Morgunblaðið - 23.09.1993, Qupperneq 31
31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1993
Menntaskólinn við Hamrahlíð
Ráðstefna um líf-
fræðikennslu
LÍFFRÆÐIFÉLAG íslands og Samlíf, félag líffræðikennara, gengst
fyrir ráðstefnu um líffræðikennslu í Menntaskólanum við Hamra-
hlíð á morgun, föstudaginn 24. september og laugardag, 25. septem-
ber. Aðal fyrirlesari á ráðstefnunni verður dr. Jack Jackson, yfirmað-
ur raungreinadeildar skoska skólaeftirlitsins.
Eitt atriði úr myudinni Hinir óæskilegu.
Laugarásbíó sýnir
Hinir óæskilegu
Jackson hefur um langt árabil
haft eftirlit. með líffræðikennslu í
Skotlandi og mun hann m.a. greina
frá hlutverki Skoska skólaeftirlitsins
við mat og greiningu á gæðum
menntunar í grunn-og framhalds-
skólum. Hann mun einnig ræða um
virkt nám og kennslu í líffræði og
á hverju það byggist.
Á ráðstefnunni verður einnig fjall-
að um stöðu líffræðikennslu á öllum
skólastigum hérlendis og hugað að
því sem koma skal í þeim efnum.
Ráðstefnan verður sett kl. 13.15
á morgun, föstudag, í Menntaskól-
anum við Hamrahlíð.
LAUGARÁSBÍÓ hefur tekið til
sýningar myndina Hinir óæski-
legu eða „Menacez Society".
Mynd þessi fjallar á hispurslausan
hátt um götulíf í Watts-hverfinu í
Los Angeles þar sem glæpir og morð
eru daglegt brauð, jafnvel afþreying.
Aðalpersóna myndarinnar eru Caine
sem alinn er upp af föður sem hefur
lifibrauð af því að selja eiturlyf og
móður sem er ánetjuð heróíni. Hann
er fæddur í heim glæpa og þaðan
virðist engin leið burtu. Caine má
horfa á móður sína deyja af of stór-
um skammti og á föður sinn myrða
mann á götu úti. Caine leiðist sjálfur
út í eiturlyíjasölu og gengur um með
byssu upp á vasann. Þrátt fyrir að
vilja flýja þetta líf ei: hann bundinn
Qötrum vanans, þar sem ungir, fá-
tækir svertingjar eiga sér enga út-
gönguleið.
Hinir óæskilegu hefur hlotið fá-
dæma góða dóma hvarvetna í heim-
inum og hlaut hún m.a. verðlaun á
kvikmyndahátíðinni í Cannes fyrir
bestu frumraun í leikstjóm. Það eru
hinir ungu tvíburabræður, Albert og
Allan Hughes, sem leikstýra en þeir
hafa verið viðriðnir kvikmyndagerð
frá tólf ára aldri.
Fræðslufund-
urum slitgigt
GIGTARFÉLAG íslands stóð
fyrir fræðslufundaröð um ein-
staka gigtsjúkdóma sl. vor og
var mjög góð aðsókn en um 100
manns sóttu hvern fund að
meðaltali. Ætlunin er að halda
slíku fræðslustarfi áfram nú í
haust og fjallar fyrsti fræðslu-
fundurinn um slitgigt og hefst
hann kl. 20.30 í Arsal Hótel
Sögu í kvöld, fimmtudags-
kvöld.
Þessi sjúkdómur er talinn al-
gengastur gigtsjúkdóma en miðað
við reynslu annarra þjóða má
reikna með því að 15% Islendinga
sé á hveijum tíma með slitgigta-
reinkenni.
Á fundinum mun Helgi Jónsson
sérfræðingur í gigtsjúkdómum
flytja erindi um helstu orsakir og
meðferð fólks með slitgigt og kem-
ur hann til með að greina sérstak-
lega frá nýjustu rannsóknum á
sjúkdómnum. Þá ætlar Brynjólfur
Mogensen, sérfræðingur í bæklun-
arsjúkdómum að fjalla um þær
aðgerðir sem fólki með slitgigt
stendur til boða. Aðgangur er
ókeypis og eru allir velkomnir
meðan húsrúm leyfír.
(Fréttatilkynning) r
Fjórða heimsókn Gurudev
GURUDEV (Yogi Amrit Desai) er væntanlegur hingað til lands í
október og muna verðá með fyrirlestur og námskeið í íþróttahús-
inu við Strandgötu, Hafnarfirði, dagana 22.-24. október. Að þessu
sinni ber námskeiðið titilinn: Máttur sjálfsþekkingar.
Þetta er fjórða heimsókn
Gurudevs hingað til lands en hann
hefur hlotið ýsmar viðurkenningar
frá Indlandi svo sem „doktor í
jóga“ og „alheimskennari“
(jagadacharya).
Innritun og nánari upplýsingar
fást hjá Jógastöðinni Heimsljósi,
Skeifunni 19, milli kl. 17-19 alla
virka daga.
(Úr fréttatilkynningu)
Vandað húsnæði
214 fm + 403 = 617 fm.
Til sölu eru 214 fm eining á verslunarhæð auk
403 fm lagerhúsnæðis með innkeyrsludyrum.
Húsnæðið er mjög vandað og tilbúið til afhend-
ingar strax. Möguleiki er á að taka minna skrif-
stofu- eða iðnaðarhúsnæði upp í sem huta af
kaupverði. Hagstæð greiðslukjör.
Upplýsingar í síma 812312 milli kl. 9 og 5 á
daginn, og 671399 á kvöldin.
Símboði 984-58801.
Glæsileg opnunarlllboð I tilefni af opnun nýrra höfuðstöðva
ÚRVALS-ÚTSÝNAR að Lágmúla 4.
Aðeins örfá sæti í hverja ferð!
> Oonunartilboö 1
Portúgal
Vikuferð frá
Mallorca
37.310 kr.
Tveir í stúdíói með öllum sköttum!
2 vikur frá
42.310 kr.
Tveir í stúdíói með öllum sköttum!
.sept.
2 vikur frá
43.410 kr.
Tveir í stúdíói með ölium sköttum!
Edinborg - Sigurborgin í ár
Síðustu sætin í október!
7. okt. Uppselt 21.okt. 11 sætilaus
10. okt. Uppselt 24. okt. Laus saeti
14. okt. Uppselt (4 sæti laus frá Akureyri) 28. okt. Uppselt
17. okt. Uppselt (8 sæti laus frá Akureyri) 31. okt. Laus sæti
^rÚRVAL-ÚTSÝN
Lágmúla 4: sími 699 300, við Austurvöll: sími 2 69 00,
í Hafnarfirði: sími 65 23 66, við Ráðhústorg á Akureyri: simi 2 50 00
- og hjá umboðsmömium um land altt.