Morgunblaðið - 23.09.1993, Side 25
MORGDNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SÉPTFMBER1993
25
ÍGSINS
Alexander Rútskoj varaforseti og „forseti“ Rússlands
Stríðshetjan átti ekki sam-
leið með menntamönnunum
The Daily Telegraph.
ALEXANDER Rútskoj, vacafor-
setinn sem rússneska fulltrúa-
þingið útnefndi forseta á þriðju-
dag, var lengi vel einn nánasti
aðstoðarmaður Borís Jeltsíns
Rússlandsforseta. Það var jafn-
vel talið snilldarlegt pólitískt
bragð hjá Jeltsín er hann út-
nefndi stríðshetjuna Rútskoj sem
varaforsetaefni sitt fyrir kosn-
ingarnar árið 1991. Þar með var
hins vegar einnig búið að koma
til valda metnaðarfullum lýðskr-
umara sem hefur harðlega gagn-
rýnt hina efnahagslegu umbóta-
stefnu stjórnar Jeltsíns og ekki
Iegið á þjóðernishyggju sinni.
Rútskoj fæddist árið 1947 í borg-
inni Kmelnitskí í Úkraínu. Hann
starfaði lengi sem herflugmaður,
var tvisvar sinnum skotinn niður í
stríðinu í Afganistan og tekinn til
fanga af mujahidden-skæruliðum.
Eftir stríðið hóf hann afskipti af
stjórnmálum og náði kjöri sem
þingmaður á sovéska fulltrúaþing-
inu árið 1990. Þar gerðist hann
einn af helstu andstæðingum
flokkskerfisins og átti ríkan þátt í
því að kljúfa kommúnistaflokkinn.
Tryggði stuðning hermanna
Árið 1991 var Rútskoj kjörinn
varaforseti, en hann hafði öðlast
traust Jeltsíns með því að tryggja
honum stuðning hermanna og þjóð-
ernissinna. Það hentaði því Jeltsín
að hampa Rútskoj fyrir kosningar
en að þeim loknum vissu forsetinn
og stuðningsmenn hans ekki alveg
hvað þeir ættu að gera við varafor-
setann.
Rútskoj var aldrei stuðnings:
maður umbótastefnu Jeltsíns. í
besta falli umbar hann hana á köfl-
um en oft réðst hann harkalega
gegn henni.
Varaforsetinn stóð hins vegar
eins og klettur við hlið Jeltsíns í
valdaráninu í ágúst 1991. Hann
hvatti alla „menn með sjálfsvirð-
ingu“ til að safnast saman í kring-
um þinghúsið og verja lýðræðið.
Sjálfur tók hann sér vélbyssu í
hönd og flaug niður á Krímskaga
til að frelsa Míkhaíl Gorbatsjov
Sovétforseta úr haldi. Er taiið að
seta og andstæðinga hans í Æðsta
ráðjnu og á fulltrúaþinginu.
Á báða bóga eru menn sakaðir
um bruðl og spillingu af ýmsum toga,
svo sem að hygla vandamönnum og
draga sér af almannafé. Upphæðir
sem nefndar eru í þessum málum
eru slíkar að venjulegur rússneskur
borgari nær ekki upp í nefið á sér.
Þegar ástandið í þjóðfélaginu er eins
slæmt og raun ber vitni og stjórn-
málamenn halda uppi slíkum hætti
er ekkert sem lýsir betur þeirri gjá
sem myndast hefur milli þeirra og
fólksins í landinu.
Þegar fréttaritara Morgunblaðsins
bar síðla í gær að garði Hvíta húss-
ins svokallaða þar sem þingið hefur
aðsetur var allt með kyrrum kjörum.
Þó mátti sjá hópa fólks flagga fánum
fyrrverandi Sovétríkja og nokkrir
vegatálmar höfðu verið reistir. Tals-
vert var af lögreglu og hermönnum
einnig mátti greina nokkra sjúkra-
bíla sem hafðir voru til taks svo lítið
bar á.
Fyrir utan þetta svæði gekk lífið
sinn vanagang og margt fólk var á
ferð „bara til þess að forvitnast" eins
og kona ein orðaði það. I 100 metra
fjarlægð frá Hvíta húsinu er bifreiða-
verkstæði þar sem menn unnu baki
brotnu fram eftir degi. Forstöðumað-
urinn hafði í nógu að snúast og
ummæli hans lýsa best hug manna
í Moskvu þessa stundina: „Þeir þræta
um þetta í nokkra daga svo kemur
helgi og þá fara þeir allir í sumarhús-
in sín.“
Reuter
Embættiseiður
ALÉXENDER Rútskoj, varaforseti
Rússlands sver embættiseið sem for-
seti landsins í fyrrakvöld, samkvæmt
ákvörðun Æðsta ráðsins.
valdaránsmennirnir hafi fyrirskip-
að að tortíma ætti vél Rútskojs við
lendingu.
