Morgunblaðið - 23.09.1993, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR FIMMTUDAGUR
23. SEPTEMBER 1993
51
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD KARLA
Valdimar
fóren
ekki Jón
Valdimar Grímsson, landsliðs-
maður í handknattleik, ákvað
endanlega í gær að skipta yfir í
KA úr Val. Hins vegar ákvað Jón
Kristjánsson, samheiji hans, sem
var á báðum áttum í fyrrakvöld,
að leika áfram með Valsmönnum í
vetur.
Félagarnir fóru til Akureyrar í
fyrradag og kynntu sér aðstæður.
Þeim bauðst atvinna fyrir norðan
og að athuguðu máli sló Valdimar
til en Jón, sem lék áður með öllum
flokkum KA, vildi ekki yfirgefa
Valsmenn.
Alfreð Gíslason, þjálfari KA,
sagðist hafa viljað fá báða menn-
ina, en ljóst væri að Valdimar
styrkti liðið mikið. „Ég vona bara
að hann verði með okkur gegn
Eyjamönnum, því það verður erfitt
að mæta þeim í fyrsta leik,“ sagði
Alfreð.
URSLIT
FH - Selfoss 27:25
Kaplakriki, 1. deild karla f handknattleik,
1. umferð, miðvikud. 22. september 1993.
Gangur leiksins: 1:0. 1:5, 4:7, 8:7, 11:9,
12:11, 14:11, 17:12, 19:13, 19:15, 22:15,
25:19, 25:21, 26:24, 27:24, 27:25.
Mörk FH: Hálfdán Þórðarson 7, Knútur
Sigurðsson 6/4, Gunnar Beinteinsson 5,
Sigurður Sveinsson 3, Kristján Arason 2,
Guðnón Árnason 2, Amar Geirsson 2.
Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson 15
(þaraf 6 til mótheija).
Utan vallar: 20 mínútur (þaraf fékk Guðn-
ón Árnason rautt spjald).
Mörk Selfoss: Sigurður Sveinsson 9/3,
Einar Gunnar Sigurðsson 5, Einar Guð-
mundsson 5, Siguijón Bjarnason 3, Grímur
Hergeirsson 1, Sigurpáll Aðalsteinsson 1,
Jón Þ. Jónsson 1.
Varin skot: Gísli Felix Bjamason 18/1 (þar-
af 4 til mótheija).
Utan vallar: 10 mínútur.
Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson og Hákon
Siguijónsson. Dæmdu rosalega strangt
samkvæmt nýju línunni og voru samkvæm-
ir sjálfum sér.
Áhorfendur: Fékkst ekki uppgefið.
1. deild kvenna
KR-FH 15:14
Mörk KR: Anna Steinsen 5, Brynja Stein-
sen 4, Selma Grétarsdóttir 1, Guðrún Sig-
hvatsdóttir 1, Nellý Pálsdóttir 1, Sæunn
Kjartansdóttir 1, Helga 1, Edda 1.
Mörk FH: Amdís Aradóttir 9, Björg Gils-
dóttir 3, Björk Ægisdóttir 1, Berglind Har-
aldsdóttir 1.
Grótta - Valur 17:17
Mörk Gróttu: Laufey Sigvaldadóttir 6,
Brynhildur Þorgeirsdóttir 5, Elísabet Þor-
geirsdóttir 3, Unnur Halldórsdóttir 1, Sig-
ríður Snorradóttir 1, Þórdós L. Ævarsdóttir
1. —
Mörk Vals: Irina Skorobogatykh 6, Ragn-
heiður Júlíusdóttir 4, Berglind Ómarsdóttir
4, Sigurbjörg Kristjánsdóttir 1, Gerður Jó-
hannsdóttir 1, Sonja Jónsdóttir 1.
Víkingur-Fylkir 30:19
Mörk Víkings: Svava Sigurðardóttir 6,
Halla maria Helgadóttir 6, Inga Lára Þóris-
dóttir 5, Elísabet Sveinsdóttir 4, Heiða Erl-
ingsdóttir 3, Heiðrún Guðmundsdóttir 2,
Helga Brynjólfsdóttir 2, Helga Jónsdóttir
1, Matthildur Hannesdóttir 1.
