Morgunblaðið - 23.09.1993, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 23.09.1993, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1993 Verðmæti heildaraflans mimikaði um milljarð milli 1992 og 1993 Verðmæti þorskaflans 2,6 milljörðum minna Aukinn loðnuafli, rækja og karfi vann upp á móti minnkun þorskafla VERÐMÆTI heildaraflans upp úr sjó milli kvótaáranna 1991-92 og 1992-93 minnkaði um einn milljarð króna þrátt fyrir að aflinn hafi aukist um 270.000 tonn. Munar þar mestu um að verðmæti þorskaflans minnkaði um 2,6 milljarða króna en aukinn loðnu- afli, rækja og karfi vann upp á móti minnkun þorskaflans. Sem kunnugt er af frétt Morgunblaðsins í gærdag olli verðlækkun á sjávarafurðum í erlendri mynt tímabilið ágúst í fyrra^til ágúst í ár því, að útflytjendur tðpuðu um 6 milljarða króna tekjum. Sam- anlagt er því tekjutap útflytjenda og útgerðar á þessu tímabili 7 milljarðar króna. Sveinn Hjörtur Hjartarsson hag- fræðingur LÍÚ segir að fyrrgreind- ar tölur séu miðaðar við verðlag aflans úr sjó á föstu verðlagi milli kvótaáranna og að stuðst sé við endanlegar aflatölur Fiskifélags íslands fyrir kvótaárið 1991-92 en bráðabirgðatölur fyrir kvótaárið 1992-93. Þorskurinn vegur þungt Heildaraflinn fór úr 1.414.000 tonnum og í 1.684.000 tonn milli þessara kvótaára og munar þar mestu um aukinn loðnuafla. Verð- mæti þessa afla minnkaði um einn milljarð, fór úr 48,5 milljörðum og niður í 47,5- milljarða sem er minnkun um 2%. Sveinn Hjörtur segir að þorsk- aflinn vegi þungt í þessum tölum því sá afli minnkaði um nær 40.000 tonn, fór úr rúmlega 272.000 tonn- um niður í rúm 234.000 tonn. Verðmæti þess afla upp úr sjó minnkaði úr 18,8 milljörðum kr. niður í 16,2 milljarða króna. Á móti minnkandi þorskafla kemur svo að karfaaflinn jókst úr 105.000 tonnum í 119.000 tonn og er þar úthafskarfi meðtalinn. Verðmæti karfaaflans jókst úr 6,1 milljarði kr. upp í 7,6 milljarða. Verðmæti loðnuaflans jókst á sama tímabili úr tæpum 2,7 milljörðum og í rúmlega 3 milljarða og rækju- aflinn jókst úr tæplega 4,5 millj- örðum króna og í tæplega 5,2 millj- arða króna. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Norðurljósamöstur FRANSKIR vísindamenn vinna nú að uppsetningu 20 mastra ratsjár- stöðvar rétt norðan við Stokkseyri. Þaðan verða send ratsjármerki upp í háloftin til rannsókna á norðurljósum. Mælmgar hefjast í mars eða apríl og standa í 10 ár. Þær eru liður í alþjóðlegu sam- starfsverkefni fimm þjóða en sjö sambærilegar ratsjárstöðvar verða reistar á norðurheimskautssvæðinu á næstu mánuðum. Frakkar standa straum af kostnaði við uppsetningu stöðvarinnar en starfs- menn Raunvísindastofnunar Háskóla íslands koma til með að sjá um rekstur hennar og taka þátt í úrvinnslu mæliniðurstaðna. i I I I VEÐUR VEÐURHORFUR ÍDAG, 23. SEPTEMBER YFIRLIT: Yfír vestanverðu Grænlandshafi er 980 mb leegð, sem þokast norðaustur en skil við Vesturland hreyfast austur og verða komin aust- ur af landinu um miðjan dag á morgun. Heldur kólnar um vestanvert landið en annars breytist hiti fremur lítið. SPÁ: Suðvestankaldi. Skúrir um sunnan- og vestanvert landið, en ann- ars þurrt. Hiti 6-13 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Suövestlæg átt. Skúraveður og þriggja til sjö stiga hiti um mest allt land, þó líklega þurrt noröaust- an- og austanlands og þar má einnig búast við næturfrosti. HORFUR Á SUNNUDAG: Útlit fyrir sunnanátt og hlýnandi veður. Rign- ing veröur sunnanlands og vestan, en þurrt norðaustantil. Nýir veöurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22. 30. Svarsími Veðurstofu fslands — Veðurfregnir: 990600. o & Heiðskírt Léttskýjað / / / * / * / / * / / / / / * / Rigning Slydda o Hálfskýjað * * * * * * * * Snjókoma Skýjað Alskýjað Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. 