Ýtt til hliðar eftir valdaránið
Eftir valdaránið var aðalóvinur
rússnesku stjórnarinnar aftur á
móti ekki harðlínumenn í valda-
ránshug heldur ört hnignandi efna-
hagslíf. Rútskoj var því ýtt til hlið-
ar en hámenntuðum hagfræðingum
hampað. Einangrun varaforsetans
jókst eftir því sem gagnrýni hans
harðnaði. Menntamennirnir sem
stjórnuðu efnahagsumbótunum
voru ekki að hafa fyrir því að ráð-
færa sig við Rútskoj og hann kall-
aði þá á móti „stráka í bleikum
buxum“. Rútskoj var ekki gáfu-
maður heldur harðjaxl úr hernum
og gat því ekki rætt við hagfræð-
ingana í ríkisstjórninni á þeirra
nótum. Hann herti því í staðinn
baráttuna og krafðist þess jafnvel
að þeir, sem að hans mati væru
að koma Rússlandi á hausinn, yrðu
dregnir fyrir dómstóla.
Ekki hjálpaði það að Rútskoj var
lengi vel nánast aðgerðalaus og
meðal helstu verkefna hans var að
taka á móti trúnaðarbréfum er-
lendra sendiherra og aðstoða við
að frelsa stríðsfanga í Afganistan.
Einungis einu sinni fékk hann
að móta stefnuna og það endaði
með ósköpum. Rússar voru nær
komnir í styrjöld við Kákasuslýð-
. veldið Tsjetsjeníu sem hefur lýst
yfir sjálfstæði frá Rússlandi.
Fékk hinn „eitraða kaleik“
Aðstoðarmenn Jeltsíns gerðu sér
smám saman grein fyrir því að ein-
hvern veginn yrði að halda hinum
eirðarlausa Rútskoj við efnið og
því voru honum gefin forráð
í baráttunni gegn spillingu og
í landbúnaðarmálum, en þau
eru stundum kölluð hinn „eitr-
aði kaleikur" rússneskra
stjórnmála. Það særði stolt
Rútskoj þegar hann áttaði sig
á því að hann hafði í raun
engin völd til að koma á breyt-
ingum. í staðinn markaðssetti
hann sig sem helsta stuðn-
ingsmann og verndara lítil-
magnans í baráttunni gegn
hinum fijálsa markaði. Hann
reyndi einnig að viðhalda
tengslunum við herinn og afla
sér vinsældá í þungaiðnaðin-
um. Rútskoj varð að harðasta
þjóðernissinnanum í stjórninni
og gerðist talsmaður þess að
hervaldi yrði beitt til að
vernda rússneska hagsmuni í
fyrrum Sovétlýðveldum. Fræg
eru ummæli hans þess efnis
að Rússar ættu ekki að láta
af hendi „einn einasta dropa
af hinni heilögu olíu sinni“.
Ef til vill hefur hinn póli-
tíski stíll Rútskojs mótast
mikið af því að hann hefur
takmarkaða reynslu af öðru
en þeim harða aga sem ein-
kennir hermennskuna. Póli-
tíska bandamenn hefur hann
fyrst og fremst fundið innan
raða Borgarabandalagsins,
sem er samsafn miðjumanna
er vilja hægar umbætur, veruleg
ríkisafskipti (jafnvel takmarkaðan
áætlunarbúskap) og umfangsmikla
félagslega þjónustu. Bar hann oft
skilaboð á milli forsetans og Borg-
arabandalagsins og afhenti Jeltsín
lista yfir ftjálslynda ráðherra sem
bandalagið vildi láta reka.
Deilur forsetans og þingsins í
desember i fyrra, er Jegor Gajdar
forsætisráðherra varð að láta af
störfum, mörkuðu þáttaskil í sam-
skiptum Jeltsíns og Rútskojs. Vara-
forsetinn tók afstöðu gegn forset-
anum og í kjölfarið fóru miðjumenn
að krefjast afsagnar Jeltsíns. í
staðinn vildu þeir fá Alexander
Rútskoj í embættið.
Reuter
Ekki frjáls að fullu
JOHN Demjanjuk heldur út í flugvél og áleiðis til Bandaríkjanna.