Mörk Fylkis: Anna G. Halldórsdóttir 6
Rut Baldursdóttir 5, Ágústa Sigurðardóttir
4, Anna G. Einarsdóttir 3, Eva Baldursdótt-
ir 1.
GOLF
Mótaröð hjá Keili
Keilismenn í Hafnarfirði und-
irbúa sig nú af fullum krafti
fyrir Evrópumót meistaraliða sem
fram fer á La Quinta golfvellinum
á Spáni í næsta mánuði. Einn liður
í fjáröflun klúbbsins er fimm mót
þar sem vegleg verðlaun verða veitt.
Þegar hafa tvö mót farið fram og
á laugardaginn er það þriðja en
samanlagður árangur í þremur
mótum af fimm telur til verðlauna,
utanlandsferðar fyrir tvo með Sam-
vinnuferðum-Landsýn. Verðlaunin
verða bæði veitt fyrir árangur með
og án forgjafar.
Morgunblaðið/Kristinn
Arnar Geirsson átti ágætan leik þegar FH sigraði Selfoss í fyrsta leik 1. deildar karla í gær. Hér er Einar Gunnar Sigurðsson til vamar og Oliver Pálmarsson
hefur gætur á-Hálfdáni Þórðarsyni á línunni.
Óskabyrjun Setfyss-
inga dugði skammt
FH-INGAR sigruðu Selfyssinga
í fyrsta leik 1. deildar karla i
handknattleik í Kaplakrika í
gærkvöldi. Gestirnir fengu
sannkallaða óskabyrjun og
komust í 1:5 en það dugði
skammt því FH sigraði 27:25 í
leik þar sem nýja „dómara-
línan" var mjög áberandi.
Guðjón Árnason gerði fyrsta
mark íslandsmótsins eftir
rúma mínútu og hann átti eftir að
koma meira við sögu
því þegar . tæpar
fimm mínútur voru
til leikhlés var hann
rekinn af velli í ann-
að sinn og mótmælti því nokkuð
og fékk að líta rauða spjaldið fyrir
vikið.
Gísli Felix var í. miklu stuði í
markinu og á upphafsmínútunum
sá hann um að FH skoraði ekki og
því komst Selfoss í 1:5. FH-ingar
komust síðan meira inn í leikinn
og komust yfir 8:7 og eftir það
náðu Selfyssingar aldrei foryst-
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
unnu. í síðari hálfleik voru FH-ing-
ar miklu betri og sigur þeirra í raun
aldrei í hættu. Sóknir Selfyssinga
voru illa skipulagðar í seinni hálf-
leik og mikið um sendingar sem
misfórust. Þetta nýttu hinir snagg-
aralegu leikmenn FH sér og skor-
uðu grimmt.
Gestirnir reyndu að taka á móti
sóknarlotum FH framar en heima-
menn brugðust rétt við því og áttu
í raun ekki í miklum vandræðum
því margir leikmenn liðsins eru
lagnir með boltann og sterkir mað-
ur á móti manni. „Ég held við höf-
um sýnt mikinn styrk í kvöld. Bar-
áttan var í góðu lagi og þegar þeir
komu lengra út á móti okkur tókst
okkur að svara því strax,“ sagði
Kristján Arason þjálfari FH eftir
leikinn.
Markverðirnir voru í aðalhlut-
verkum í gær en annars var það
liðsheildin hjá FH sem var sterk.
Kristján var í stöðu leikstjórnanda
og í stöðu skyttu vinstra megin var
Knútur Sigurðsson og komst hann
vel frá leiknum. Arnar Geirsson tók
stöðu Guðjóns Árnasonar og stóð
sig vel. Gunnar, Hálfdán og Sigurð-
ur léku einnig stórt hlutverk í hrað-
aupphlaupum liðsins. Hjá gestunum
tók Einar Gunnar vel við sér í síð-
ari hálfeik og Sigurður skoraði mik-
ið eins og venjulega. Einar var
sterkur en lítið kom út úr vinstra
horninu.
