Morgunblaðið - 23.09.1993, Side 17

Morgunblaðið - 23.09.1993, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ F'IMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1993 17 Ingvar Á. Guðmundsson formaður Meistara- og verktakasambands byggingarmanna Setja á hvata í skattkerf- iðtil að auka skattskil „ÞEIR byggingaverktakar sem hlíta reglum og lögum skattyfirvalda eru ekki samkeppnisfærir við þá aðila sem keyra sinn rekstur neðan- jarðar," segir Ingvar A. Guðmundsson, formaður Meistara- og verk- takasambands byggingarmanna, og kveðst taka undir gagnrýni þá sem Örn Kjærnested, formaður Verktakasambands íslands, lét í ljós um síðustu helgi á starfsemi byggingaverktaka sem fara ekki að skattalögum. „Hins vegar er þessi rekstur svo vel hulinn að hann kemur nær aldrei til okkar afskipta, og þótt við fáum ábendingar um brot á lögum eru þær sjaldnast nægilega rökstuddar til að rétt- læta aðgerðir." Ingvar segir að sambandið hafi reynt að fá skattyfirvöld til að grípa til aðgerða í þeim tilgangi að rétta hlut þeirra verktaka sem standa við sínar skyldur, því sjálft sé það ráðalaust gagnvart ólög- mætu athæfi fyrirtækja á þessu sviði og geti ekki gert sér fulla grein fyrir umfangi þeirra. „Við hofum t.d. beint því til skattyfir- valda að það verði settur inn hvati til að skapa meiri reikningsskil og þá ekki síst í viðgerðum og smærri framkvæmdum, á þann hátt að fólk geti fengið metið sannanlegan endumýjunar-og viðhaldskostnað mannvirkja til skatts í formi af- sláttar eða frádráttar. í þessu sambandi má benda á þann hvata sem byggður er inn í virðisauka- skattskerfið. Þetta ætti að vera hvatning fyrir fólk að taka reikn- inga af hveijum einasta verktaka og telja þennan kostnað fram.“ Ingvar segir að áþekkt kerfi hafi verið við lýði fyrir fáeinum áratugum síðan, en það hafí horf- ið við breytingar á skattalögum. Þess í stað hafi húseigendum ver- ið gefinn kostur á að telja slíka vinnu fram sem prósentuhlutfall og þak síðan sett á það. „Því mið- ur vírðast ný skattalög hafa ýtt undir svarta atvinnustarfsemi í þessari grein,“ segir Ingvar. Launagjöldum ekki skilað Ingvar segir að sambandið hafi einnig bent á að iðnnemar og iðn- sveinar sem vinna sem launþegar annist hluta af starfsemi verktaka utan venjulegs vinnutíma. „Þetta eru svokallaðir aukatímar og það er hrein ráðgáta hvernig og hvort sú vinna skilar sér nokkurn tímann inn í skattkerfið." Ingvar segir að Meistara- og verktakasamband bygginga- manna hafi einnig sett spurningar- merki við tilhneigingu fyrirtækja til að hafa „gervi-verktaka“ í sinni þjónustu. „Menn eru þá teknir út af launaskrá og gerðir að verktök- um, sem færist mjög í vöxt,“ seg- ir Ingvar, „og við teljum að ýmis launatengd og kjaratengd gjöld skili sér ekki nægilega vel til skatt- kerfisins með þessum hætti. Það er því deginum ljósara að fyrir- tæki og byggingameistarar í okkar röðum eru að slást við falda starf- semi sem þeir geta ekki staðist snúning við núverandi aðstæður." NORRÆNA FÉLAGIÐ í REYKJAVÍK Aðalfundur Norræna félagsins í Reykjavík verður haldinn í Norræna húsinu mánudag- inn 27. september kl. 17.00. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin hvetur félagsmenn til að fjölmenna á fundinn. Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson Eyjar steyptar á Reykjanesbraut við Vogaveg. Eyjar steypt- ar á Reykja- nesbraut Vogum. UNDANFARNAR vikur hefur verið unnið að breikkun Reykjanesbrautar við gatna- mót í Voga og til Grindavíkur og eyjar steyptar á brautina. Aðalverktaki við framkvæmd- ina er Loftorka og er stefnt að því að framkvæmdum verði lokið í þessum mánuði. Tíð umferðarslys hafa orðið við gatnamótin og er vonast til að með þessum fram- kvæmdum megi fækka þeim. - E.G. Fyrir þá sem vsij a meira pepperoni Við köllum hana Pepperoni-veislu og hún ber svo sannarlega nafn með rentu. A henni er sterk og bragðgóð pepperoni-kryddpylsa sem er stolt liússins - gerð samkvæmt kúnstarinnar reglum og alþjóðlegum gæða- og frainleiðslustaðli Pizza Hut. Á Pepperoni-veisluna setjum við ekta MozzareUa ost, þá mikið af ljúffengum pepperonisneiðum og ofan á þær tvö lög af blöndu úr MozzareUa osti, gómsætum Gouda og inildum Maribó. Svo kórónum við veisluna með því að dreifa öðru lagi af pepperoni yfir. Pizza Hut — einfaldlega meira af öllu. P -Hut Hótel Esja • 680809 • Mjódd • 682208 Frí heimsendingarþjónusta Um leið og við hjá Pizza Hut á íslandi fögnum 5 ára afmæli, fagnar Pizza Hut veitingahúsakeðjan 35 ára afmæli. Við erum stolt af því að tilheyra stærstu pizzukeðju í heimi með yfir 9.000 veitingastaði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.