Demjanjuk snýr heim frá ísrael
Morðhótanir og
ný málshöfðun
New York, Medina. Reuter.
ÚKRAINUMAÐURINN John Demjanjuk, sem ísraelskur hæstiréttur
sýknaði af ásökunum um að vera hinn illræmdi fangavörður „Ivan
grimmi", kom til Bandaríkjanna frá ísrael í gær. Hann hélt þegar til
heimilis síns í Cleveland, Ohio. Demjanjuk bíða önnur réttarhöld þar
sem reynt verður að færa sönnur á að hann eigi hlut að striðsglæpum.
Demjanuk er 73 ára. Hann var ~ , ,
Kroatar vilja
friðargæslu-
liðið burt
ákærður fyrir að hafa verið vörður
í Treblinka-útrýmingarbúðum nas-
isa í Póllandi í síðari heimsstytjöld.
Bandaríkjamenn framseldu hann til
ísraels en ekki tókst að færa sönn-
ur á að hann væri Ivan Martsjenko,
kallaður „ívan grimmi". Var Demj-
anuk sýknáður í júlí en ekki látinn
laus fyrr en í gærmorgun.
Ljósmyndari sem var í sömu flug-
vél og Demjanjuk sagði að and-
rúmsloftið um borð hefði verið afar
óvinveitt Demjanjuk, heittrúaðir
gyðingar meðal farþega hefðu hóp-
ast að honunt. Við komuna til
Kennedy-vallar gerðu mótmælend-
ur hróp að Demjanuk en fjöldi lög-
regluþjóna gætti öryggis hans.
Og erfiðleikum Demjanuk er
langt í frá lokið. Honum hafa bor-
ist morðhótanir frá öfgasinnuðum
gyðingum og lýsti tengdasonur
hans því yfir að Demjanjuk geti
aldrei um fijálst höfuð strokið þar
sem hann geti ekki farið út úr húsi
án fylgdar. Þá bíða Detnjanjuks
önnur réttarhöld þar sem hópar
gyðinga og ísraela hafa höfðað mál
á hendur honum fyrir bandarískum
dómstólum. Saka þeir hann um að
hafa verið fangavörð í öðrum út-
rýmingarbúðum nasista, þar á með-
al Sobibor í Póllandi.
Zagreb, Brussel, Sar^jevo. Reuter.
STJÓRNVÖLD í Króatíu sögð-
ust í gær mundu krefjast brott-
flutnings friðargæsluliðs Sam-
einuðu þjóðanna frá landinu í
næstu viku nenia samtökin við-
urkenndu rétt þeirra til að af-
vopna Serba á þeim svæðum
sem þeir ráða. David Owen,
sáttasemjari Evrópubanda-
lagsins og SÞ, segist bera kvíð-
boga fyrir framtíðinni fallist
múslimar ekki á tillöguna um
skiptingu Bosníu.
Á þeim fjórum svæðum, sem
serbneskir uppreisnarmenn í Kró-
atíu ráða, eru nú um 15.000 frið-
argæsluliðar samkvæmt vopna-
hléssamningum. Á einu þessara
svæða, Krajina-héraði, hafa
Serbar lýst yfir stofnun lýðveldis.
Atlantshafsbandalagið,
NATO, hefur ákveðið að senda
allt að 50.000 hermenn til Bosníu
til að fylgjast með framkvæmd
friðarsamninga verði þeir undir-
ritaðir.
Efamol gegn síþreytu
í sjónvarpsþætúnum „Milli svefns og vöku“ úr þáttaröðinni „The Nature of Things"
var fjallað um síþreytu (sýndur 25.08.93).
Eina efnið sem nefnt var að kæmi að gagni gegn síþreytu
er EFAMOL og höfðu þeir sjúklingar sem við var rætt
fengið verulegan bata með EFAMOL. Einnig kom fram
að rannsóknir skoskra vísindamanna hafa
staðfest virkni EFAMOLS gegn síþreytu.
EFAMOL er hrein náttúruafurð, unnin úr náttljósarolíu.
Guli miðinn trvggir gæðin.
Fœst í heilsubúðum, lyfjabúðum og
heilsuhUlum matvöruverslanna.
Eilsuhúsið
Kringlunni sími 689266 Skólavörðustíg sími 22966
Éh
Innanlandslína Flugleiða
Farpantanir og sala farmiða í innanlandsflugi.
Upplýsingar um ferðargjöld og ferðir innanlands.
Opið alla daga frá
kl. 08.00 - 18.00.