Morgunblaðið - 30.09.1993, Side 1

Morgunblaðið - 30.09.1993, Side 1
80 SIÐUR B/C/D 221. tbl. 81.árg. FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins Reuter Stimpast í snjókomunni TIL nokkurra ryskinga kom í Moskvu í gær með lögreglumönnum og stuðningsmönnum þingsins og var eitthvað um um meiðsl, Hefur lögreglan verið að þrengja hringinn um húsið og nálægar götur eru lokaðar öðrum en þeim, sem við þær búa. Hefur þingmönnunum, sem enn eru í húsinu, um 150 talsins, verið gefinn frestur til mánudags að fara burt en þeir heita á móti að gefast aldrei upp. Verulega er farið að kólna í Rússlandi og féll fyrsti snjórinn í Moskvu í gær. Samningar í Bosníu dragast á langinn Þing' múslima setur skilyrði Sarajevo, Brussel. Reuter. ÞINGIÐ í Bosníu, þar sem múslimar eru þorri fulltrúa, samþykkti í gær að nafninu til síðustu friðaráætlun sáttasemjaranna Owens lávarðar og Thorvalds Stoltenbergs en setti skilyrði sem að áliti stjórnmálaskýrenda jafngilda höfnun. Þingmenn krefjast þess að yfirráð á „landsvæðum sem tekin hafa verið með hervaldi" verði látin af hendi. Samkvæmt friðartillögunum er gert ráð fyrir að þjóðabrotin fái hvert sitt smáríki og Króatar hafa samþykkt að múslimar fái aðgang að hafi. Jafnt Serbar sem Króatar, sem ráða samanlagt yfir um 90% alls landsvæðis í landinu, hafa neit- að að láta múslima hafa meira land en kveðið er á um í tillögunum. Múslimar hafa krafist þess að fá 4% meira land í austurhluta Bosníu þar sem Serbar hafa töglin og hagldirnar. Varaforseti Bosníu, músliminn Ejup Ganic, sagði eftir síðasta fund deiluaðila að nú bæri að ræða afsal þeirra svæða sem tekin hefðu verið með valdi og þar sem þjóðarmorð hefði verið framið. Þingið hefði vilj- að skapa skilyrði fyrir því að alþjóð- legt friðargæslulið gæti komist á vettvang. ----♦-.----- Heilsugæslukostn- aður í Frakklandi Útgjöld tí- földuðust á 12 árum París. Reuter. Rússneskir þingmenn fá frest til mánudags til að yfirgefa Hvíta húsið Varað við banatilræð- um og hryðjuverkum Moskvu. Reuter. RÚSSNESKA stjórnin hefur gefið þingmönnum nýjan frest til að yfirgefa þinghúsið í Moskvu, eða til mánudags 4. október. Pavel Gratsjev, varnarmálaráðherra Rússlands, sagði í gær, að herskáir harðlínumenn rækju áróður fyrir árásum á og tilræðum við leið- toga landsins og kvað hann hugsanlegt, að til blóðsúthellinga kæmi. Leiðtogar ýmissa héraða í Síberíu hótuðu í gær að stofna þar sjálf- stjórnarlýðveldi tæki Borís Jeltsín, forseti Rússlands, ekki aftur tilskipunina um að leysa þingið upp en hann svaraði fyrir sig með því að boða sambandsráðið, sem fulltrúar héraðanna skipa, til fund- ar um kreppuna í stjórnmálum landsins. Rússlands, endurskoðaði Jeltsín ekki ákvörðunina um að leysa upp þingið og létu að því liggja, að þing- inu yrði fundinn staður í Síberíu. Miklar efasemdir komu þó fram á fundi leiðtoganna um þessa sam- þykkt en sagt er, að undirrót henn- ar sé fyrst og fremst óánægja með miðstjórnarvaldið í Moskvu, sem krefjist skattanna en láti lítið sem ekkert koma í staðinn. /tar-Tass-fréttastofan hafði í gær eftir Gratsjev, varnarmálaráð- herra Rússlands, að hann hefði upplýsingar um, að ofstækisfullir andstæðingar Jeltsíns rækju áróður fyrir hryðjuverkum og tilræðum við ráðamenn. Kvað hann ekki útilok- að, að til blóðsúthellinga