10° Hitastig v súld = , Þoka rtig.. ■? FÆRÐÁ VEGUM: (Kl.17.30ígær) sjóðvegir landsins eru flestir í góðu ásigkomulagi og greiðfærir. Víða =r þó unnið að vegagerö og þurfa vegfarendur að haga akstn sam- cvæmt merkingum þar. Hálendisvegir eru færir fjallabilum, Gæsavatna- eiö er fær til austurs frá Sprengisandi. . Uoolýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti i sima 91-631500 og í grænni línu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma Akureyri Reykjavfk hiti veður 12 alskýjað 10 súld Bergen Helslnki Kaupmannahöfn Narssarssuaq Nuuk Osló Stokkhóimur Þórshöfn vantar 14 þokumóða 13 þokuruðningur 2 slydda 0 snjókoma vantar 16 skýjað 10 skýjað Amsterdam Barcelona Berlfn Chicago Feneyjar Fronkfurt Glasgow Hamborg London LosAngeles Lúxemborg Madrfd Malaga Mallorca Montreal New York Orlando Parfs Madeira Róm Vín Washington Winnípeg 23 skýjað 17 þokumóða 24 þrumuveður 20 þokumóða 14 skúr 24 þokumóða 23 skúr 14 skýjað 16 alskýjað 17 skýjað 17 alskýjað 21 skýjað 20 hálfskýjað 26 hálfskýjað 29 skýjað 7 léttskýjað 15 alskýjað 23 léttskýjað 17 alskýjað 23 léttskýjað vantar 22 helðskfrt 17 þokumóða 5 súld IDAG kl. 12.00 Heimild: Veðurstofa íslands (Byggt á veðurspó kl. 16.15 í gær) Verkkaupar hvetja til skattsvika segir 1 forseti Landsambands iðnaðarmanna Hætta á að missa verk ef þeir neita HARALDUR Sumarliðason, forseti Landsambands iðnaðarmanna, kveðst þekkja fjölmörg dæmi þess að þeir sem starfa við frágang og innréttingasmíði verði fyrir miklum þrýstingi frá verkkaupa um að vinna svart. „Oft eru þetta einstaklingar sem eru að byggja sjálfir eða kaupa fokhelt. Framhaldsvinna við þessar eignir virðist hverfa gífur- I lega mikið og ég veit að sumir hafa gengið svo langt að segja iðnaðar- manninum að hann missi verkið að hluta eða öllu ef hann samþykki ekki þessa skilmála,“ segir Haraldur og nefnir einnig alvarleg undan- skot í sambandi við vinnu við viðhald og endurbætur í byggingum. Haraldur segir ennfremur að þeg- ar tilboð í verk eru skoðuð með til- liti til eðlilegra kostnaðaráætlana sé ljóst að ýmsir verktakar virðist frá upphafi gera ráð fyrir að þurfa ekki að greiða skatta vegna vinnu sinn- ar. „Aðilar í tilboðum eru sumir hveijir að bjóða fram þjónustu fyrir yerð sem ekki stenst, þannig að manni finnst ólíklegt að þeir hafi gert ráð fyrir að skila því sem þeir eiga að skila. Þannig er samkeppnis- staðan orðin kolröng fyrir heiðarlega verkbjóðendur.“ Haraldur segir að Landsamand iðnaðarmanna hafi árum saman ósk- að eftir samráði við opinbera aðila til að sporna við svartri atvinnustarf- semi. „Við höfum ekki frekar en önnur samtök nándar nærri góðar upplýsingar um skattsvik, en vitum að þetta er mikið vandamál og verð- ur æ flóknara. Að hluta til stafar það af mikilli skattheimtu og eftir því sem hún eykst-finnst mönnum allt að því réttlætanlegt að fara í kringum lögin. Þetta kallar á að ein- staklingum -verði veittur skattaf- sláttur vegna t.d. viðhalds og end- urnýjunar, svo að skil aukist." Greiðslumark í sauðfjárrækt lækkar Vilja flylja út 2601 á kostnað ríkisins FULLTRÚAR kindakjötsframleiðenda hafa lýst yfir því að þeir áskilji sér rétt til að flytja út 260 tonn af kindakjöti á kostnað ríkisins til að mæta lækkuðu greiðslumarki en það fer úr 8.150 tonnum fyrir nýhafið verðlagsár í 7.670 fyrir 94/95. Landbúnaðarráðherra tilkynnti í fyrradag greiðslumark í sauðfjár- rækt fyrir verðlagsárið 1994/95, 7.670 tonn, í samræmi við niður- stöðu framkvæmdanefndar búvöru- samninga. Framleiðsluráð landbún- aðarins lagði til að greiðslumark 94/95 yrði 7.800 tonn og munar því 130 tonnum á tillögum þess og end- anlegu greiðslumarki. Fulltrúar bænda í nefndinni héldu því fram að í útreikningum fyrir greiðslumark 94/95 yrði að taka tillit til kinda- kjötsútsölu sem ríkisvaldið stóð fyrir í september 1992 og þess samdrátt- ar í sölu og neyslu sem hún olli sl. vetur. Fulltrúar ríkisvaldsins vildu ekki gangast við þessum áhrifum útsölunnar. Framkvæmdanefndin ákvað jafn- framt lækkun greiðslumarks að nýta heimild í búvörusamningi til að færa framleiðslu kindakjöts niður um 270 tonn til viðbótar og nota það bein- greiðslufé sem við það sparast til markaðsaðgerða innanlands. Þetta þýðir að framleiðsla kindakjöts næsta haust dregst saman um 9,2% eða 750 tonn, fer úr 8.150 tonnum í 7.400. Beingreiðslur til bænda lækka um 154 milljónir króna. Þar af verður um 55 milljónum króna varið til markaðssetningar lambakjöts á inn- anlandsmarkaði. Lækkun bein- greiðslna fyrir ríkissjóð verður því tæpar 100 milljónir króna. I fréttatilkynningu frá Upplýs- ingaþjónustu landbúnaðarins segir að fyrir sauðfjárræktina jafngildi þessi 750 tonna framleiðslusam- dráttur, auk lægri beingreiðslna, því að grundvallarbúum fækki um 99 eða úr 1.069 í 970 og ársverkum innan greinarinnar fækki um 181, úr 1.946 í 1.765.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.