Morgunblaðið - 30.09.1993, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 30.09.1993, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1993 5 Sauðfjárslátrun í A-Húnavatnssýslu Fallþungi dilka meiri en í fyrra Blönduósi. í SLÁTURHÚSI Sölufélags Aust- ur-Húnvetninga er áætlað að slátra 30.100 fjár á þessu hausti. Slátrun hófst 15. september og var búið að slátra 8.850 dilkum I lok vikunar. Meðalfallþungi dilkanna reyndist vera 15,20 kg þurrvigt sem er 0,6 kg meira en í fyrra. Gísli Garðarsson sláturhússtjóri á Blönduósi sagði í samtali við Morgunblaðið að dilkarnir væru feitari í ár og því flokkaðist meira af kjötinu í B-flokk heldur en í fyrra og munar þar 5-6%. Gísli sagði ennfremur að töluverður munur væri á flokkun fallanna eftir upp- runa og án nokkurs vafa þá flokk- aðist Strandaféð best. En á undan- förnum árum hefur verið keypt mikið af fé inn í héraðið því bænd- ur hafa verið að endurnýja fjár- stofninn eftir riðuveiki og er því aðkeypti fjárstofninn orðinn nokkuð stór hluti heildarijárstofnsihs í A- Húnavatnssýslu. Slátrun lýkur 21. október Gísli sagði að slátrað væri 1.200 kindum á dag og væri það mikill munur frá því þegar mest var árið 1979 en þá var slátrað alls um 70.000 fjár og 2.400 kindum á dag. Gísli Garðarson sagði ennfrem- ur að ef allt gengi samkvæmt áætl- un þá myndi sauðíjárslátrun ljúka um 21. október. Jón Sig. -----♦—♦—♦—*-- Lagning Ólafsvíkurvegar Borgarverk átti lægsta tilboðið BORGARVERK hf. í Reykjavík átti lægsta tilboð í lagningu á 8,4 kílómetra löngum kafla á Ólafs- víkurvegi. Tilboð Borgarverks var 74% af kostnaðaráætlun Vegagerðar ríkisins. Um er að ræða vegarkafla frá Reiðhömrum að Staðará. Kostnað- aráætlun Vegagerðarinnar var 47.159.000 krónur en tilboð Borg- arverks var 34.853.000 krónur. Fjögur tilboð hljóðuðu upp á rúmar 35 milljónir króna, frá Jarðefni hf. í Reykjavík, Kolla hf. Stykkishólmi, Jörva hf. á Hvanneyri og Steingrími Þórarinssyni í Reykjavík. Hæsta tilboðið var rúmar 65 milljónir. -----♦—♦—♦---- Lausn verði fundin fyrir hestamenn BORGARRÁÐ samþykkir að hvetja Vegagerð ríkisins til að finna nú þegar lausn á umferð hestamanna milli hesthúsahverfa Fáks og Harðar. í samþykkt borgarráðs segir, að samkvæmt aðalskipulagi Reykja- víkur eigi að vera undirgöng undir Vesturlandsveg fyrir hestamenn, enda sé það algjör nauðsyn út frá umferðaröryggismálum miðað við sívaxandi fjölda hestamanna á þessu svæði. Þá segir, „Vegagerð- inni ber að vinna samkvæmt aðal- skipulagi og í nánu samráði við Borgarskipulag og umferðardeild borgarinnar, það er því ótækt að Vegagerðin loki núverandi reiðvegi um Grafargil með uppfyllingu, öll- um að óvörum.“ ÞAÐ ER BJART YFIR... Nissan síbreytiskipting (N.CVTJ Háþróuö sjálfskipting N.CVT Háþróuö Nissan sjálfskipting meö tölvustýröri kúplingu, sem gefur mjúkt þrepalaust viöbragö. Býöur uppá einstaka sparneytni og fyrirhafnarlausan akstur. ..NYJA BILNUM FRA NISSAN ÞETTA ER AUÐVITAÐ BILL ARSINS 1993, GLÆIMYR OG SPRÆKUR STÓRSÝNING UM HELGINA FRÁ KL. 14 -17 VERIÐ VELKQMIN. Ingvar Helgason hf. Sævarhöföi 2,112 Reykjavík Sími674000 VERÐ AÐEINS 855.000.- KR. STGR. Fólk með viti les smáa letrið og notar öryggisbeltin alltaf

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.