kæmi en sagði herinn óskiptan með Jeltsín. ÚTGJÖLD franskra fjölskyldna vegna heilsugæslu tífölduðust hvorki meira né minna á 12 árum, frá 1979 til 1991. Kom þetta fram hjá frönsku hagstof- unni í gær en nú fara 12,2% af útgjöldum franskra heimila í þennan kostnað. í skýrslu hagstofunnar segir, að hugsanlega megi skýra útgjalda- sprenginguna að nokkru með því, að almenningur leggur nú meiri áherslu en áður á alls konar for- varnir og það virðist svo aftur hafa valdið því, að innlögnum á sjúkra- hús fækkaði á fyrrnefndum tíma. Hagstofan telur hins vegar, að það stefni í að franskar fjölskyldur fari með 17-19% útgjalda sinna í heilsu- .gæsluna verði ekkert að gert. Útgjaldavöxturinn í heilbrigðis- kerfinu, fjölgun aldraðs fólks og atvinnuleysi hafa lagst á eitt um að valda gífurlegum halla á franska sjúkratryggingakerfinu og hafa stjórnvöld því boðað verulegan nið- urskurð í þessum málaflokki. í yfirlýsingu stjórnarinnar sagði, að þingmenn og starfsmenn þeirra hefðu frest til mánudags til að af- henda vopn sín og koma sér burt úr þinghúsinu. Voru þeir varaðir við „alvarlegum afleiðingum" þess að óhlýðnast skipuninni. Nokkru áður hafði Albert Makashov upp- gjafahershöfðingi, sem stjórnar sjálfboðaliðasveitum þingsins, sagt, að menn sínir mundu grípa til vopna kæmu hermenn rússneska innan- ríkisráðuneytisins of nálægt þing- húsinu. Rússneskur lögreglumaður lést í fyrrinótt vegna meiðsla, sem hann hlaut þegar hann varð undir bíl í átökum við stuðningsmenn þings- ins. Hafa þá alls þrír menn látið lífið í átökum eftir að Jeltsín leysti upp þingið. Síberíumenn hafa í hótunum Leiðtogar og frammámenn í 14 héruðum í Síberíu hótuðu í gær að stofna til sjálfstæðs lýðveldis innan John Smith, leiðtogi breska Verkamannaflokksins, fagnar mikilvægum sigri Verulega losað um tengsl flokks- ins við verkalýðshreyfinguna Brighton. Reuter. JOHN Smith, leiðtogi breska Verkamannaflokksins, vann nauman en mikilvægan sigur á ársþingi flokksins í Brighton í gær þegar samþykkt var að losa verulega um tengsl flokksins og verkalýðs- hreyfingarinnar. Hingað til hafa verkalýðsfélögin sem stofnanir ráðið mestu um skipan framboðslista flokksins í kosningum en hér eftir gildir reglan einn maður, eitt atkvæði. Smith lagði allt að veði í þessu máli. Verkamannaflokkurinn hefur tapað fernum kosningum, verið í stjórnarandstöðu í 14 ár, en skoð- anakannanir sýna, að miðstéttar- fólk, einkum í Suður-Englandi, hefur vara á sér vegna tengsla hans við verkalýðshreyfinguna. Lykill að landsstjórninni Smith lagði á það áherslu í máli sínu á flokksþinginu, að tengsl flokksins við verkalýðs- hreyfinguna yrðu áfram mikil þótt teknir yrðu upp lýðræðislegri hættir við val á frambjóðendum en það var þó John Prescott, talsmað- ur Verkamanna- flokksins í sam- göngumálum, sem tók af skarið um það, sem í húfi væri. Það væri einfaldlega hvort flokkurinn kæmist nokkurn tíma í stjórn. „Við skulum átta okkur á því, að með þessari umræðu er fylgst um allt Bretland,“ sagði hann við mikil fagnaðarlæti. Verkalýðsfélögin verða þó áfram valdamikil innan Verka- mannaflokksins. Þau ráða þriðj- ungi atkvæða í leiðtogakjöri, 70% atkvæða á flokksþingi og hafa 12 af 29 mönnum í stefnuskrár- nefnd flokksins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.