslega íbúðarkerfinu og menn hafí þá sameiginlegan skilning á þvi, ef það verður þannig, hvaða hættu það muni valda,“ sagði Jó- hanna við Morgunblaðið eftir þing- flokksfundinn. Hún sagði að fleiri þættir þeirra húsnæðismála sem rík- issjóður fjármagnaði yrðu að koma inn í þessa mynd. Jóhanna vildi ekki upplýsa nánar hveijir þeir þættir væm fyrr en rætt hefði verið við fulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Jóhanna hefur áður krafist þess Nægar birgðir af kalkúní FRAMKVÆMDANEFND framleiðsluráðs landbúnaðarins fjallaði i gær um umsókn Bónus um leyfi til að flylja inn kalkúnalæri. Nefnd- in komst að þeirri niðurstöðu að nægar birgðir væru til af kalkúna- kjöti í landinu og því væri ekki ástæða til að mæla með að leyfið yrði veitt. Jóhannes Jónsson, einn eigenda Bónus, segist ætla að leita samninga við fjármálaráðherra í dag eða morgun. „Við höfum komist að því að það em til um 17 tonn af kalkúnum í landinu. Þar af er eitthvað af leggj- um í lofttæmdum umbúðum. Þeir eru hins vegar ekki soðnir og krydd- aðir en við teljum að íslendingar geti alveg gert það,“ sagði Haukur Halldórsson, formaður framleiðslu- ráðsins, þegar rætt var við hann í gær. Leitum til dómstóla MK Tuttugu ára afmælis Menntaskól- ans i Kópavogi var minnst ígær 13 Skattsvik Ungir Svíar og Danir tilbúnari til að svíkja undan skatti en þeir eldri 16 Mengun sérfélög/iónadi *********** samaníeinaamtök í\f> Alttn *óUrlwh>pim. .1II.1 Ax#* if tim ,V> VIIma Liri irkjum furuLt |»éi ! Mikil olíu- og PCB-mengun hefur mælst á svæði Hringrásar í Kletta- görðum 27 Viðskipti/Atvinnulíf Leiðarí Lokauppgjörið hafið í Moskvu 26 ► Sex sérfélög í ein samtök - nemendafyrirtæki - hollenskt fyr- irtæki með meirihluta í saltfélag- inu - atvinnutryggingar - drau matölvan - VSK-bílar Dagskrd ► Nýtt fréttaumhverfí á Stöð 2 - Nýr útsendingartími á bamaefni - Gerð sjónvarpsmyndar um eyðni vandkvæðum bundin - Bíóin í borginni - Ný myndbönd „Það mátti svo sem búast við þessu miðað við fyrri gjörðir og athafnir þessara aðila. Þeir ætla náttúmlega að halda okkur ein- angruðum eins lengi og hægt er og leyfa okkur ekki að fá nasaþef af því hvað fólk í nágrannalöndun- um býr við. En þetta er vara sem er ekki framleidd hérna og mér fannst sjálfsagt að láta reyna á það. Nú og næsta skerf er auðvitað að við leitum til dómstóla til að fá tjón okkar endurgreitt úr ríkissjóði því kjötið fékk eðlilega tollmeðferð í Keflavík og þar af leiðandi kom það inn í landið en svo gerði toll- gæslan í Reykjavík það upptækt," sagði Jóhannes Jónsson og bætti við að honum fyndist þó sjálfsögð kurteisi að byija á því að leita samn- inga við fjármálaráðherra um mál- ið. Fundur þeirra yrði væntanlega í dag eða á morgun. 160 millj. tap í tveimur gjaldþrotum á Siglufírði ENGIN greiðsla fékkst upp í um 163 milljóna króna kröfur sem lýst var í hlutafélögin Sædór og Stapavík á Siglufirði, sem bæði urðu gjaldþrota 25. mars í vor og voru undir sljórn s’ömu aðila. Skiptum lauk nýlega. í þrotabú Sædórs, sem sam- kvæmt upplýsingum hlutafélaga- skrár var stofnað með 20 þúsund króna hlutafé árið 1983, til að stunda verslun, útgerð, fiskvinnslu og sölu sjávarafurða, var lýst 103,4 milljónum króna en engar eignir fundust í búinu. Ekki fundust heldur eignir í þrotabúi Stapavíkur hf. sem varð gjaldþrota sama dag. Félagið var stofnað með 500 þúsund króna hlutafé árið 1985 til að stunda útgerð og fiskvinnslu. Lýst var rúmlega 60 milljóna kröfum í þrotabúið. I k » i > » L V

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.