Dómararnir dæmdu talsvert
öðruvísi en þeir hafa gert hingað
til. Fyrir bakhrindingar og að toga
í peysur mótheija ráku þeir hik-
laust útaf og einnig voru þeir
strangir á öll óþarfa mótmæli. Leik-
menn áttuðu sig greinilega á þessu
í leikhléi og var leikur liðanna þá
allur annar. „Ég er ósáttur við þessa
nýju línu hjá dómurunum. Það er
allt of mikið rekið útaf. Handbolti
er ekki leikur án snertingar og dóm-
ararnir verða að aðlaga sig að
íþróttinni. Ég gæti sagt heilmikið
um dómarana en það má ekki því
þá fær maður bara leikbann og
sekt...“ sagði Kristján Arason þjálf-
ari og leikmaður FH allt anað en
hress með dómgæsluna.
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Þorvaldur lagði upp
mark gegn United
ÓVÆNTUSTU úrslit í ensku deildarbikarkeppninni í gærkvöldi var sigur
Þorvaldar-Örlygssonar og félaga í Stoke City, sem leikur í 1. deild, gegn
toppliði Manchester United úr úrvalsdeild. Þorvaldur lék með Stoke í
gærkvöldi, stóð sig prýðilega og lagði upp fyrra mark liðsins í 2:1 sigri.
Það var framheijinn Mark Stein sem gerði bæði mörkin, en Dion Dublin
jafnaði fyrir Manchester-liðið. Þetta var fyrri viðureign félaganna í 2.
umferð keppninnar og var leikið í Stoke. Leiksins var beðið með nokk-
urri eftirvæntingu, sérstaklega vegna þess að Lou Macari, stjóri Stoke,
er fyrrum leikmaður United. Hann fagnaði að þessu sinni, en á svo eftir
að fara með lið sitt á Old Trafford í.Manchester í síðari viðureignina.
Þorvaldur Örlygsson
sfíNffifílK
FOLK
I GUNNAR Beinteinsson fékk
að líta fyrsta gula spjaldið í hand-
boltanum í vetur. Það gerðist eftir
aðeins 22 sekúndur. Gunnar kom
aftur við sögu nákvæmlega þremur
mínútum síðar en þá var hann rek-
inn af velli í 2 mínútur fyrstur
manna.
■ SIGURÐUR Sveinsson hjá
Selfossi átti fyrsta skotið, eftir 55
sekúndur, en það var yfir. Guðjón
Árnason gerði fyrsta mark mótsins
eftir eina mínútu og þijár sekúndur.
■ GUÐJÓN skoraði eftir gegn-
umbrot og stoðsendinguna átti
Hálfdán Þórðarson. Eftir 2 mínút-
ur og 42 sekúndur varði Gísli Felix
fyrsta skotið í íslandsmótinu, frá
Guðjóni Árnasyni.
■ EINAR Gunnar átti fyrstu
línusendinguna sem gaf mark.
Hann gaf á Einar Guðmundsson
eftir þijá mínútur og 45 sekúndur.
Eftir 6,04 mínútur var fyrst dæmd
lína í deildinni, á Gunnar Bein-
teinsson og eftir 7,23 mínútur var
í fyrsta sinn dæmdur ruðningur, á
Kristján Arason.
■ AKETAS Panagoulias, þjálf-
ari gríska landsliðsins í knatt-
spyrnu, ber höfuðið hátt eftir að
hafa komið landsliðinu í fyrsta sinn
í lokakeppni HM, en liðið var í 2.
sæti á undan íslenska liðinu í riðla-
keppninni. Panagoulaias ætlar að
nota meðbyrinn og verður i fram-
boði til gríska þingsins, en kosning-
ar verða 10. október.
í kvöld
Handknattleikur
1. deild karla
Austurberg. KR - Víkingur .... 20
Garðabær: Stjarnan - Haukar 20
KA-hús: KA-ÍBV 20Í30
V alsheimili: Valur - ÍR .20.30
Varmá: UMEA-ÞórAk 20